Morgunblaðið - 09.01.2001, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 09.01.2001, Qupperneq 42
MINNINGAR 42 ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Sími 562 0200 Erfisdrykkjur Um hádegisbil síð- asta dags aldarinnar lést hún amma okkar í Sjúkrahúsi Reykjavík- ur í Fossvogi eftir stutt veikindi, en það var í fyrsta skipti í tæp 100 ár sem sú gamla útvegaði heilbrigðisþjónustunni í landinu eitt- hvað að gera. Það var einmitt dæmigert fyrir ömmu. Hún var alltaf einhvern veg- inn meira að hafa fyrir okkur og öðr- um en hún lét hafa fyrir sér. Við þekktum ömmu aðeins lítinn hluta af ævi hennar og eitt af því fyrsta sem við munum eftir er þegar hún kenndi okkur mannganginn. Hún hafði mjög gaman af öllum spil- um og fórum við oft með henni í Gúttó að spila félagsvist, auk þess að oft var setið heima og lagður kapall, eða spil- aður „Manni“ eða „Rússi“. Einnig fóru ófáar stundir í Lesbók Moggans en þar var fastur liður í hverri viku. Nefnilega krossgátan. Ómissandi var flatkökubaksturinn á hverju hausti auk þess sem fjöl- skyldan hittist öll á hverjum jóladegi á Hverfisgötunni og alltaf stækkaði hópurinn. Það er svolítið skrítið að amma á Hverfó skuli vera horfin því þarna stóðu dyrnar alltaf opnar fyrir alla þá er inn vildu. Og þannig hefur það allt- af verið. Hún prjónaði flíkur á hálfan Hafnarfjörð og prjónaði hún síðustu lopapeysuna rétt fyrir jólin. Einnig var mikill gestagangur hjá henni og bjuggu ófáir í húsinu hennar og afa um lengri og skemmri tíma. Amma tók virkan þátt í uppeldi okkar barnabarnanna og sú stað- reynd að hún fór aldrei og sótti hrísl- una, þótt stundum hefði verið full ástæða til, lýsir því hversu góð hún SIGRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR ✝ Matthildur Sig-ríður Magnús- dóttir fæddist á Gilj- um í Mýrdal, V-Skaftafellssýslu 14. nóvember 1901. Hún lést 31. desemb- er síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Hafnarfjarðar- kirkju 5. janúar. var við okkur og sótt- umst við alltaf í að vera hjá henni. Seinna þegar við fór- um að koma með börnin okkar til hennar voru þau alltaf svo góð og fal- leg alveg sama hversu stillt þau voru. Reyndar átti hún einstaklega auðvelt með öll sam- skipti við börn því alltaf dugði henni að horfa í augun á þeim ef þau voru með einhver læti. Við söknum hennar sárt. Hallfríður, Páll, Emil og Ásgeir. Ég var nítján ára þegar fyrsti son- ur minn fæddist. Móðir hans, Guðrún Pálsdóttir, var aðeins átján ára svo bæði vorum við ung og óreynd. Guð- rún bjó hjá foreldrum sínum þeim Páli Hjörleifssyni og Sigríði Magn- úsdóttur. Ég hafði að sjálfsögðu kynnst þessum afbragðshjónum þótt föst kynni okkar Guðrúnar yrðu ekki löng. Það fór þannig að Ragnar sonur okkar var alinn upp af Páli og Sigríði eftir að Guðrún fór að heiman svo að heimsóknir mínar til Ragnars voru ávallt á heimili þeirra hjóna á Hverf- isgötu 46 Hafnarfirði. Páll hafði verið sjómaður lengst af en þegar hann kom í land fór hann að vinna við fiskvinnslu í landi. Páll var hár og þrekinn. Hann var þögull og hógvær maður en athugull og var mér sagt að hann hafi verið mikill atorkumaður til vinnu, ósérhlífinn og hjálpsamur. Páll lést um nírætt og man ég eftir