Morgunblaðið - 11.04.2001, Side 64
DAGBÓK
64 MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Lag-
arfoss kemur og fer í
dag. Amime Maleen og
Akraberg koma í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Fuglberg og Evans
komu í gær, Ramnes og
Tunsnes fóru í gær,
Lagarfoss fer í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur, Sól-
vallagötu 48. Skrif-
stofan er opin alla
miðvikud. frá kl. 14–17.
S. 551 4349. Fataút-
hlutun og fatamóttaka
er opin annan og fjórða
hvern miðvikud. í mán-
uði, frá kl. 14–17 s.
552 5277.
Styrkur, samtök
krabbameinssjúklinga
og aðstandenda þeirra.
Svarað er í síma
Krabbameinsráðgjaf-
arinnar, 800 4040, frá
kl. 15–17.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta, kl. 9–16.30
klippimyndir, harð-
angur, kl. 13 smíða-
stofan opin, trésmíði/
útskurður og spilað, kl.
9 hár- og fótsnyrt-
istofur opnar.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
13 hárgreiðsla, kl. 8–
12.30 böðun, kl. 9–12
vefnaður, kl. 9–16
handavinna og fótaað-
gerð, kl. 10 banki, kl.
13 spiladagur og vefn-
aður. Bingó og dans
föstudaginn 20. apríl kl.
14. Vinabandið
skemmtir með hljóð-
færaleik og söng. Allir
velkomnir.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið í
Hlaðhömrum er á
þriðjud. og fimmtud. kl.
13–16.30, spil og fönd-
ur. Sundtímar á
Reykjalundi kl. 16 á
miðvikud. Uppl. hjá
Svanhildi í s. 586-8014
kl. 13–16. Tímapöntun í
fót-, hand- og andlits-
snyrtingu, hárgreiðslu
og fótanuddi, s.
566 8060 kl. 8–16.
Félagsstarf aldraðra,
Dalbraut 18–20. Kl. 9
böðun, hárgreiðslu- og
handavinnustofurnar
opnar, kl. 13 opin
handavinnustofan.
Félag eldri borgara,
Kópavogi. Viðtalstími í
Gjábakka í dag kl. 15–
16. Skrifstofan í Gull-
smára 9 opin í dag kl
16.30–18.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 10 hársnyrting
og verslunin opin til kl.
13, kl. 13 föndur og
handavinna, kl. 13.30
enska, byrjendur.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Ferð í Þjóð-
leikhúsið miðvikudaginn
11 apríl kl. 20. Rúta frá
Kirkjulundi kl. 19.15.
Miðar afgreiddir mánu-
daginn 9. apríl kl. 11-13
í Kirkjulundi. Næst
verður spilað í Kirkju-
lundi 17. apríl kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Línudans kl. 11. mynd-
mennt kl. 13 og píla
kl.13.30. Á morgun
fimmtudag eru púttæf-
ingar í Bæjarútgerð kl.
10-11.30. Leikhúsferð í
Þjóðleikhúsið að sjá
„Syngjandi í rigning-
unni“ 4. maí, skráning í
Hraunseli. Dansleikur
verður 18. apríl síðasta
vetrardag. Cabrí tríó
leikur fyrir dansi. Sig-
urbjörn Kristinsson
verður með mál-
verkasýningu í Hraun-
seli fram í maí.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin virka daga frá kl.
10–13. Matur í hádeg-
inu. Göngu-Hrólfar fara
í göngu frá Hlemmi kl.
9.45 í dag. Baldvin
Tryggvason verður til
viðtals um fjármál og
leiðbeiningar um þau
mál á skrifstofu FEB í
dag kl. 10.30–11.30.
Panta þarf tíma. Línu-
danskennsla Sigvalda
kl. 19.15. dagana 27.-29.
apríl verður 3 daga ferð
á Snæfellsnes. Gisti-
staður: Snjófell á Arn-
arstapa. Áætlað að fara
á Snæfellsjökul. Komið
að Ólafsvík, Hellissandi
og Djúpalónssandi.
