Morgunblaðið - 11.04.2001, Side 67
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2001 67
Hálft í hvoru
Vesturgötu 2, sími 551 8900
Í kvöld
miðvikudag
föstudaginn langa
laugardagskvöld
sunnudagskvöld
Húsið oppnar á
miðnætti
BÍÓSALURINN, Siglufirði: Dans-
leikur með hljómsveitinni Sóldögg
laugardagskvöld.
BREIÐIN, Akranesi: Papar leika og
syngja föstudagskvöld. Hljómsveitin
Land og synir leika frá kl. 23–3 laug-
ardagskvöld. 18 ára aldurstakmark.
BROADWAY: Dansleikur með Sál-
inni hans Jóns míns föstudagskvöld.
Húsið opnar á miðnætti. Sýningin
Nights on Broadway með Geir Ólafs-
syni og stórhljómsveit undir stjórn
Árna Sceving laugardagskvöld. Út-
setjari er Þórir Baldursson. Gesta-
söngvarar eru Eyjólfur Kristjánsson,
Anna Sigríður Helgadóttir, mezzó-
sópran og Jón Kr. Ólafsson. Hljóm-
sveitin Lúdó Sextett og Stefán leikur
fyrir dansi í aðalsal.
BÆJARBARINN ÓLAFSVÍK:
Diskórokktekið og plötusnúðurinn
Skugga-Baldur leikur miðvikudags-
kvöld. Miðaverð 500 kr.
C’EST LA VIE, Sauðárkróki:
Hljómsveitin Sódögg leikur föstu-
dagskvöld.
CAFÉ 22: Úrslitakvöld á Herra
Breakbeat is sunnudagskvöld. Í dóm-
nefnd eru Páll Óskar, Hrönn Sveins-
dóttir og Elísabet Ólafsdóttir. Kynnir
er Jón Atli. Eftir-partý verður síðan
þar sem dj. Panik sér um tónlistina.
Húsið opnað á miðnætti og hefst
keppni kl. 00.30. Aðgangseyrir er 500
kr og 20 ára aldurstakmark.
CAFÉ RIIS, Hólmavík: Diskórokk-
tekið og plötusnúðurinn Skugga-Bald-
ur leikur föstudagskvöld. Miðaverð
500 kr.
DUBLINER: Dúettinn Nasistamell-
urnar flytur þaulæfða skemmtidag-
skrá frá kl. 24 miðvikudags- og föstu-
dags- og sunnudagskvöld. Dúettinn
skipa: Ingvar Valgeirsson og Stefán
Örn Gunnlaugsson .
EGILSBÚÐ, Neskaupstað: Dans-
leikur til kl. 3 miðvikudagskvöld.
Rokk- og jazzklúbburinn á Nesi held-
ur Bítlakvöld frá kl. 24–4 föstudags-
kvöld. Húsið opnar kl. 23. Miðaverð 1.
500 kr. BogS í Stúkunni til kl. 3 . Að-
gangur ókeypis laugardagskvöld.
Buttercup leikur á 16 ára dansleik frá
kl. 23–3. Miðaverð 2.000 kr. Hið árlega
páskaball. Hljómsveitin Buttercup
leikur sunnudagskvöld. 18 ára aldur-
takmark. Miðaverð 1. 800 kr.
GAMLI BAUKUR HÚSAVÍK:
Hljómsveitin Skytturnar skemmtir
sér og öðrum föstudags- og laugar-
dagskvöld.
GAUKUR Á STÖNG: Hljómsveitin
Sóldögg leikur miðvikudagskvöld.
Hljómsveitin Land og synir leikur fyr-
ir dansi föstudagskvöld.
GRANDHÓTEL REYKJAVÍK:
Tónlistarmaðurinn Gunnar Páll leikur
og syngur öll fimmtudags-, föstudags-
og laugardagskvöld. Gunnar leikur
hugljúfa og rómantíska tónlist. Allir
velkomnir.
