Morgunblaðið - 11.04.2001, Page 14
HALLDÓR Blöndal forseti
Alþingis opnaði formlega
nýjan vef sem fulltrúaráð
sjálfstæðisfélaganna á Ak-
ureyri hafa sett upp, en
hann er á slóðinni islend-
ingur.is. Sjálfstæðismenn
gáfu um árabil út blað sem
hét Íslendingur og var
Halldór Blöndal eitt sinn
ritstjóri þess. Halldór sagði
það ánægjulegt að Íslend-
ingur kæmi nú út að nýju.
Á þessu nýja vefsetri
verður miðlað upplýsingum
og skoðunum, þar verða
birtar tilkynningar úr
félagsstarfi sjálfstæðis-
manna á Akureyri auk þess
sem samið hefur verið við
pistlahöfunda um regluleg
greinaskrif. Loks munu al-
þingismenn kjördæmisins leggja
vefnum til efni með greinaskrifum
og þá geta lesendur og velunnarar
Íslendings komið skoðunum sínum
þar á framfæri.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Halldór Blöndal, forseti Alþingis
og fyrsti þingmaður Norðurlands-
kjördæmis eystra, opnar nýjan
vef Sjálfstæðisfélaganna á Akur-
eyri, islendingur.is, í fyrrakvöld.
Sjálfstæðismenn opna nýjan vef
Íslendingur
kemur út að nýju
AKUREYRI
14 MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
VERK franska ljósmyndarans
Henri Cartier-Bresson koma al-
menningi í fyrsta skipti fyrir
sjónir hérlendis eftir rúma viku,
þegar opnuð verður sýning með
mörgum frægustu myndum hans í
Listasafninu á Akureyri.
Sending með myndum meist-
arans, sem barst til Akureyrar í
gær frá Magnum Photos í París,
var þegar í stað opnuð og voru
aðstandendur sýningarinnar að
vonum spenntir. „Við erum með
83 verk eftir Cartier-Bressen,
sem spanna Parísartímabilið sem
svo hefur verið kallað, árin frá
1950 til 1970, og þarna eru lyk-
ilverk inn á milli – til dæmis
drengurinn með vínflöskurnar,
sem er ein frægasta mynd hans,“
sagði Hannes Sigurðsson, for-
stöðumaður Listasafnsins á Ak-
ureyri, í samtali við Morg-
unblaðið í gær, en hann skoðaði
myndirnar í gær ásamt nokkrum
meðlimum Áhugaljósmynd-
araklúbbs Akureyrar (ÁLKA).
Henri Cartier-Bresson, sem býr
í Frakklandi í hárri elli, er talinn
fremsti ljósmyndari 20. ald-
arinnar; hann er maðurinn sem
bylti ljósmynduninni, bæði á list-
ræna sviðinu og í frétta-
ljósmyndun.
Þess má geta til gamans að
þegar Time Magazine í Banda-
ríkjunum gerði upp 20. öldina við
nýliðin árþúsundamót taldi blaðið
Cartier-Bresson merkasta lifandi
listamann heimsins, hvorki meira
né minna.
Á sama tíma og sýning á mynd-
um Cartier-Bresson verður í
Listasafninu stendur yfir í vest-
ursal þess sýning á völdum mynd-
um úr bókinni Akureyri – bærinn
okkar, sem ÁLKA gaf út í tilefni
tíu ára afmælis klúbbsins nýverið.
Verk frægasta ljósmyndara
20. aldar sýnd á Akureyri
Ljósmynd/Kristján Pétur Guðnason
Hannes Sigurðsson, forstöðumaður Listasafnsins á Akureyri, með eina þekktustu mynd Cartier-Bressons – Drengurinn með vínflöskurnar – þegar
norðanmenn tóku upp sendinguna í gær. Frá vinstri: Þórhallur Jónsson, Hörður Geirsson, Hannes, Árni Ólafsson og Björgvin Steindórsson.
SONJA Rut Aðalsteinsdóttir nemi
við Verkmenntaskólann á Ak-
ureyri var kjörin Ungfrú Norður-
land í keppni sem fram fór í Sjall-
anum. Íris Egilsdóttir, nemi við
Menntaskólann á Akureyri, varð í
öðru sæti en Elsa Karen Krist-
insdóttir nemi í Verkmenntaskól-
anum á Akureyri og Sigríður
Eiðsdóttir, sem einnig er í þeim
skóla, urðu báðar í þriðja sæti.
Stúlkurnar munu allar taka þátt
í Fegurðarsamkeppni Íslands, sem
fram fer í Reykjavík í maí.
