Morgunblaðið - 09.01.2001, Side 64

Morgunblaðið - 09.01.2001, Side 64
FÓLK Í FRÉTTUM 64 ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ HANN hafði ekki þetta dæmigerða kvikmyndastjörnuútlit, J.T. Walsh bjó hins vegar yfir gnótt leikhæfi- leika sem voru loks farnir að njóta sín þegar þessi virti og eftirsótti leikari féll frá fyrir tæpum tveimur árum. Í blóma lífsins, aðeins 54 ára. James Patrick Walsh fæddist í San Fransisco 1943, en ólst upp í New- port á Rhode Island, þar sem hann lauk háskólaprófi frá Rhode Island University. Þar var hann m.a. for- maður nefndar sem barðist á móti íhlutun Bandaríkjanna í Víetnam og var virkur í leikhúslífinu. Því næst var stefnan tekin á Evr- ópu, þar sem hann stundaði m.a. nám við skóla Jesúíta á Írlandi. Lagði þó ekki trúarleg störf fyrir sig og hélt aftur vestur um haf. Vann fyrir sér sem sölumaður al- fræðiorðabóka, félagsráðgjafi, blaðamaður og menntaskólakenn- ari, áður en hann sneri sér að leik- listinni, þrítugur að aldri. Walsh var uppgötvaður fyrir tilviljun af leik- stjóra sem starfaði við leikhús utan Broadway, í New York. Þar fór Wash með hlutverk í nokkrum stykkjum, áður en hann þreytti frumraun sína á Broadway í Rík- harði III., árið 1982, þar sem Al Pac- ino vann mikinn sigur í titilhlutverk- inu. Því næst fékk Walsh hlutverk í Rose, með Glendu Jackson í aðal- hlutverkið, og í Hamlet Nicols Willi- amson. Þá var komið að því að Walsh slær í gegn, sem átti sér stað í verki Dav- ids Mamet, Glengary Glen Ross. Walsh lék einn hinna gjörspilltu fasteignasölumanna með slíkum til- þrifum að hann vann Drama Desk verðlaunin árið 1984, fyrir árang- urinn. Slíkar vegtyllur bjóða gjarn- an upp á farseðil til Hollywood, og sú varð raunin með Walsh. Hann var því tekinn að reskjast er fyrsta hlut- verkið bauðst á kvikmyndatjaldinu. Það var í Power (’86), gerðri af Sidney Lumet. Ekki skorti mann- valið; Richard Gere, Julie Christie, Gene Hackman, E.G. Marshall, og á meðal ungra og lítt þekktra nýliða, neðarlega á leikaralistanum gat að líta tvö nöfn sem áttu eftir að verða kunnugleg: Denzel Washington og J.T. Walsh. Sjálfsagt minnast margir Walsh hvað fyrst í Good Morning, Vietnam, fyrir aðeins 14 árum, í hlutverki öf- undsjúks liðþjálfa. Walsh var í útliti dæmigerður „WASP“, eða hvítur, engilsaxneskur mótmæland. Það var einnig skynsamlegur og e.k. storkandi blær yfir manninum, sem leiddi til þess að fyrstu árin var Walsh nánast njörvaður niður í hlut- verk „vondu kallanna“. Hafði sam- stundis mikið að gera, lék í einum 65 kvikmynda- og sjónvarpsmynda- hlutverkum á sínum örstutta, 16 ára ferli. Þau voru 8 árið 1990; 6 myndir árið 1992, 7 árið ’93, 9 ’94, 6 ’95 og 8 ’96. Walsh hafði lokið við 6 myndir sem frumsýndar voru síðasta árið sem hann lifði. Ótrúlegt afrek sem segir meira en nokkur orð um af- kastagetu, dugnað og vinsældir Walsh og það traust sem kvik- myndargerðarmenn báru til hans. Vitaskuld var allur þessi fjöldi af ýmsum stærðum, gerðum og gæða- flokki sem áttu það sameiginlegt flestar, að illyrmið var í færum höndum Walsh. Það verður því stikl- að á stóru ufir ferilinn. Walsh er með tæpast merkjanlegt hlutverk í Hönnu og systrum hennar, né House of Games (’86). Heldur vænkaðist hagur hans í Tin Men (87). Maður tók hins vegar eftir leikaranum í Tequila Sunrise (’88), þar sem Mel Gibson, stjarna myndarinnar, stal vitaskuld senunni. The Grifters kemur 1990 og hér fær Walsh lítið en gott