Morgunblaðið - 11.04.2001, Síða 32
LISTIR
32 MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ hefur verið stríðsárastemmn-
ing í Samkomuhúsinu á Akureyri
síðustu vikur, en Leikfélag Akur-
eyrar er að setja þar upp leikritið
Ball í Gúttó eftir Maju Árdal. Hún
á rætur sínar að rekja norður í
land, en hefur búið í Skotlandi og
Kanada frá tveggja ára aldri. Hún
er leikkona, hefur starfað við leik-
stjórn og stýrt leikhúsi í Toronto,
en nú síðustu ár hefur hún einbeitt
sér að því að skrifa leikrit með góð-
um árangri. Eitt þeirra, Söngleikur
um þunglyndi, verður sett upp í
Þjóðleikhúsinu næsta haust.
Maja Árdal er fædd á Siglufirði
árið 1949, en tveggja ára að aldri
fluttist hún með foreldrum sínum,
Páli S. Árdal og Hörpu Ásgríms-
dóttur, út til Edinborgar í Skot-
landi þar sem Páll stundaði nám
næstu árin. Fríða, eldri systir
hennar, var einnig með í hópnum,
en bræðurnir tveir, Steinþór og
Grímur, fæddust á meðan fjöl-
skyldan bjó í Edinborg.
Páll er fæddur á Akureyri en
ólst upp á Siglufirði en Harpa
fæddist á Akureyri og ólst þar upp.
Bæði áttu þau nokkur systkin sem
mörg hver búa norðan heiða sem
og börn þeirra, þannig að Maja á
stóran frændgarð þar um slóðir.
Fjölskyldan bjó í Edinborg þar
til Maja var um tvítugt en hún
sagði að þau hefðu komið heim öll
sumur og það hefði verið dásam-
legt. „Við komum alltaf heim, pabbi
og mamma unnu fyrstu árin í
Keflavík, þau þurftu að vinna sér
inn næga peninga fyrir náminu
hans pabba, en við systurnar vor-
um sendar norður í land. Við vor-
um ýmist á Akureyri eða þá að við
vorum í sveit þar sem við pöss-
uðum börn. Meðal annars vorum
við dálítið hjá Hervöru systur
mömmu og manni hennar Gísla
Jónssyni sem bjuggu á Akureyri
en ættingjar Gísla bjuggu í Svarf-
aðardal og þar vorum við líka
stundum. Eitt sumarið, þegar ég
var 17 ára, vann ég sem leiðsögu-
maður hjá ferðaskrifstofu og var
þá mikið í Mývatnssveit. Mér
fannst það skemmtilegt starf og ég
passaði vel í það, því ég talaði
ensku, þýsku og frönsku. Þetta var
síðasta sumarið mitt á Íslandi, ég
kom ekki aftur fyrr en ég var orðin
um fertugt,“ segir hún. Fjölskyld-
an var gjarnan á Íslandi frá því í
júní og fram í september og Maja
segir að sér hafi ávallt liðið vel hér
á landi, „mér fannst Ísland vera
heima,“ segir hún. Þar voru allir
ættingjarnir, og þær systur féllu
vel inn í stóran hóp systkinabarna
sem voru á svipuðum aldri. „Á
þessum tíma fannst mér Edinborg
vera svart/hvít borg og ég man
alltaf eftir því að þegar við sigldum
heim með Gullfossi og ég sá Ísland
þá varð lífið í lit, birtan var einstök
og húsin máluð í glaðlegum litum.
Það var sérkennileg upplifun. Mið-
nætursólin á Íslandi er líka
ógleymanleg þeim sem séð hafa.“
Dreymdi þetta skrýtna
og fallega land
Meira en tuttugu ár liðu frá því
Maja vann sem leiðsögumaður á
Íslandi og þar til hún kom næst til
Íslands, en hún var á þeim tíma
störfum hlaðin, vann mikið og var
komin með fjölskyldu. „Ég saknaði
þess að komast ekki heim til Ís-
lands. Mig dreymdi um þetta
skrýtna og fallega land sem hafði
sérstöðu í huga mínum. Í þessum
draumum mínum sá ég fyrir mér
Ásbyrgi og Goðafoss, en þeir staðir
eru mér kærir. Þegar ég loksins
kom svo aftur og var á leið til að
skoða þessa staði að nýju óttaðist
ég að þeir væru ekki eins fallegir
og þeir voru í draumum mínum.
Sem betur fer varð ég ekki fyrir
vonbrigðum, mér fannst til að
mynda Ásbyrgi enn tilkomumeira
en ég hafði ímyndað mér í draum-
um mínum,“ segir Maja.
Á þeim rúmu tuttugu árum sem
liðu milli Íslandsferða Maju týndi
hún niður tungumálinu og fannst
henni afar einkennilegt að koma til
gamla landsins síns og geta ekki
tjáð sig á tungu innfæddra. Ákvað
hún síðar að gera þar bragarbót á
og þegar hún dvaldi á Akureyri í
fyrravor fór hún í kennslu og lærði
málið að nýju. „Ég hætti að tala ís-
lensku við mömmu og pabba þegar
ég var 8 til 9 ára gömul, ég vildi
hafa þetta eins og hjá öðrum
krökkum í Skotlandi, sem töluðu
ensku við foreldra sína. En þegar
ég var á Íslandi á sumrin talaði ég
íslensku eins og hinir krakkarnir.“
Maju hafði frá unga aldri dreymt
um að verða leikkona og sá draum-
ur rættist, en hún lærði við „Royal
Scottish Academy of Music and
Drama“ í Glasgow og lauk þar
námi um tvítugt. „Ég var alltaf að
búa eitthvað til úr hugmyndum
mínum og mér fannst það hlyti að
vera yndislegt að vinna í leikhúsi
og stefndi að því strax frá unga
aldri,“ segir hún.
