Morgunblaðið - 11.04.2001, Side 12

Morgunblaðið - 11.04.2001, Side 12
FRÉTTIR 12 MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra sótti 8. apríl annan utan- ríkisráðherrafund Evrópusam- bandsins og samstarfsríkja þess um hina svokölluðu Norðlægu vídd ESB. Norðlæga víddin er samheiti fyrir áhersluatriði og verkefni sem ESB stendur að á norðurslóðum og var hrundið úr vör árið 1999 þegar Finn- land gegndi formennsku í Evrópu- sambandinu. Samstarfsríki ESB um Norðlæga vídd eru, auk Íslands, Eystrasaltsríkin, Noregur, Pólland og Rússland. Fundinn sóttu einnig áheyrnarfulltrúar frá Bandaríkjun- um og Kanada auk fulltrúa frá nor- rænum og evrópskum fjármála- stofnunum. Í ávarpi sínu á fundinum lagði ut- anríkisráðherra áherslu á mikilvægi svæðisbundins samstarfs á norður- slóðum. Hann lýsti ánægju með þær áherslur og þá vinnu sem Evrópu- sambandið leggur af mörkum á norðurslóðum, ekki síst á sviði um- hverfismála með sérstakri áherslu á varnir gegn mengun frá kjarnakljúf- um og kjarnorkuúrgangi. Þá hvatti utanríkisráðherra til þess að aukin áhersla yrði lögð á að koma í veg fyrir útbreiðslu smitsjúk- dóma og að barátta gegn alþjóðlegri glæpastarfsemi yrði efld. Loks lagði utanríkisráðherra áherslu á mikil- vægi öflugs samstarfs milli ESB og svæðasamtaka á norðurslóðum, þ.e. Barentsráðsins, Eystrasaltsráðsins og Norðurskautsráðsins um Norð- lægu víddina. Mikilvægt væri að allt starf að málefnum norðurslóða væri samræmt eins og kostur væri til að komast hjá tvíverknaði og auka þannig á skilvirkni. Utanríkisráðherra Svíþjóðar, Anna Lindt, stjórnaði fundinum en Svíþjóð gegnir nú formennsku í ESB. Utanríkisráðherra á fundi ESB og samstarfsríkja um hina Norðlægu vídd Svæðisbundið samstarf mikilvægt EINSTAKLINGAR sem þýski her- inn hneppti í þrældóm eða nauðung- arvinnu í síðari heimsstyrjöldinni geta nú lagt fram kröfu um skaðabæt- ur á hendur þýska ríkinu og hefur ut- anríkisráðuneyti Þýskalands beðið ís- lensk stjórnvöld að koma á framfæri upplýsingum um skaðabætur sem einhverjir íbúar á Íslandi telja sig eiga rétt á. Sé viðkomandi ekki á lífi geta aðstandendur eða afkomendur krafist þess að fá skaðabæturnar greiddar. Bæturnar eru fyrst og fremst ætl- aðar þeim sem hnepptir voru í þræl- dóm eða nauðungarvinnu en einnig geta þeir krafist bóta sem urðu fyrir óbætanlegu heilsustjóni af völdum illrar meðferðar eða eignamissi í seinni heimsstyrjöldinni sem rekja má til kynþáttaofsókna nasista. Stríðsfangar eiga hins vegar ekki rétt á bótum. Þýska ríkisstjórnin og nokkur fyr- irtæki í Þýskalandi hafa stofnað sjóð sem ætlað er að koma til móts við þá sem sannanlega sættu grimmilegri meðferð af hálfu nastistastjórnarinn- ar á stríðsárunum. Jafnframt því hef- ur ríkisstjórnin stofnað til samstarfs við nokkur alþjóðleg mannúðarsam- tök og stofnanir sem hafa tekið að sér að meta hugsanlegar kröfur. Greidd- ar verða bætur til þeirra sem sannað geta sitt mál og nema greiðslur allt frá 2.000 þýskum mörkum upp í 15.000 mörk, sem eru