Morgunblaðið - 11.04.2001, Blaðsíða 24
ERLENT
24 MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Verzlunarskóli Íslands leitar að ritara sem þarf
að geta hafið störf 1. ágúst.
• Starf ritara er einkum fólgið í þjónustu við skólastjórn og kennara
auk sjálfstæðra verkefna á skrifstofu skólans.
• Lögð er áhersla á góða íslensku- og tölvukunnáttu (word, exel og
outlook).
• Stúdentspróf eða sambærileg menntun er nauðsynleg, þar sem starfið
krefst góðrar þekkingar á íslensku, ensku og einhverju Norðurlanda-
málanna.
• Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt við margvísleg krefjandi
verkefni.
Nánari upplýsingar veitir skrifstofustjóri (habbi@verslo.is).
Einnig er óskað eftir starfskrafti í símavörslu og afgreiðslu. Viðkomandi
þarf einnig að geta hafið störf 1. ágúst. Starfið er einkum fólgið í þjónustu
við nemendur og kennara.
Umsóknir skulu berast fyrir 1. maí nk.
VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS,
Ofanleiti 1, 103 Reykjavík,
sími 5900 600,
verslo@verslo.is
RITARI/SÍMAVARSLA
PEDRO Depestre, fiðluleikari kúb-
versku hljómsveitarinnar Buena
Vista Social Club, varð bráðkvaddur
á sviði í Basel í Sviss í fyrrakvöld.
Var hann 55 ára að aldri og yngstur
hljómsveitarfélaganna.
Depestre hafði rétt lokið við ein-
leik á fiðluna er hann hneig niður.
Reyndi læknir meðal áhorfenda að
hjálpa honum en tilraunir hans komu
fyrir ekki. Vegna þessa var fyrirhug-
uðum tónleikum hljómsveitarinnar í
Köln í Þýskalandi í gær aflýst.
Buena Vista Social Club nýtur
mikillar hylli víða um heim en lista-
mennirnir eru flestir á áttræðis- eða
níræðisaldri. Af síðasta geisladiski
þeirra hafa selst um fjórar milljónir
eintaka.
Hljómsveitin verður með tvenna
tónleika í Reykjavík um næstu mán-
aðamót.
Fiðluleikari Buena Vista
bráðkvaddur í Sviss
AFP. Basel.
ÉG veitti því fyrst athygli hversu
borgin er hrein. Ég íhugaði hvort
ástæðan gæti verið sú að ég var að
koma frá Sanaa sem hefur marga
góða kosti en seint verður um hana
sagt að hún sé hrein.
Næstu áhrifin voru frá fólkinu, það
var einhvern veginn frjálslegra í fasi,
eins og öllum liði betur. Menn ræddu
opinskátt að Bashar Assad forseti
væri að gera ýmsar breytingar en
hann yrði hins vegar að vara sig og
fara ekki of geyst því þá mætti túlka
það sem gagnrýni á föðurinn Hafez al
Assad sem lést í júní í fyrra. Myndir
og dýrindis málverk af honum prýða
enn opinberar byggingar, skrifstofur
og verslanir, að vísu ásamt með nýja
forsetanum. Og ég tók líka eftir því
að myndir af Basil Assad, sem lést
fyrir sjö árum í óútskýrðu bílslysi og
átti að verða arftaki föðurins, hafa
nær alveg horfið. Bashar er sem sagt
forseti og hann getur sætt sig við
skugga föðurins en ekki bróðurins
dána.
Breytingar á
bankalöggjöfinni
Áður en lengra er haldið er vert að
geta þess að svarti markaðurinn í
landinu hefur verið upprættur og er
horfinn eins og dögg fyrir sólu og far-
ið hefur fé betra en það hlýtur hins
vegar að auka mjög vinnu í bönkun-
um og hefur svipt fjölda manns góð-
um aur í vasann sem skiptu pening-
um fyrir útlendinga. Nú er fast gengi
á pundinu og það er 50 og er bundið
dollaranum. Þessi nýju lög um banka
voru sett með einni forsetatilskipun.
Og ekki nóg með það, sýrlenska
stjórnin er nýbúin að tilkynna, aftur
með forsetatilskipun, sem ríkis-
stjórnin samþykkti í hvelli, að erlend-
ir einkabankar mættu starfa í land-
inu, með 51% eignarhlut
Sýrlendinga. Flestir þeir verða vænt-
anlega líbanskir til að byrja með.
Þessar ráðstafanir verða viðskiptum
og verslun til framdráttar og blása
lífi í staðnað efnahagslíf landins.
Gerðir hafa verið nýir viðskipta-
samningar við Írak, Íran, Jórdaníu
og Tyrkland og í undirbúningi eru
fríverslunarsvæði á landamærunum
við Jórdaníu sem mér skilst að taki til
starfa í næsta mánuði.