Einnig verður litið á
slóðir Guðríðar Þor-
bjarnardóttur. Brottför
frá Ásgarði, Glæsibæ,
27. apríl kl. 9. Skráning
hafin. Silfurlínan opin á
mánudögum og mið-
vikudögum frá kl. 10–
12. Ath. skrifstofa FEB
er opin frá kl. 10–16.
Uppl. í s. 588 2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9 opin
vinnustofa, postulíns-
málun og fótaaðgerð,
kl. 13 böðun kl. 13.30
samverustund.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, frá hádegi spila-
salur opinn. Næst er
opið þriðjudaginn 17.
apríl. Veitingar í kaffi-
húsi Gerðubergs. Allar
upplýsingar um starf-
semina á staðnum og í
s. 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum
frá kl. 10–17, kl. 10.30
boccia, kl. 13 félagsvist,
kl. 17 bobb.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.10 og 10.10 leikfimi,
kl. 10 ganga, kl. 13
kera
mikmálun, kl. 13.30
enska.
Hraunbær 105. Kl. 9–
16.30 bútasaumur, kl.
9–12 útskurður, kl. 9–
17 hárgreiðsla, kl. 11
banki, kl. 13 brids.
Hvassaleiti 58–60. Kl. 9
böðun, fótaaðgerðir,
hárgreiðsla, keramik,
tau- og silkimálun og
jóga, kl. 11 sund í
Grensáslaug, kl. 15
teiknun og málun.
Norðurbrún 1. Fótaað-
gerðastofan opin frá kl.
9–14, kl. 9–12.30 út-
skurður, kl. 9–16.45
handavinnustofurnar
opnar, kl. 10 sögustund,
kl. 13–13.30 bankinn, kl.
14 félagsvist, kaffi og
verðlaun.
Vesturgata 7. Kl. 8.30
sund, kl. 9 fótaaðgerðir
og hárgreiðsla, kl. 9.15
aðstoð við böðun,
myndlistarkennsla og
postulínsmálun, kl. 13–
16 myndlistarkennsla,
glerskurður og postu-
línsmálun, kl. 13–14
spurt og spjallað. Sýn-
ing á vatnslitamyndum
(frummyndum) eftir
Erlu Sigurðardóttur úr
bókinni „Um loftin blá“
eftir Sigurð Thorlacius
verður frá 30. mars til
4. maí alla virka daga
frá kl. 9–16.30. Allir
velkomnir.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan
og hárgreiðsla, kl. 9.30
bankaþjónusta, kl. 10
morgunstund og fótaað-
gerðir, bókband og
bútasaumur, kl. 13
handmennt og kóræf-
ing, kl. 13.30 bókband,
kl. 14.10 verslunarferð.
Bústaðakirkja. Starf
aldraðra fellur niður í
dag, miðvikudaginn 11.
apríl.
Hana-nú, Kópavogi.
Fundur í bókmennta-
klúbbi Hana-nú á Les-
stofu Bókasafnsins í
kvöld kl. 20. Verið er að
safna ljóðum, kvæðum,
sögnum og sögum af
mat og þar með græn-
meti og ávöxtum. Fólk
er minnt á að miðarnir
á „Syngjandi í rigning-
unni“ í Þjóðleikhúsinu
hinn 11. maí eru komn-
ir í afgreiðsluna. Örfáir
miðar lausir. Upplýs-
ingar í Gjábakka, s.
554-3400 og Gullsmára,
s. 564-5260.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar.
Létt leikfimi, bakleik-
fimi karla, vefjagigt-
arhópar, jóga, vatns-
þjálfun. Einn ókeypis
prufutími fyrir þá sem
vilja. Nánari uppl. á
skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Minningarkort
Minningarkort Minn-
ingarsjóðs Maríu Jóns-
dóttur flugfreyju eru
fáanleg á eftirfarandi
stöðum: Á skrifstofu
Flugfreyjufélags Ís-
lands, s. 561-4307/fax
561-4306, hjá Halldóru
Filippusdóttur, s. 557-
3333 og Sigurlaugu
Halldórsdóttur, s. 552-
2526.