ríflega 600.000 krónur. Samkvæmt upplýsingum frá utan- ríkisráðuneytinu eru íslensk stjórn- völd að bregðast við þeirri ósk utan- ríkisráðuneytis Þýskalands um að miðla upplýsingum til þeirra sem telja sig eiga rétt á skaðabótum, en ekki er vitað til þess að einhverjir að- ilar hér á landi telji sig eiga rétt á slík- um bótum. Skaðabótakröfum þarf að skila fyrir 1. ágúst á þessu ári en nán- ari upplýsingar fást hjá alþjóðaskrif- stofu utanríkisráðuneytisins. Leita fórnar- lamba nasista hérlendis GÆÐAVERÐLAUN Ferðaskrif- stofu Íslands voru í veitt í fyrsta skipti á mánudag, en markmið þeirra er að auka gæði í ferðaþjón- ustu innanlands. Í flokki hótela hlutu Hótel Framtíð á Djúpavogi og Hótel Flúðir viðurkenningu. Af- þreyingarstaðir sem verðlaunaðir voru eru Sögusafnið á Hvolsvelli, Jökulsárlón og Byggðasafn Skag- firðinga í Glaumbæ. Þá voru bíl- stjórarnir Gunnar Valur Jónsson og Steinn Sigurðsson verðlaunaðir og leiðsögumennirnir Hinrik Bjarnason, Laufey Helgadóttir og Árni Magnússon. Valið á verðlaunahöfum er byggt á gæðakönnun á íslenskri ferða- þjónustu utan höfuðborgarsvæðis- ins sem gerð var síðastliðið sumar. Gerð var könnun á 68 gististöðum, 23 afþreyingaraðilum, 34 leiðsögu- mönnum og 43 bílstjórum. Í úrtak- inu voru 1.400 ferðamenn sem tóku þátt í hringferðum um landið í rút- um yfir sumartímann. Svarhlutfall í könnuninni var 80%. Ferðamenn skiptust þannig eftir málsvæðum að 550 voru enskumælandi, 450 þýsku- mælandi, 200 frönskumælandi, 100 ítölskumælandi og 100 tóku þátt í blönduðum ferðum á þýsku og ensku. Úrtakið er í sama hlutfalli og heildarfjöldi ofangreindra ferða- manna sem sækja Ísland heim. Ráða má af niðurstöðum úr könn- uninni að farþegar séu almennt mjög ánægðir með Íslands sem áfangastað og er náttúrufegurð helsta aðdráttaraflið. Það sem helst er fundið að Íslandi er að gæði gist- ingar sé ekki nógu góð og að verð- lag sé of hátt. Í könnuninni kemur einnig fram að Frakkar kvarta helst yfir því að fá ekki eftirrétt, Bandaríkjamenn vilja hafa vika- pilta á hótelum til að bera tösk- urnar og Norðurlandabúar leggja mest upp úr því að burstar séu á klósettum til að þrífa þau eftir notkun. Gæðaverðlaun Ferðaskrifstofu Íslands veitt í fyrsta skipti Markmiðið að auka gæði ferðaþjónustu Morgunblaðið/Kristinn Í flokki afþreyingarstaða hlutu verðlaun Byggðasafn Skagfirðinga Glaumbæ, Jökulsárlón og Sögusetrið Hvols- velli. Við verðlaunum tóku Sigríður Sigurðardóttir, forstöðumaður Glaumbæjar, Einar Björn Einarsson, fram- kvæmdastjóri Jökulsárlóns, og Arthúr Björgvin Bollason, forstöðumaður Sögusetursins. FYRRVERANDI forsetafrú Bandaríkjanna, frú Hillary Rod- ham Clinton, gaf nýverið meðferð- arheimili fyrir börn með geðræn vandamál hestana tvo sem henni voru færðir í heimsókn sinni hér á landi í október 1999 þegar hún tók þátt í ráðstefnunni um konur og lýðræði við árþúsundamót. Hestarnir voru gjöf íslenskra barna til barna í Bandaríkjunum og hafa þeir nú fengið heimili á meðferðarheimilinu Green