Morgunblaðið - 03.06.2001, Side 23

Morgunblaðið - 03.06.2001, Side 23
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2001 23 NÝJU NG 201150x50 TM5000x50 201616x50 40560x50 Á vaðstígvélum út í veröldina – sagan af sigurgöngu Nokia Matt Wisk, framkvæmdastjóri markaðsmála hjá Nokia. Hver veðjar 60 milljörðum á að breyta flugturni í þekkingarvita? Per Morten Vigtel, stjórnarmaður IT Fornebu og formaður Samtaka norskra fjárfesta. Íslenskur þekkingariðnaður – hvað þarf til? Frosti Bergsson, stjórnarformaður Opinna Kerfa. Kraftar í Kópavogi – hvað næst? Gunnar Birgisson, formaður bæjarráðs Kópavogs. Er Þekkingarlundur draumur eða veruleiki? Björn Gunnlaugsson, Þróunarfélagið Lundur Lars Nielsen, aðaleigandi arkitektastofunnar 3XNielsen. Ráðstefnugjald kr. 16,500.- Ráðstefna í Salnum, Kópavogi 7. júní 2001 kl. 13.00 til 16.00 Skráning er á www.rsn.is, á faxi 551-9677 og einnig alla virka daga í síma 551-9699 milli kl.9-17. Dagskrá: Geta Íslendingar gert þekkingu að raunverulegri útflutningsgrein? Hvaða forsendur hafa verið til staðar hjá þekkingarfyrirtækjum sem náð hafa árangri? Hvað þarf til að tryggja samkeppnishæfni þekkingarfyrirtækja? Ráðstefnustjóri er Svafa Grönfeldt, framkvæmdastjóri þróunarsviðs IMG. V I R K J U N Þ E K K I N G A R u p p s p r e t t a þ e k k i n g a r PÁLL Skúlason, rektor Háskóla Ís- lands, opnaði nýverið nýja heima- síðu Efnafræðifélags Íslands í Skólabæ. Vefslóð nýju heimasíð- unnar er: www.efn.is. Þar segir að Efnafræðifélagið hafi viljað nota þetta tækifæri til að kynna starf- semi félagsins og að samkoman hafi jafnframt verið hugsuð sem við- urkenning til þeirra sem lagt hafa félaginu lið á tæplega eins og hálfs árs ferli þess. Efnafræðifélagið var stofnað í árslok 1999 sem faglegur vett- vangur fyrir efnafræðinga, efna- verkfræðinga og lífefnafræðinga og annað áhugafólk um efnafræði. Í dag eru félagsmenn 134 talsins. Í félaginu fer fram margvísleg starfsemi. Í haust stóð það fyrir ráðstefnu þar sem meðal annars var fjallað um umhverfismál, líf- tækni og nýtingu vetnis á Íslandi. Félagið hefur einnig veitt vegleg bókaverðlaun fyrir framúrskarandi árangur í efnafræði á stúdentsprófi við brautskráningu frá framhalds- skólum landsins. Þá hefur nýlega verið stofnuð orðanefnd sem í sam- starfi við efnafræðiskor raunvís- indadeildar Háskóla Íslands vinnur að gerð kynningarbæklings um nám í efnafræði og lífefnafræði við Háskólann og um störf að því loknu. Efnafræði- félagið opnar heimasíðu Morgunblaðið/Arnaldur Háskólarektor fórst vel úr hendi að opna nýju heimasíðuna. FASTAGESTIR Sundlaugarinnar í Vesturbæ afhentu á fimmtudag borgarstjóra undirskriftir um 2000 Vesturbæinga sem skora á borgaryf- irvöld að byggja kennslu- og æfing- arlaug við Vesturbæjarlaug hið fyrsta. Margrét Lísa Steingrímsdóttir stóð fyrir undirskriftasöfnuninni. „Ég syndi daglega og hélt endilega að það ætti að byggja við laugina. Svo fór ég að spyrja framkvæmda- stjórann hvenær framkvæmdirnar ættu að hefjast og þá kom í ljós að það er ekkert á dagskrá af því að nú er verið að laga Laugardalslaugina.“ Hún segir marga hafa verið óá- nægða og óhressa með plássleysið í lauginni og því hafi henni fundist til- hlýðilegt að borgaryfirvöld vissu að fólk væri að hugsa um þessi mál. Hún segir lítið pláss fyrir almenna sundiðkendur í lauginni. „Laugin er jafnlítil og hún var fyrir 40 árum þegar hún var byggð fyrir samskot borgarbúa. Það eru þarna fjórar brautir og þrjár þeirra eru alltaf nýttar undir skólasund og skóla- sundið er frá átta til fjögur. Þá tekur sunddeild KR við og er með braut- irnar næstum fram að lokun. Al- menningur hefur því aðeins eina braut til umráða,“ segir hún. Auk Margrétar hefur sunddeild KR tekið þátt í að safna undirskrift- unum og segir í greinargerð með undirskriftunum að börn lendi nú á biðlista eftir plássi í sundfélaginu vegna aðstöðuleysisins. Aðeins ein braut fyrir almenning Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Margrét Lísa Steingrímsdóttir, Kristján Haukur Flosason, þjálf- ari hjá sunddeild KR, og Jó- hannes Benediktsson, formaður sunddeildarinnar, afhenda Ingi- björgu Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra undirskriftirnar. Um 2.000 íbúar skrifa undir áskorun um stækkun Vesturbæjarlaugar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.