Morgunblaðið - 09.01.2001, Side 46

Morgunblaðið - 09.01.2001, Side 46
UMRÆÐAN 46 ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Í áramótaþætti Egils Helgasonar á Skjá ein- um lét ég þau orð falla að ég hefði áhyggjur af því að stór hluti þjóð- arinnar væri sinnulaus um þjóðmál og að þeir sömu væru ginnkeypt- ari fyrir hömlulausum áróðri hagsmunaaðila og peningaafla en aðr- ir. Ég nefndi ungt fólk sérstaklega í þessu sambandi. Í Morgun- blaðinu 4. janúar birtist ,,Viðhorf“ Kristjáns G. Arngrímssonar þar sem hann vísar til um- mæla minna og færir rök fyrir þeirri skoðun sinni að til- gangur lífsins sé leitin að hamingj- unni og að hamingjan hafi mest lítið með pólitíkina að gera, heldur eigi hver og einn að rækta sinn garð. Kristján leiðir fram helstu hugsuði mannkynssögunnar máli sínu til stuðnings, þá Aristóteles, Sókrates og John Stuart Mill. Er lýðræðið virkt? Vissulega getur fólk verið fullkom- lega hamingjusamt án þess að hafa minnsta áhuga á þjóðmálum – og ég vona að sem flestir séu það. Ég er ekkert að gagnrýna eftirsókn fólks eftir veraldlegum gæðum, ég vil að menn rækti garðinn sinn og ég held því ekki fram að áhugi á þjóðmálum sé einhver nautn öðrum nautnum ,,æðri“. Ég velti því hins vegar fyrir mér hversu virkt lýðræðið í landinu getur verið, ef stærstur hluti þjóðarinnar er í þeirri hamingjuleit sem Kristján lýsir, en lætur sig þjóðmálin litlu varða. Ég hef áhyggjur af því að þeim fari ört fjölgandi, sérstaklega meðal ungs fólks, sem alls ekki fylgj- ast með mikilvægum málefnum sam- félagsins og eru þess vegna engan veginn í stakk búnir til að taka af- stöðu, hvorki til manna né málefna, sem máli skipta fyrir heildina. Þetta skapar jarðveg fyrir loddarahátt og óhæfileg áhrif áróðurs og auglýs- inga, sem iðulega eru kostuð og knú- in fram af fjársterkum sérhags- munahópum, sem vilja stýra málefnum samfélagsins – ekki í al- menningsþágu, heldur í þágu sinna eigin sérhagsmuna. Í þeirri viður- eign dugir hamingju- leitin skammt. Hamingja fyrir heildina Sinnuleysið sem ég nefndi er eðlileg afleið- ing firringar nútímans; fólk glatar heildarsýn vegna stöðugs áreitis sem enginn kemst und- an. Mér virtist Matthías Johannessen ritstjóri vera að viðra sömu hugsun í sínu síðasta Reykjavíkurbréfi, þar sem hann lýsir því hvernig samfélagið er að sundrast í markhópa fyrir fjölmiðla og auglýsendur. Þjóð- málin snúast um heill og hamingju heildarinnar – þjóðarinnar fremur en einstaklingsins. Er hægt að tala um að sjálfstæðisbarátta Íslendinga hafi verið ein samfelld hamingjuleit þeirra hugsjónamanna sem fyrir henni stóðu? Aldamótamennirnir voru ekki einungis að leita að ham- ingju sjálfum sér til handa heldur höfðu þeir óbilandi metnað til að vinna þjóð sinni gagn. Þeim var það betur ljóst en Kristjáni að stjórnmál eru lífið sjálft, eins og Frakkar hafa löngum haft að orðtæki. Sinnuleysi um hlutskipti þeirra sem troðast und- ir í sókn hinna eftir hamingju og alls- nægtum er hættulegt fyrir það sam- félag sem ég vil búa í og berjast fyrir. Viðhorf – andsvar Margrét K. Sverrisdóttir Höfundur er framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins. Hamingja Aldamótamennirnir voru ekki einungis að leita að hamingju sjálfum sér til handa, segir Margrét K. Sverrisdóttir, heldur höfðu þeir óbilandi metnað til að vinna þjóð sinni gagn. Gullsmiðir hefst 10. janúar nk. Kvöld- og helgarnám. Upplýsingar og innritun í síma 897 2350 og 511 1085 virka daga kl. 13—17. Nuddskóli Guðmundar, Hólmaslóð 4, Reykjavík. NUDDNÁM HLÍÐASMÁRI 1 OG 3 – TIL LEIGU Á einum besta stað í Smáranum er til leigu glæsilegt 8.000 fm verslunar- og skrif- stofuhúsnæði í tveimur fimm hæða lyftuhúsum á hornlóð við Smáralind. Um er að ræða Hlíðasmára 1, ca 3.700 fm, og Hlíðasmára 3, ca 4.400 fm, ásamt tengingu milli húsa. Grunnflötur hæða frá 450 til 1.150 fm. Mjög góð aðkoma. 