hlutverk mislukkaðs mann- ræningja. Aftur fékk hann kjarn- mikið smáhlutverk í stórmyndinni A Few Good Men (’92), og gerði því viðhlítandi skil. Svipaða sögu að segja um Hoffa (’92). Ári síðar var hann fjallbrattur í Red Rock West, „film noir“ mynd Johns Dahl og Sig- urjóns Sighvatssonar og stal í raun senunni frá aðalleikurunum, Nicolas Cage og Dennis Hopper. Walsh var gustmikill John Ehrlichman í Nixon (’95), og gerði góða hluti í Executive Decision, ári síðar. Það var ekki síst honum að þakka hversu Breakdown (’97), lukkaðist svo eftirminnilega. Þá átti Walsh góðan sprett í The Negotiator (’98) og sama ár kom að Pleasantville, síðustu umtalsverðu mynd hans. Undarleg og áhugaverð mynd um systkini sem allt í einu verða persónur í svart/hvítum sjón- varpsþáttum frá því á sjötta ára- tugnum. Þættirnir fá smám saman lit eftir því sem persónur hans spill- ast. Virkar vel sem gamanmynd sem breytist í þjóðfélagsádeilu. Síðasta mynd stórleikarans J.T. Walsh sem er firnagóður að venju. Walsh vann aldrei til Óskars- verðlauna. Hins vegar tileinkaði stórleikarinn Jack Nicholson hinum nýlátna stéttarbróður sínum og vini, verðlaunin sem hann hlaut fyrir As Good As It Gets (’98). Það segir sína sögu. J.T. Walsh var jafnan í skugga annarra leikara, hér Samuels L. Jacksons í The Negotiator. Í félagsskap stórlaxa við gerð myndarinnar Nixon. F.v.: Oliver Stone, James Woods, Anthony Hopkins og Walsh. Með Billy Bob Thornton í Sling Blade. J.T. WALSH GOOD MORNING, VIETNAM (1987) Mjög sérstæð, borin uppi af stjörnu- leik Williams sem fer á kostum í löngum einræðum, sem hann spann meira og minna sjálfur. Leikur plötu- snúð í bandaríska flughernum, árið 1965 í Víetnam. Snúðurinn álítur að hans skylda sé að púrra mannskapinn upp – í óþökk yfirboðaranna. (Kirby er dásamleg leiðindaskjóða og nöld- urkerling. Walsh á sömu nótum sem hæfileikalótill og lágt settur yfirmað- ur, grænn af öfund). Verður hinsveg- ar þjóðsagnapersóna meðal her- mannanna á blóðvellinum. Inn í skopið blandast raunaleg alvara stríðsins. Hér eru kaldhæðnislegar andstæður þessa andstyggilega stríðs í brennideplinum. SLING BLADE (1991) Karl (Billy Bob Thornton), er aftur á leið út í frelsið, eftir að hafa myrt móðir sína og elskhuga hennar aldar- fjórðungi áður. Hefur setið af sér hegningarvistina á geðveikrahæli. Hrekklaus og og lítillega þroskaheft- ur hugur hans sagði honum að þau væru að gera eitthvað ljótt. Hann á erfitt með að aðlagast þjóðfélaginu sem nánast hafnar honum, utan tvær hornrekur, ungur drengur og móðir hans. Lítil perla, prýdd einkar vel skrifuðu og óvenjulegu handriti Thorntons (Óskarsverðlaun) og af- burðaleik, helst hjá Walsh sem fer beinlínis snilldarlega með örlítið hlut- verk sálsjúks morðingja og vistmanns á hælinu. Sýnir á eftirminnilegan hátt, hvernig á að gera mikið úr litlu. THE LAST SEDUCTION (1994) Þau eru öll í ótrúlega góðum gír, Linda Fiorentino, Peter Berg og Walsh, í enn einu snilldarverki Johns Dahl, sem heldur manna best „film noir“ forminu á lofti. Fiorentina leik- ur algjöran kvendjöful. Rænir illa fenginni peningasummu frá smá- krimmanum, bónda sínum (sem er í góðum höndum Bills Pullmans). Flýr síðan New York og sest að í krumma- skuði norður undir Kanada. Fer þar að ráðum lögfræðingsins síns (Walsh), sem virðist hafa numið það helst hvernig eigi að brjóta þau. Þar velgir hún karlkyninu undir uggum, einkum meinleysisgreyi (Peter Berg), sem hún vefur