Morgunblaðið - 11.04.2001, Page 22
ERLENT
22 MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ZORAN Djindjic, forsætisráð-
herra Serbíu, segir í viðtali við
þýska vikublaðið Bunte að
hann búist við því að Mira, eig-
inkona Slobodans Milosevic,
verði handtekin innan tíðar.
Í viðtalinu, sem birtist á
morgun, segir Djindjic að Mil-
osevic og eiginkona hans hafi í
sameiningu stýrt ríkinu með
harðri hendi um tíu ára skeið,
og fyrirskipað handtökur og
morð á andstæðingum sínum.
Vilja flytja
úr landi
BRESKU hjónin sem í fyrra-
dag töpuðu forræðismáli yfir
tvíburum sem þau ættleiddu
gegn greiðslu um Netið sögðu í
gær að þau vildu flytjast búferl-
um til Bandaríkjanna vegna
þeirrar meðferðar sem þau
hafa þurft að sæta af hendi fjöl-
miðla og dómstóla. „Ég hef tap-
að öllu. Ég hef tapað landi
mínu,“ sagði Judith Kilshaw í
samtali í morgunþætti á sjón-
varpsstöðinni CBS.
Tvíburarnir sem deilt er um
voru í fyrstu ættleiddir í
Bandaríkjunum og síðan til
Kilshaw-hjónanna í Bretlandi.
Börnin verða nú sett í umsjá
Missouri-ríkis en dómstólar
þar munu taka endanlega
ákvörðun um forræðið.
Bush beiti
sér fyrir
stækkun
NATO
HÓPUR bandarískra öldunga-
deildarþingmanna úr röðum
repúblikana og demókrata hef-
ur skrifað George W. Bush
Bandaríkjaforseta bréf þar
sem hann er hvattur til að beita
sér fyrir stækkun Atlantshafs-
bandalagsins, NATO. Þetta
kemur fram í pólska dag-
blaðinu Gazeta Wyborcza í
gær. Í bréfinu segir að Bush
ætti að beita sér fyrir því að á
leiðtogafundi bandalagsins í
Prag á næsta ári verði stækk-
unin samþykkt.
Í bréfinu segir ekki hvaða
ríki það eru sem ættu að fá inn-
göngu. Rússar hafa verið því
mjög andvígir að Eystrasalts-
ríkjunum, sem áður tilheyrðu
Sovétríkjunum, verði boðin
innganga.
Engisprettur
í Afganistan
ENGISPRETTUFARALDUR
í norðurhluta Afganistan ógnar
nú gróðurfari landsins sem var
mjög viðkvæmt fyrir vegna
stöðugra þurrka. Að sögn af-
ganskra embættismanna er er-
lend aðstoð nauðsynleg ef tak-
ast á að stemma stigu við
faraldrinum. Sahibdad Pak-
been, háttsettur embættismað-
ur í landbúnaðarráðuneytinu,
sagði í gær að milljónir engi-
sprettulirfa væri nú að finna í
norðurhlutanum en þar er
helsta ræktarsvæði grænmetis
og ávaxta í landinu.
Að sögn Pakbeen hefur
stjórn Talibana í Afganistan
falast eftir aðstoð Matvæla- og
landbúnaðarstofnunar Samein-
uðu þjóðanna í baráttunni við
engispretturnar.
STUTT
Mira hand-
tekin inn-
an tíðar?
Á MORGUN verða liðin 40 ár frá
því að fyrsti maðurinn fór út fyrir
gufuhvolfið í geimferð og verður
þess minnst víða um heim en ekki
síst í Rússlandi. Júrí Gagarín, fyrsti
geimfarinn, fór þrjá hringi um-
hverfis jörðu 12. apríl 1961 og var
tekið með kostum og kynjum er
hann kom til Moskvu að afrekinu
loknu. Níkíta Krústsjof, aðalritari
kommúnistaflokksins og forsætis-
ráðherra, faðmaði að sér 27 ára
gamla flugmanninn sem honum
fannst hafa sannað yfirburði sov-
étkerfisins. Ekki var verra að Sov-
étmenn skákuðu bandarísku keppi-
nautunum nú aftur eins og gerðist
1957 þegar Sovétríkin urðu fyrsta
ríkið sem sendi á loft gervihnött,
Spútnik.
Gagarín var ein vinsælasta hetja
Sovétríkjanna gömlu og fjöldi
drengja var skírður í höfuðið á hon-
um, aðdáendabréfin streymdu til
hans. Hann fór í fjölda ferða til ann-
arra landa og kom meðal annars
við á Íslandi. Í fyrirsögnum dag-
blaða hér var honum meðal annars
líkt við Leif heppna. Gagarín fórst í
flugslysi árið 1968.
