Morgunblaðið - 11.04.2001, Page 10
FRÉTTIR
10 MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavík-
ur dæmdi í gær rúmlega þrítug-
an karlmann til 14 mánaða
fangelsisvistar fyrir þjófnað,
aðallega á kjöti. Maðurinn á all-
langan sakaferill að baki og
með brotinu nú rauf hann skil-
orð.
Maðurinn var fundinn sekur
um að hafa frá því 5. febrúar til
2. desember í fyrra stolið tveim-
ur páskaeggjum, tveimur galla-
buxum og tveimur kjötlærum,
fjórum framhryggjarvöðvum,
sex hamborgarhryggjum auk
annarra kjötvara. Verðmæti
kjötsins var um 55.000 krónur.
Þá var hann sakfelldur fyrir
fíkniefnabrot en lögreglan fann
eitt sinn lítilræði af hassi á
manninum. Fyrir dómi veitti
hann m.a. þá skýringu á þjófn-
uðunum að hann hefði ætlað að
selja kjötið til að borga fyrir
fíkniefni. Maðurinn hefur frá
1996 hlotið 5 refsidóma fyrir
skjalafals, þjófnað, fíkniefna-
lagabrot og umferðarlagabrot.
Síðast hlaut hann refsidóm fyr-
ir tveimur árum, þriggja mán-
aða fangelsi fyrir þjófnað. Hon-
um var í desember 1999 veitt
reynslulausn skilorðsbundið í
tvö ár á 270 daga eftirstöðvum
þess dóms og annars frá í nóv-
ember 1998. Með brotunum
sem hann var dæmdur fyrir í
dag rauf hann skilorð reynslu-
lausnarinnar. Dómara þótti,
með hliðsjón af því að maðurinn
olli ekki miklu tjóni með brotum
sínum, hæfilegt að úrskurða
hann í fangelsi í 14 mánuði.
Valtýr Sigurðsson héraðs-
dómari kvað upp dóminn.
Kjötþjófur
dæmdur til
fangels-
isvistar
LÖGREGLAN í Kópavogi handtók í
fyrrakvöld tvo menn sem höfðu
reynt að brjóta sér leið inn í íbúð í
fjölbýlishúsi við Auðbrekku í Kópa-
vogi. Annar mannanna veitti mikla
mótspyrnu við handtöku og greip
lögreglan til þess ráðs að sprauta á
hann varnarúða.
Hann fékk að gista fangageymslur
lögreglunnar. Hinn fékk að fara
heim að yfirheyrslum loknum en að
sögn lögreglu tók hann ekki þátt í
átökunum við lögreglu. Einn lög-
reglumannanna tognaði lítillega við
handtökuna.
Lögreglan var kölluð að fjölbýlis-
húsinu um kl. 23. Tilkynning var á þá
leið að tveir menn, vopnaðir hnífi og
hafnaboltakylfu, hefðu ruðst inn í
húsið. Ákveðið var að kalla til liðs-
auka frá Reykjavík en alls fóru sex
lögreglumenn á staðinn. Að sögn
lögreglu áttu mennirnir tveir, sem
eru um tvítugt, óuppgerðar sakir við
íbúa í húsinu.
Lögreglan beitti
varnarúða á mann
Vopnaðir
hafna-
boltakylfu
FERÐALAG hjónanna Evu Sig-
urbjörnsdóttur og Ásbjarnar Þor-
kelssonar frá Reykjavík til Djúpu-
víkur tók sannarlega lengri tíma en
venja er til. Þau lögðu af stað á mið-
vikudaginn í síðustu viku og komu
ekki til sín heima fyrr en aðfaranótt
mánudags. Fleira fólk af Ströndum
slóst í hópinn á leiðinni norður og
voru þau orðin 14 talsins undir lok-
in, bæði vegagerðarmenn og sveit-
ungar hjónanna, og fóru hægt yfir.
„Við reyndum bara að taka þessu
létt,“ sagði Eva í samtali við Morg-
unblaðið en þau Ásbjörn eru stað-
arhaldarar á Hótel Djúpuvík.
„Við hjónin vorum búin að vera
fyrir sunnan um nokkurra vikna
skeið á námskeiðum. Það var búin
að vera einmunatíð í vetur en þegar
fór að hilla undir það að við værum
tilbúin að fara heim fór veðrið að
versna,“ sagði Eva en þau hjónin
ákváðu þrátt fyrir allt að leggja af
stað frá Reykjavík síðasta miðviku-
dag.
Á tveimur bílum frá Reykjavík
„Við keyrðum til Hólmavíkur í
fyrstu atrennu og fengum gistingu
þar. Við fórum og töluðum við vega-
gerðarmenn en þá var búið að slá
því föstu að byrjað yrði að moka
daginn eftir,“ sagði Eva en bætti við
að því hefði svo verið frestað um
einn dag. Eva og Ásbjörn voru auk
þess á tveimur bílum þar sem þau
höfðu fest kaup á vörubíl í Reykja-
vík.
