Morgunblaðið - 03.06.2001, Page 24

Morgunblaðið - 03.06.2001, Page 24
24 SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ J ÓEL Pálsson flutti í októ- ber á síðastliðnu ári á Tómasarhagann í Reykjavík ásamt konu sinni Bergþóru Guðna- dóttur og þriggja ára syni þeirra Breka. Jóel er kominn á fornar slóðir þar sem hann er fæddur og uppalinn og sleit barnsskónum á Grímsstaðarholtinu og nágrenni. Jóel hitti ég í byrjun maímánaðar á heimili hans á Tómasarhaganum. Fjölskyldan býr þar í fjögurra her- bergja íbúð sem er björt og skemmtileg. Úr stofuglugga sér út á hafið og yfir á Álftanesið. Jóel hefur sitt lifibrauð af tón- listinni og hefur undanfarin ár ver- ið í hópi okkar athyglisverðustu tónlistarmanna. Jóel er frjór og skapandi listamaður. Hann er fæddur í Reykjavík árið 1972 og á því ekki langan feril að baki líkt og ýmsir tónlistarmenn sem ég hef átt viðtöl við á undanförnum árum fyrir Morgunblaðið. Þó tónlistar- ferilinn sé ekki langur er hann þeim mun athyglisverðari. Jóel hefur leikið á yfir 50 hljómplötum og komið víða fram, s.s. í Banda- ríkjunum, Kanada, Frakklandi, Hollandi, Þýskalandi, Englandi, Noregi, Danmörku og Grænlandi. Árið 1998 gaf Jazzís út plötuna Prím með tónlist eftir Jóel og var sú plata valin til útgáfu hjá hinu heimsþekkta Naxos-útgáfufyrir- tæki og gefin út víða um heim. Nýja platan, Klif, sem kom út fyrir örfáum vikum hjá nýju út- gáfuforlagi, Eddu, hefur fengið mjög góða dóma gagnrýnenda. Vernharður Linnet segir t.d. í um- sögn um plötuna í Morgunblaðinu 10. maí. ,,Á engum íslenskum djassdiski til þessa hefur tekist betur að sameina framsækna hugs- un og djasshefðina. Tónsmíðarnar eru innihaldsríkar, spuninn hug- myndaríkur og hrynsveitin jarð- bundin. Jóel hefur agað tón sinn enn meira en fyrr og vald hans yfir tenórsaxófóninum er nær algert. Hilmar er hugmyndaríkur í spuna sínum jafnt sem skreytingum og Skúli gæðir hvern takt sem hann leikur nýju lífi. Loks skal það nefnt að Matthías hef ég aldrei heyrt betri, hvort sem hann slær taktinn eða litar tónlistina með áslætti sínum.“ Jóel Pálsson rifjaði upp fyrstu kynni sín af tónlist í foreldrahús- um. ,,Ég ólst upp við að heyra klass- íska músík og djasstónlist og hef iðkað tónlist frá því ég var barn að aldri. Faðir minn, Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur, hafði mikinn áhuga á tónlist og spilaði á selló og kontrabassa, lék með djassböndum hér fyrr á árum og erlendum djassleikurum, t.d. með hinum kunna bandaríska trompetleikara Art Farmer sem kom til Íslands 1966. Pabbi hlustaði einnig á kammerdjass, The Modern Jazz Quartet, og ég ólst upp við að hlusta á djass og klassísk músík á líka töluverð ítök í mér. Það er engin spurning að ég varð fyrir tónlistaráhrifum á æskuheimili mínu og er þakklátur foreldrum mínum fyrir að hafa haldið mér við efnið.“ Varstu snemma kominn í tónlist- arskóla? ,,Ég byrjaði mjög ungur, sex eða sjö ára í forskóla í Tónmenntaskól- anum í einhverju föndri og hóf ekki strax að spila á hljóðfæri. Níu ára byrjaði ég að læra þar á klar- inett og var í klarinettnámi í nokk- ur ár og lauk þaðan námi og út- skrifaðist.“ Skiptir þú fljótt yfir á saxófón þegar þú varst kominn í Tónlistar- skóla FÍH? ,,Já. Ég skipti yfir á saxófón og lærði fyrsta árið á altósaxófón en fór síðan yfir á tenór og vildi læra að spila djass. Sæbjörn Jónsson var búinn að stofna stórsveit í skólanum sem síðar varð að Stór- sveit Reykjavíkur. Þá ákvað ég að spila á saxófón og prófaði mig áfram á barintónsaxófón en skipti fljótt upp úr því og var eitt ár að spila á altósaxófón en stefndi alltaf á tenórinn.