Morgunblaðið - 11.04.2001, Blaðsíða 59
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2001 59
BJÖRN Þorfinnsson er einn efst-
ur í áskorendaflokki á Skákþingi Ís-
lands þegar fjórum um-
ferðum af níu er lokið.
Björn hefur unnið allar
skákir sínar og hefur
vinnings forystu á
næstu menn. Staðan er
þessi:
1. Björn Þorfinnsson
4 v.
2.-8. Lenka Ptacni-
kova, Páll Agnar Þór-
arinsson, Sævar
Bjarnason, Róbert
Harðarson, Sigurbjörn
Björnsson, Ingvar Þór
Jóhannesson, Guð-
mundur Kjartansson 3
v.
9.-11. Halldór Garð-
arsson, Sigurður Daði
Sigfússon, Eiríkur K. Björnsson 2½
v.
12.-19. Arnar E. Gunnarsson,
Dagur Arngrímsson, Sigurjón Har-
aldsson, Baldur Möller, Jón Árni
Halldórsson, Rafn Jónsson, Svein-
björn Jónsson, Sigurður Páll Stein-
dórsson 2 v.
o.s.frv.
Alls tefla 30 keppendur í áskor-
endaflokki að þessu sinni, sem er
aukning frá síðustu árum. Fyrstu
þrjár skákirnar voru atskákir, en í
síðustu sex umferðunum verða tefld-
ar kappskákir. Mörg óvænt úrslit
urðu í atskákunum og í fjórðu um-
ferð bar það helst til tíðinda, að Guð-
mundur Kjartansson bar sigurorð af
Arnari Gunnarssyni. Aðalviðureign
fimmtu umferðar verður skák þeirra
Sigurbjörns Björnssonar og Björns
Þorfinnssonar.
Í opnum flokki eru keppendur 18,
þar af 3 með skákstig, sem er óvenju
lítið. Þar er Hjalti Freyr Halldórs-
son efstur og hefur líkt og Björn
sigrað alla fjóra andstæðinga sína.
Röð efstu manna í opnum flokki er
sem hér segir:
1. Hjalti Freyr Halldórsson 4 v.
2.-5. Hilmar Þorsteinsson, Páll
Gunnarsson, Birgir Berndsen,
Trausti Eiríksson 3 v.
6. Gylfi Davíðsson 2½ v.
7.-12. Örn Stefánsson, Grímur
Daníelsson, Árni Jakob Ólafsson,
Helgi Brynjarsson, Arnar Sigurðs-
son, Aron Ingi Óskarsson 2 v.
Teflt er í húsnæði Taflfélags
Reykjavíkur og eru áhorfendur vel-
komnir. Á fimmtudaginn er frídagur,
en síðustu þrjár umferðirnar verða
tefldar föstudag-sunnudag og hefj-
ast klukkan 14.
Rúnar Sigurpálsson
skákmeistari Norðlendinga
Skákþing Norðlendinga fór ný-
lega fram í 67. skipti. Að þessu sinni
var teflt á Þórshöfn. Þetta var í ann-
að sinn sem skákþingið fer fram í
Norður-Þingeyjarsýslu, en árið 1987
var það haldið á Raufarhöfn. Keppt
var í fjórum flokkum og voru kepp-
endur alls 22, þar af 15 frá Akureyri
og 7 heimamenn. Í opna flokknum
voru tólf keppendur og voru tefldar
sjö umferðir eftir svissneska kerfinu.
Rúnar Sigurpálsson Akureyri
sigraði glæsilega, fékk 6½ vinning,
og var þetta í sjötta sinn sem Rúnar
verður skákmeistari Norðlendinga.
Röð keppenda varð annars þessi: 2.
Þór Valtýsson 5 v., 3.-5. Gylfi Þór-
hallsson, Halldór Brynjar Halldórs-
son og Stefán Steingrímur Bergsson
4½ v., 6. Sveinbjörn O. Sigurðsson 4
v., 7.–9. Eymundur Eymundsson,
Haukur Jónsson og Ásgrímur Ang-
antýsson 3 v., 10. Óli Ægir Þor-
steinsson 2 v., 11. Jón Stefánsson 1½
v. 12. Kristján Úlfarsson ½ v.