Margir sögðu við mig að þetta
væru fyrstu skrefin í umsvifamiklum
efnahagsumbótum. „Þetta er góð
byrjun en við þolum þó ekki að fara of
geyst,“ sagði einn fjármálasérfræð-
ingur við mig.
Frúin er sýnileg
Ekki löngu eftir að Bashar tók við
gekk hann að eiga vinkonu sína sem
hann kynntist er hann var við nám í
Bretlandi. Hún er sýrlensk og tölvu-
fræðingur að mennt og faðir hennar
kunnur hjartaskurðlæknir í Eng-
landi.
Hún virðist bráðhugguleg í útliti
og hefur lagt sig í framkróka við að
kynnast fólki, farið í heimsóknir út og
suður, heimsótt veik börn og fleira.
Auk þess fylgir hún augnlækninum
við opinberar athafnir, brosir og er
hin hressasta að sjá. Þetta hefði verið
óhugsandi með gömlu frúna sem nán-
ast aldrei sást neins staðar og er
vissulega eitt af mörgum táknum um
breytta tíma hér í landi.
Ekki er verra að hún er sunni-
múslími en forsetinn tilheyrir ala-
víta-hópnum sem er í miklum minni-
hluta hér og hefur sætt gagnrýni fyr-
ir að hirða ekki um íslamska helgisiði.
Frúin notar ekki slæðu en hún
klæðir sig hefðbundið þegar hún fer í
heimsóknir út um landið. Hún hefur
einnig lagt sig eftir að taka röggsam-
lega á kvennasamtökum Sýrlands
sem voru hálfgerð strengjabrúða As-
sads gamla.
Net og tölvupóstur
í sókn
Það eru varla meira en tvö ár síðan
farsímar voru leyfðir hér með ýmsum
takmörkunum, Netið var bannað
með öllu og tölvupóstur þar af leið-
andi.
Fátt var um tölvur á stjórnarskrif-
stofum og litu þær því út eins og
skrifstofur frá sautján hundruð og
súrkál. En nú blómstra farsímar hér,
stjórnarskrifstofur eru að tölvuvæð-
ast af kappi og þótt netkaffihúsin þar
sem menn geta leigt sér tölvu í
klukkutíma eða lengur spretti ekki
upp eins og gorkúlur hér í Damaskus
eru þau farin að sjást. Sumir þakka
þetta áhrifum tölvufræðingsins sem
þegar hefur tekið að sér að undirbúa
þjálfun fjölda manns til tölvunotkun-
ar og tölvufræði munu verða verða
kennd í skólum hér eins fljótt og
verða má. Unga fólkið sérstaklega
telur þetta hið merkasta mál.
Bashar hefur tekist að
vinna sér tiltrú fólks
Það er enginn vafi að Bashar Ass-
ad ætlar sér stóran hlut. Hann er
hægur maður í framkomu en hefur
ekki langt að sækja einurð föður síns.
Hann hefur sýnt seiglu og frumkvæði
og töluverða tilburði í frjálsræðisátt.
Hann hefur dregið stórlega úr því að
öll blöð og aðrir fjölmiðlar tíundi
rækilega hvert skref sem hann stígur
dag hvern. Stórblaðid Tishrén birti
nýlega grein þar sem hvatt er til stór-
felldra umbóta í opinbera geiranum.
Þetta var fyrsta gagnrýnin sem sést
hefur og má túlka sem beina gagn-
rýni á Hafez, föður hans.
Margir hafa velt fyrir sér hvernig
Bashar stóð sig á fundinum í Amman
á dögunum þar sem hann þurfti
reglulega að sanna sig. Ég horfði á
hann flytja ræðuna í litlu kaffihúsi í
Sanaa og sá ekki betur en hann væri
taugaóstyrkur og hikandi í byrjun.
En svo óx honum ásmegin smám
saman og þegar á leið ræðuna gerði
hann það sem arabaleiðtogar gera
mjög sjaldan, hann veik frá skrifuð-
um texta, fas hans varð öruggara
þegar hann uppgötvaði að þetta tókst
bara bærilega, varpaði fram spurn-
ingum um einingu eða óeiningu araba
og var dálítið heimspekilegur á
stundum. Hann benti kollegum sín-
um á að ekki þýddi bara að kvarta og
kveina, menn yrðu að sýna sjálfs-
skoðun og vera samkvæmir sjálfum
sér. Hann svívirti Ariel Sharon á alla
kanta og tókst það líka svo menn lof-
uðu óspart og í litla kaffihúsinu
klöppuðu menn ákaft.