Vegagerðarmenn hófu mokst-
urinn á föstudaginn sl. og lögðu Eva
og Ásbjörn þá af stað norður á
Strandir. „Við lögðum af stað á há-
degi og náðum þeim um fjög-
urleytið,“ sagði Eva en hjónin
keyrðu á eftir þeim í nokkrar
klukkustundir.
Vegagerðarmennirnir voru
komnir inn í Veiðileysufjörð og að
sögn Evu var orðið útséð um að þau
kæmust til Djúpuvíkur þann daginn.
„Einn vegagerðarmanna, bóndinn á
Bassastöðum við Steingrímsfjörð,
bauð okkur gistingu,“ sagði Eva, og
þau þáðu það.
Ferðalagið gekk ekki mikið betur
á laugardeginum en seinnipartinn
létti eitthvað til. „Tækin voru á und-
an okkur,“ sagði Eva sem bætti því
við að þau hefðu vart ráðið við þenn-
an mikla snjó.
Sváfu í vörubílnum
um nóttina
Illa gekk í Veiðileysuhálsi og var
snjórinn mikill. „Hann er svo erfiður
og oftast nær þarf að moka hann
upp í móti, sunnan megin frá,“ sagði
Eva en moksturinn hélt áfram til
klukkan tíu um kvöldið. „Þá ákváð-
um við að sofa bara í vörubílnum um
nóttina. Ég held að vegagerð-
armennirnir hafi haft miklar
áhyggjur af okkur. Þeir voru að
minnsta kosti mættir klukkan níu á
sunnudagsmorguninn.“
Bjartsýni ríkti hjá hjónunum dag-
inn eftir og að sögn Evu töldu þau að
þau yrðu jafnvel komin heim á há-
degi á sunnudeginum. Þá var einnig
stærri blásari kominn á svæðið sem
er nokkuð stórvirkur. „En hann
bara bilaði fljótlega og vann ekki
nema á hálfum afköstum.“
Fjölgar í hópnum
„Á sunnudeginum fóru að bætast
við bílar og seinni part dags var
komin bílalest á eftir okkur. Við vor-
um komin upp á hálsinn upp úr há-
deginu, þá fór að halla undan. Þá
fannst okkur við nánast vera komin
heim en það liðu heilir tólf tímar,“
segir Eva. „Við vorum ekki komin
hingað niður til Djúpuvíkur fyrr en
rúmlega tvö aðfaranótt mánudags,“
bætti hún við.
„Maður var nú orðinn svolítið
velktur þegar við loks komumst á
áfangastað,“ sagði Eva og var fólkið
að vonum orðið nokkuð svangt. „Við
hituðum okkur súpu hérna þegar
klukkan var að ganga þrjú um nótt-
ina,“ sagði Eva. Allir gistu á hót-
elinu hjá Evu og Ásbirni um nóttina
og voru þar 14 manns alls. „Ég var
síðust í rúmið og var að skríða upp í
um klukkan hálffimm,“ sagði Eva
hlæjandi.
Hlutirnir eru nú að komast í sinn
vanagang norður á Ströndum. „Þeir
eru búnir að vera að hérna stans-
laust,“ sagði Eva og er þá að vísa til
vegagerðarmannanna. „Ég held að
þetta sé að komast í lag núna fyrst,“
segir Eva en varahlutir í blásarann
komu frá Hólmavík í gær.
Allir ferðalangarnir
komnir til síns heima
Gestirnir eru þó komnir til síns
heima þótt ekki hafi verið hægt að
keyra alla leið. Þeir gistu í tvær næt-
ur hjá Evu og Ásbirni og héldu til
síns heima í dag. „Þeir fóru allir
héðan á snjósleðum, yfir fjall, sem
kallað er. Ferðin gekk vel hjá þeim
en ég bað þá um að láta mig vita
þegar þeir væru komnir í hús aftur.
Allir eru búnir að láta vita af sér,“
sagði Eva.
Eva er bjartsýn enda er veðrið að
batna aftur. „Það er loksins komið
almennilegt veður. Það sér til fjalla
og sólin skín inn á milli,“ sagði hún
að lokum.
Voru lengur á leiðinni frá Reykjavík til Djúpuvíkur en áætlað var
„Reyndum að taka þessu létt“
álitsgerð Hjörleifs B. Kvaran borgarlögmanns
kemur fram að tveir starfsmenn borgarskipu-
lags sem valdir hefðu verið í nefndina hefðu
verið vanhæfir til verksins þar sem yfirmenn
þeirra tengdust tveimur af þeim arkitektstof-
um sem skilað hefðu inn tillögum og síðan ver-
ið valdar til að taka þátt í skipulagsvinnunni.
Á grundvelli álitsgerðarinnar ákvað borg-
arráð á fundi sínum í síðustu viku að skipa tvo
nýja fulltrúa í forvalsnefndina í stað þeirra
sem skipaðir hefðu verið af borgarskipulagi.