Í unglingaflokki sigraði Jón Birkir
Jónsson frá Akureyri glæsilega,
vann allar sínar skákir og fékk 9 v.
Annar varð Hjálmar Freyr Valdi-
marsson með 7 v. og í þriðja sæti
varð Ragnar Heiðar Sigtryggsson
með 6½v. Fjórði varð Daníel Starra-
son hlaut 5 v. og fimmti Þorsteinn
Þór Tryggvason með 3½ v.
Í drengjaflokki sigr-
aði Ágúst Bragi
Björnsson með 7 v. af 9,
2. Davíð Arnarsson 3½
v., 3. Ísak Þór Ívarsson
1 v.
Í barnaflokki varð
sigurvegari Ólafur
Ólafsson með 2 v.
Rúnar Sigurpálsson
sigraði á hraðskákmóti
Norðurlands, hlaut 11
v. af 11. Er þetta í tí-
unda sinn sem hann
verður hraðskákmeist-
ari Norðlendinga. Í
öðru sæti var Gylfi
Þórhallsson með 9 v.
og þriðji varð Halldór
Brynjar Halldórsson
með 8 v.
Skákstjóri á Norðurlandsmótinu
var Angantýr Einarsson.
Í mótslok fór fram verðlaunaaf-
hending þar sem Magnús Már Þor-
valdsson sveitarstjóri Þórshafnar-
hrepps afhenti verðlaun. Í öllum
flokkum er keppt um farandbikara. Í
opna flokknum er keppt um bikar
sem gefinn var af Kaupfélag Eyfirð-
inga. Í unglingaflokki var bikarinn
gefinn af Knattborðsstofunni á
Siglufirði.
Í mótsstjórn voru Ásgrímur Ang-
antýsson, Angantýr Einarsson og
Óli Ægir Þorsteinsson.
Þórshafnarhreppur var aðalmóts-
haldari á þessu móti, aðrir styrkt-
araðilar voru Hraðfrystistöð Þórs-
hafnar HF., Sparisjóður Þórshafnar
og nágrennis og Lónið ehf.
Eftirfarandi skák var tefld á Skák-
þingi Norðlendinga. Einn af efnileg-
ustu skákmönnum Norðlendinga
stýrir hvítu mönnunum, en hinum
megin borðsins situr einn af mátt-
arstólpum skáklífs Akureyringa til
margra ára.
Hvítt: Stefán Bergsson
Svart: Þór Valtýsson
Caro-Kann
1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rc3 dxe4 4. f3!?
–
Hvítur fórnar peði til að opna sér
sóknarlínur. Hvítur leikur venjulega
4. Rxe4 í stöðunni.
4. – exf3 5. Rxf3 Bg4 6. Bc4 e6
Ekki gengur 6. – Rf6? 7. Re5!
Bh5? 8. Dxh5! Rxh5 9. Bxf7+ mát.
7. 0-0 Rf6 8. Bg5 Be7 9. Dd2 Bxf3
10. Hxf3 b5!?
Önnur leið er 10. – Rbd7 11. He1
0-0 12. De2 Rd5? (12. – Rb6) 13. Bxe7
Dxe7 14. Rxd5 cxd5 15. Bxd5 Rf6 16.
Bb3 Hfd8 17. c3 með betra tafli fyrir
hvít (Berg-Davy 1991)
11. Bd3 b4 12. Re2 a5 13. Haf1
Rbd7 14. Rg3 h6 15. Bf4 Db6 16. c3
c5!
Það hefur lítið orðið úr sókn hvíts
og nú leggur svartur til atlögu á mið-
borðinu.
17. dxc5 Bxc5+ 18. Kh1 Hd8! 19.
Re4? –
Tapar skiptamun. Hvítur hefði
getað barist áfram með 19. De2
Rd5 (19. – 0-0 20. Re4 Rxe4 21.
