Morgunblaðið - 11.04.2001, Side 8
FRÉTTIR
8 MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Tónlistarhátíð um páskana
Músík í Mý-
vatnssveit
TónlistarhátíðinMúsík í Mývatns-sveit verður haldin
í fjórða sinn nú um páska.
Laufey Sigurðardóttir
fiðluleikari hefur séð um
undirbúning þessara
tveggja daga tónleika, hún
var spurð hvað væri á efn-
isskránni að þessu sinni.
„Á föstudaginn langa
verður flutt tónlist sem
hæfir stund og stað. Má
þar nefna tónlist eftir
Händel, Schubert, Scarl-
atti, Biset og fleiri. Þeir
tónleikar verða klukkan 21
í Reykjahlíðarkirkju. Á
laugardag verða tónleik-
arnir í Skjólbrekku og
hefjast þeir klukkan 15.
Þar verða flutt íslensk og
ítölsk sönglög og Silunga-
kvintettinn eftir Schubert, þetta
dásamlega og vorlega verk – ég
hef tekið eftir því hvað þessi ynd-
islega tónlist hefur haft góð áhrif
á okkur, en við höfum eðlilega ver-
ið að æfa að undanförnu.
Í ár koma frábærir flytjendur
með mér. Það er sérstakt gleði-
efni að minna á að Anna Áslaug
Ragnarsdóttir píanóleikari spilar
nú á Íslandi eftir margra ára hlé,
þess má geta að hún er ættuð úr
Mývatnssveit. Hún hefur verið
búsett í München í mörg ár. Jó-
hann Friðgeir Valdimarsson ten-
ór mun syngja, hann hefur vakið
mikila athygli að undanförnu. Þar
að auki leika Þórunn Ósk Mar-
inósdóttir víóluleikari, Richard
Talkowsky sellóleikari og Há-
varður Tryggvason kontrabassa-
leikari.“
– Hvað varð til þess að tónlist-
arhátíð varð að árlegum viðburði í
Mývatnssveit?
„Pétur Snæbjörnsson, hótel-
stjóri í Reynihlíð, hefur undanfar-
in fjögur ár af miklum rausnar-
skap boðið til sín tónlistarfólki og
þess vegna er Hótel Reynihlíð
stærsti styrktaraðili tónleikanna.
Það er alltaf verið að tala um leng-
ingu á ferðatíma og í boði eru
ýmsir útivistarmöguleikar, þetta
var hugsað sem afþreying af öðr-
um toga fyrir heimamenn og
gesti.“
– Hafa þessir tónleikar verið
vel sóttir?
„Já, mjög vel sóttir. Mývetning-
ar eru afar tónelskir og upp til
hópa „stemmningsmenn“, þannig
að það er gaman að spila fyrir þá.
Í mörg ár hefur svo margt ferða-
fólk komið í Mývatnssveit og notið
útiveru um páskana, gengið í
kringum vatnið á föstudeginum
langa og verið á snjósleðum og
sótt svo tónleikana milli útiveru-
stundanna.“
– Er þetta alltaf sami hópurinn
af tónlistarfólki sem fer?
„Nei, það hefur margt tónlist-
arfólk komið að þessum tónleik-
um, ég er sú eina sem hef spilað öll
árin.“
– Er auðvelt að fá fólk til að fara
í svona tónleikaferð?
„Fólk hefur brugðist
vel við og virðist hafa
gaman af að fara og
spila í Mývatnssveit,
það er mín reynsla.“
– Er nægilega mikið gert af því
að fara með tónleika út um land
vetur sem sumar?
„Sjálfri finnst mér í rauninni
aldrei nóg af tónleikum. Sumir
segja hins vegar að framboðið sé
nægilegt. Aðalatriðið er þó auðvit-
að hvernig til tekst. Ef tónleikarn-
ir heppnast vel þá er þetta mjög
ánægjulegt. Ef meira fjármagn
væri fyrir hendi væri hægt að fara
víðar og gera miklu meira.“
– Hvernig farið þið að því að
fjármagna þessa tónleika?
„Fyrir utan boð Hótels Reyni-
hlíðar styrkir Skútustaðahreppur
tónleikana og ýmis fyrirtæki.“
– Hvernig tónlist virðist þér
heppilegast að fara með um land-
ið?