Minningarkort Minn-
ingarsjóðs hjónanna
Sigríðar Jakobsdóttur
og Jóns Jónssonar á
Giljum í Mýrdal við
Byggðasafnið í Skógum
fást á eftirtöldum stöð-
um: Í Byggðasafninu
hjá Þórði Tómassyni, s.
487-8842, í Mýrdal hjá
Eyþóri Ólafssyni,
Skeiðflöt, s. 487-1299, í
Reykjavík hjá Frí-
merkjahúsinu, Lauf-
ásvegi 2, s. 551-1814 og
hjá Jóni Aðalsteini
Jónssyni, Geitastekk 9,
s. 557-4977.
Í dag er miðvikudagur 11. apríl
101. dagur ársins 2001. Leon-
isdagur. Orð dagsins: En ver þú al-
gáður í öllu, þol illt, gjör verk trú-
boða, fullna þjónustu þína.
(II. Tím. 4, 5.)
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
Víkverji skrifar...
HVERS konar rannsóknir eru nústundaðar á Íslandi í mjög
auknum mæli frá því sem verið hefur
síðustu áratugina. Hefur Víkverji
gert þetta efni að umtalsefni áður og
vogar sér að gera það enn á ný. Hon-
um finnst nefnilega sífellt vera að
aukast umfang rannsóknastarfs og
umfjöllun og fréttir af slíku starfi.
Ekki þarf að rifja upp umræður um
lækningarannsóknir og hvernig ýmis
sjónarmið hafa verið á lofti gagnvart
nýjum aðilum og umsvifamiklum á
því sviði. Hafa þær ekki síst snúist um
skráningu upplýsinga og hvernig með
þær er farið. Ekki deila menn um
nauðsyn lækningarannsókna og
hvernig þær geta einatt haft í för með
sér framfarir í læknismeðferð. Og til
að svo megi verða þurfa ýmsir að
leggja fram skerf, vísindamenn þekk-
ingu sína, sjúklingar sjálfa sig sem
efnivið og aðstandendur sem tengla
og ættingja til að unnt sé að huga að
ættlægni sjúkdóma. Allt er þetta gott
og blessað og nauðsynlegt og í stórum
dráttum ættu menn að geta verið
sammála um að svona starfsemi þarf
að vera fyrir hendi. Enda hefur hún
verið það í áratugi, læknar og aðrir
vísindamenn hafa rannsakað hitt og
þetta og gert margs konar athuganir
án þess að farið hafi mjög hátt.
Rannsóknir kosta drjúgan skilding
og á síðustu árum hefur verið veitt æ
meira fé til þeirra. Þar hefur Rann-
sóknarráð komið til skjalanna með
styrki og ýmsir sjóðir eru til á
ákveðnum sviðum raunvísinda og
hugvísinda. Jafnvel eru fjársterk fyr-
irtæki farin að auglýsa (sig) og
styrkja málefni á sínum sviðum. Allt
miðar þetta starf að því að menn auki
þekkingu sína og allt hlýtur það að
leiða til framfara – fyrr eða síðar. Sá
er alltaf tilgangur rannsóknastarfs.
x x x
PÁSKAR eru á næsta leiti og þáleggja menn land undir fót á ein-
hvern hátt. Stíga á skíði, ferðast í
næsta byggðarlag til að heimsækja
ættingja eða fara á fjöll á bílum og
tækjum. Ætli hinn helmingurinn af
þjóðinni sitji ekki heima við til að
sinna fermingarveislum og öðrum
boðum sem menn finna uppá til að
eyða öllum þessum frídögum. Svo má
jafnvel fara í kirkju því ekki eru pásk-
arnir síðri kirkjuhátíð en jólin og
raunar aðalhátíðin þótt menn hafi
kannski ekki alltaf þá tilfinningu fyrir
páskunum. Enn aðrir hljóta líka að
sitja bara heima og hafa það náðugt.