260 bílastæði. Eignin afhendist fullbúin að utan, sameign fullbúin innan sem og utan, lóð fullbúin og malbikuð bílastæði. Frábær framtíðarstaðsetning. Byggingaraðili Byggir ehf. Valhöll – sími 588 4477 Eignamiðlun – sími 588 9090 Byggir ehf. – sími 848 2769 MIG langar til að svara grein Óskar Harrýs sem birtist í Morgunblaðinu undir fyrirsögninni „Í góðum höndum“ þann 22. september síðastliðinn. Í greininni skrifar Ósk um samþykkta og ósamþykkta snyrti- skóla og tekur sérstak- lega fram að Fjöl- brautaskólinn í Breiðholti sé eini skól- inn á landinu sem hefur lögmæta viðurkenn- ingu frá menntamála- ráðuneytinu. Það mun hafa verið rétt hjá Ósk á þeim tímapunkti, en strax í byrjun október bættist Snyrtiskóli Íslands í hóp samþykktra snyrtiskóla þegar hann fékk löggildingu menntamála- ráðuneytisins. Þess má einnig geta að nám við Snyrtiskóla Íslands er að fullu námslánahæft og hefur sam- þykki LÍN fyrir námslánum. Ég tek heilshugar undir það með Ósk að það er ávallt varhugavert þegar fólk tekur að sér að með- höndla aðra og selja vinnu sína án þess þó að hafa menntun eða kunn- áttu til. Slíkt kann aldrei góðri lukku að stýra. Þó ber að hafa í huga að vissulega getur verið fræðandi og jafnframt spennandi fyrir áhuga- sama að kynna sér nýjungar og not- færa sér þannig stutt námskeið sem undirbúning fyrir frek- ara nám þegar viðkom- andi hefur fengið nasa- sjón um hvað málið snýst. Alltaf skal þó minnast mikilvægi þess að fá greinargóð- ar upplýsingar um hvar sá sem kennir námskeiðið hefur feng- ið sinn lærdóm og hversu mikla reynslu hann hefur í faginu. Fyrir hinn hefð- bundna viðskiptavin, sem pantar sér tíma á snyrtistofu, er leikur einn að komast að því hvort viðkomandi með- ferðaraðili sé með réttindi sem snyrtifræðingur, en snyrtifræðin er löggilt iðngrein. Auðveldast er að spyrja viðkom- andi meðferðaraðila hreint út og fá að sjá sveinsbréf, meistarabréf eða annan vitnisburð, sem alltaf ætti að vera sýnilegur viðskiptavinum. Á slíkum vitnisburði sést ávallt hvar hefur verið lært, hversu lengi námið stóð yfir og hvaða réttindi viðkom- andi hefur öðlast. Mér finnst rík ástæða til að vara fólk við að fara inn á snyrtistofur þar sem fólk úr heilbrigðisgeiranum hef- ur gengið í störf snyrtifræðingsins. Hjúkrunarfólk hefur sérmenntun í að hjúkra og annast veikt og slasað fólk en hefur afskaplega takmarkaða þekkingu á húð og húðmeðhöndlun. Snyrtifræðingar eru hins vegar sérmenntaðir í meðferð húðar og húðgreiningar þar sem að námið stendur og fellur með því hvort snyrtifræðinemar geti húðgreint rétt og leiðbeint viðskiptavinum sín- um um rétta húðumhirðu, vörunotk- un eða fegrunaraðgerðir. Í Snyrtiskóla Íslands er kennd hefðbundin snyrtifræði ásamt öllum nýjustu meðferðarúrræðum sem unnið er með á stofum í dag. Þannig er lögð áhersla á almenna snyrti- fræði, andlitsböð, húðgreiningar, húðhreinsanir, húðslípun, glycolic- sýrumeðferðir, micromeðferðir, nú- tíma handsnyrtingar og fótsnyrting- ar. Að auki eru á námsskránni litanir og plokkanir, augnháraperm- anent og ótal aðferðir við förðun, bæði fyrir daglegt amstur en einnig fyrir ljósmyndatökur auk hátísku- og mikillar förðunar, airbrush og gervineglur. Líkamsmeðferðir eru kenndar og þar ber helst að nefna heildrænt nudd, slökunarmeðferðir, leirmeðferðir, cellómeðferðir og hár- eyðingu en skólinn leggur á það þunga áherslu að hafa öll nýjustu meðferðarúrræði sem eru á boðstól- um í snyrtigeiranum. Í öllum bók- legum greinum sem tengjast snyrti- fræðinni, svo sem sölutækni og sjálfsstyrkingu, heilbrigðisfræði og líffæra- og lífeðlisfræði, erum við með örugga og góða kennara. Mark- mið Snyrtiskóla Íslands er að út- skrifaðir nemendur geti strax hafið störf úti á vinnumarkaðnum, sem nemar í starfsþjálfun, og haft góðan grunn að byggja á. Námið tekur tíu mánuði og kennt er fimm daga vik- unnar frá 09-17 og laugardaga frá 09-13. Ég bendi á að Snyrtiskóli Íslands er hraðferðarskóli þar sem lögð er áhersla á að kenna heildrænt nám í snyrtifræði á sem hentugasta máta og á sem skemmstum tíma. Þannig er námið byggt upp fyrir nútíma- konur sem vilja ná sér í spennandi og haldgóða menntun á stuttum tíma. Í dag gera flestir sér grein fyr- ir því að tíminn er dýrmætur og svo hægt sé að nýta hann sem best er af- ar vænlegt að eiga þess kost að velja hvort viðkomandi vilji fara inn í al- menna menntakerfið og læra snyrti- fræði á þremur árum eða taka námið á tíu mánuðum í skóla sem sérhæfir sig í að útskrifa nemendur inn á at- vinnumarkaðinn með gott sjálfs- traust og góða menntun í farteskinu. Fyrir áhugasama er frekari upp- lýsingar um Snyrtiskóla Íslands að finna á www.snyrting.is Snyrtiskóli Íslands - löggiltur fagskóli Hanna Kristín Diðriksen Fagmenntun Snyrtiskóli Íslands er hraðferðarskóli, segir Hanna Kristín Diðriksen, þar sem lögð er áhersla á að kenna heildrænt nám í snyrtifræði á sem hentugasta máta. Höfundur er snyrtifræðimeistari og skólastjóri Snyrtiskóla Íslands. Flísar og parketBorgartúni 33, Reykjavík • Laufásgötu 9, Akureyri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.