GULLÖLDIN: Hljómsveitin Sælu-
sveitin leikur miðvikudags- og laug-
ardags- og sunnudagskvöld.
H-BARINN AKRANESI: Diskó-
rokktekið og plötusnúðurinn Skugga-
Baldur leikur sunnudagskvöld. Miða-
verð 500 kr.
HÓTEL HÚSAVÍK: Hljómsveitin
Sóldögg leikur sunnudagskvöld.
HÓTEL SELFOSS: Dansleikur
með Sálinni hans Jóns míns sunnu-
dagskvöld.
INGHÓLL, Selfossi: Hljómsveitin
Á móti sól leikur miðvikudagskvöld.
KAFFI AKUREYRI: Páskatón-
leikar Bubba Morthens. Tónleikarnir
hefjast kl. 21 miðvikudags- og fimmtu-
dagskvöld.
KAFFI REYKJAVÍK: Hljómsveitin
Hálft í hvoru leikur og syngur mið-
vikudags- og föstudags- og laugar-
dags- og sunnudagskvöld.
LOGALAND, Borgarfirði: Páska-
dansleikur með hljómsveitinni Stuð-
bandalaginu frá kl. 24–4 föstudags-
kvöld.
MIÐGARÐUR, Skagafirði: Hljóm-
sveitin SSSól leikur eftir tæplega 2ja
ára hlé miðvikudagskvöld.
NAUSTIÐ: Liz Gammon leikur fyr-
ir matargesti kl. 22 til 3. Naustið er
opið alla daga frá kl. 18. Stór og góður
sérréttaseðill.
N1-BAR, Reykjanesbæ: Hljóm-
sveitin Papar heldur uppi stuðinu mið-
vikudagskvöld.
Reykjavíkurstofa – bar og koníaks-
stofa: Söngkonan og píanóleikarinn
Liz Gammon frá Englandi leikur. Op-
ið frá kl. 18.
ODD-VITINN, Akureyri: Stjörnud-
ansleikur með hljómsveitinni BSG
föstudags- og laugardagskvöld. Með-
limir bandsins eru Björgvin Halldórs-
son, Sigríður Beinteins, Grétar Örv-
arsson og Kristján Svavarsson.
PLAYERS-SPORT BAR, Kópa-
vogi: Hljómsveit Rúnars Júlíussonar
leikur fyrir dansi sunnudagskvöld.
PRÓFASTURINN, Vestmannaeyj-
um: Hljómsveitin Sálin hans Jóns
míns leikur miðvikudagskvöld.
RIVE GAUCHE – VINSTRI
BAKKINN: Sváfnir Sigurðarson og
Arnar Halldórsson leika fyrir gesti
miðvikudagskvöld. Leikin verða
gömlu góðu lögin í bland við ný og
fersk. Staðurinn fagnar fjögurra ára
afmæli sínu um þessar mundir.
SJALLINN, Akureyri: Hljómsveit-
in Land og synir leikur fyrir dansi frá
kl. 24–4 miðvikudagskvöld. 18 ára ald-
urstakmark. Hljómsveitin SSSól leik-
ur eftir u.þ.b. 2ja ára hlé föstudags-
kvöld. Hljómsveitin Papar leikur í
banastuði laugardagskvöld. Hljóm-
sveitin Sálin hans jóns míns leikur
sunnudagskvöld.
SKUGGABARINN: Dj. Nökkvi í
búrinu miðvikudags-, föstudags-,
laugardags- og sunnudagskvöld.
Miðaverð 500 kr eftir kl. 24. 22 ára ald-
urstakmark.
SKÚLI FÓGETI, Aðalstræti 10:
Bjarki Sigurðsson sér um tónlistina
miðvikudagskvöld. Hljómsveit Rún-
ars Júlíussonar sér um fjörið fram eft-
ir nóttu föstudagskvöld. Opið frá kl.
