Morgunblaðið - 03.06.2001, Side 19

Morgunblaðið - 03.06.2001, Side 19
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2001 19 Hillukerfi fyrir lagerinn,verslunina, heimilið, bílskúrinn. Umboðs- og heildverslun Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík Sími 53 53 600 - Fax 567 3609 Einfalt í uppsetningu Skrúfufrítt Smellt saman Trygg gæði - Gott verð! Heildarlausnir ISO 9001 Öryggis- og gæðastaðlar Netverslun - www.isold.is KIRKJULISTAHÁTÍÐ 2001 lýkur á morgun, annan í Hvítasunnu með tónleikum Mótettukórs Hallgríms- kirkju sem hefjast kl. 20. Flutt verða „a cappella“ kirkjuverk eftir norræn og norður-amerísk tónskáld en dag- skrána hefur Mótettukórinn æft að undanförnu fyrir tónleikaferð sína til Kanada sem hefst strax að tón- leikum loknum. „Um er að ræða metnaðarfull verk sem eiga að sýna mikla breidd í því sem kórinn getur sungið best og er þar um að ræða verk eftir bæði ís- lensk tónskáld og erlend,“ segir Inga Rós Ingólfsdóttir sem annast hefur framkvæmd Kirkjulistahátíð- arinnar. „Þar er að finna blöndu af gamalkunnum verkum úr starfi kórsins og spennandi verkum sem ekki hafa heyrst áður í Hallgríms- kirkju. Byrjað verður á íslenska þjóðsöngnum til að skapa hátíðleika og leyfa gestum að finna þá stemmn- ingu sem fylgir kórnum erlendis. Þá verður fluttur sálmurinn Víst ertu, Jesú, kóngur klár eftir Hallgrím Pétursson í útsetningu Jóns Hlöð- vers Áskelssonar. Þar er að finna tengingu við Hallgrímskirkju, auk þess sem um er að ræða lag sem kórinn hefur tekið ástfóstri við.“ Önnur íslensk verk á efnisskrá eru Heyr, himna smiður og Kvöldbænir eftir Þorkel Sigurbjörnsson og Ave Maria eftir Hjálmar H. Ragnarsson. „Þá verða flutt verk á borð við Ave maris stella eftir Trond Kverno og Magnificat eftir Arvo Pärt sem er mjög magnþrungið verk.“ Eftir hlé verða flutt kórverk eftir fræg nor- ræn tónskáld, Knut Nystedt og Otto Olson. „Þannig verður fluttur hver gullmolinn á fætur öðrum, af verk- um norður-amerísku tónskáldanna má t.d. nefna Agnus Dei eftir Sam- uel Barber, þ.e. umskrift tónskálds- ins á Adagio fyrir strengjasveit. Það er mjög frægt verk sem á eflaust eftir að hrífa alla sem til heyra. Lokaverk tónleikanna, Vinamintra elitavi, flutti kórinn við upphaf Kirkjulistarhátíðarinnar og erum við þá kominn hringinn.“ Inga Rós segir aðstandendur Kirkjalistahátíðar ánægða yfir hversu vel hafi til tekist. „Við erum ákaflega þakklát fyrir að hafa getað boðið upp á dagskrá með svo mikl- um fjölda hæfileikafólks, bæði er- lendum og íslenskum,“ segir Inga Rós. Hún segir sérstaka hátíðar- stemmningu hafa myndast í kirkj- unni, sem jafnt áhorfendur sem flytjendur hafi orðið snortnir af. „Það var mjög bjart yfir hátíðinni allri en segja má að flutningur á Jós- úa eftir Händel hafi markað hátind hátíðarinnar, og voru viðbrögð þeirra erlendu flytjenda sem hingað komu ekki síst hvetjandi fyrir það listastarf sem fer fram hér í kirkj- unni. Ég held að yfirskrift hátíðar- innar, þ.e. „múrar falla“, hafi gert það að verkum að opnast hafi landa- mæri í margar áttir, bæði í land- fræðilegum og listrænum skilningi,“ segir Inga Rós að lokum. Hver gullmolinn á fætur öðrum fluttur Morgunblaðið/Arnaldur Inga Rós Ingólfsdóttir er ánægð með hversu vel hefur tekist til með Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju. Hátíðinni lýkur á morgun. Kór Flensborg- arskóla á ferð KÓR Flensborgarskólans í Hafn- arfirði heldur tónleika í Félags- heimili Patreksfjarðar á þriðju- dagskvöld kl. 20.30, Stykkishólms- kirkju á fimmtudagskvöld kl. 20.30 og eru þeir tónleikar liður í röðinni Sumartónleikar í Stykkishólms- kirkju. Stjórnandi er Hrafnhildur Blomsterberg og píanóleikari kórs- ins er Ólafur Kolbeinn Guðmunds- son. Á efnisskránni eru innlend og er- lend lög og flytur Ólafur Kolbeinn m.a. verkið „Suggestion diabolique“ op. 4 no. 4 eftir Sergei Prokofiev. Hönnunar- sýning í Hafnarfirði NÚ stendur yfir árleg hönnunarsýn- ing Iðnskólans í Hafnarfirði. Þar er að finna margvísleg verk úr hinum fjölbreyttasta efniviði og hafa þrír af útskriftarnemendum skólans í ár fengið inni í hinum virta hönnun- arháskóla í Eindhoven í Hollandi sem einungis veitir skólavist litlum hluta umsækjenda. Sýningin er opin til 8. júní, lokað sunnudag og mánudag. Djassað á Ozio DJASSTÓNLEIKAR verða á Ozio á mánudagskvöld kl. 21.30 og leikur djassinn tríó saxófónleikarans Hauks Gröndals. Ásamt Hauki spila þeir Matthías Hemstock á trommur, og Gunnar Hrafnsson á kontrabassa. Miðaverð er 600 kr. ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ SMS FRÉTTIR mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.