Morgunblaðið - 11.04.2001, Síða 16

Morgunblaðið - 11.04.2001, Síða 16
LANDIÐ 16 MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ Skeifunni 17, 108 Reykjavík Furuvöllum 5, 600 Akureyri OPIÐ VIRKA DAGA KL. 8 -19 • LAUGARDAGA KL. 10 -16 590,- – ekki bara s tundum!Alltaf ód ýrir Sími 550 4100 295.- 100% Verð hjá Pennanum SONY disklingar hærra verð hjá Pennanum! j Egilsstöðum - Heilbrigðisráðherra undirritaði á fimmtudag samning um árangursstjórnun við stjórnendur Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA). Í fréttatilkynningu segir að markmið samningsins séu m.a. að auka gagnkvæmar skyldur heilbrigð- is- og tryggingaráðuneytisins og HSA, efla áætlanagerð og eftirlits- þátt ráðuneytisins og auka jafnframt sjálfstæði og ábyrgð HSA á rekstri sínum og þjónustu. Samkvæmt samningnum skal stofnunin meta þörf fyrir heilbrigð- isþjónustu á starfssvæði sínu og hvernig henni verði best mætt. Í því skyni skal stofnunin setja fram í áætl- unum sínum til ráðuneytisins skýr markmið, m.a. töluleg, um leiðir að settu marki, árangur og mat á honum. Samningurinn er í samræmi við gæðaáætlun ráðuneytisins frá sl. ári. Samkvæmt henni er gert ráð fyrir að allar heilbrigðisstofnanir móti sér áætlanir um gæðaþróun og hafi lokið því fyrir árslok. Við sama tækifæri og samningur- inn var undirritaður var ný viðbygg- ing heilsugæslustöðvarinnar á Egils- stöðum tekin í notkun. Ingibjörg Pálmadóttir opnaði bygginguna formlega með því að aka sjúkrabifreið fagmannlega inn í hana. Ingibjörg hrósaði rekstri heilsugæslustöðvar- innar og benti á mikilvægi hennar fyrir byggðarlagið. Viðbyggingin er 500 m² að stærð, á tveimur hæðum og kostnaður við hana um 50 milljónir króna. Henni er ætlað að hýsa sjúkrabíla HSA, stór- slysa- og almannavarnabúnað, röntg- enstofu og aðgerðastofu. Í framtíð- inni verður á neðri hæðinni aðstaða fyrir mæðra- og ungbarnavernd, sér- fræðiskoðun og ýmislegt fleira en mjög var farið að þrengja að vaxandi rekstri stofnunarinnar. Nýr rekstrarstjóri hefur verið ráð- inn til Heilbrigðisstofnunar Austur- lands en það er Ólafur Als. Hann er Reykvíkingur og fyrrverandi fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins Póst- miðlunar. Ólafur er rekstrarfræðing- ur og landfræðingur að mennt. Samið um gæðastjórnun og við- byggingu við Heilsugæslustöðina Heilbrigðisráð- herra við stýrið Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Trítlukórinn úr Tónlistarskóla Fellabæjar tók lagið á opnunarhátíðinni. Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra ók sjúkrabifreið inn í nýja viðbyggingu Heilsugæslustöðvarinnar á Egilsstöðum og tók hana þann- ig formlega í notkun. Borgarnesi - Lokahátíð stóru upplestrarkeppninnar var hald- in í Borgarnesi 29. mars og tóku ellefu keppendur þátt í henni. Þeir komu úr sex skólum á Vesturlandi: Grunnskólanum í Borgarnesi, Búðardal, Varma- landsskóla, Heiðarskóla, Anda- kílsskóla og Laugargerðisskóla. Sigurvegararnir voru Rakel Guðjónsdóttir í fyrsta sæti og Magnús Brynjólfsson í öðru sæti, bæði nemendur í 7. bekk Varmalandsskóla, og í þriðja sæti hafnaði Ágústa Hrund Þor- geirsdóttir, nemandi í Andakíls- skóla. Lokahátíðin var í umsjón Grunnskóla Borgarness og fór hátíðlega fram í Borgarnes- kirkju. Keppendur lásu bæði texta og ljóð og í hléum léku nemendur frá Tónlistarskóla Borgarfjarðar á hljóðfæri. Snorri Þorsteinsson, fyrrverandi fræðslustjóri, ávarpaði gesti og hafði orð á því hversu mikilvægt það væri að temja sér rétt og skýrt málfar og að lestrarkeppni væri ein leið til að örva málvitund ungmenna. Á meðan dómararnir báru saman bækur sínar var gestum boðið í kaffi og meðlæti. Allir keppendur fengu bókina Þjóðsögur við sjó í viðurkenning- arskyni og skólarnir viðurkenn- ingarskjal fyrir þátttöku. Sigur- vegararnir fengu að auki tösku og peningaverðlaun frá Spari- sjóði Mýrasýslu. Upplestrarkeppni í Borgarnesi Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir