Morgunblaðið - 11.04.2001, Blaðsíða 33
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2001 33
með þessum hætti í fótspor langafa
síns, Páls J. Árdal, sem á sínum
tíma lék með leikfélaginu og skrif-
aði leikrit.
„Það er svo mikill kraftur og fjör
í þessu leikhúsi, leikararnir eru svo
glaðir þegar þeir koma í vinnuna
og það hefur verið mjög skemmti-
legt hjá okkur. Mér finnst allir svo
duglegir og góðir og til í allt.“
Ætlaði að skrifa bók
Upphafið að því að leikritið Mid-
night sun eða Ball í Gúttó varð til
segir Maja að hún hafi verið byrjuð
að skrifa bók um djasstónlistar-
mann sem tengdur var föður henn-
ar og jafnan var kallaður Jonni í
Hamborg. Hann lék á píanó og
klarinett og var vinsæll hljóðfæra-
leikari. Hann dó ungur í Kaup-
mannahöfn en Maja segir að eng-
inn viti nákvæmlega hvernig það
hafi borið að. „Ég hafði heyrt
margar sögur af honum og fór að
ímynda mér hvernig líf hans hefði
verið. Þegar fólk í kringum mig
heyrði að ég var að skrifa bók fór
það að spyrja af hverju ég skrifaði
ekki heldur leikrit, ég sem væri öll
í leiklistinni. Fyrst sagði ég auðvit-
að að ég kynni það ekki, en fór svo
að vinna að þessu verkefni með
leikhúsfólki, en það tók mig rúm
tvö ár að skrifa þetta leikrit. Það
er erfitt að skrifa leikrit og tekur
mikinn tíma, það er langur vegur
frá því að hugmyndin fæðist og þar
til leikritið er sýnt fullbúið á sviði,“
segir Maja.
Uppgjör óumflýjanlegt
Leikritið gerist sumarið 1942, á
þremur dögum í kringum Jóns-
messuna. Þetta er flókin og falleg
ástarsaga um ungt fólk og ham-
ingjuleit þess á merkum tímum
þegar þjóðfélagið allt umturnaðist
á örskotsstundu og öll gildi mann-
lífsins voru tekin til rækilegrar
endurskoðunar. Kreppan senn að
baki og nýr tími í uppsiglingu, nýtt
líf með nýjum tækifærum og Ísland
eins og það var brátt að baki. Leik-
urinn gerist þannig á einu mesta
umbrotaskeiði Íslandssögunnar og
litli bærinn úti við nyrsta haf verð-
ur aldrei samur.
Hermenn flykkjast í bæinn með
tilheyrandi umróti og í uppsiglingu
er dansleikur í Samkomuhúsinu
Gúttó. Hermennirnir boða til gleð-
innar og eru hinir akureysku karl-
menn lítt hrifnir af uppátækinu, en
einungis stúlkum er boðið að sækja
gleðina. Uppgjör er því óumflýj-
anlegt, það slær í brýnu.
Mamma sagði sögur
við uppvaskið
„Sagan gerist á þremur dögum
og við fylgjumst með einni fjöl-
skyldu, móður og tveimur dætrum
hennar, en synirnir eru á sjónum.
Eldri dóttirin er fallegasta stúlk-
an í bænum, en hin er bara 14 ára
gömul og það má segja að hún sé
alin upp af eldri systur sinni. Þessi
stúlka sem kölluð er Príla er
dreymin og hún trúir á huldufólk
og Hollywood,“ segir Maja en nafn-
ið segist hún hafa sótt til móður
sinnar sem kölluð var Príla af því
hún var iðin við að príla upp í tré í
garðinum heima hjá sér, í Norð-
urgötu 31, en það hús reisti móð-
urafi Maju.
Hún segir stúlkuna viðkvæma og
amerísku hermennirnir á götunum
séu fyrir henni einhvern veginn
eins og af öðrum heimi. „Þetta leik-
rit fjallar um ástir og afbrýði og í
því er líka stríð í tvöföldum skiln-
ingi, annað háð úti í heimi en hitt í
bæjarfélaginu.“ Hún segist líka
vera femínisti og finna megi skoð-
unum af því tagi stað í leikritinu.
„Er hægt að segja kvenfólki hvern-
ig það eigi að haga sér?“spyr hún
en bætir strax við að sér finnist að
íslenskt kvenfólk hafi alltaf verið
sjálfstætt.
Maja segir að mamma hennar
hafi verið iðin við að segja henni
sögur af lífinu á Akureyri á þessum
tíma. „Þegar ég hjálpaði henni að
þvo upp var hún alltaf að segja
mér sögur, alls konar sögur, en
flestar frá þessum tíma þegar hún
var ung stúlka á Akureyri á stríðs-
áratímanum.“
Leikritið var frumsýnt í janúar í
Toronto og hlaut góða dóma, en
síðan hefur það verið sett upp í
Þjóðleikhúsinu í Ottawa þar sem
verið er að sýna það um þessar
mundir. Þá verður leikritið einnig
sett upp í leikhúsi skammt utan við
Boston í Bandaríkjunum og kvaðst
Maja afar ánægð með þær viðtökur
sem leikrit hennar hefði fengið.