12. apríl hefur um áratugaskeið
verið geimfaradagurinn í Rússlandi
og þar áður Sovétríkjunum. Efnt
verður til hátíðarhalda í Moskvu,
heimaborg Gagaríns, einnig í Smol-
ensk og ýmsum útibúum rúss-
neskra geimferðarannsókna. Vladí-
mír Pútín forseti mun taka á móti
nefnd fremstu geimvísindamanna
og embættismanna á því sviði í
Kreml. Einnig verða haldnir fyr-
irlestrar, kynntar nýjar bækur um
Gagarín og sýndar sjónvarps-
myndir um geimferðir og líf fyrsta
geimfarans.
Vegna efnahagserfiðleikanna í
Rússlandi hefur þurft að draga
mjög úr fjárveitingum til geim-
rannsókna og fyrir nokkru var
geimstöðin gamla, Mír, kvödd og
látin brenna upp í gufuhvolfinu.
Í vefritinu The Russia Journal er
afreks Gagaríns minnst en jafn-
framt bent á að íbúar landsins hafi
aðeins fengið ritskoðaða frásögn af
manninum og geimferðinni. Öll
geimferðaáætlun Sovétríkjanna
hafi eins og annað verið umlukin
leynd og það sé ekki fyrr en á allra
síðustu árum sem raunveruleikinn
hafi komið í ljós. Sagt er frá nýrri
bók um goðsögnina Júrí Gagarín
eftir Jamie Doran og Piers Bozony
þar sem lýst sé á heiðarlegan hátt
atburðum án þess að svamla í
hneykslismálum en Gagarín mun
hafa verið ótrúr eiginkonu sinni og
nokkuð vínhneigður. Höfundarinir
rekja hvernig geimrannsóknirnar
fléttuðust saman við stjórnmál og
persónuleg átök milli geimfara en
segja auk þess frá hugrekki þeirra
og fórnarlund.
The Russia Journal bendir á að á
sovétskeiðinu hafi aldrei mátt lýsa
„heimsku kerfis sem stundum gekk
svo langt að mannslífum var fórnað
til að halda andlitinu“. En afrek
Gagaríns hafi í meiri mæli en aðrir
atburðir í reiptogi risaveldanna í
kalda stríðinu verið sigur mann-
kynsins alls fremur en átök tveggja
kerfa.
Ferðar Rússans Gagaríns árið 1961 minnst víða um heim
Var
fyrstur
manna
út í
geiminn
Reuters
Júrí Gagarín ræðir við aðdáendur sína í Moskvu 1962. Geimferð hans í
apríl árið 1961 tók 108 mínútur. Hann varð þegar í stað heimsfrægur
fyrir afrek sitt og var mjög hampað af ráðamönnum Sovétríkjanna.
Moskvu. AFP.
JAPANIR samþykktu í gær tíma-
bundnar hömlur á innflutning á
grænmeti, sem að mestu bitnar á
innflutningi frá Kína. Kínversk
stjórnvöld gagnrýna ákvörðunina
harðlega og segja að viðskiptadeilur
eigi ekki að leysa á slíkan hátt.
Að sögn Yasuo Fukuda, yfir-
manns í japanska stjórnarráðinu,
var afráðið að grípa til aðgerðanna
til að vernda bændur.
Að sögn Yohei Kono, utanrík-
isráðherra Japans, eru aðgerðirnar
í samræmi við reglur Heimsvið-
skiptastofnunar, WTO, og gildandi
lög í Japan.
WTO varar Japana við
Samkvæmt reglum WTO er leyfi-
legt fyrir aðildarríki að setja inn-
flutningshömlur á ákveðnar vörur
til að framleiðendur í viðkomandi
landi geti lagað sig að erlendri sam-
keppni.
Ákvörðun ríkisstjórnarinnar er
tekin vegna mikils þrýstings frá
hagsmunaaðilum, en í júlí verður
kosið til efri deildar japanska
þingsins. Frjálslyndi lýðræðisflokk-
urinn, sem er við stjórnvölinn í Jap-
an, sækir fylgi sitt mjög til sveita-
héraða.
Framkvæmdastjóri WTO, Mike
Moore, varaði Japana við því í janú-
ar sl. að verndarmúrar þeirra utan
um landbúnaðinn myndi kalla á
mótmæli annarra aðildarríkja.
Inn-
flutnings-
hömlur á
grænmeti
Tókýó. AFP.
Japanska stjórnin
angrar Kínverja
TALSMENN demókrata á Banda-
ríkjaþingi spá því að George W.
