Morgunblaðið - 09.01.2001, Qupperneq 62
DAGBÓK
62 ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Arn-
arfell og Goðafoss koma
í dag.
Fréttir
Kattholt. Flóamarkaður
í Kattholti, Stangarhyl
2, opinn þriðjud. og
fimmtud. frá kl. 14–17.
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs. Hamraborg
20a. Fataúthlutun kl.
17–18.
Frímerki. Kristniboðs-
sambandið þiggur með
þökkum alls konar notuð
frímerki, innlend og út-
lend, ný og gömul, klippt
af með spássíu í kring
eða umslagið í heilu lagi.
Útlend smámynt kemur
einnig að notum. Mót-
taka í húsi KFUM og K,
Holtavegi 28, 104
Reykjavík, og hjá Jóni
Oddgeiri Guðmunds-
syni, Glerárgötu 1, Ak-
ureyri.
Mannamót
Aflagrandi 40. Klukkan
9 leirkerasmíði, kl. 13
postulín, kl. 12.30 bað-
þjónusta. Verslunarferð
í Hagkaup Skeifunni á
morgun miðvikdag kl.
10. Kaffi og meðlæti í
boði Hagkaups. Skrán-
ing í afgreiðslu í síma
562-2571.
Árskógar 4. Klukkan 9
bútasaumur og handa-
vinna, danskennsla hefst
í dag, þriðjudaginn 9.
janúar, kl. 9.30, kl. 9–12
bókband, kl. 13 opin
smíðastofan og brids, kl.
10 Íslandsbanki opinn,
kl. 13.30 opið hús, spilað,
teflt ofl., kl. 9 hár- og fót-
snyrtistofur opnar.
Danskennsla hefst
þriðjudaginn 9. janúar
kl. 9.30. TAI CHI-
leikfimin byrjar eftir
jólafrí föstudaginn 12.
janúar kl. 11.
Bólstaðarhlíð 43.
Klukkan 8 hárgreiðsla,
kl. 8.30 böðun, kl. 9–16
handavinna og fótaað-
gerð, kl. 10 sund, kl. 14
dans.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Klukk-
an 9 hárgreiðsla og böð-
un, kl. 10 samverustund,
kl. 14 félagsvist.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Klukkan 8
böðun, kl. 9.30 hjúkr-
unarfræðingur á staðn-
um, kl. 10 hársnyrting,
kl. 13 föndur og handa-
vinna.
Félagstarf aldraðra
Garðabæ. Spilað í
Kirkjulundi 9. janúar kl.
13.30. Spilað á Álftanesi
11 janúar kl. 19.30.
Rútuferðir samkvæmt
venju. Innritun á nám-
skeið og í vinnuhópa í
Kirkjulundi 12. janúar
kl. 13, leirlist, glerlist,
málun, keramik, tré-
skurður, bútasaumur,
spænska, tölvunámskeið
og leikfimi.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Brids og saumar kl.
13.30. Línudans í fyrra-
málið kl. 11.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin virka daga frá kl.
10–13. Matur í hádeginu.
Skák kl. 13.30. Alkort
spilað kl. 13.30. Miðviku-
dagur: Göngu-Hrólfar
fara í létta göngu frá
Glæsibæ kl. 10. Baldvin
Tryggvason verður til
viðtals um fjármál og
leiðbeiningar um þau
mál á skrifstofu FEB
fimmtudaginn 11. janúar
kl. 11–12. Panta þarf
tíma. Hananú – göngu-
hópur Félags eldri borg-
ara í Kópavogi mætir í
Ásgarð í Glæsibæ í boði
Göngu-Hrólfa, laug-
ardaginn 13. janúar kl.
10, hóparnir ætla að eiga
samverustund.
Námskeið í framsögn
hefst mánudaginn 29.
janúar, leiðbeinandi
Bjarni Ingvarsson,
skráning hafin á skrif-
stofu FEB. Silfurlínan
opin á mánudögum og
miðvikudögum frá kl.
10–12. Ath. Af-
greiðslutími skrifstofu
FEB er frá kl. 10–16.
Upplýsingar í síma 588-
2111.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, m.a. perlusaum-
ur, umsjón Kristín
Hjaltadóttir, kl. 13
boccia, veitingar í kaffi-
húsi Gerðubergs. Þriðju-
daginn 6. febrúar hefst
glerskurður, umsjón
Helga Vilmundardóttir.
