Morgunblaðið - 09.01.2001, Qupperneq 56
FRÉTTIR
56 ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Alhliða snyrtistofa
sem býður upp á mikla möguleika.
● Snyrtifræðingar
● Förðunarfræðingar
● Naglafræðingar
● Nuddarar
● Fótaaðg.fr.
● Hársnyrting
Upplýsingar í síma 899 8090.
Til sölu úr þrotabúi
blikksmiðju
Til sölu eru blikksmíðavélar og -verkfæri ásamt
nokkrum lager úr þrotabúi KK BlikkSmiðju ehf.
Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Magnússon
hrl., skiptastjóri þrotabúsins, á skrifstofutíma
í síma 561 9505.
HÚSNÆÐI Í BOÐI
Montpellier — Frakkland
Rúmgóð 3ja herb. íbúð (80 fm) til leigu
frá 1. febrúar.
Upplýsingar á kvöldin í síma 552 9345.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Ólafstún 12, Flateyri, þingl. eig. Hjálmur ehf., gerðarbeiðendur Íbúða-
lánasjóður og Ísafjarðarbær, föstudaginn 12. janúar 2001 kl. 10.50.
Ránargata 2, Flateyri, þingl. eig. Kjartan Kristjánsson og Kristján
Jóhannesson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Ísafjarðarbær,
föstudaginn 12. janúar 2001 kl. 11.00.
Verkst.bygg. Skeiði (a.e.), Ísafirði, þingl. eig. Jón og Magnús ehf.,
gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður Vestfirðinga, föstudaginn 12. janúar
2001 kl. 10.00.
Sýslumaðurinn á Ísafirði,
8. janúar 2001.
STYRKIR
Endurmenntun kennara —
val á námskeiðum
Sókrates/Comeníus endurmenntunarnám-
skeið í ESB-löndum fyrir kennara á leik-, grunn-
og framhaldsskólastigi eru að finna á eftirfar-
andi slóð:
(http://europa.eu.int/comm/education/socrates/
comenius/cat2001-2002/en.html).
landsskrifstofa Sókratesar veitir endurmennt-
unarstyrki til kennara.
Vinsamlegast athugið að einungis takmarkaður
fjöldi umsækjanda kemst á hvert námskeið.
Umsóknarfrestur rennur út 1. mars nk.
Nánari upplýsingar í síma 525 4311, rz@hi.is,
www.ask.hi.is .
SMÁAUGLÝSINGAR
KENNSLA
Söngnámskeið
fyrir unga sem
aldna, laglausa
sem lagvísa,
hóptímar/
einkatímar.
Námskeiðin
hefjast 18. janúar.
Sími 699 2676.
Æfingar Regnbogakórsins hefjast
15. janúar kl. 18.00 í Bolholti 4.
FÉLAGSLÍF
FJÖLNIR 6001010919 I
I.O.O.F.Rb.1 150198-
EDDA 6001010919 III
HLÍN 6001010919 VI
Þriðjudagur 9. janúar kl. 20.00
Tunglskinsganga — Blysför á
fullu tungli
Nýju ferðaári fagnað á slóðum
álfa og trölla í Heiðmörk. Mæt-
ing á eigin vegum kl. 20.00 á
áningarstaðinn hjá Hrauntúns-
tjörn (ekið um Rauðhóla). Ekkert
þátttökugjald, blys kr. 300. Kjörin
fjölskylduganga. Sjá heimasíðu
utivist.is (á döfinni) og textavarp
RUV bls. 616.
Kvöldganga á fullu tungli
9. jan. kl. 19.30.
Gengið um Heiðmerkurstíga,
verð 800 kr. Brottför frá BSÍ og
Mörkinni 6.
Myndasýning 10. jan. kl.
20:30. Guðmundur Páll
Ólafsson (höfundur bókar-
innar Hálendið) kynnir nátt-
úru Íslands í máli og mynd-
um. Aðgangseyrir 500 kr., kaffi-
veitingar í hléi. Allir velkomnir.