Rakel Guðjónsdóttir úr Varmalandsskóla lenti í fyrsta sæti, Magnús Brynjólfsson, einnig úr Varmalandsskóla, í 2. sæti og í þriðja sæti varð Ágústa Hrund Þorgeirsdóttir úr Andakílsskóla. Grindavík - Nýr veitinga- og skemmtistaður var opnaður nú í lok mars. Þessi nýi staður á líka að gegna því hlutverki að vera kaffihús, að sögn eigenda. Eig- endurnir eru þrír, þeir Jón Hall- dór Jónsson, Einar Björn Bjarna- son og Guðmundur Karl Tómasson. „Hérna á að vera allt til alls, búið að panta húsið töluvert, m.a. fyrir fermingar. Þetta er búið að vera mikil törn að koma þessu öllu í stand og síðasti iðn- aðarmaðurinn fór hér fimm mín- útum áður en fyrstu gestirnir komu. Bygging hússins hófst 26. október síðastliðinn og ætli kostnaðurinn sé ekki eitthvað um 32 milljónir?“ sagði Jón Halldór Jónsson, einn af eigendunum. Þetta hús er allt hið glæsileg- asta og kærkomin búbót í skemmtanalíf og menningu Grindvíkinga. Tveir salir eru í húsinu, á efri hæð er salur sem tekur um 120 manns í sæti og niðri er salur sem tekur 80 manns í sæti. Þess utan er koní- aksstofa sem er hin glæsilegasta og fer vel í þessu glæsilega bjálkahúsi frá Eistlandi. „Gólfflöturinn er 320 fermetrar niðri og svo eru 180 fermetrar uppi. Afgreiðslutíminn er ekki fullmótaður en líklega opnum við kl. 12 og höfum opið til 1 á virk- um dögum en 3 um helgar,“ sagði Jón Halldór. Sjávarperl- an opnuð í Grindavík Morgunblaðið/GPV Eigendur Sjávarperlunnar. Frá vinstri: Sæunn Kristinsdóttir, Einar Björn Bjarnason, Jón Halldór Jónsson, Hjördís Guðmundsdóttir, Guð- mundur Karl Tómasson og Kristrún Bragadóttir. Hellnum - Nýlega var haldið mál- þing á Hótel Borgarnesi þar sem fjallað var um menningartengda ferðaþjónustu og mikilvægi hennar í ferðaþjónustu. Gunnar Sigurðsson, formaður Sambands sveitarfélaga á Vesturlandi, setti þingið. Margir fyr- irlesarar fluttu erindi um ýmsa þætti menningartengdar ferðaþjónustu. Karitas Gunnarsdóttir, skrifstofu- stjóri skrifstofu menningarmála í menntamálaráðuneytinu, kynnti stefnumótun ráðuneytisins í menn- ingarmálum og forsendur samninga ríkis og sveitarfélaga um þau mál. Magnús Sigurðsson, minjavörður á Vesturlandi, fjallaði um mikilvægi fornleifaskráningar og benti á mik- ilvægi hennar fyrir menningar- tengda ferðaþjónustu. Bergur Þor- geirsson, forstöðumaður Snorra- stofu í Reykholti, fjallaði um menningarminjar, rannsóknir og miðlun í sínu rétta umhverfi. Rögn- valdur Guðmundsson ferðamála- fræðingur fjallaði um sagnalist og ýmsa möguleika til kynningar og miðlunar á sögu og hefðum en hann er í forsvari fyrir verkefni í sagna- hefð á Vesturlandi. Í framhaldi af framsögu Rögn- valdar kynnti málþingsstjóri, Sigríð- ur Finsen, oddviti Eyrarsveitar, óvæntan dagskrárlið. Var þar kom- inn einn besti sagnamaður Vestur- lands, Ingi Hans Jónsson úr Grund- arfirði, sem sagði málþingsgestum svo magnaðar sögur að allir sátu heillaðir. Var þar komið lýsandi dæmi um ágæti sagnahefðarinnar í ferðaþjónustu. Þegar Ingi Hans hafði lokið sög- um sínum tók Jón Jónsson, þjóð- fræðingur og framkvæmdastjóri Sögusmiðjunnar, við og leiddi ráð- stefnugesti í allan sannleika um Strandagaldur og kynnti fyrir mönnum hvernig þeir Strandamenn göldruðu upp fyrsta áfanga galdra- safnsins þar. Í lokin fjallaði Guðrún G. Bergmann, formaður Ferðamála- samtaka Vesturlands, um kraft ein- staklingsins í menningartengdri ferðaþjónustu og benti máli sínu til stuðnings á ýmsa einstaklinga sem hafa með áhuga sínum, elju og krafti byggt upp söfn og sögustaði sem njóta virðingar og vegsemdar. Sam- eiginleg niðurstaða málþingsins var að það hefði vakið menn til umhugs- unar og væri vissulega hvati til frek- ari dáða í þessum málaflokki á Vest- urlandi. Málþing á Hótel Borgarnesi Mikilvægi menningar- tengdrar ferðaþjónustu Morgunblaðið/Guðrún G. Bergmann Gestir á málþingi um menningartengda ferðaþjónustu í Borgarnesi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.