Munu þeir, ásamt öðrum fulltrúum forvals-
nefndarinnar, dæma að nýju þær tvær um-
sóknir arkitektastofanna sem tengjast yfir-
mönnum borgarskipulags og þær 19 sem
ÞEIM 26 arkitektastofum, sem tóku þátt í for-
vali Reykjavíkur vegna skipulags Halla- og
Hamrahlíðalanda, var í upphafi raðað í sæti
eftir einkunnagjöf þar sem meginviðmiðin
voru skipulagsreynsla, starfsmannafjöldi og
samkeppnisþátttaka. Forvalsnefndin breytti
síðan röðinni að teknu tilliti til annarra þátta,
eins og t.d. hæfileika til samvinnu.
Árni Þór Sigurðsson, formaðurskipulags- og
byggingarnefndar og forvalsnefndarinnar,
sagðist í samtali við Morgunblaðið ekki telja
rétt að gefa upp hver röðin hafi verið og
hvernig hún hefði breyst. Nokkrir þátttak-
endur í forvalinu hafa farið fram á þetta sem
og fulltrúar Sjálfstæðisflokks í borgarráði, en
Árni Þór sagðist ekki viss um að arkitektastof-
unum yrði mikill greiði gerður með því að
birta nákvæmlega hvar þær hefðu lent í röð-
inni
Eins og kom fram í Morgunblaðinu á laug-
ardaginn hefur nokkuð verið fjallað um málið í
borgarráði, ekki síst vegna athugasemda arki-
tekta við fjölskyldutengsl yfirmanna borgar-
skipulags við tvær af þeim stofum sem valdar
voru til að taka þátt í skipulagsvinnunni. Í
hafnað var. Búist er við að hinar nýju tillögur
verði lagðar fyrir skipulags- og byggingar-
nefnd í dag.
Röðin breyttist
Eins og áður sagði voru þrjú meginviðmið
höfð til hliðsjónar við einkunnagjöfina. Skipu-
lagsreynsla, þar sem lagt var mat á viðkom-
andi stofu við skipulagsvinnu, vó 40%. Starfs-
mannafjöldi, þar sem lagt var mat á getu
stofunnar til að takast á við stór verkefni, vó
35% og samkeppnisþátttaka, þar sem lagt var
mat á fjölda verka sem viðkomandi stofa hefur
unnið að í samkeppnum, vó 25%.
Í minnisblaði frá Árna Þór segir: „Sérhver
nefndarmaður gaf stofunum einkunn m.v.
ofangreind viðmið. Þegar yfirferð umsókna
var lokið með tilliti til þessara viðmiða var sá
helmingur þeirra sem hæstu einkunnir hlaut,
tekinn til frekari skoðunar. Stofunum var rað-
að eftir einkunnagjöf. Til viðbótar við ofan-
greind meginviðmið voru lögð til grundvallar
önnur málefnaleg sjónarmið s.s. hæfileikar til
samvinnu og stjórnunar, reynsla af verkefna-
skilum o.þ.h. Við það breyttist röð umsækj-
enda lítillega og á þeim grundvelli gerði for-
valsnefndin tillögu til skipulags- og
byggingarnefndar um þátttakendur í ramma-
skipulagi vegna Halla- og Hamrahlíðalanda.“
Í álitsgerð Hjörleifs B. Kvaran borgarlög-
manns kemur fram að mat forvalsnefndarinn-
ar hafi byggst jafnt á hlutlægum sem hug-
lægum sjónarmiðum. Eins og áður kom fram
sagðist Árni Þór ekki telja rétt að gefa það
upp hvernig röðin hefði breyst. Aðspurður
sagði hann að röð þeirra tveggja stofa sem
meta þyrfti á ný ásamt þeim 19 sem ekki
hefðu verið valdar upphaflega hefði ekki
breyst. Hann sagði að þær hefðu í báðum til-
fellum verið í hópi þriggja efstu stofanna.
Forval Reykjavíkurborgar vegna skipulags íbúðabyggða í Halla- og Hamrahlíðalöndum
Röð þátttakenda
ekki gefin upp
UNNIÐ hefur verið að því að opna
veginn norður í Árneshrepp á
Ströndum.
„Það er búið að vera snjólétt í
vetur en það gerði skot um daginn
sem lokaði þessu,“ segir Úlfar Páls-
son verkstjóri hjá Vegagerðinni.
„Þetta er búið að vera meira eða
minna opið í vetur, svona fyrir
jeppa að minnsta kosti.“ Vegagerð-
in notar tvo veghefla og snjóblás-
ara til að ryðja veginn. Á myndinni
sést að snjóhengja hefur fallið á
veghefil þar sem hann var að ryðja
veginn.
Morgunblaðið/Jón G. Guðjónsson
Snjóhengja
féll á
veghefil