Ekki þarf að gera annað en finna sér
góða bók, safna dálitlum matarbirgð-
um og færa sig síðan reglulega milli
hægindastóla og eldhúss eða borð-
stofu. Þetta er kannski langbesti
kosturinn og sá fyrirhafnarminnsti.
Ef mönnum leiðist bóklestur eða mat-
argerð og át má kannski kveikja á út-
varpi eða jafnvel sjónvarpi og láta
mata sig þar. Svo endast páskablöðin
líka talsvert.
Páskar eru nokkuð seint á ferðinni
í ár og stutt í að sumarið heilsi. Það
þýðir þó ekki að veður geti ekki skjótt
skipst í lofti og sjálfsagt er að ferða-
langar hugi að spám á fyrirhuguðum
ferðaslóðum, athugi búnað sinn og
tæki vel og láti einhverja vita af fyr-
irætlunum sínum.
En hvað sem menn kjósa óskar
Víkverji lesendum páskafriðar og
vonandi koma menn sælir og hvíldir
eða þreyttir til starfa og verkefna
hversdagsins á ný þegar þar að kem-
ur. Flestir fá hið hefðbundna fimm
daga frí, sumir þurfa að vísu að þræla
í verslunum suma dagana og enn aðr-
ar stéttir þurfa ekki að hugsa um
vinnuna í tíu daga eða hálfan mánuð.
HINGAÐ til lands er kom-
inn norskur listamaður að
nafni Odd Nerdrum til að
sýna verkin sín og er það
mjög fínt, en það er ekki
efni þessar greinar heldur
auglýsing listamannsins,
það er að segja sjálfsmynd
hans, sem sýnir vissan lík-
amspart. Þetta fór víst fyr-
ir brjóstið á mörgum og var
brugðið á það ráð að setja
svart strik yfir þennan
vissa líkamshluta. Hefði
þetta verið nakinn kven-
mannslíkami þá efast ég
stórlega um að einhver
hefði kippt sér upp við það
og örugglega hefði það ekki
farið fyrir brjóstið á mörg-
um. Því í ósköpunum er
ekki einn einasti staður þar
sem karlmenn strippa?
Áhugaleysi hjá konum?
Það efast ég um, það hafa
þessi svokölluðu kvenna-
kvöld sýnt, þar er allt vit-
laust þegar karlstripparar
koma fram. Hugsið ykkur,
hér eru nokkrir staðir þar
sem konur strippa en ekki
einn einasti staður þar sem
karlmenn strippa, skrýtið
ekki satt? Ég hugsa að ef
þessu væri öfugt farið, eng-
inn staður þar sem konur
strippa heldur einungis
karlmenn, þá væru karl-
menn örugglega búnir að
loka þeim stöðum. Hvernig
er nú fjallað um íslenskt
kvenfólk í erlendum blöð-
um, ekki er það nú til að
hrópa húrra yfir. Konur, er
ekki kominn tími til að bera
meiri virðingu fyrir líkama
okkar! Við höfum meira til
brunns að bera en bara
flottan líkama, stór brjóst
og alltaf til í tuskið, ég held
að flestar okkar hafi fæðst
með heila. Hvernig væri að
við færum að vakna?
Hilda.
Tapað/fundið
Tvö hlaupahjól hurfu
á hátíð í Smáranum
SUNNUDAGINN 8. apríl
sl. var opnunarhátíð Spari-
sjóðs Kópavogs í Select í
Smáranum. Viðskiptavin-
um, ekki síst börnum, var
boðið að koma og fylgjast
með skemmtiatriðum, fá
andlitsmálun og ókeypis
gos og sælgæti. Systkinin
Ásdís Rósa og Mímir, sem
eru 7 og 9 ára, og búa í
Lindahverfinu brugðu sér á
hlaupahjólunum sínum á
hátíðina. Þar var þeim
meinað að fara með hlaupa-
hjólin sín inn og urðu því að
geyma þau fyrir utan á
meðan þau þáðu veitingar.