24. Dúóið Túkall í banastuði. Opið frá
kl. 24 sunnudagskvöld. 25 ára aldurs-
takmark. Snytilegur klæðnaður.
STAPINN, Reykjanesbæ: Land og
synir leika í banastuði frá kl. 24–4
sunnudagskvöld. 18 ára aldurstak-
mark.
VALASKJÁLF EGILSSTÖÐUM:
Hljómsveitin Á móti sól leikur fyrir
dansi föstudagskvöld.
VIÐ ÁRBAKKANN, Blönduósi:
Diskórokktekið og plötusnúðurinn
Skugga-Baldur leikur laugardags-
kvöld. Miðaverð 500 kr.
VIÐ POLLINN, Akureyri: Hljóm-
sveitin Kusk leikur miðvikudags-
kvöld. Hljómsveitin Karma með Ólaf
„Labba“ Þórarinsson í broddi fylking-
ar leikur föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld.
VÍKIN, Höfn: Hljómsveitin Á móti
sól leikur fyrir dansi laugardagskvöld.
Frá A til Ö
ÞRJÁTÍU manna hópur af Akra-
nesi brá undir sig betri fætinum
um fyrri helgi og heimsótti Guðjón
Þórðarson knattspyrnuþjálfara í
Stoke-On-Trent á Englandi, þar
sem hann þjálfar sem kunnugt er
2. deildarlið Stoke City sem nú er
að stærstum hluta í eigu íslenskra
fjárfesta.
Í hópnum sem hélt utan voru
margir fyrrverandi samherjar
Guðjóns í Skagaliðinu, fyrrverandi
stjórnarmenn og aðrir sem tengj-
ast knattspyrnunni í bænum.
Hópurinn fór út á föstudeginum,
fylgdist síðan með sigurleik Stoke,
4:1, gegn Bristol Rovers á Britt-
annia-leikvanginum á laugardegi
og svo fór allur hópurinn saman út
að borða um kvöldið. Þangað, og á
leikinn, var einnig boðið ekkju Ge-
orges Kirbys og syni, Peggy og
Thomas, en George þjálfaði Akra-
nesliðið á sínum tíma með mjög
góðum árangri en hann lést í fyrra.
Guðjón ávarpaði þessa fyrrum
félaga sína á veitingastaðnum um
kvöldið og sagði þeim í stuttu máli
út á hvað starf hans hjá félaginu
gengi. Guðjón komst þá m.a. þann-
ig að orði að hann hefði ekki þurft
á aðstoð Guðs að halda í leik dags-
ins fyrst þessi fríði flokkur hefði
verið mættur. „Við ætlum okkur að
spila í Cardifff 26. maí og ég held
það sé rétt fyrir ykkur að fara
panta ferð þangað strax,“ sagði
Guðjón og vísaði til úrslitaleiks um
þriðja lausa sætið í 1. deild næsta
vetur. Um það sæti keppa liðin í
þriðja til sjötta sæti 2. deildar, en
Stoke er sem stendur í sjötta sæti.
Skagamenn heim-
sóttu Guðjón í Stoke
Þórður Guðjónsson, fyrrverandi leikmaður Akraness,
ræðir við Þorvarð Magnússon, Guðjón Guðmundsson,
Gunnar Sigurðsson og Matthías Hallgrímsson.
Guðjón Þórðarson ásamt Peggy Kirby, ekkju
Georges Kirby, og Thomas syni þeirra. Kirby þjálfaði
lið ÍA við góðan orðstír á árum áður en lést í fyrra.
Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi, var ekki lengi að draga upp gít-
arinn þegar komið var á veitingastað á laugardagskvöldinu. Guðjón
Guðmundsson alþingismaður og Sigurður Ólafsson syngja með.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hluti Skagamannanna ásamt feðgunum Guðjóni Þórðarsyni og Þórði Guðjónssyni, sem nú leikur með Derby
County í Englandi og kom til móts við hópinn, fyrir utan veitingastaðinn La Bella Napoli á laugardagskvöldinu.