Morgunblaðið - 17.01.2001, Page 6
Flugvöllur á
Lönguskerjum
dýrasti kosturinn
KOSTNAÐUR við gerð nýs flug-
vallar á Lönguskerjum í Skerjafirði
er langdýrasti kosturinn af þeim
fimm sem metnir eru í greinargerð
um flugvallarhugmyndir á höfuð-
borgarsvæðinu, sem lögð var fram í
borgarráði Reykjavíkur í gær. Nú er
rætt um að greidd verði atkvæði um
framtíð Reykjavíkurflugvallar 17.
mars næstkomandi.
Embætti borgarverkfræðings
vann greinargerð um flugvallarhug-
myndirnar fyrir Samvinnunefnd um
svæðisskipulag fyrir höfuðborgar-
svæðið. Gerðar voru athuganir á
fjórum útfærslum Reykjavíkurflug-
vallar í Vatnsmýrinni og þeir bornir
saman við þann kost að flytja mið-
stöð innanlandsflugs til Keflavíkur-
flugvallar, byggingu nýs flugvallar
fyrir allt innanlandsflug í Vatns-
leysustrandarhreppi, rétt sunnan
Hafnarfjarðar, og byggingu nýs
flugvallar á Lönguskerjum í Skerja-
firði.
1.750 íbúðir og störf
Aðeins tveir kostir voru taldir
koma til greina í Vatnsmýrinni, völl-
urinn samkvæmt núgildandi skipu-
lagi og síðan færsla austur-vestur-
brautarinnar út í Skerjafjörð, eins
og sést á meðfylgjandi korti. Við
báða þessa kosti sparast nokkurt
land enda er gert ráð fyrir flutningi
allrar flugvallarstarfseminnar á
austurhluta flugvallarsvæðisins,
meðal annars flugstöðvarinnar og
flugskýlanna. Áætlað er að 31 hekt-
ari verði til ráðstöfunar við óbreytt-
an völl og 75 ha við flutning ann-
arrar flugbrautarinnar út í sjó. Talið
er að á 75 ha svæði megi byggja
1.750 íbúðir og aðstöðu fyrir 1.750
störf.
Eins og fram kemur á meðfylgj-
andi töflu þarf að leggja í minnstan
kostnað við flutning innanlands-
flugsins til Keflavíkur og að byggja
upp Reykjavíkurflugvöll samkvæmt
gildandi aðalskipulagi, eða milli 4 og
5 milljarðar kr. Dýrast yrði að
byggja nýjan völl á Lönguskerjum,
liðlega 13 milljarðar kr.
Í greinargerðinni er einnig tekið
tillit til ávinnings af því landi sem
fæst undir lóðir við breytingar á
Reykjavíkurflugvelli á núverandi
stað eða flutningi hans annað auk
þess sem metinn er til kostnaðar
aukinn ferðatími til flugvallar og
fleira. Þannig er ávinningurinn af
brottflutningi Reykjavíkurflugvallar
úr Vatnsmýrinni metinn á 2,7 millj-
arða kr. Að teknu tilliti til þessara
liða verður uppbygging og áfram-
haldandi starfræksla Reykjavíkur-
flugvallar ódýrasti kosturinn, liðlega
4 milljarðar kr. Lönguskerjaflug-
völlur er talinn dýrastur, tæplega 11
milljarðar kr. Hinir kostirnir þrír,
það er að segja Reykjavíkurflugvöll-
ur með núverandi norður-suður-
braut en nýrri austur-vestur-braut
úti í sjó, nýr flugvöllur sunnan Hafn-
arfjarðar og flutningur miðstöðvar
innanlandsflugs til Keflavíkur eru
taldir kosta svipað eða í kringum 6
milljarða kr.
Aðeins tveir kostir
Skýrsla borgarverkfræðings var
kynnt í borgarráði í gær og eftir
viku verður þar kynnt skýrsla sér-
fræðihóps borgarinnar sem vinnur
að undirbúningi almennrar at-
kvæðagreiðslu meðal borgarbúa um
flugvallarmálið. Fram kom hjá Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladóttur borgar-
stjóra á blaðamannafundi í gær að
ekki hefur verið ákveðið hvernig
spurt verður í atkvæðagreiðslunni
og heldur ekki hvenær atkvæða-
greiðslan fer fram. Í umræðunni er
að hún verði 17. mars, að undan-
genginni umfangsmikilli kynningu á
þeim kostum sem lagðir verða fyrir.
