Morgunblaðið - 09.01.2001, Page 33
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 33
BJARNI Gissurarson líkti góðri
konu við sólina. Hið sama gerir
Björn Guðni í kvæð-
inu Lífs míns sól. Það
er jafnframt játninga-
róður þar sem skáldið
kannast við að sér
hafi skrikað fótur á
gæfuleiðinni með
þeim afleiðingum að
»hjartans innsta þrá-
in kól.« En öll él birt-
ir upp um síðir eins
og máltækið segir. Og
þeim mun betur
kunni skáldið að meta
birtu og yl ljósgjafans
þegar erfiðleikarnir
voru að baki. Engu að
síður eru kvæði
Björns Guðna laus
við trega og eftirsjá.
Þau lýsa fremur
atorku og eindregnum vilja til að
takast á við lífið.
Björn Guðni skrifar eins konar
eftirmála sem prentaður er aftan á
kápu. Þar skýrir hann stuttlega
frá uppruna sínum; kveðst hafa al-
ist upp með hagyrðingum og þá
strax hafi kviknað með sér áhugi á
ferskeytlunni. Hann gefur og í
skyn að kvæði sín séu ekki aðeins
ætluð til skemmtunar heldur líka
til umhugsunar.
Óþarft er að taka fram að kvæði
Björns Guðna eru ort með rími og
ljóðstöfum og öllum þeim kröfum
sem hefðbundinn kveðskapur út-
heimtir. Skáldið virðir bragregl-
urnar og fylgir þeim dyggilega.
Ferskeytlan, sem hann nefnir í
eftirmála, setur þó lítinn svip á
bókina. Björn Guðni hefur metnað
til að takast á við stærri verkefni.
Kvæðin eru ort undir ýmsum
bragarháttum og flest löng. Yrk-
isefnin eru af ýmsu tagi. Skáldið
hugsar til sögunnar, lífsins og til-
verunnar og hefur áhyggjur af ör-
lögum móðurmálsins. Björn Guðni
kveður skýrt að orði. Og tæpi-
tungulaust. Þá er líka síður að
vænta lipurðar og léttleika. En
hvað er að vera hagmæltur? Í því
felst ekki aðeins að
finna orð sem rímar á
móti orði. Rímorðin
mega ekki vera svo
langsótt að textinn
líkist ekki eðlilegu
mæltu máli. Ennfrem-
ur þarf að huga að
blæbrigðum orðanna
ekki síður en grófri
merkingu. Það verður
helst að kveðskap
Björns Guðna fundið
að honum tekst misvel
að leyna erfiði sínu.
Rímið hefur of mikil
áhrif á orðavalið.
Langbest tekst honum
upp í einföldum nátt-
úrulýsingum, t.d. í
kvæðinu Bær þar sem
hann hugsar til bernskunnar í
sveitinni. Þar er meðal annars
þetta erindi:
Þetta allt ég þekki vel
þar í huga löngum dvel,
ljúfir ætíð endurfundir
átti ég þar margar stundir,
barn að leik með legg og skel,
í lautu grænni ásnum undir
út við gróðursnauðan mel.
Að mínum dómi hefði Björn
Guðni mátt rækja ferskeytluna
betur en láta stóru verkefnin bíða
hentugri tíma. En honum er mikið
niðri fyrir. Í kvæðinu Íslensk
tunga beinir hann réttlátri reiði
sinni að þeim sem níðast á móð-
urmálinu. Kvæðið hefst með þess-
ari ljóðlínu: »Hnignun í talmáli
veldur mér ómældum ótta …« Síð-
ar í kvæðinu skírskotar hann til
slanguryrða sem fara vægast sagt
illa í íslensku máli. Hugvekjan er
sannarlega tímabær.
Kvæði Björns Guðna sanna að
íslensk kveðskaparhefð lifir enn
með hluta þjóðarinnar. Sum kvæði
hans hefðu eins getað verið ort
snemma á öldinni sem leið. Fer-
skeytlan, sem er aðeins einn hinna
gömlu rímnahátta, á sér enn
sterka lífsvon. Hvað komandi öld
ber í skauti sér? Því getur hvorki
Björn Guðni né nokkur annar
svarað. En hann gerir sitt besta til
að halda í arfleifð bundins máls.
Hugsjón og
hagmælska
BÆKUR
K v æ ð i
Eftir Björn Guðna Guðjónsson.
59 bls. Prentun:
Svansprent. 2000.
LÍFS MÍNS SÓL
Erlendur Jónsson
Björn Guðni
Guðjónsson
BÓKAÚTGÁFAN Bjartur hefur
gert samning um útgáfu á bók
Þorvaldar Þorsteinssonar, Ég
heiti Blíðfinnur en þú mátt kalla
mig Bóbó, við spænska bókafor-
lagið Siruela sem hefur höfuð-
stöðvar í Madríd.
Ætlunin er að gefa bókina út í
flokknum „Tres Edades“ eða
„Þrjú ríki“ en það er bókaflokkur
á Spáni hugsaður fyrir aldurs-
hópinn 8–88 ára. Í þessum flokki
hafa verið gefnir út fjölmargir
kunnir höfundar og mun Þorvald-
ur m.a. vera
þar meðal rit-
höfundanna Jo-
steins Gaard-
ers, Magnusar
Enzensbergers
og Carol Hugh-
es.
„Útgáfustjóri
Siruela hafði á
orði í samn-
ingaviðræðum
við Bjart að Blíðfinnur bæri
sterka persónu sem hann væri
sannfærður um að yrði fagnað af
spænskum lesendum. Auk þess
væri þetta afbragðs leið til að
kynna Ísland og íslenskar bók-
menntir þar í landi,“ segir í frétt
frá Bjarti.
Sagan af Blíðfinni mun koma
fyrir augu Spánverja í þýðingu
síðla næsta árs. Bókin hefur einn-
ig verið seld til Rosinante í Dan-
mörku og Bertelsmann í Þýska-
landi en auk þess standa nú yfir
samningaviðræður við grískt for-
lag um útgáfu.
Þorvaldur
Þorsteinsson
Blíðfinnur til Spánar
NÚ stendur yfir málverkasýning
Reynis Katrínarsonar í Heilsugarði
Gauja litla, Brautarholti 8.
Reynir lauk námi við Myndlistar-
skóla Íslands árið 1980 og hefur
haldið fjölda einkasýninga hérlendis
sem og erlendis.
Sýningin verður opin til 1. mars.
Málverka-
sýning í
Heilsu-
garðinum
Kringlunni, sími 588 0079
ÚTSALAN
hefst í dag kl. 10.00
ÚTSALAN
hefst kl. 9.00
VELTUSUNDI V/INGÓLFSTORG SÍMI 552 1212 SUÐURLANDSBRAUT 54,(BLÁA HÚSIÐ Á MÓTI SUBWAY).
SÍMI 533 3109