Þá er merkilegt að hann rétti fram
sáttahönd til Arafats sem hefur verið
meira og minna upp á kant við Sýr-
lendinga síðan þeir gagnrýndu Ósló-
arsamninginn. Þá hafa samskiptin
við Jórdaníu breyst stórlega til hins
betra og meira að segja stöku
kristnir Líbanar segja að hann sé þó
allavega skárri kostur en faðir hans.
Bashar hefur þó ekki gengið svo
langt að rýmka leyfi til að erlendir
blaðamenn komi frjálsir og óhindrað
inni landið. Ég var því námsmaður og
kennari við komuna og maðurinn í
vegabréfaskoðuninni hló mikið og
sagði: „Ég hef þig nú hérna á blaði
frá í fyrra, þá sögðu einhverjir að þú
hefðir verið að skrifa um Sýrland.“
Það er ekki að spyrja að því að
leyniþjónustan lifir góðu lífi hér. „Þú
skalt ekki hafa hátt um að ég hafi
sagt það. Maður veit aldrei,“ hvíslaði
hann. „En það er margt gott að ger-
ast hér og margt nýtt í sköpun. Það
er allt til hins betra.“ Og ég fór inn
brosandi og sagðist alltaf hafa talið
mig Sýrlandsvin og skrökvaði engu
um það.
Leynilögga og öryggisverðir eru
auðvitað úti um allt sem fyrr en niðri í
gömlu borg sagði mér ónefndur
kaupmaður sem Íslendingar þekkja
úr síðustu Sýrlandsferð í október að
skriffinnska hefði stórminnkað og nú
þyrfti hann ekki að fylla út nema 5
skjöl miðað við 15 í fyrra. Og kennari
nokkur sem settur var út í kuldann af
fyrrverandi menntamálaráðherra
hefur nú verið skipaður forstjóri í
einum besta arabíska málaskólanum
hér. Kennari þessi hefur alltaf greitt
sitt atkvæði eins og skylda er en að
öðru leyti fór hann dult með hrifn-
ingu sína á stjórnkerfinu og yfirvöld-
um menntamála.
Bashar Assadson hafði verið for-
seti í mánuð þegar hann skipaði nýj-
an menntamálaráðherra og sá boðar
margar nýjar breytingar í skólakerf-
inu hér og ekki vanþörf á.
Nýi forsetinn leyfir
starfsemi umræðuhópa
Öllum er ljóst að Bashar er afar
ólíkur föður sínum og með ólíkan
bakgrunn. Nútímamaður í ríki sem
hefur staðnað. Hann hefur leyft að
stofnaðir verði umræðuhópar sem
eiga að gera tillögur um breytingar
og þeir starfa nú af kappi um allt
land.
Hann hefur sett á stofn 35 sér-
fræðingaráð fyrrverandi ráðherra og
fjármálaspekinga til að koma með
umbótatillögur í efnahagsmálum.
Þetta er viðamikið verk og verður
ekki hrist fram úr erminni á augna-
bliki enda virtist mér af tali við fólk í
Sýrlandi að menn væru tilbúnir að
gefa honum tíma.
Gert er ráð fyrir sjö prósenta hag-
vexti í ár, einkum vegna ábata af ol-
íuvinnslunni sem er einkum í höndum
útlendra fyrirtækja.
En 40% útflutningstekna koma til
vegna akuryrkju og þar er hvað
mestra úrbóta þörf, einkum á sviði
tækni og áætlanir eru þegar komnar
af stað um það.
Engin stórbreyting
Sýrlendingar eiga 60 milljarða
dollara í erlendum bönkum. Fengjust
þeir til að flytja þó ekki væri nema
örlítið brot af þeim heim mundi það
verða til stórmikillar hjálpar. Nýju
bankalögin kunna að breyta þessu og
laða þá til að koma hluta peninganna
heim.
Það verður engin skyndibreyting
med Bashar augnlækni en það verð-
ur þróun, sagði sérfræðingur einn við
mig. Hann bætti við að metnaður
Sýrlandsforseta væri að koma
stökkvandi inn í hátækniheim 21. ald-
ar með brúði sína, tölvufræðinginn,
sér við hlið. „Og það sker úr um
hvernig þjóðin mun pluma sig hvern-
ig honum tekst það,“ bætti hann við.
Er eitthvað
gott að
gerast í
Sýrlandi?
Reuters
Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, og eiginkona hans, Asma al-Akhras.
Hún er borin og barnfædd í Bretlandi enda vestrænni í háttum en títt er
með eiginkonur ráðamanna í arabaríkjunum.
Það er engu líkara en komið sé til Evrópu-
lands þegar lent er í Damaskus eftir að hafa
verið röska 3 mánuði í Jemen, skrifar Jó-
hanna Kristjónsdóttir frá Sýrlandi. Margs
konar breytingar eru í gerjun en þótt óljóst
sé hver útkoman verður er vissulega þess
virði að fylgjast vel með þróuninni.