Morgunblaðið - 11.04.2001, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 11.04.2001, Qupperneq 30
LISTIR 30 MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ „JHARNA – kala“ eða list frá upp- sprettunni, nefnir friðarboðberinn heimskunni, Sri Chinmoy, sköpunar- ferli sitt á myndfletinum. Gerandann þarf ekki að kynna svo oft sem hann hefur komið til Íslands, hins vegar veit ég ekki til þess að hann hafi hald- ið myndlistarsýningu hér fyrr. Friðarsinnanum og fyrirlesaranum Sri Cinmoy er margt til lista lagt, ekki síst á tónlistarsviðinu og er afkasta- mikið tónskáld. Leikur nær eingöngu eigin tónlist á þau mörgu hljóðfæri sem hann er vígur á, svo sem esraj, flautu, fiðlu og selló. Býður jafnaðar- lega upp á ókeypis friðartónleika á ferðum sínum í þeirri von að vitund fólks um þörfina fyrir frið, sátt og samlyndi í heiminum eflist og dafni, eins og það heitir. Chinmoy mun einn- ig afkastamikill á myndlistarsviði eft- ir sýningu hans í gryfju ráðhússins að dæma, og myndsköpunin af mörgum toga, frá blekteikningum á handunn- inn pappír og vatns- og gvasslita á vatnslitapappír til litmynda og túsk- teikninga. Meðal þess sem telst ein- kennandi fyrir stíl listamannsins og vinnubrögð eru verk unnin í akrýl með alheimslegu, kosmísku, yfir- bragði. Loks fer Chinmoy óvenjuleg- ar leiðir í verkfæravali sínu, notast við sérhannaða svampa og óhefðbundin áhöld. Þetta eru almennar upplýsingar sem getur að lesa í vel hannaðri og skilvirkri skrá og þar kemur einnig fram að Chinmoy hefur haldið fjölda sýninga frá árinu 1975, bæði á þekkt- um söfnum og listamiðstöðvum sem óhefðbundnum stöðum svo sem heimsþekktum byggingum, ráðhús- um, alþjóðaflughöfnum og virðuleg- um háskólum. Jafnvel heldur Balraj Channa, listmálari og rithöfundur, því fram, að Chinmoy hljóti að vera af- kastamesti listamaður heims. Og heimsþekktir persónuleikar, svo sem tónlistarmennirnir Leonard Bern- stein og Yehudi Menuhin, hafa mært myndverk hans. Það má vera alveg rétt sem stendur í skrá, að handbragð fjöllistamanns- ins ber vott um léttleika en ákveðni, jafnt í formi sem litavali. Hins vegar nokkuð orðum aukið að tala um aug- ljósan frumleika og snilldartakta. Chinmoy á með ólíkindum auðvelt með að skila frá sér þyngdarlausum og svífandi myndheildum, en allt er þetta mjög tengt austrænni hefð í form- sem litasýn og iðulega er út- koman líkust lausmótuðum rissum. Að vísu gædd miklu áreynsluleysi og léttleika, svífa með vængjum fiðrild- isins á yfirborði grunnflatarins en tengjast síður dýpri og flóknari lífæð- um hans. Hér ræður hjartað, með ívafi bernskra kennda, nær alfarið för, minna yfirveguð hugsun. Vinnu- ferlið mjög í ætt við litríkt og glað- hlakkalegt austurlenzkt skreyti, eink- um tengt ýmiss konar trúarathöfnum og gleðileikjum, með ákveðin tákn í formi og lit sem burðarása og kenni- leiti. Fyrir öllum þesssum fyrirbær- um ber skrifari mikla virðingu, þó vís- ast nokkur skilsmunur á athöfnum sem tengjast innri lífæðum myndflat- arins, eins og slíkt er meðtekið og skilið í vestrinu, og þessum léttu loft- kenndu línum, doppum og yndis- þokkafullu pensilstrokum, óskil- greinda tónahryni og söng. Um trúarlegt inntak, sannfæringarhita og friðarboðskap skal þó ekki efast eitt augnablik. Ljósmynd/Bragi Ásgeirsson Mynd unnin ofan í almanak og þannig með hugmyndafræðilegu inntaki. „List frá upp- sprettunni“ MYNDLIST R á ð h ú s i ð Sýningunni er lokið. MYNDVERK – SRI CHINMOY Bragi Ásgeirsson KÓMEDÍULEIKHÚSIÐ frumsýnir einleikinn Leikur án orða eftir Sam- uel Beckett, í Edinborgarhúsinu á Ísafirði, á morgun, skírdag, kl. 20.30. Leikurinn verður sýndur í nýja leik- hússalnum sem nú er í smíðum og er þetta fyrsta verkið sem flutt er í leik- húsinu og eru áhorfendur beðnir um að koma í skjólgóðum fatnaði. Leikari er Elfar Logi Hannesson, höfundur tónlistar er Kristinn Níelsson og leik- stjóri er Guðjón Ólafsson. Leikur án orða fjallar um mann sem er fyrirvaralaust og án nokkurra útskýringa kastað út í eyðimörk og þar bíða hans mörg óvænt ævintýr. Að sýningu lokinni verður haldið mál- þing um Samuel Beckett. Rakin verð- ur ævi hans í stuttu máli og ungir leik- arar á Ísafirði flytja ljóð Becketts og lesa úr þekktasta leikverki hans, Beð- ið eftir Godot. Önnur sýning verður nk. laugardag, á sama tíma. Beckett-kvöld í Edinborg- arhúsinu Daily Vits FRÁ Apótekin Stanslaus orka með GMP gæðastimpli 100% nýting/frásog H á g æ ð a fra m le ið sla
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.