Þegar þau komu út
skömmu síðar voru bæði
hjólin horfin. Þrátt fyrir
mikla leit hafa þau ekki
fundist. Systkinin gengu
niðurbrotin heim af
skemmtuninni.
Bæði hjólin er vel merkt
að neðan. Ef einhverjir for-
eldrar verða varir við að
börnin þeirra eru með
hlaupahjól sem þeir kann-
ast ekki við eru þeir vin-
samlegast beðnir að skoða
undir hjólin og hringja í
símanúmerið 554-1917 sem
þar er skráð. Nú þegar vor-
ið er loksins að ganga í garð
þarf vart að lýsa þeirri sorg
sem leiðindaatburður sem
þessi veldur börnum á
þessum aldri.
Næla tapaðist
NÆLA tapaðist laugar-
daginn 31. mars sl., annað
hvort í Laugardalshöll eða
nágrenni hennar eða í Ís-
lensku óperunni. Nælan er
úr ofnum silfurvír með
gylltu mynstri. Sá sem hef-
ur fundið næluna er vin-
samlegast beðinn að hafa
samband í síma 862-0014
eða 588-3889. Fundarlaun.
Hjól í óskilum
GRÆNT karlmannshjól er
í óskilum á Suðurlands-
braut. Upplýsingar í síma
568-4755.
Brúnir Teva-sandalar
teknir í misgripum
BRÚNIR Teva-sandalar
nr. 40 voru teknir í misgrip-
um fyrir minni, í Sundlaug
Grafarvogs, sunnudaginn
8. apríl sl. Vinsamlegast
hafið samband við Sól-
björgu í síma 586-1232 eða
Sundlaug Grafarvogs.
Lítil svört hliðar-
taska tapaðist
LÍTIL svört hliðartaska
með járnhandfangi tapaðist
á Gauk á Stöng aðfaranótt
laugardagsins 7. apríl sl.
Skilvís finnandi er vinsam-
legast beðinn að hafa sam-
band við Katrínu í síma
554-6206.
Dýrahald
Tómas er týndur
TÓMAS er bröndóttur
inniköttur með bláa hálsól
með nafni og símanúmeri.
Hann hvarf frá Rimahverfi
í Grafarvogi þriðjudaginn
26. mars sl. Ef einhver hef-
ur orðið var við hann eða
veit hvar hann er niður-
kominn, vinsamlegast hafið
samband við Rikka í síma
863-0180 eða 557-2549.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Nekt
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 rakka, 4 kletts, 7 dáin, 8
hegna, 9 óhróður, 11
skylda, 13 ímyndun, 14
svínakjöt, 15 legubekkur,
17 ótta, 20 hvíldi, 22 bár-
ur, 23 borga, 24 konung-
borinn maður, 25 nes.
LÓÐRÉTT:
1 falin, 2 veiðarfærið, 3
bráðum, 4 húsgagn, 5
skott, 6 stólpi, 10 kýli, 12
skyldmenni, 13 keyrðu,
15 greind, 16 ól, 18 ekki
djúp, 19 vitri, 20 atlaga,
21 vont.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 renningur, 8 eyjan, 9 yndis, 10 náð, 11 nýrna,
13 annar, 15 hatts, 18 öflug, 21 tin, 22 fiska, 23 unnur, 24
saklausar.
Lóðrétt: 2 erjur, 3 nunna, 4 neyða, 5 undin, 6 senn, 7 ás-
ar, 12 net, 14 nef, 15 hafs, 16 tuska, 17 stagl, 18 önuðu, 19
lunga, 20 garð.