Öll fjölskyldan í leiklistinni
Skömmu eftir að Maja lauk námi
sínu hélt fjölskyldan enn á nýjar
slóðir og settist að í Kanada, en
Páll fékk þá stöðu við Queens Uni-
versity í Ottawa. Maja kaus að búa
í Toronto þar sem leiklistin
blómstraði og sagði að vel hefði
gengið að fá hlutverk og hún hefði
strax fengið heilmikla vinnu við fag
sitt. Hún kynntist eiginmanni sín-
um, Jeff Braunstein á sviði, en
saman eiga þau tvö börn, Paul sem
heitir eftir afa sínum, Páli, og Ingu.
Börnin fetuðu í fótspor foreldra
sinna og eru bæði leikarar, en Paul
er einnig trommuleikari og Inga
söngkona. Jeff starfar nú sem
framleiðandi. Maja starfaði um
margra ára skeið sem leikari í Tor-
onto og einnig leikstjóri og loks
varð hún leikhússtjóri næst
stærsta leikhússins í borginni og
gegndi því starfi á árunum 1990 til
1998. Á sama tíma lék hún einnig
hlutverk Klöru Potts í sjónvarps-
þáttunum Leiðin til Avonlee. „Ég
hafði mjög mikið að gera, var alltaf
á fullu og varð mjög þreytt á þessu
þannig að ég ákvað að hætta í
þessu starfi og einbeita mér að því
að vinna úr mínum eigin hugmynd-
um og tók því til við skriftir. Mér
finnst það svo gaman að ég ætla
alltaf að vera leikritahöfundur.“
Íslensk jól með laufabrauði
og hrísgrjónagraut
Foreldrar Maju búa enn í Kings-
ton en þangað er um þriggja tíma
akstur frá Toronto, en systkini
hennar eru líkt og hún búsett í
borginni, utan eitt sem býr rétt ut-
an við hana. Maja segir hópinn
samhentan og þau haldi að nokkru
í íslenskar hefðir m.a. haldi þau
ævinlega íslensk jól saman. „Þá
bökum alltaf saman laufabrauð og
svo búum við til hrísgrjónagraut og
setjum í hann möndlu. Svo vill
systir mín alltaf að við göngum
kringum jólatréð. Við höldum jólin
saman á líkan hátt og var þegar við
ólumst upp,“ segir Maja en hún
segir að öllum líki það vel og mað-
ur hennar kunni að segja gleðileg
jól upp á íslensku og sé stoltur af.
Jeff hefur tvívegis komið til Ís-
lands og m.a. hafa þau farið í ferð
um hálendið og þótti mikið til
koma. Þau dreymir um að fara þar
um að nýju og þá á hestbaki.
„Hann kann mjög vel við sig hér á
Íslandi, það á bæði við um landið
og fólkið. Hann segir að hann sjái
andlitið mitt í svo mörgu fólki hér.
Það er kannski ekki skrýtið því hér
á ég fjölda ættingja,“ segir Maja.
Jeff er fæddur í Egyptalandi,
móðir hans er gyðingur frá Tyrk-
landi og faðir hans gyðingur frá
Rúmeníu, en hann ólst upp í Eng-
landi. „Þannig að hann er ekta
Kanadabúi.“ Hún segist alltaf hafa
reynt að tengja börn sín Íslandi,
þau hafi alist upp við íslenskt jóla-
hald og þá hafi hún sungið fyrir
þau íslensk lög, einkum vögguvísur
sem þau enn þann dag í dag þekki
mætavel þótt ekki skilji þau text-
ann. Paul hefur dvalið á Íslandi og
m.a. unnið á Akureyri að sumar-
lagi.
Fetaði í fótspor langafa síns
Tildrög þess að Maja er nú á Ak-
ureyri, í heimabæ forfeðra sinna,
má rekja til þess að Akureyring-
urinn Hreinn Skagfjörð vann um
skeið í leikhúsinu sem hún stjórn-
aði. Hann sagði Sigurði Hróarssyni
leikhússstjóra Leikfélags Akureyr-
ar frá henni og það varð til þess að
hann hélt utan til Toronto og sá
uppfærslu á leikriti hennar, Mid-
night Sun, sem Valgeir Skagfjörð
síðar þýddi og heitir nú Ball í
Gúttó. „Það var alveg yndislegt að
heyra verkið á íslensku, einhvern
veginn eins og að koma heim,“ seg-
ir hún og þá þykir henni ekki síðra
að fá nú tækifæri til að dvelja í
landinu og leikstýra á nýjan leik.
Leikritið skrifaði hún að nokkru
leyti á meðan hún dvaldi við skrift-
ir í Davíðshúsi á Akureyri í fyrra-
vor. Hún segir það hafa verið góð-
an tíma og gaman hafi verið að feta
Stríð úti
í heimi
og annað
í bænum
Leikfélag Akureyrar frumsýnir Ball í Gúttó
eftir Maju Árdal í Samkomuhúsinu í kvöld.
Margrét Þóra Þórsdóttir hitti höfundinn
sem jafnframt leikstýrir sýningunni.
Morgunblaðið/Kristján
Maja Árdal, höfundur og leikstjóri leikritsins Ball í Gúttó, sem Leik-
félag Akureyrar frumsýnir í Samkomuhúsinu í dag, miðvikudag.
Saga Jónsdóttir, Þóranna Kristín Jónsdóttir og Sigríður E. Friðriksdóttir í hlutverkum sínum.
Hinrik Hoe Haraldsson og Þóranna Kristín Jónsdóttir í hlutverkum sínum.