Allar upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í síma 575-7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Leikfimi kl. 9.05, 9.50 og
10.45, handavinnustofa
opin, leiðbeinandi á
staðnum frá kl. 10–17,
kl. 14 boccia, þriðjudags-
ganga fer frá Gjábakka
kl. 14.
Hvassaleiti 56–58.
Klukkan 9 böðun, fóta-
aðgerðir, leikfimi og
silkimálun, kl. 9.45
bankaþjónusta, kl. 13
handavinna og hár-
greiðsla.
Hraunbær 105. Klukkan
9–16.30 postulínsmálun,
kl. 9–17 fótaaðgerðir, kl.
9–12 glerskurður, kl.
9.45 boccia, kl. 11 leik-
fimi, kl.12.15 versl-
unarferð í Bónus, kl. 13–
16.30 myndlist, kl. 13–17
hárgreiðsla.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Klukkan 9–
16.30 opin vinnustofa,
tréskurður og fleira, kl.
9–17 hárgreiðsla, kl. 10
leikfimi, kl. 12.45 Bón-
usferð.
Norðurbrún 1. Klukkan
9–16 fótaaðgerðastofan
opin, kl. 9–17 hár-
greiðsla, kl. 10–11
boccia, kl. 9–16.45
handavinnustofan opin,
tréskurður.
Vesturgata 7. Klukkan 9
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12
bútasaumur, kl. 9.15–
15.30 handavinna, kl. 11
leikfimi, kl. 13 búta-
saumur og tréútskurður,
kl. 13.30 félagsvist.
Vitatorg. Klukkan 9
smiðjan og hárgreiðsla,
kl. 9.30 glerskurður,
myndlist og morg-
unstund, kl. 10 leikfimi
og fótaaðgerðir, kl. 11
boccia, kl. 13 handmennt
og keramik, kl. 14
félagsvist.
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Spilað í kvöld kl.
19. Allir eldri borgarar
velkomnir.
Félag ábyrgra feðra
heldur fund í Shell-
húsinu, Skerjafirði, á
miðvikudögum kl. 20,
svarað í síma 552-6644 á
fundartíma.
ÍAK. Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi byrjar 11. janúar kl.
11.20 í Digraneskirkju.
Eineltissamtökin halda
fundi á Túngötu 7 á
þriðjudagskvöldum kl.
20.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra. Leik-
fimi í Bláa salnum,
Laugardalshöll, kl. 12.
Sinawik í Reykjavík
heldur fund í kvöld kl. 20
í Sunnusal Hótel Sögu.
Gestur kvöldsins er
Guðrún Óladóttir reiki-
meistari.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Nánari
uppl. á skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Styrkur, samtök
krabbameinssjúklinga
og aðstandenda þeirra.
Opið hús í kvöld kl. 20.30
í Skógarhlíð 8. Arnbjörg
Linda Jóhannsdóttir
flytur erindið „Lífs-
klukkan“. Allir velkomn-
ir.
Styrkur og Ný rödd.
Þorrablót verður haldið
laugardaginn 27. janúar
í Kiwanishúsinu, Engja-
teigi 11. Húsið opnað kl.
19, borðhald hefst kl.
19.30. Miðasala verður
föstudaginn 12. janúar
kl. 17–19 í Skógarhlíð 8.
Takmarkaður fjöldi
miða, miðapantanir í
síma 896-5808.
Hana-nú í Kópavogi
Göngu-Hrólfar bjóða
göngugörpum í Kópa-
vogi í morgungöngu
laugardagsmorgun 13.
janúar og morgunhress-
ingu á eftir í Ásgarði í
Glæsibæ. Rúta frá Gull-
smára kl. 10 og Gjá-
bakka kl. 10.10. Skrán-
ing nauðsynleg fyrir
hádegi 12. janúar í Gjá-
bakka, s. 554-3400 og
Gullsmára, s. 564-5260.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, Hátúni 12. Í
kvöld kl. 20 bingó.
Kvennadeild Flugbjörg-
unarsveitarinnar heldur
fund miðvikudaginn 10.
janúar. Farið verður í
heimsókn til Addis
ferðaskrifstofu. Lagt af
stað frá félagsheimilinu
kl. 20.15.
