Morgunblaðið - 09.01.2001, Side 47

Morgunblaðið - 09.01.2001, Side 47
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 47  Hvernig væri að framlengja golfsumarið við kjöraðstæður?  Búa á fyrsta flokks strandhótelum í þægilegum hita,  borða góðan mat,  leika golf á 4 góðum golfvöllum. Ferðaskrifstofa Vesturlands býður upp á 10 daga golfferð til Túnis, þar sem ekkert er til sparað til að gera ánægjulega og eftirminnilega ferð. Sagt eftir seinustu ferð: Gestur Sæmundsson, Golfklúbbi Ólafsfjarðar: „Golfvellirnir einstaklega skemmtilegir.“ Hafliði Þórsson, Golfklúbbnum Odda: „Öll þjónusta til fyrirmyndar.“ Haukur Þórisson, Golfklúbbnum Leyni: „Loftslagið ákaflega þægilegt.“ Hörður Þórleifsson, Golfklúbbi Akureyrar: „Maturinn bæði góður og ríkulegur.“ Vilhjálmur Hjálmarsson, Golfklúbbi Reykjavíkur: „Sérlega áhugaverður menningarheimur.“ Brottför 16. febrúar. Fararstjóri er Sigurður Pétursson, golfkennari. Brottför 27. apríl. Fararstjóri er Sigurður Pétursson, golfkennari. Verð kr. 116.800 á mann í tvíbýli að viðbættum flugvallarsköttum, innifelur: Flug, fararstjórn, akstur, gistingu á fyrsta flokks hótelum, hálft fæði, 7 vallargjöld og skoðunarferð til Karþagó. Bókanir og nánari upplýsingar hjá Ferðaskrifstofu Vesturlands í síma 437 2323. Túnis býður ekki aðeins upp á góða golfvelli. Saga og menning, loftslag og staðsetning landsins við Miðjarðarhafsströndina gera Túnis ákaflega spennandi til heimsóknar. G LF í Túnis Sími 437 2323, fax 437 2321. Netfang travest@simnet.is ÞVÍ miður hefur lengi tíðkast að kenn- arar Háskóla Íslands skili einkunnum nem- enda of seint. Slík seinkun kemur illa nið- ur á mörgum stúdent- um. Röskva hefur á undanförnu ári í aukn- um mæli þrýst á kenn- ara að skila einkunn- um á réttum tíma og meðal annars komið á fót sérstakri einkunna- skilaheimasíðu Stúd- entaráðs sem hefur vakið mikla athygli og vakið reiði sumra kennara. Einkunnaskila- heimasíða Samkvæmt reglugerð skólans hafa kennarar 4 vikur eftir haust- próf og 3 vikur eftir vorpróf til að fara yfir úrlausnir nemenda. Þessar reglur hafa því miður verið þver- brotnar og þeim engan veginn nægi- lega vel fylgt eftir af hálfu háskóla- yfirvalda. Stúdentar hafa hins vegar margoft ítrekað kröfur sínar um að þessar reglur séu virtar. Síðastliðið vor setti Röskva fram þá hugmynd að koma einkunnaskil- um kennara á Netið. Í þessum til- gangi var hönnuð sérstök undirsíða heimasíðu Stúdentaráðs þar sem einkunnaskilin voru birt. Síðan vakti mikla athygli, bæði innan Háskólans og í fjölmiðlum. Ljóst var að aukinn þrýsingur hafði myndast á kennara en sumir þeirra fundu þessu fram- taki Röskvu allt til foráttu. Er það miður enda stafa þessar aðgerðir af biturri reynslu stúdenta af slæleg- um einkunnaskilum. Er of mikils krafist af kennurum að þeir fari eft- ir reglum skólans og skili einkunn- um á réttum tíma? Þriðjungi skilað of seint Þegar allar voreinkunnir lágu fyr- ir kom í ljós að þriðjungi einkunna var skilað of seint. Í sumum deildum var ástandið afar slæmt og rúmlega helmingi einkunna skil- að of seint. Ekki má þó gleyma því að stór hluti kennara stendur sig með sóma og skilar ávallt einkunnum á réttum tíma. Það er miður að þeir kennarar sem draga lappirnar í þessum efnum komi óorði á þá sem standa sig vel. Af þessum sök- um ættu kennarar og nemendur að leggjast á eitt um að koma ein- kunnaskilum innan Háskólans í lag. Stúdentar settir í vanda Sein einkunnaskil leiða til ýmissa vandkvæða fyrir stúdenta. Lán frá Lánasjóði íslenskra námsmanna eru ekki greidd fyrr en einkunnir liggja fyrir. Bið eftir einkunnum er því um leið bið eftir lánum fyrir fjölmarga stúdenta. Þá getur orðið töf á braut- skráningu kandídata vegna þess að einkunnaskil dragast á langinn. Þetta er því mikið hagsmunamál stúdenta og óforsvaranlegt af kenn- urum að brjóta skýrar reglur skól- ans með þessum hætti. Röskva mun halda kröfum sínum á lofti og ekki láta deigan síga fyrr en nemendur fá einkunnir á réttum tíma eins og reglur skólans kveða á um. Einkunnir á réttum tíma Þorvarður Tjörvi Ólafsson Höfundur situr í Stúdentaráði Háskóla Íslands fyrir hönd Röskvu. Einkunnagjöf Röskva mun halda kröf- um sínum á lofti, segir Þorvarður Tjörvi Ólafsson, og ekki láta deigan síga fyrr en nem- endur fá einkunnir á réttum tíma. www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.