Bxe4 Rf6 22. Bc2 Rd5 23. cxb4
Rxb4? 24. Bxh6!) 20. Bd2 0-0 21. Bc2
með sóknarfærum.
19. –Rxe4 20. Bxe4 Re5 21. De2 –
Hvítur hefði getað reynt 21.
Dxd8+ Dxd8 22. Bxe5 0-0, en hann
hefði ekki getað gert sér miklar von-
ir um að bjarga þeirri stöðu.
21. –Rxf3 22. Dxf3 0-0
23. Bxh6 –
Hvítur gerir lokatilraun til að
opna svörtu kóngsstöðuna, því hann
sér að taflið er tapað ef hann teflir
rólega, t.d. 23. Dg3 Bd6 24. Be3 Db5
25. Df3 bxc3 26. bxc3 f5 27. Bc2 De5!
o.s.frv.
23. –gxh6 24. Dh5 –
Eða 24. Dg4+ Kh8 25. Hf6 Be3 26.
Dh5 Dc7 27. Hxh6+ Kg7 28. Hh7+
Kf6 29. Dh4+ Ke5 30. Bc2 Bf4 31.
Hh5+ f5 32. De1+ Kd6 33. Bb3 e5
o.s.frv.
24. –Be3 25. Hf6 Dc7 26. h4 Dg3!
27. Bg6 Hd1+
og hvítur gafst upp, því að hann
verður mát eftir 28. Dxd1 Dxh4+
Úr mótaáætlun
Skáksambandsins
12.4. SA. 15-mín. mót
14.4. SA. Páskahraðskákmót
19.4. SA. Fischer-klukkumót
20.4. Hellir. Klúbbakeppni Hellis
Daði Örn Jónsson
Bragi Kristjánsson
SKÁK
T a f l f é l a g
R e y k j a v í k u r
SKÁKÞING ÍSLANDS
7.–15.4. 2001
SKÁK
Björn
Þorfinnsson
Björn Þorfinns-
son efstur í
áskorendaflokki
A L D REI L ÉT TA RA
LÉTTA fæst nú í 100 grö mmum létt ari öskjum og því
meðfæ rileg ra en áður. Í LÉTTA er hlut fall ómettað rar
fitu með því hagstæðasta sem býðst í viðb iti
á markað num. Þessvegna er
LÉTTA kjö rið handa þeim
sem vilja for ðast óho lla
fitu en jafn fram t njó ta
góða bragðsins og lét ta með
því t ilveruna. Lét ta er hollur og
góð ur kostur alla daga.
f
í
t
o
n
/
s
í
a
F
I
0
0
1
8
4
9
HAFNARGÖNGUHÓPURINN
stendur fyrir gönguferð með
strönd Kópavogsbæjar í kvöld,
miðvikudagskvöld.
Farið verður frá Hafnarhúsinu,
Miðbakkamegin, kl. 20 og með AV
suður að Nesti við Fossvogslækj-
arósi. Þaðan gengið kl. 20.30 vest-
ur með ströndinni út að Kópavogs-
höfn og síðan inn með strönd
Kársnessins að sunnanverðu að
Kópavogshálsi. Þar er val um að
ganga til baka niður að Nesti eða
fara með AV til Reykjavíkur og að
Hafnarhúsinu. Allir eru velkomnir.
Gengið
með strönd
Kópavogs
STYTTRI ferðir Útivistar um
páskana eru um gamlar þjóðleiðir.
Á skírdag 12. apríl er gengið um
ströndina milli Þorlákshafnar og
Selvogs og annan í páskum 16.
apríl er gengið um Skógfellaveg,
úr Vogum til Grindavíkur. Brott-
för er kl. 10.30 frá BSÍ. Þetta eru
4 – 5 klst. gönguferðir.
Á skírdag kl.10.30 er einnig far-
in öku- og skoðunarferð þar sem
Strandarkirkja verður heimsótt
ogfarið víðar um Selvoginn.
Nánari upplýsingar má finna á
heimasíðu: utivist.is og textavarpi.
Páska-
göngur um
gamlar
þjóðleiðir
♦ ♦ ♦