Í dag er þriðjudagur 9. janúar,
9. dagur ársins 2001. Orð dagsins:
Enn sagði hann við þá: „Gætið að,
hvað þér heyrið. Með þeim mæli,
sem þér mælið, mun yður mælt
verða og við yður bætt.“
(Mark. 4, 24.)
Víkverji skrifar...
LEIÐIN um fjallveginn úr Norð-urárdal í Borgarfirði vestur í
Dali hefur ávallt verið nefnd Bratta-
brekka í daglegu tali þótt vegurinn
hafi ekki legið um hina eiginlegu
Bröttubrekku í sjötíu ár. Hinn varð-
aði vegur lá um Bröttubrekku en
þegar bílvegur var lagður í Dalina á
árunum 1929 til 1932 færðist leiðin
til. Nú liggur vegurinn yfir Bjarnar-
dalsá og fram Miðdal vestan Brekk-
umúla en ekki um Bröttubrekku,
þótt nafnið héldist. Þetta er þekkt
nafn sem ávallt hefur verið notað um
þessa leið í daglegu tali fólks þótt
vakin hafi verið á því athygli á sínum
tíma, að minnsta kosti í grein Þor-
steins Þorsteinssonar sýslumanns í
Árbók Ferðafélagsin 1947, að vegar-
stæðið hafi verið fært af fjalls-
hryggnum sem ber þetta nafn.
Nú hefur verið ákveðið að leggja
nýjan veg yfir Bröttubrekku, að
mestu leyti á sama stað og núverandi
vegur, og vill Vegagerðin breyta
nafninu. „Nýr vegur skal því heita
Vestfjarðavegur um Dalafjall því það
er réttara,“ segir í umfjöllun um veg-
inn í Framkvæmdafréttum Vega-
gerðarinnar.
x x x
ÓMAR Arason, sonur Ara Guð-mundssonar vegaverkstjóra í
Borgarnesi, sem lagði veginn yfir
Bröttubrekku, mótmælti þessari
breytingu í lesendabréfi fyrir nokkr-
um dögum og vakti athygli á því að
örnefnið Dalafjall væri hvergi að
finna. Benti hann á að áður hafi það
gerst að leiðir hafi verið áfram
kenndar við tiltekin örnefni þótt leið-
irnar hafi breyst og nefndi Kambana
og Bólstaðarhlíðarbrekkuna í því
sambandi. Sagði hann að með rökum
Vegagerðarinnar fyrir Dalafjalli, það
er að segja að menn væru á leið í Dal-
ina, mætti alveg eins kalla heiðina
Borgarfjall, fyrir þá sem ættu leið úr
Dölum í Borgarfjörð. Ómar hvatti til
þess að ekki væri flanað að neinu og
fjallvegurinn yrði áfram nefndur
Brattabrekka, þar til nafn fyndist
sem byggðist á réttum örnefnum, ef
mönnum þætti það þá knýjandi að
breyta nafninu.
x x x
ÖRNEFNIÐ Dalafjall sést hvergiá þeim landakortum sem Vík-
verji hefur aðgang að. Dalanafnið á
fjalllendi þarna um slóðir er hins veg-
ar til í fornum nafngiftum, eins og
Árni Björnsson þjóðháttafræðingur
segir frá í Árbók Ferðafélagsins
1997: Í fjallhögum milli Mýra og
Dala. Dalalönd nefndist í Landnámu
svæðið fyrir botni Hvammsfjarðar og
Dalaheiði virðist höfundur Laxdælu
nefna fjallgarð þann sem lykur um
Dalalönd að sunnan og austan. Hann
lætur þess þó getið að suður í Borg-
arfirði hafi leiðin norður um Bröttu-
brekku einnig verið nefnd Dalafjall.
Þá segir Árni frá því á öðrum stað í
bókinni að í sóknarlýsingu frá 19. öld
sjáist þeir dölóttu fjallaklasar sem
liggjan vestan Baulu nefndir Dala-
fjöll.