Herdísarvík 14. jan. kl. 11.00.
Fararstjóri Páll Sigurðsson.
www.fi.is, textavarp RUV bls.
619. S. á skrifstofu 568 2533.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
TIL SÖLU
RAÐAUGLÝSINGAR
sendist á augl@mbl.is
JÓFRÍÐUR Benediktsdótttir,
klæðskera- og kjólameistari, stóð
fyrir þriðja námskeiðinu í Búð-
ardal í þjóðbúningasaum. Þátt-
takendur voru sex og saumuðu
allar peysuföt nema ein sem
saumaði upphlut. Tvær höfðu
verið áður á námskeiði og voru
að sauma fleiri búninga.
Hrefna Ingibergsdóttir, Erla
Karlsdóttir, Ásta Ósk Sigurð-
ardóttir og Guðrún Ingvarsdóttir
saumuðu á sig peysuföt. Kolbrún
Sveinbjörnsdóttir saumaði á dótt-
ur sína, Guðrúnu Hrefnu Guð-
mundsdóttur, peysuföt og Áslaug
Finnsdóttir saumaði á dóttur
sína, Ingibjörgu Jónasdóttur,
upphlut. Þær Guðrún Hrefna og
Ingibjörg ætla að fermast í bún-
ingunum.
Hrefna Ingibergsdóttir, Erla Karlsdóttir, Ásta Ósk Sigurðardóttir, Guð-
rún Hrefna Guðmundsdóttir og Guðrún Ingvarsdóttir skarta nýju
peysufötunum.
Kennsla
í þjóð-
búninga-
saum
VERKALÝÐSFÉLAGIÐ Hlíf hefur
sent frá sér eftirfarandi:
„Fundur í stjórn Verkalýðsfélags-
ins Hlífar, haldinn 29. desember
2000, lýsir yfir ánægju sinni með ný-
uppkveðinn dóm Hæstaréttar í mál-
efnum öryrkja og væntir þess að
stjórnvöld hlíti þeim dómi og tefji
ekki réttmætar greiðslur til þeirra,
en samkvæmt dómi Hæstaréttar
hafa tekjur öryrkja verið skertar
umfram það sem heimilt er í lögum
og beri að leiðrétta það þegar í stað.
Fundurinn telur kjör öryrkja vera
skammarlega léleg og ekki síst bæti
það ástandið að stjórnvöld skuli gera
allt sem í þeirra valdi stendur til að
rýra þau ennþá meira. Verkalýðs-
hreyfingin verður að hafa meiri af-
skipti af málum öryrkja og bein-
tengja þau betur eigin kjarabaráttu.
Heildarsamtök launafólks og aðild-
arfélög þeirra eiga stanslaust að
knýja á stjórnvöld um lagfæringar á
bágum kjörum þessa fólks, bæði með
þrýstingi við gerð kjarasamninga og
stöðugum áróðri þess í milli. Tak-
markið á að vera að kjör öryrkja séu
ekki lakari en þess fólks sem félögin
semja fyrir.
Sama gildir um stóran hóp aldr-
aðra en mikill fjöldi þeirra hefur ein-
ungis opinberan lífeyri til fram-
færslu auk takmarkaðs framlags úr
eigin lífeyrissjóði. Þetta fólk er
tekjulega engu betur sett en öryrkj-
arnir þannig að tryggja verður því
einnig mannsæmandi lágmarkslaun.
Því leggur fundurinn til:
Að opinber elli- og örorkulífeyrir
verði aldrei lægri en almennir launa-
taxtar verkafólks og fylgi launaþró-
un í landinu, að frítekjumark hækki
verulega, að tekjutenging við laun
maka öryrkja og lífeyrisþega verði
afnumin, að elli- og örorkubótaþegar
fái árlega desembergreiðslu og or-
lofsuppbót eins og verkafólk fær
samkvæmt kjarasamningi við at-
vinnurekendur.
