Morgunblaðið - 11.04.2001, Síða 26
ERLENT
26 MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
LÆKNAR í Singapore luku í gær
við að skilja að síamstvíburasystur
frá Nepal sem voru samvaxnar á
höfði. Aðgerðin stóð yfir í fulla fjóra
sólarhringa en hún var mjög vanda-
söm þar sem heilar systranna deildu
að hluta til sama æðakerfi.
Tuttugu manna teymi sérfræð-
inga sá um aðgerðina sem hófst á
föstudag en lauk ekki fyrr en í gær-
morgun. Kjarnateymi nokkurra sér-
fræðinga í taugaskurðlækningum og
svæfingalækna unnu sér vart hvíldar
allan tímann – 96 tíma – og héldu sér
gangandi með koffínneyzlu og smá-
blundum.
Upprunalega var gert ráð fyrir að
aðgerðin tæki allt að 36 tíma en hún
var þetta miklu tímafrekari vegna
þess að erfiðara reyndist en áætlað
var að skilja í sundur aragrúa æða
sem fluttu blóð að heilum beggja
systranna. Læknateymið telur að
aðgerðin sé einhver sú allra flókn-
asta og erfiðasta sem nokkurn tím-
ann hefur verið ráðizt í.
Keith Goh, sem fór fyrir lækna-
teyminu, sagði of snemmt að segja til
um hvort systurnar, Ganga og Jam-
una, myndu hljóta einhvern heila-
skaða eða annars konar taugakerf-
istruflanir í kjölfar aðgerðarinnar;
það myndi koma í ljós á næstu dög-
um. Goh sagði það fagnaðarefni að
ekkert hefði farið úrskeiðis allan
tímann. „Við erum hóflega bjartsýn-
ir,“ tjáði hann blaðamönnum. Syst-
urnar eru ellefu mánaða gamlar.
Læknar í Singapore skilja
að síamstvíbura frá Nepal
Ein vandasam-
asta aðgerð sem
gerð hefur verið
Singapore. Reuters, AP.
AP
Hjúkrunarfólk í Singapore með tvíburasysturnar fyrir aðgerðina.
NÆR 60 breskir þingmenn skrifuðu
í gær undir tillögu þar sem þess er
krafist að viðskiptatengsl bresku
konungsfjölskyldunnar verði gerð
opinber. Tillagan var lögð fram af
þingmanni Verkamannaflokksins,
Gordon Prentice. Engar líkur eru á
því að hún verði samþykkt en Prent-
ice hélt því fram í gær að hún gæti
orðið frekari hvati að opinberri um-
ræðu um fjárreiður konungsfjöl-
skyldunnar. Þau hafa verið í sviðs-
ljósinu undanfarna daga í kjölfar
hneykslismálsins í kringum Sophie
Rhys-Jones, greifynju og eiginkonu
Játvarðar jarls af Wessex, yngsta
sonar Elísabetar Englandsdrottn-
ingar.
Ýmislegt er óljóst í sambandi við
fjármál og tekjur konungsfjölskyld-
unnar og hvatti dagblaðið The Times
til meiri hreinskilni í kringum fjár-
málin til að forðast hagsmuna-
árekstra.
Í tilllögunni, sem að mestu er
studd þingmönnum Verkamanna-
flokksins, sem er við stjórnvölinn í
Bretlandi, er tilkynningu konungs-
fjölskyldunnar um að vandlega verði
farið í saumana í tengslum viðskipta
og einkalífs konungsfjölskyldunnar,
fagnað.
Tillaga Prentice kemur í kjölfar
hneykslisins í kjölfar ummæla
Sophie um konungsfjölskylduna og
ýmsa breska stjórnmálamenn við
mann sem hún hélt vera arabískan
fursta og hugsanlegan viðskiptavin
almannatengslafyrirtækis hennar en
reyndist vera blaðamaður í dular-
gervi.
Það sem hefur farið enn meira
fyrir brjóstið á Bretum er að svo
virðist sem Sophie hafi nýtt sér
stöðu sína sem meðlimur konungs-
fjölskyldunnar til að afla almanna-
tengslafyrirtækinu, sem hún vinnur
hjá og á reyndar stærstan hlut í, við-
skipta.
Eftir að ummælin voru birt í fjöl-
miðlum tilkynntu talsmenn kon-
ungsfjölskyldunnar að það myndi
endurskoða umsvif meðlima kon-
ungsfjölskyldunnar og er markmiðið
að að lokinni þeirri yfirferð verði
settar nýjar reglur til að tryggja að
hliðstæður atburður muni ekki end-
urtaka sig.
Háttsettur embættismaður hirð-
arinnar mun sjá um rannsóknina
sem leiða á í ljós hvort hagsmunir
konungsfjölskyldunnar og þátttaka
sumra meðlima hennar í atvinnulíf-
inu stangist á.
Rannsóknin verður umfangsmikil
og að sögn bresku blaðanna mun
hún taka nokkrar vikur. Þrátt fyrir
að hún sé almenns eðlis munu nið-
urstöðurnar geta haft bein áhrif á
þátttöku Wessex-hjónanna í at-
vinnulífinu. Sophie hefur þegar sagt
af sér stjórnarsetu í fyrirtæki sínu
en hún mun halda áfram að starfa
þangað til annað kemur í ljós. Ef í
ljós kemur að um hagsmunaárekstra
er að ræða gæti svo farið að hún og
jafnvel eiginmaður hennar einnig
yrðu að velja á milli vinnunnar og
opinberra skyldustarfa konungsfjöl-
skyldunnar.
Einnig er talið að þær línur sem
lagðar verði að lokinni rannsókninni
muni geta haft bein áhrif á framtíð
Harrys, bróður Vilhjálms krónprins.
Þingmenn úr breska Verkamannaflokknum leggja fram tillögu um konungsfjölskylduna
Viðskipta-
tengslin verði
gerð opinber
London. AFP, Reuters.
AP
Vaktaskipti hjá lífverði Bretadrottningar við Buckingham-höll í
London. Þingmenn vilja nú að tengsl konungsfjölskyldunnar við
atvinnulífið verði könnuð.