um fingur sér. Pullmann kemst á sporið en engin sér við Lindu. Ruddaleg skemmtun þar sem maður heldur frekar með glæpa- kvendinu en mannlerunum í lífi henn- ar. Linda er beinlínis ómótstæðilegt kvenskass og Walsh gerir heilmikið fyrir myndina, ekki síst húmorinn, í litlu, veigamiklu hlutverki. Var ein- hver að tala um að við karlar misnot- uðum konur? Sígild myndbönd Sæbjörn Valdimarsson Eyrnalokkagöt Nú einnig Nýjung - gull í gegn 100 gerðir af eyrnalokkum 3 stærðir Hárgreiðslustofan Klapparstíg Sími 551 3010 Stofnað 1918 ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200 Stóra sviðið kl. 20.00:                 !"     !!# $ "%#&    !!# $ "%#&           ' (    ) %$ %*%     !"+,-+..&   #//"  Smíðaverkstæðið kl. 20.00:  0    %     #//"   #//"        #//1 "      (23 45' % 67 %   888+" !# )+  9 )%%"%:" !# )+   ! "  # $ %   ;%%"%  / 9<+1= +!"+,>1,?&9 ;+1#+!"+,>1@.+ 552 3000 Á SAMA TÍMA SÍÐAR KL. 20 fim 11/1 UPPSELT lau 13/1, E&F kort gilda örfá sæti sun 14/1 Aukasýning fim 18/1 Aukasýning fös 19/1, G&H kort gilda nokkur sæti lau 27/1 I kort gilda, nokkur sæti laus SJEIKSPÍR EING OG HANN LEGGUR SIG fös 12/1 kl. 20 lau 20/1 kl. 20 fös 26/1 kl. 20 530 3030 SÝND VEIÐI fös 12/1 kl. 20 lau 20/1 kl. 20 TRÚÐLEIKUR fim 11/1 kl. 20 örfá sæti laus fös 19/1 kl. 20 Miðasalan er opin kl. 12-18 virka daga, kl. 14-18 um helgar og fram sýningu alla sýningardaga. Hópasala fyrir leikhús og/eða veitingahús er í síma 530 3042, opið kl. 10-16 virka daga. Ekki er hleypt inn í salinn eftir að sýning hefst. midasala@leik.is — www.leik.is Litla svið ÖNDVEGISKONUR e. Werner Schwab Mið. 10. jan kl. 20 aðalæfing, miðav. kr. 1000 Fim 11. jan kl. 20 Hátíðarsýning í tilefni af 104 ára afmæli L.R. - UPPSELT Fös 12. jan kl. 20 Frumsýning - UPPSELT Þýðandi: Þorgeir Þorgeirson Leikarar: Hanna María Karlsdóttir, Margrét Helga Jóhannsdóttir og Sigrún Edda Björnsdóttir Hljóð: Ólafur Örn Thoroddsen Leikgervi: Sigríður Rósa Bjarnadóttir Lýsing: Elfar Bjarnason Leikmynd og búningar: Snorri Freyr Hilmarsson Leikstjórn: Viðar Eggertsson Stóra svið MÓGLÍ e. Rudyard Kipling Sun 14. jan kl. 14 Sun 21. jan kl. 14 Sun 28. jan kl. 14 – ÖRFÁ SÆTI LAUS Stóra svið SKÁLDANÓTT e. Hallgrím Helgason Lau 13. jan kl. 19 Litla svið ABIGAIL HELDUR PARTÍ e. Mike Leigh Lau 3. feb kl. 19 fös. 12 jan. örfá sæti lau. 13. jan. örfá sæti fös. 19. jan. laus sæti lau. 20. jan. laus sæti fös. 26. jan. laus sæti lau. 27. jan. laus sæti fös. 02. feb. laus sæti lau. 03. feb. laus sæti Sýningar hefjast kl. 20.00 Það leiðist engum á þessari sýningu sem bæði bítur og skemmtir. A.E. DV.   Í HLAÐVARPANUM Eva bersögull sjálfsvarnareinleikur 5. sýn. í kvöld 9. jan kl 21:00 6. sýn. fös. 12. jan kl 21:00 7. sýn. fim. 18. jan kl 21:00 8. sýn. lau. 20. jan kl 21:00 „...textinn er bæði skemmtilegur og sannur í allri sinni tragi-kómik...ég skora á [konur]að fjölmenna og taka karlana með...“ (SAB Mbl.) Stormur og Ormur 22. sýn. sun. 14. jan. kl 15:00 23. sýn. sun. 21. jan. kl 15:00 „Halla Margrét fer á kostum“. (GUN Dagur) „Óskammfeilni ormurinn...húmorinn hitti beint í mark...“ SH/Mbl Háaloft geðveikur svartur gamaneinleikur 18. sýn laugardag 13. jan kl 21:00 19. sýn þriðjudag 16. jan kl 21:00 20. sýn f0studag 19. jan kl 21:00 „Áleitið efni, vel skrifaður texti, góður leikur og vönduð umgjörð.“ (SAB Mbl) „... undirtónninn sár og tregafullur.“ (HF DV)          AA,B.AA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.