Önnur úrslit urðu þau að Íris
var einnig valin ljósmyndafyr-
irsæta keppninnar, Elsa Karen
hlaut titilinn Sportstúlkan og þá
völdu stúlkurnar Jóhönnu Bergl-
ind Bjarnadóttur nema í VMA vin-
sælustu stúlkuna í hópnum. Net-
stúlka Norðurlands varð Arnbjörg
Kristrún Konráðsdóttir nemi við
Myndlistarskólann á Akureyri, en
hana völdu áhorfendur Skjávarps
í netkosningu. Alls tóku tíu stúlk-
ur þátt í keppninni að þessu sinni.
Sonja Rut ungfrú Norðurland
Sonja Rut Aðalsteinsdóttir, sem situr önnur frá vinstri, var kjörin ungfrú Norðurland. Til vinstri er Íris Egils-
dóttir sem varð í öðru sæti og Sonju á vinstri hönd eru Elsa Karen Kristinsdóttir og Sigríður Eiðsdóttur, sem
deildu þriðja sætinu.
TVÍTUGUR Dalvíkingur hefur i
Héraðsdómi Norðurlands eystra
verið dæmdur til að greiða 110 þús-
und krónur í sekt til ríkissjóðs eða
sæta ella 22 daga fangelsi verði sekt-
in ekki greidd innan fjögurra vikna.
Maðurinn var ákærður fyrir fíkni-
efnabrot, en hann og tveir menn aðr-
ir á svipuðum aldri voru handteknir í
bifreið skammt norðan Akureyrar.
Tæp 85 grömm af hassi fundust
skammt frá bíl þeirra, en þeir höfðu
kastað því út úr bílnum þegar þeir
urðu lögreglu varir. Mál hinn pilt-
anna tveggja var skilið frá þessu
máli og afgreitt í sérstöku máli.
Héraðsdómur Norðurlands eystra
hefur einnig dæmt tvo menn um tví-
tugt fyrir fíkniefnabrot. Annar fékk
40 þúsund króna sekt og hinn 7 þús-
und krónur auk þess sem óverulegt
magn af hassi og amfetamíni var
gert upptækt.
Þeir voru ákærðir vegna nokk-
urra tilvika þar sem þeir höfðu haft
slík efni undir höndum. Annar hafði
hlotið nokkra dóma áður og hinn
gengist undir sáttargreiðslur, m.a.
vegna brota á ávana- og fíkniefna-
löggjöf. Þriðji maðurinn sem einnig
var ákærður í málinu hlaut ekki
refsingu að þessu sinni, heldur var
dæmdur hegningarauki þar sem
brot þau sem nú var dæmt fyrir voru
framin áður en hann hlaut dóm síð-
ast.
Sektar-
greiðslur
vegna fíkni-
efnabrota
VEÐURGUÐIRNIR voru ekki í
spariskapinu meðan á Skíðamóti Ís-
lands stóð í Hlíðarfjalli en engu að
síður tókst framkvæmd mótsins með
miklum ágætum.
Í keppni í svigi á sunnudag var
skyggni sérlega slæmt og þurftu
starfsmenn mótsins að grípa til þess
ráðs að klippa niður grenitré og
dreifa með stöngunum í brautinni,
þannig að keppendur ættu auðveld-
ara með að komast í mark heilu og
höldnu.
Grenitré í
svigbrautinni
Morgunblaðið/Kristján
Félagsmenn í Skíðafélagi Akureyrar klippa niður grenitré, sem notað
var til að merkja brautirnar í sviginu á sunnudag.
RÚNAR Sigurpálsson frá Skák-
félagi Akureyrar sigraði með
glæsibrag á 67. Skákþingi Norð-
lendinga sem fram fór í grunn-
skólanum á Þórshöfn um síðustu
helgi og er þetta í sjötta sinn
sem hann vinnur sigur á mótinu.
Rúnar lét ekki þar við sitja því
hann varð einnig hraðskák-
meistari Norðlendinga með fullu
húsi, hlaut 11 vinninga af 11
mögulegum.
Jón Birkir Jónsson frá Ak-
ureyri vann öruggan sigur í
unglingaflokki og með fullu
húsi, hlaut 9 vinninga af 9
mögulegum.
Félagi hans Ágúst Bragi
Björnsson sigraði í drengja-
flokki, hlaut 7 vinninga af 9
mögulegum, og í barnaflokki
sigraði Ólafur Ólafsson, einnig
frá Akureyri, en hann hlaut 2
vinninga.
Rúnar skákmeistari
í sjötta sinn
Skákþing Norðlendinga