því hvað Ragnar tók það nærri sér sem von var. Sigríður var vel þekkt fyrir sínar prjónavörur sem hún vann heima og svo vinsælar voru flíkur hennar að hún hafði sjaldan undan. Þegar hún hætti að vinna á vélar sínar prjónaði hún í höndunum og var ávallt að. Síð- asta peysan var kláruð rétt fyrir jól fyrir Hafdísi langömmubarnið dóttur Ragnars. Sigríður var ótrúlega vel gerð kona. Sérlega gaman var að tala við hana um öll heimsins mál. Alls staðar var hún heima og skipti engu máli þótt árin færðust yfir hana hún var alltaf skörp og hafði skoðanir á flestu. Hún var hæg og ljúf en ákveðin. Hægt er að segja að hún hafi verið sjálfmenntaður ættfræðingur. Hún vissi deili á flestu fólki svo að með ólíkindum var. Mér var sagt að þegar hún lá nú síðast á spítalanum hafi hún verið búin að vita um allar ættir þess hjúkrunarfólks sem annaðist hana. Hún var snillingur í að ráða kross- gátur og dró ekkert úr þeirri snilli með aldrinum. Sigríður hafði mjög ákveðnar pólitískar skoðanir. Hún var hafnfirsk alþýðuflokkskona af gamla skólanum og mikill baráttu- maður fyrir bættum kjörum þeirra sem minna máttu sín í þjóðfélaginu. Það var mikið gaman að ræða við hana um pólitík. Með sanni má segja að Sigríður og Páll hafi verið alþýðufólk í fyllstu merkingu þess orðs. Þau voru af gamla skólanum, nægjusöm, ósérhlíf- in, hjálpsöm og vinnusöm. Þessir eig- inleikar voru og eru kjölfesta þessa þjóðfélags. Þau voru hvunndags- hetjur sem því miður njóta sjaldan viðurkenndingar. Ég er þeim Sigríði og Páli innilega þakklátur fyrir að ala upp drenginn minn. Hann fékk að mínu mati besta uppeldi sem hægt var að fá. Hann fékk ómældan kærleika og um- hyggju. Honum voru kenndar þær al- þýðlegu dyggðir sem áður eru nefnd- ar og býr hann að þeim enda sjálfur ósérhlífinn, harðduglegur og hjálp- samur með afbrigðum. Ekki var sjálf- gefið að mér væri tekið af þeim eins og raun bar vitni. En aldrei fékk ég annað er ljúfmannlegt viðmót, hlýju og skilning á þeim aðstæðum sem urðu til, sem raunar urðu öllum til gæfu og gleði. Sigríður mín. Við vorum ef til vill ekki alltaf sammála um eilífðarmálin en núna veist þú það sem ég veit ekki og ég trúi að þú og Páll séuð aftur saman sem áður og er það gott. Ég sakna þess mest núna að hafa ekki haft meira samneyti við þig í lifanda lífi en ég get bætt úr því þegar ég kem heim. Gullý, Raggi minn og Lára, Biggi og Hafdís, Matthildur, Friðrik, Jói litli og Lára Rós. Þið eigið öll arfleifð í stórkostlegri konu og minningar sem eru mikils virði og aldrei fyrnast. Guð blessi minningu Sigríðar Magnús- dóttur. Guðlaugur Bergmann. Sögufrægasti dalur sem ég hef komið í er Hvolsdalur. Stórfeng- lega fagur tengir hann með Svínadal Hvammsfjörð við Gilsfjörð þar sem langþráð brú hefur loks fært falleg- an Króksfjörðinn að bæjardyrum Saurbæinga. Saurbær er hreppur sem skartar án efa einu fegursta fjallahéraði landsins, stórkostlegum fjörðum, lax- og silungsám og ná- grönnum eins og náttúruperlum Hvammsveitar, Barðastrandarsýslu og Breiðafjarðareyja. Út frá þessum magnaða dal ganga fjölmargir aðrir og er Hvítidalur þar með en þar fæddist Sigurjón, minn góði kunn- ingi, sem ég verð vissulega ekki einn um að sakna. Það getur ekki