„Nú hlakka ég mikið til að fá fólkið
í leikhúsið hér á Akureyri,“ segir
Maja.
Hún sagði að önnur leið væri að
nokkru farin við uppsetninguna á
Akureyri en gert var í Toronto.
Mikill munur væri á sviðunum,
ytra hefði það nánast verið tómt en
á Akureyri væri það ríkulega búið
hinum ýmsu munum. Þar hefði
einnig verið lögð meiri áhersla á
tónlistina, „það var dálítið djass-
legra þar,“ segir hún. Uppfærsla
LA segir hún að sé að sumu leyti
dýpri og meiri áhersla lögð á per-
sónurnar, „þær eru sterkari og við
gerum meira úr ástinni og afbrýði-
seminni“.
Leikarar í sýningu LA eru Þór-
anna Kristín Jónsdóttir, Sigríður
E. Friðriksdóttir, Hinrik Hoe Har-
aldsson, Skúli Gautason, Saga
Jónsdóttir og Þorsteinn Bachmann,
en einnig taka nokkrir dansarar
þátt í sýningunni. Valgeir Skag-
fjörð sem þýddi leikritið sér einnig
um tónlistarstjórn. Helga Rún
Pálsdóttir sér um leikmynd og
búninga og lýsingu annast Alfreð
Sturla Böðvarsson.
Þrjú leikrit í vinnslu
Fjölskylda Maju ætlar að
samgleðjast henni á frumsýningu
leikritsins, en móðir hennar er þeg-
ar komin til Akureyrar og þá eru
eiginmaðurinn og sonurinn vænt-
anlegir. Inga dóttir þeirra ætlaði
einnig að koma til Íslands af þessu
tilefni, en fékk nýlega hlutverk í
þátttaröð sem verið er að taka upp
fyrir sjónvarp í Bandaríkjunum.
Fjölskyldan ætlar að dvelja hér yf-
ir páskana, en bregða sér að þeim
loknum í stutt frí til Parísar. „Svo
liggur leiðin heim til Toronto þar
sem ég ætla að fara að skrifa aft-
ur,“ segir Maja en hún vinnur nú
að þremur leikritum. Eitt þeirra
gerist á dvalarheimili fyrir aldraða
og fjallar um líknarmorð, annað
fjallar um lofthræðslu, en Maja
kveðst sjálf vera afar lofthrædd og
það þriðja er um konu sem lendir í
þeirri aðstöðu að bjarga syni sínum
frá því að verða óargadýri að bráð
og spurninguna um það hvor hafi
meiri rétt til lífsins.
Söngleikur um þunglyndi
Næsta haust verður sett upp í
Þjóðleikhúsinu leikrit eftir hana,
Söngleikur um þunglyndi. Það var
sett upp í leikhúsi sem starfar í
tengslum við stórt geðsjúkrahús í
Kanada og gekk mjög vel. Hún
sagðist hafa verið beðin um að
skrifa þetta leikrit en í því tóku
þátt bæði atvinnuleikarar og eins
fólk sem átti við geðræn vandamál
að stríða og var á sjúkrahúsinu.
„Þetta gekk eiginlega ævintýralega
vel,“ segir hún. Þegar hún tók
verkið að sér las hún sér til um
sjúkdóminn, talaði við fólk sem til
hans þekkti og lærði heilmikið. „Ég
reyndi að horfa á heiminn þeim
augum sem þunglynt fólk gerir,
reyndi að upplifa hann á sama hátt
og það. Þetta var mjög skemmti-
legt verkefni og gefandi. Það hefur
reynst vel fyrir fólk með geðsjúk-
dóma að taka þátt í leiklist og mér
þótti líka gaman að búa til leikrit
um þetta alvarlega og viðkvæma
málefni sem jafnframt er á léttu
nótunum.“
„Mér fellur afar vel að skrifa, ég
fer oft í sumarbústað sem við eig-
um utan við borgina, hann stendur
við vatn og umhverfis hann er
skógur. Þar get ég verið dögum
saman ein og skrifað. Þar er svo
mikil ró og friður. Mér gengur vel
að skrifa við slíkar aðstæður,“ seg-
ir Maja.
Frumsýningin á Balli í Gúttó
verður í kvöld en verkið verður
sýnt í Samkomuhúsinu yfir pásk-
ana, á skírdag, laugardag fyrir
páska og annan páskadag.
maggath@mbl.is
Á FÖSTUDAGINN
langa verður Sálu-
messa (Requiem) eftir
Wolfgang Amadeus
Mozart flutt í Ísafjarð-
arkirkju. Tónleikarnir
eru tileinkaðir minn-
ingu Jónasar Tómas-
sonar, organista, tón-
skálds og bóksala á
Ísafirði. Jónas var
fæddur 13. apríl 1881
og því ber tónleikana
upp á þann dag þegar
120 ár eru liðin frá fæð-
ingu hans. Hátíðarkór
Tónlistarskóla Ísafjarð-
ar undir stjórn Beötu
Joó og Sinfóníuhljómsveit áhuga-
manna undir stjórn Ingvars Jónas-
sonar hafa tekið saman höndum um
þetta stóra verkefni og þannig fá
kraftar landsbyggðar
og höfuðborgar að
njóta sín í samhljómi.