Chimn- eys í Putnam-sýslu í New York. Frá þessu er sagt í Lögbergi- Heimskringlu, fréttablaði Vestur- Íslendinga í Kanada. Hestarnir, Spaði og Reimar, hafa vakið athygli í fjölmiðlum þar vestra undanfarnar vikur og eru börnin á Green Chimneys sögð himinlifandi með hina nýju fer- fættu íbúa. Fram kemur í Lög- bergi-Heimskringlu að hvor hest- ur sé metinn á 25 þúsund dollara eða sem samsvarar um 2,3 millj- ónum króna. Gagnast vel í nýju hlutverki Skarphéðinn Steinarsson, skrif- stofustjóri í forsætisráðuneytinu, segir í samtali við Morgunblaðið að þessi ákvörðun hafa verið tekna í fullu samráði við ráðu- neytið. „Við nutum síðan aðstoðar Félags hrossabænda og fleiri við þessa ráðstöfun. Þeir eru komnir þarna á sinn stað og við höfum heyrt að það sé mikil ánægja með þá og að þeir gagnist vel í með- ferðinni á krökkunum sem þarna eru. Þannig að það gekk alveg eft- ir sem menn ætluðu sér með þetta.“ Hillary Clinton gaf börnum á meðferðar- heimili íslensku hestana Hillary og Davíð á Þingvöllum. RÚMLEGA sextugur maður hefur verið sviptur ökurétti í ár og dæmdur til 60.000 króna sektar í ríkissjóð í héraðsdómi Reykjavíkur fyrir ölvunarakstur. Jafnframt var hann dæmdur til að greiða allan sakarkostnað, þ.m.t. málsvarnar- laun skipaðs verjanda síns, 40.000 krónur. Vitni tilkynntu lögreglu akstur mannsins sem þau töldu vera drukkinn, en þau fylgdu bif- reiðinni að heimili hans og sögðu að lögregla hefði verið komin á vett- vang 5–10 mínútum eftir að hann stöðvaði bifreið sína. Maðurinn við- urkenndi að hafa ekið bifreiðinni umræddan dag úr vesturborginni í Breiðholt. Hann neitaði aftur á móti að hafa verið undir áhrifum áfengis við aksturinn en kvaðst hafa drukk- ið allmikið áfengismagn eftir að heim kom. Niðurstaða alkóhólrann- sóknar sýndi magn alkóhóls í blóði ákærða 2,17 ‰ en í þvagi 2,68 ‰. Samkvæmt áliti Lyfjafræðistofn- unar Háskóla Íslands, sem aflað var vegna málsins, segir að hlutfall etanóls í blóði og þvagi bendi til þess að ákærði hafi ekki neytt áfengis svo nokkru nemi í að minnsta kosti klukkustund áður en sýnin voru tekin, sem var kl. 19. Þá sagði í álitinu að fræðilega væri nánast útilokað að ná því magni af etanóli í þvagi á þeim stutta tíma sem leið frá því að akstri lauk þar til maðurinn var færður til sýn- istöku. Hefur oft hlotið dóma Maðurinn hefur margsinnis hlotið dóma og gengist undir sátt vegna brota á áfengis- og umferðarlögum. Ekkert þeirra hafði þó ítrekunar- áhrif á refsingu hans fyrir brotið sem hann var dæmdur fyrir í dag. Valtýr Sigurðsson héraðsdómari kvað upp dóminn. Dæmdur fyrir ölvunarakstur í Héraðsdómi Reykjavíkur Kvaðst hafa sest að drykkju að loknum akstrinum GÆSLUVARÐHALD yfir karlmanni sem tollgæslan á Keflavíkurflugvelli handtók 25 mars sl. með ígildi 2.000 e- taflna sem hann hafði falið í buxnastreng og í úðabrúsa hefur verið framlengt til 30. apríl nk. að kröfu fíkniefna- deildar lögreglunnar í Reykja- vík. Gæslu- varðhald framlengt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.