Hlíf fagnar dómi
Hæstaréttar
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Aðföng-
um:
„Eins og fram hefur komið í fjöl-
miðlum hefur Heilbrigðiseftirlit
Reykjavíkur gert athugasemdir við
Aðföng þar sem fyrirtækið hefur
ekki farið eftir fyrirmælum reglug.
nr. 236/1990, um flokkun, merkingu
og meðferð eiturefna, hættulegra
efna og vörutegunda sem innihalda
slík efni.
Aðföng hafa af þessu tilefni og í
samráði við Heilbrigðiseftirlitið
ákveðið aðgerðir og betrumbætur á
merkingarkerfi sínu sem munu í
senn auka gæðaeftirlit fyrirtækisins
og tryggja að allar vörur á þess veg-
um séu rétt og löglega merktar.
Vill fyrirtækið með þessu taka
höndum saman við Heilbrigðiseftir-
lit Reykjavíkur og starfsmenn þess í
því átaki sem nú fer fram fyrir rétt-
um vörumerkingum.
Í því skyni munu Aðföng m.a. efla
enn frekar fræðslu til starfsmanna á
þessu sviði í samvinnu við Heilbrigð-
iseftirlit Reykjavíkur. Staðið verður
fyrir námskeiðum um merkingar
fyrir alla starfsmenn sem koma að
innkaupum á merkingarskyldum
vörum á vegum fyrirtækisins.
Ráðgert er að í janúar muni allt
innkaupa- og lykilfólk í verslunum
fara á slíkt námskeið. Námskeið
þetta verður undirbúið af matvæla-
fræðingi og heilbrigðisfulltrúa sem
jafnframt sinna kennslu.
Þá hafa Aðföng tekið í notkun
nýtt og fullkomið merkingarkerfi í
vöruhúsi sínu sem tryggir að allur
eigin innflutningur fyrirtækisins
standist reglugerðir um merkingar
auk þess sem eftirlit inni í vöruhús-
inu sjálfu hefur verið stórbætt.
Sjálfvirkt eftirlitskerfi við vöru-
móttöku gerir Aðföngum kleift að
hafna móttöku ranglega merktrar
vöru. Aðföng munu framvegis neita
móttöku vara frá innlendum birgj-
um, inn í vöruhús sitt, sem ekki upp-
fylla merkingarreglugerðir. Þessu
til áréttingar munu Aðföng senda
öllum sínum birgjum bréf, þar sem
málavextir eru skýrðir, ítrekað mik-
ilvægi góðs samstarfs við heilbrigð-
isyfirvöld í þessum málum og birgj-
um gefinn frestur til 1. febrúar nk.
til að koma öllum sínum merkingar-
málum í lag. Að þeim tíma loknum
munu Aðföng hafna öllum vörum
sem ekki standast merkingarreglu-
gerðir.“
Aðföng hyggjast bæta gæða-
eftirlitskerfi fyrirtækisins
Í yfir hundrað ár hafa Fljótshlíðing-
ar komið saman við Goðaland á
þrettándanum, kveikt þar bálköst
þar sem álfar, púkar, tröll og aðrar
vættir dansa og grípa til ýmissa
uppátækja.
Allir sem vettlingi geta valdið
mæta til brennunnar, taka þátt og
skemmta sér dáindis vel. Fjölda
fólks drífur að úr öllum áttum, af
Reykjavíkursvæðinu og víðar, til að
taka þátt og njóta þessarar góðu
skemmtunar. Sem sjá má eru þátt-
takendur í þrettándafagnaðinum í
Fljótshlíð skrautlegir til fara og á
ýmsum aldri.
Morgunblaðið/Önundur Björnsson
Þrettándabrenna að Goðalandi í Fljótshlíð
Yfir hundrað ára hefð
Fljótshlíð. Morgunblaðið.