Spurð um hugsanlega valkosti í at-
kvæðagreiðslu segir borgarstjóri að
í raun verði þeir ekki nema tveir, á
flugvöllurinn að vera í Vatnsmýrinni
eða fara. Síðan megi hugsa sér ein-
hverjar útfærslur á því. Ekki sé á
færi borgarinnar að leggja fyrir í at-
kvæðagreiðslu möguleika á flugvöll-
um í öðrum sveitarfélögum.
Flugvöllur sunnan
Hafnarfjarðar
Ingibjörg Sólrún segir að það hafi
komið sér á óvart hvað möguleikinn
á flugvelli sunnan Hafnarfjarðar
kæmi sterkt út í samanburðinum,
kostnaðurinn við þá útfærslu væri
ekki mikið meiri en við uppbyggingu
á Reykjavíkurflugvelli. Hún tekur
þó fram að ekki séu öll kurl komin til
grafar varðandi þennan valkost.
Umræddur völlur yrði í Vatns-
leysustrandarhreppi, rétt sunnan
við sveitarfélagamörkin við Hafnar-
fjörð. Í nýlegri skýrslu sem Airport
Research Center og verkfræðistof-
an Línuhönnun hafa gert fyrir Sam-
vinnunefnd um svæðisskipulag fyrir
höfuðborgarsvæðið er við það miðað
að völlur sunnan Hafnarfjarðar yrði
byggður upp í þremur áföngum,
þannig að hver áfangi nýtist að fullu
fyrir þann næsta. Í fyrsta áfanga
yrði aðstaða fyrir snertilendingar í
æfinga- og kennsluflugi. Annar
áfangi yrði að koma upp aðstöðu fyr-
ir almennt flug, það er að segja allt
flug nema áætlunarflug, og við
þriðja áfanga yrði völlurinn fullgild-
ur innanlandsflugvöllur.
Morgunblaðið/Þorkell
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og Árni Þór Sigurðsson, formaður samvinnunefndar um svæðisskipu-
lag höfuðborgarsvæðisins, kynntu greinargerð um flugvallarhugmyndir á blaðamannafundi í gær.
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MIKILL meirihluti borgarbúa
er hlynntur því að bera flug-
vallarmálið undir atkvæði
borgarbúa og telur líklegt að
hann taki þátt í atkvæða-
greiðslunni.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri segir að ákvörðun
um að efna til atkvæðagreiðslu
um framtíð Reykjavíkur-
flugvallar hafi mælst vel fyrir
og verið jákvæð. Hún hafi vak-
ið athygli á skipulagsmálum og
umræðu um þau. Orðið til þess
að skoðanaskipti eru nú fjör-
legri um stóru línurnar í skip-
lagsmálum borgarinnar.
Reykjavíkurborg fékk Gallup
til að kanna hug borgarbúa til
atkvæðagreiðslunnar. Í úrtaki
voru 887 íbúar og svöruðu 63%
þeirra. Spurt var hvort rétt
væri að bera flugvallarmálið
undir atkvæði og voru 82%
svarenda hlynnt því og 10%
andvíg. Þá töldu 77% líklegt að
þau myndu taka þátt í atkvæða-
greiðslunni en 17% ólíklegt.
Ingibjörg Sólrún segir að
taka verði niðurstöðurnar sem
vísbendingu, ekki sé hægt að
fullyrða á grundvelli þeirra að
borgarbúar muni almennt
mæta á kjörstað.
82% fylgjandi
atkvæðagreiðslu
! "
"
"
#
$
#
% &!'(
$ !'(
&
) *+,
*-,
./,
0+,
),,
) -,,
/+,
.+,
*,,
! - 1,,
*-,
./,
0+,
),,
) -,,
"#$
/+,
* ,,,
),,
$ 2 ),,
),,
++,
+,,
./,
0+,
*+,
) -,,
*,,
+,
*,,
!!"
* /,,
),,
""
) 1,,
+,,
-/,
01,
./,
0+,
*+,
) -,,
*+,
+,
*,,
$!%
* /,,
) /,,
-,,
#"%
-,,
./,
*+,
) -,,
%"%
) +,,
* /,,
0 +,,
1,,
#&%
(34
5 $
6(
$#
6
7 8
4
7#
7"
$
!
#$ $
Rætt um að atkvæðagreiðsla um framtíð
Reykjavíkurflugvallar verði 17. mars