Morgunblaðið - 11.04.2001, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 11.04.2001, Blaðsíða 6
DÆTUR landsins lögðu í gær leið sína inn á flesta vinnustaði lands- ins og sköpuðu þar auð í krafti kvenna – í einn dag til að byrja með, en vonandi síðar um alla framtíð. Stúlkur á aldrinum 9–15 ára fengu að fara í vinnunna með mömmu, pabba, eða einhverjum úr fjölskyldunni, og höfðu bæði gagn og gaman af. Þetta er annað árið í röð sem slíkur dagur er haldinn, og segir Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, verkefnastjóri Auðs í krafti kvenna, að verkefnið stefni að því að auka hagvöxt á Íslandi með því að auka atvinnuþátttöku og nýsköpun hjá konum, þar sem ný- sköpun reiknist mjög lág hjá kon- um í hlutfalli við karla. Það hafi sýnt sig að stelpur fari ósjálfrátt í ákveðin störf og þess vegna sé dagurinn talinn góður til að kynna þeim önnur störf. Meira lagt upp úr deginum nú en í fyrra „Fyrirtækin leggja meira upp úr deginum en í fyrra, og fleiri fyrirtæki eru að koma inn,“ segir Þorbjörg. „Tölvufyrirtæki eru að ranka við sér því aðstandendur þeirra sjá þörfina til að auka þátttöku kvenna hreinlega til þess að fá starfskrafta. Þátttakan er mikil yfirhöfuð, því miður fáum við ekki tölur yfir allar þær stelpur sem eru með, en í fyrra voru yfir 2.000 stelpur sem okkur tókst að skrá.“ Auðarverkefnið stendur í þrjú ár þannig að dag- urinn verður haldinn aftur að ári liðnu. „Við vonumst til að geta haldið þessu gangandi til frambúðar með því að vera stuðningsaðili. Þessi dagur hefur verið haldinn í níu ár í Bandaríkjunum með mjög góðum árangri.“ Þróttur í þágu karla Í Landsbankanum komu dæt- urnar í heimsókn í gær og í dag verður haldinn svipaður dagur en fyrir stráka einungis. Jakobína Ólafsdóttir, sérfræðingur á mark- aðsdeild Landsbankans, segir þau hafa fundið upp nýtt kjörorð af því tilefni: Þróttur í þágu karla. „Við vildum gefa báðum kynj- um tækifæri á að sjá hvað við er- um að gera. Í dag komu um 33 stelpur í aðalbanka en í heildina um 180 stelpur.“ Auk þess sem þær fá að reyna fyrir sér í ýmsu gefur Landsbankinn stelpunum bankabók með ýmsum upplýs- ingum eins og tölulegum stað- reyndum um stöðu kvenna innan bankans. „Svo hvetjum við þær áfram og segjum þeim að allt sé mögulegt ef áhugi er fyrir hendi. Konur vinni hér í öllum deildum og störfum,“ sagði Jakobína. Þorbjörg segir daginn sér- staklega hannaðan til þess að stelpurnar fái að njóta sín við að skoða fyrirtækið og spyrja sinna spurninga. „Mér finnst frábært að taka strákana líka með, en þá sér daginn eftir. Það eru ólíkar áherslur sem þarf að setja hjá strákum og stelpum. Átakið sjálft á við stelpur og við erum að reyna að opna hugarheim þeirra til þess að skoða annað en það sem liggur beint fyrir. Þetta er aldurinn þar sem þær eru að horfa í kringum sig og pæla í hvað strákarnir hugsa og hvernig þær líta út og þær þurfa aðeins að losna frá því til þess að hugsa um framtíðina.“ Á auglýsingastofuna Gott fólk kom hress hópur stelpna og fékk að hanna auglýsingu þar sem þemað var páskaeggjaleit. Þær ungu vissu alveg hvað þær vildu og voru öruggar þegar þær skip- uðu grafísku hönnuðunum Þór- hildi Elínu og Gunnari fyrir. Það var svo gaman hjá þeim að Hild- ur, 9 ára, sagðist hafa fengið illt í bakið af hlátri. „Þær skiptu liði og fóru í hug- myndavinnu þar sem ákveða þurfti myndefni, taka myndirnar og semja textann. Þær settu aug- lýsinguna upp og stýrðu öllu í gegnum okkur hönnuðina. Ég held að þær hafi lært nokkuð mikið af þessu og það er búið að vera mikið fjör,“ segir Þórhildur Elín Elínardóttir. Aðspurðar sögðust stúlkurnar allar ætla að koma aftur eftir ár, en þær vilja ekki hafa strákana með. „Þeir eyðileggja allt!“ sögðu þær og hlógu. Brugðu sér í hlutverk blaðamanna Morgunblaðið er aðili að verk- efninu Dæturnar með í vinnuna og var mikið fjölmenni á blaðinu í gær. Stúlkurnar mættu strax klukkan 9 í gærmorgun og fengu þá kynningu á sögu og starfsemi blaðsins. Eftir skoðunarferð um blaðið og hádegisverð brugðu þær sér í hlutverk blaðamanna. Heimsókninni lauk um klukkan 15.30 og voru stúlkurnar kvaddar með gjöfum til minningar um heimsóknina. Dæturnar fjölmenntu í vinnuna Ætli hér sjáist margir upprennandi flugumferðarstjórar? Þær hugsuðu vel hver um aðra á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. Það var fjör á auglýsingastofunni Gott fólk. Í Ráðhúsi Reykjavíkur héldu ungu dömurnar ræðu og sögðu borg- arstjórn hvernig þær vilja hafa Reykjavík. Morgunblaðið/Kristinn Stelpurnar sem fóru í Landsbankann fengu bol sem á stóð „Landsbankinn…og ég.“ Stúlkurnar sem heimsóttu Morgunblaðið voru ánægðar með daginn. Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson FRÉTTIR 6 MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.