farið hjá að svo mikilfenglegt umhverfi sem Hvolsdalur og nágrenni móti mannsálirnar og svo mun Sigurjóni hafa farið, enda bjó hann þar alla sína ævi. Þessum góða dreng lá ekk- ert á að göslast í gegnum lífið með stressi og látum, hann naut þess ein- faldlega á sinn hógværa og látlausa SIGURJÓN FANN- DAL TORFASON ✝ Sigurjón Fann-dal Torfason fæddist í Hvítadal í Saurbæ í Dalasýslu 7. febrúar árið 1926. Hann lést á Land- spítalanum við Hringbraut 22. nóv- ember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Staðarhóls- kirkju í Saurbæ 2. desember hátt. Allt umhverfis okkur er fólk sem böðl- ast með offorsi gegnum lífið og ætlar svo sann- arlega ekki að missa af neinu. Gönuhlaup slík lét Sigurjón ekki raska ró sinni og sigldi innan skerja sæll og glaður. Í hans augum voru auð- æfin fólgin í fólkinu sjálfu. Maður er manns gaman var hans lífssýn. Hann var maður orðs og skilnings og naut sín best í viðræðum og var hæfileikum hans á því sviði við brugðið. Sigurjón bjó yfir góðlátlegum húmor og hafði það í sér að glæða tilveruna glettinni lífsgleði. Hann var ríkur af því sem svo marga sárlega vantar, það er innri gleði. Einn af sonum mínum var í bernsku sumarlangt hjá Sigurjóni og hefur síðan oft haft á orði mannkosti hans. Minnisstæðar eru mér við- ræðustundir okkar Sigurjóns og hvað frásagnargáfa hans var heillandi. Af innri ljóma þessa góða drengs gátu margir lært. Hann fegr- aði hinn andlega garð sem svo marg- ir ýta til hliðar fyrir fánýta peninga- hyggju. Sigurjón var lítillátur maður og hafði ekki áhyggur af því hvort aðrir væru honum ríkari. Hans innri maður var vissulega vel gerður frá náttúrunnar hendi og fann ég til tómleika við fráfall hans. Það munu margir sakna vinar í stað og veit ég að vini mínum Eysteini í Bersatungu er fráhvarf Sigurjóns mikið áfall. Sigurjón var sannkallað náttúrubarn og minnir í mörgu á Stefán frænda sinn sem kvað: Langt til veggja, heiðið hátt. Hugann eggja bröttu sporin. Hefði ég tveggja manna mátt, mundi ég leggjast út á vorin. Vinátta og velvild eru mannsins bestu eiginleikar og er góður vinur Guðs gjöf. Sigurjón var eiginlega allra vinur. Líka þeirra sem ekki gerðu sér það ljóst. Nú þegar misrétti og spilling fara ört vaxandi, gerir maður sér betur ljóst hve góðmenni á borð við það sem Sigurjón var, eru mikil gersemi fyrir samfélagið. Mér kemur í hug fyrsta erindi í frægu þakkarljóði Hjálmars Jónssonar frá Bólu. Víða til þess vott ég fann, þótt venjist oftar hinu, að Guð á margan gimstein þann, sem glóir í mannsorpinu. Það verður tómlegra í Hvolsdaln- um án Sigurjóns, en sárast Elsu og Torfa sem ég sendi mínar bestu kveðjur. Albert Jensen.                                !        ! "#                                         !     "#     "$$%          !" #!  ! $! ""    % &  ' (  )                     !"# $% ""&" $% "" '"( "&"       !" "#                             $"! $"!%! % &"!'                                           !!    !" ## $%       &                                                          "   # $  %      &' "     ( )   * ( &' )  $  %      &' " +                                         ! "! #   $% !  #%&&!'
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.