Eina örnefnið sem virðist vera
hægt að tengja beint við umrædda
leið er forna heitið Dalaheiði en það
nær yfir allan fjallgarðinn sem um-
lykur Dalina að hálfu en sjálfsagt
þykir ekki ráðlagt að kenna leiðina
yfir Bröttubrekku við það.
x x x
VEGAGERÐARMENN segja aðDalamenn séu almennt jákvæð-
ir fyrir því að hætta að nota heitið
Bröttubrekku um leiðina því það
nafn geti virkað fráhrindandi fyrir
ferðafólk. Þá hafi Dalamenn ekki
gert athugasemdir við notkun heit-
isins Dalafjalls um þessa leið.
Víkverji dagsins tekur heils hugar
undir skoðanir Ómars Arasonar og
leggur til að fallið verði frá því að
taka upp þetta Dalafjallsheiti sem
veigalítil rök virðast fyrir. Ekki kem-
ur til greina að búa til ný örnefni af
þeim hvötum sem hér virðast vera að
baki. Leiðin liggur skammt frá fjöll-
unum Baulu og Bana. Mörgum finnst
það asnaleg nöfn. Yrði ekki næsta
skrefið að finna almennileg nöfn á
fjöllin, svo þau trufluðu síður ferða-
fólk?
Bröttubrekkunafnið hefur dugað
ágætlega og ætti að geta gert það
enn um sinn, þar til eitthvert heiti
finnst sem réttara getur talist. Er
hér með auglýst eftir því.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 geðrík, 8 brestir, 9
starfað, 10 ætt, 11 slitna,
13 afkomenda, 15 höfuð-
fats, 18 drengur, 21 kriki,
22 kroppi, 23 vafinn, 24
sljór.
LÓÐRÉTT:
2 skarð milli fjalla, 3
böggul, 4 ásynja, 5 at-
vinnugrein, 6 espar, 7
starf, 12 hef gagn af, 14
greinir, 15 fornafn, 16
mannsnafn, 17 vitur, 18
áfall, 19 borðhaldinu, 20
framkvæma.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 flagg, 4 afber, 7 Leifs, 8 úlfúð, 9 súð, 11 rödd,
13 áran, 14 Íraks, 15 fugl, 17 tólf, 20 ess, 22 riðil, 23 kot-
ið, 24 kenna, 25 penna.
Lóðrétt: 1 falur, 2 aðild, 3 góss, 4 alúð, 5 bifar, 6 rúðan,
10 úrans, 12 díl, 13 ást, 15 fersk, 16 gæðin, 18 óttan, 19
fiðla, 20 elja, 21 skip.
SEM einlægur fylgismaður Sjálf-
stæðisflokksins þau ár sem ég hef
haft kosningarétt, hef ég nú áhyggjur
af flokki mínum. Öryrkjar og efnalítið
fólk er í augum forsætisráðherra
óþurftafólk, og þykir mér nú mælir-
inn fullur, þegar hann vill ekki una
dómi hæstaréttar um leiðréttingu
mála þeirra. Það þýðir ekki að gera
Garðar Sverrisson tortryggilegan.
Afgreiðsla þessa máls er lýðveldinu
Íslandi til skammar.
Við ættum að hugleiða hver kom út
sem mesta eyðslukló landsins á síðast
liðnu ári. Á hvaða leið eru Sjálfstæð-
ismenn?
Erla.
Forsetinn á að blessa
land og þjóð
ÉG var að hlusta á forsetann, þegar
að hann var að flytja nýársávarpið.
Ég er óánægð með að hann biðji ekki
fyrir landi og þjóð, þegar hann ávarp-
ar þjóðina. Samt er hann verndari
kirkjunnar.
Jóhanna Jónsdóttir.
Tapað/fundið
Gullarmband
tapaðist
GULLARMBAND (spöng) merkt að
innanverðu, tapaðist rétt fyrir jól.
Finnandi hafi vinsamlega samband í
síma 551 3192.
Kvenarmbandsúr
í óskilum
KVENARMBANDSÚR fannst í Álf-
heimum laugardaginn 6. janúar sl.
Upplýsingar í síma 553 9326.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Hneyksluð
Í lok mánaðarins kemur út bók um sögu körfuknattleiks á Íslandi. Enn hef-
ur ekki tekist að nafngreina alla á meðfylgjandi mynd, sem tekin var í ÍR-
húsinu við Túngötu 21. apríl 1953. Þeir sem gætu hjálpað til vinsamlega
hringi sem fyrst í Skapta í 896 3886.