Bush forseta muni ekki takast að fá
í gegn hugmyndir sínar um sam-
drátt á ýmsum sviðum ríkisútgjalda
en stjórn Bush lagði fram fjárlaga-
tillögur sínar á mánudag. Í liðinni
viku samþykkti öldungadeild þings-
ins að skattar yrðu lækkaðir um 1,3
trilljónir dollara á næstu ellefu ár-
um sem er talsvert minni lækkun en
Bush hafði lagt til. Repúblikana-
flokkur Bush hefur meirihluta í full-
trúadeild þingsins en í öldunga-
deildinni eru flokkarnir jafnstórir,
hafa 50 sæti hvor.
Í tillögum Bush er gert ráð fyrir
5,6% hækkun fjárlaga á næsta ári
og eru niðurstöðutölur um 1,96
trilljónir dollara. Gert er ráð fyrir
aukningu á framlögum til varnar-
mála, menntamála og rannsókna í
læknavísindum en demókratar full-
yrða að útgjöld til menntamála
hækki ekki nóg til að halda í við
verðbólgu og segja tölurnar lag-
færðar með brellum til að niður-
stöðurnar líti betur út en ella.
Bush sagði fréttamönnum á
mánudag að hann teldi tillögur sín-
ar í góðu samræmi við stefnu
„íhaldsstefnu náungakærleikans“
sem legði áherslu á áætlanir sem
bæru árangur en útrýmdi bruðli.
Hann sagði stjórn sína vilja fjar-
lægja þúsundir útgjaldatillagna sem
þingmenn hefðu borið fram með
sérhagsmuni kjördæma sinna í
huga.
„Fjárlagatillögur okkar munu
fjármagna þarfir okkar en ekki fitu-
söfnun,“ sagði forsetinn. Meðal þess
sem ætlun stjórnarinnar er að skera
burt eru alríkisframlög til lögreglu-
eftirlits í borgum, orkusparnaðar,
þjálfunar barnalækna og skatta-
legra ívilnana fyrir svæði í vanda.
Demókratar eru á öðru máli og
segja að Bush stefni hagsmunum
fjölmargra fátækra Bandaríkja-
manna í hættu með tillögum sínum.
„Skattar auðugra vina hans eru
lækkaðir en í fjárlögunum er veitt
allt of lítið fé til menntamála, heilsu-
gæslu, aðgerða til að tryggja hreint
vatn og umhverfi,“ sagði David
Bonior, leiðtogi demókrata í full-
trúadeildinni. Búast demókratar við
að fá stuðning nokkurra þingmanna
repúblikana en er öldungadeildin
samþykkti hugmyndir sínar um
skattalækkanir náðist eining um
málamiðlun milli samanlagt 65 hóf-
samra demókrata og repúblikana.
Fulltrúadeildin hafði áður sam-
þykkt tillögur Bush og verður á
næstunni reynt að finna leið til að
samræma hugmyndir þingdeild-
anna tveggja en hugmyndirnar eru
ekki bindandi. Þær skipta hins veg-
ar miklu fyrir ríkisstjórnina sem
tekur mið af þeim þegar hún mótar
stefnu sína.
Tom Daschle, leiðtogi demókrata
í öldungadeildinni, sagði á mánudag
að fjárlagatillögurnar væru dauða-
dæmdar áður en þær kæmu til um-
ræðu. Aðrir spáðu hörðum átökum í
þingnefndum þegar fundastörf hefj-
ast á ný eftir tveggja vikna hlé.
Rod Paige menntamálaráðherra
fullyrti að stjórnin hygðist hækka
framlög til menntamála meira en
nokkurra annarra málaflokka.
Hann sagði að ljóst væri að með
gildandi stefnu yrðu allt of margir
nemendur útundan og ráða þyrfti
bót á því.
Ekki nóg að auka
fjárveitingar
„Lausnin er ekki að auka einfald-
lega fjárveitingar til að framkvæma
sömu stefnuna,“ sagði Paige. Hann
sagði nauðsynlegt að leggja meiri
áherslu á góðan árangur með því að
beita prófum af kappi og heimta að
peningarnir til menntamála skiluðu
sér með bættum námsárangri. Þrátt
fyrir tveggja áratuga umbótavið-
leitni væri árangur nemenda úr röð-
um blökkumanna og fólks með upp-
runa í spænskumælandi löndum enn
sem fyrr lélegri en hvítra.
Kannanir benda til að lestrar-
kunnátta bandarískra 9–10 ára
grunnskólanemenda sé léleg og
sama er að segja um færni nemenda
almennt í stærðfræði og náttúruvís-
indum.
Stjórnvöld í Bandaríkjunum leggja fram fjárlagatillögur sínar
Hugmyndum Bush forseta
spáð skipbroti á þingi
Reuters
George W. Bush forseti á ráðherrafundi um fjárlagatillögurnar. Lengst
t.v. er Colin Powell utanríkisráðherra, þá Bush, síðan Donald Rumsfeld
varnarmálaráðherra og loks Don Evans sem fer með viðskiptamál.
Washington. Reuters, AP.