Morgunblaðið - 11.04.2001, Page 37
andi starf og forvarnarstarf nái til
allra notenda, ekki bara unglinga
eins og stundum virðist raunin.
Sú breyting að mál, sem unnin eru
á grundvelli barnaverndarlaga og til-
heyra nú Skrifstofu barnaverndar-
nefndar, hefur skapað aðstæður til
öðruvísi samvinnu við skóla og leik-
skóla. Þessi samvinna, ásamt hverfa-
bundnu samstarfi, eykur líkur á að
hægt sé að aðstoða fjölskyldur í erf-
iðleikum fyrr en áður og á þeirra for-
sendum.
Samstarf við íbúa- og hagsmuna-
samtök tryggir aukna upplýsinga-
gjöf um þá þjónustu sem veitt er og
þjónustuþarfir í hverju hverfi og
eykur þar með líkur á leitað sé eftir
þjónustu og hún veitt í samræmi við
þarfir og við hæfi hvers og eins.
Mikilvægt er að gott aðgengi sé að
þjónustunni, hún sé skjótvirk og
sveigjanleg.
Til að auka aðgengi og viðbragðs-
flýti þeirrar þjónustu hefur, eins og
áður er komið fram, verið tekin
ákvörðun með viðbótar opnunartíma
borgarhlutaskrifstofanna á miðviku-
dögum til kl. 18.00 þar sem veitt
verður öll almenn þjónusta. Þessi
breyting tók gildi 1. apríl sl.
Áfram verður haldið þeirri stefnu
að færa þjónustuna út fyrir veggi
stofnunarinnar þar sem þess er þörf.
Löng hefð er fyrir vitjunum til ein-
staklinga og fjölskyldna en einnig
hefur í meira mæli verið boðið upp á
upplýsingar og ráðgjöf til ákveðinna
hópa í samstarfi við hinar ýmsu
stofnanir, nefna má vikulega opna
viðtalstíma í Miðstöð nýbúa, reglu-
bundna upplýsingafundi í nokkrum
fangelsum og að fyrirhugað er sam-
starf við Hitt húsið um ráðgjöf til
ungs fólks sem fram fer í Hinu hús-
inu. Mikilvægt er að koma til móts
við þarfir hópa/einstaklinga sem
ætla má að eigi erfiðara en aðrir með
að nálgast þjónustuna af ýmsum
ástæðum, s.s. vegna ónógra upplýs-
inga og einnig til þeirra sem vitað er
að mikilvægt er að ná til með upplýs-
ingum og ráðgjöf í fyrirbyggjandi
skyni og verður áfram lögð áhersla á
þennan þátt þjónustunnar.
Þá er gert ráð fyrir að komið verði
upp einu útibúi á hverri borgarhluta-
skrifstofu frá árinu 2001 til 2004,
þannig að um verði að ræða skrif-
stofu í hverju hverfi borgarinnar.
Leitast verður við að ná samkomu-
lagi við aðrar borgarstofnanir um að
veita þar samþætta þjónustu eða í
hið minnsta reka hverfabundið sam-
starf. Fyrst um sinn er ekki gert ráð
fyrir að útibúin verði sjálfstæðar
starfseiningar heldur lúti fjárhags-
legri stjórnun borgarhlutaskrif-
stofanna. Ef áætlanir ganga eftir
mun útibú í vesturbæ taka til starfa á
árinu 2001. Þar er gert ráð fyrir að
reka hverfabundið samstarf með
Fræðslumiðstöð, Leikskólum
Reykjavíkur og Íþrótta- og tóm-
stundaráði.
Höfundur er framkvæmdastjóri
ráðgjafarsviðs.
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2001 37
annan hvern miðvikudag
Skeifunni 17, 108 Reykjavík
Furuvöllum 5, 600 Akureyri
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 8 -19 • LAUGARDAGA KL. 10 -16
998,-
– ekki bara s
tundum!Alltaf ód
ýrir
Sími 550 4100
790.-
Verð hjá Pennanum
Leitz gatari
26%
hærra verð hjá
Pennanum!
j