Sálumessa Mozarts
þykir eitt fegursta og
stórbrotnasta verk
kirkjulegra tónbók-
mennta sem samið hef-
ur verið. Tilurð verks-
ins var einnig mjög
dramatísk og hefur
orðið ýmsum umfjöll-
unarefni.
Tónleikarnir hefjast
í Ísafjarðarkirkju
klukkan 20.30 að
kvöldi föstudagsins
langa. Þeir verða end-
urteknir í Neskirkju í Reykjavík í
lok apríl. Hátíðarkór Tónlistarskól-
ans er skipaður um 60 manns, fyrr-
verandi og núverandi nemendum og
kennurum, auk annars söngáhuga-
fólks. Sinfóníuhljómsveit áhuga-
manna er skipuð um 35 hljóðfæra-
leikurum, áhugamönnum og at-
vinnumönnum. Fjórir einsöngvarar
taka þátt í flutningnum: Guðrún
Jónsdóttir sópransöngkona, Ingunn
Ósk Sturludóttir altsöngkona,
Snorri Wium tenór og Ólafur Kjart-
an Sigurðarson bassi.
Öll framkvæmd og undirbúningur
tónleikanna eru í höndum Tónlistar-
skóla Ísafjarðar og Sinfóníuhljóm-
sveitar áhugamanna, sem njóta til
þess stuðnings bæjarsjóðs, mennta-
málaráðuneytis og ýmissa fyrir-
tækja hér vestra og í Reykjavík. Má
fullyrða, að hér sé um að ræða eitt
metnaðarfyllsta menningarverkefni,
sem í hefur verið ráðist hér vestra.
Forsala aðgöngumiða er í Hamra-
borg.
Sameina krafta lands-
byggðar og borgar
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Hátíðarkór Ísafjarðarkirkju á æfingu fyrir tónleikana á föstudaginn langa.
Ísafirði. Morgunblaðið.
Jónas Tómasson
Requiem Mozarts á minningartónleikum á Ísafirði
HEILL þér kross, heita tónleikar
sem Listvinafélag Hallgrímskirkju
efnir til í kvöld klukkan átta. „O,
crux ave“ eru upphafsorð í lat-
neskum söng sem við á þessa viku,
en tónleikarnir fjalla um daga
hennar, frá pálmasunnudegi til
föstudagsins langa. Valin íhugun-
arefni dymbilvikunnar verða þýska
organistanum Hans-Dieter Möller
efni til að leika af fingrum fram á
orgelið í Hallgrímskirkju, en Möll-
er sat í nefnd um það mikla hljóð-
færi og hefur allnokkrum sinnum
notað það á tónleikum. Þessi læri-
meistari Harðar Áskelssonar org-
anista í kirkjunni leikur tónlist eft-
ir Bach, Nivers, Tournemire og
Messiaen, auk spunans yfir greg-
orsk stef föstunnar. Í honum svar-
ar sönghópurinn Voces Thule með
helgisöngvum.
Erbarm dich nicht mein Herr
heitir fyrsta stef tónleikanna og
Hósíanna, söngur pálmasunnudags
tekur svo við. Möller leikur þar af
fingrum fram og Voces Thule
syngja. Þá leikur Möller þekkt
verk eftir Olivier Messiaen, um
síðustu kvöldmáltíðina, og þar
næst Pange lingua eftir Gabriel
Nivers. Spuni fylgir á eftir, um
föstudaginn langa og svo hugleið-
ing Bach um fyrirgefninguna. Kór-
inn syngur síðan Miserere frá 15.
öld, Möller leikur brot úr verki
Tournemire um sjö orð Krists á
krossinum og endar tónleikana
frægum gregorskum sálmi um sig-
ur krossins.
Möller lærði orgelleik og tón-
smíðar í Essen og fór til Parísar í
framhaldsnám. Það stundaði hann
hjá Jean Langlais í kirkjunni St.
Clotilde, þar sem Cesar Franck og
Charles Tournemire voru einnig
organistar. Þá vann Möller í kirkj-
um þar til hann varð prófessor í
orgelleik og spuna við Robert-
Schumann tónlistarháskólann í
Düsseldorf 1977. Frá 1986 hefur
hann verið orgelráðgjafi í erkibisk-
updæminu Köln. Hann hefur víða
farið vegna tónleika og námskeiða
og leikið inn á margar hljómplöt-
ur.
Dymbilvikan íhuguð
með orgeli og söng
Morgunblaðið/Ásdís
Hans-Dieter Möller við orgelið í Hallgrímskirkju.