„Ekkert eitt er heppilegra en
annað, aðalatriðið er að velja góða
tónlist. Fólk vill þó mjög gjarnan
heyra söngtónlist og nú syngur
Jóhann Friðgeir heilmikið. Sólrún
Bragadóttir og Sigrún Hjálmtýs-
dóttir hafa komið fram á þessum
tónleikum áður og frammistaða
þeirra var öll með þeim glæsibrag
að tónlistarhús um allan heim
hefðu verið fullsæmd af.“
– Hvernig aðstaða er til tónlist-
arflutnings í Mývatnssveit?
„Það fer sérstaklega vel um
okkur á hótelinu, við vöknum við
ilminn af heimabökuðum brauð-
um í góðum herbergjum. Aðstað-
an í Skjólbrekku er góð, þar er
fínn, gamall Petroff-flygill með
„karakter“.“
– Hvað gerið þið tónlistarfólkið
þegar þið eigið frí frá spila-
mennskunni um páskana?
„Sumir hafa farið og gengið á
skíðum, rennt fyrir silung eða far-
ið í gufubað en aðrir hafa eins og
hljóðfæraleikara er siður „límst
við“ hljóðfærin sín.“
– Hvernig reynsla er það fyrir
tónlistarmenn að spila úti á landi?
„Það er mjög gaman.
Það er eins og við verð-
um óþvingaðri og jafn-
vel fegin að vera laus
við streituna í Reykja-
vík. Í Mývatnssveit er
eins og allir vita annáluð náttúru-
fegurð. Ein ástæðan fyrir þessum
tónleikaferðum er sú að ég vil hafa
afsökun fyrir því að fara í Mý-
vatnssveitina á öðrum tímum en á
sumrin, en þá er ég þar gjarnan.
Ég er ættuð úr Mývatnssveit og
fjölskylda mín á þar enn sumar-
hús. Segja má að ég hafi alltaf
heimþrá til Mývatnssveitarinn-
ar.“
Laufey Sigurðardóttir
Laufey Sigurðardóttir fæddist
í Reykjavík 1955. Hún lauk ein-
leikaraprófi frá Tónlistarskól-
anum í Reykjavík 1974 og stund-
aði framhaldsnám í Banda-
ríkjunum hjá prófessor G.
Neikrug og sótti einnig tíma hjá
A. Grumiaux í Belgíu. Hún fékk
seinna ítalska ríkisstyrkinn og
var við nám í Róm. Nú er Laufey
fastráðin hjá Sinfóníuhljómsveit
Íslands og kennari við Tónlistar-
skólann í Reykjavík. Laufey er í
sambúð með Þorsteini frá Hamri
og eiga þau eina dóttur en Þor-
steinn á auk þess sex börn.
Gaman að
spila fyrir
Mývetninga
Hæstvirtur landbúnaðarráðherra verður að bíta í það súra epli að það
er ekki allt vænt sem vel er grænt.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt 18 ára pilt í tveggja ára
skilorðsbundið fangelsi fyrir tilefn-
islausa og fólskulega líkamsárás sem
hann framdi í starfi sínu sem dyra-
vörður á áramótadansleik í Laugar-
dalshöll fyrir rúmu ári.
Pilturinn var ákærður fyrir að
hafa slegið manninn í andlitið með
þeim afleiðingum að fjórar fram-
tennur hans losnuðu.
Pilturinn neitaði sök. Hann lýsti
atburðum þannig að hann hefði verið
að fara með manninn út úr húsinu
þegar maðurinn féll við. Þeir hefðu
báðir dottið og hann fallið ofan á
hann. Hann hefði þá spurt hann
hvort ekki væri í lagi með hann og
maðurinn þá kinkað kolli.
Í niðurstöðum dómsins segir að
þrjú óvilhöll vitni að atvikinu, sem
ekki voru undir áhrifum áfengis, séu
sammála um að pilturinn hafi slegið
manninn í andlitið þar sem hann lá á
bakinu. Telst með framburði þeirra
sannað að hann hafi gerst sekur um
þá háttsemi sem honum er gefin að
sök í ákæru.
Við mat á refsingu var tekið tillit
til þess að árásin var tilefnislaus og
fólskuleg. Fórnarlambið hefði verið
mikið ölvað og varnarlaust. Refsing-
in þykir því hæfileg tveggja mánaða
fangelsi, en haldi pilturinn skilorð
fellur refsing niður að tveimur árum
liðnum. Hann hafði ekki áður gerst
sekur um refsiverða háttsemi. Þá
var hann dæmdur til að greiða
manninum 202.240 krónur í bætur
auk alls sakarkostnaðar.
Valtýr Sigurðsson héraðsdómari
kvað upp dóminn.
Dyravörður dæmdur