“ Varstu þá farinn að hlusta á djasstónlist og þá á saxófónleik- ara? ,,Já, þá var ég byrjaður að hlusta á djassplötur. Pabbi gaf mér tvær plötur sem ég hlustaði mikið á og eru enn í uppáhaldi hjá mér, önnur þeirra er Coltrane- plata, The best of John Coltrane, og hin er Sonnie Rollings-plata og báðir voru þeir miklir áhrifavaldar. Ég hlustaði einnig á plötur með Paul Desmond. Á unglingsárum fór ég að hlusta eftir saxófónleik- urum og djassaðri poppmúsík og kom oft í Safnarabúðina á Klapp- arstígnum og þar fann ég Mezzo- forteplöturnar og keypti þær allar. Þá eignaðist ég plötu Tómasar R. Einarssonar, Hinsegin blús, og hlustaði mikið á hana. Klarinettið er í miklu uppáhaldi hjá mér og ég hef undanfarin ár verið að rifja upp kynni mín af klarinettinu og spila töluvert á það og er t.d núna að spila á það hljóð- færi í Þjóðleikhúsinu í sýningunni Syngjandi í rigningunni. Á þessari nýju plötu, Klif, er ég t.d. að spila á kontrabassaklarinett sem er til- tölulega sjaldgæft hljóðfæri, sem er svona framlenging á klarinett- upælingum mínum og það er hljóð- færi sem ég get hugsað mér að nota meira.“ Hverjir voru þínir fyrstu tónlist- arkennarar? ,,Fyrsti kennari minn á klarinett var Þórir Þórisson. Þá kenndu mér einnig á klarinett Kjartan Óskars- son og Jóhann Ingólfsson í Tón- menntaskólanum. Í Tónlistarskóla FÍH. Eftir að ég hafði skipt yfir á saxófón lærði ég eitt ár hjá konu sem heitir Vigdís Klara og býr nú á Dalvík. Þá lærði ég hjá Stefáni Stefánssyni um tíma og var síðustu tvö árin hjá Sigurði Flosasyni. Sig- urður tók mig virkilega föstum tökum og setti mér reyndar úr- slitakosti. Annaðhvort færi ég alla leið í náminu eða hreinlega sleppti því. Hann gerði mér grein fyrir al- vöru málsins. Að hætta jafnvel eft- ir fyrsta tímann eða berjast til þrautar. Ég ákvað að berjast til þrautar og lauk námi frá Tónlist- arskóla FÍH.“ Hinn bráðefnilegi ungi tónlist- armaður vakti snemma athygli. Hann fékk styrk til frekari náms í Bandaríkjunum. Áður hafði hann spilað í skólahljómsveitum og á djassuppákomum hér heima. Hvenær byrjar þú að spila í hljómsveit? ,,Það var í skólahljómsveit á árshátíð í níunda bekk í Haga- skóla. Þá var ég fjórtán ára. Með mér í þeirri hljómsveit voru t.d. Einar Scheving trommuleikari og Kristján Eldjárn gítarleikari. Þá vorum við með hljómsveit í Menntaskólanum í Hamrahlíð og þar voru með okkur t.d. Gunn- laugur Guðmundsson, sem nú er í Hollandi, Karl Olgeirsson, Einar Scheving og fleiri góðir músíkant- ar. Við settum upp söngleikinn Rocky Horror og það var svona með því fyrsta í þessari vinnu.“ Jóel lauk stúdentsprófi af nátt- úrufræði- og tónlistarbraut frá MH vorið 1992. Hvað tók svo við að loknu stúdentsprófi? ,,Samhliða námi í MH kláraði ég námið í tónlistarskóla FÍH. Ég stefndi nú alltaf á langskólanám. Ég fékk styrk þarna um sumarið og hélt til Bandaríkjanna og inn- ritaðist á Berkeley-tónlistarskól- ann í Boston og var þar í tvö ár og lauk BM-prófi haustið 1994. Ég spilaði með ýmsum skólahljóm- sveitum og fór t.d. með Buddy Riche-bandinu til Pennsilvaníu og til Nashville með úrvalsbandi skól- ans sem Bill Pierce stjórnaði.“ Voru þarna einhverjir Íslending- ar áður? ,,Já, Hilmar Jensson og Skúli Sverrisson og nokkrir fleiri áður en ég kom í skólann. Þegar ég var í námi voru þarna einnig Veigar Margeirsson trompetleikari og Atli Örvarsson o.fl.“ Að loknu námi tók alvaran við. Jóel byrjaði að kenna við tónlistar- skóla á Íslandi. ,,Ég byrjaði að kenna við Tón- listarskólann á Akranesi tvisvar í viku einn vetur. Þá var ég einnig að kenna við Tónlistarskóla FÍH og fleiri tónlistarskóla. Ég fór að spila með hinum ýmsum hljóm- sveitum t.d Milljónamæringunum og er enn að spila með þeim við ýmis tækifæri. Ég setti saman ýmsar hljómsveitir sem spiluðu t.d. á djasskvöldum og spilaði með hinum og þessum tónlistarmönnum og þannig er það enn í dag. Þá hef ég verið að spila í hljóðverum með tónlistarmönnum við upptökur á plötum og diskum. Ég hef einnig verið að útsetja töluvert fyrir aðra tónlistarmenn, það er mjög góð reynsla og góður skóli og það er nauðsynlegt að fá sem víðtækasta reynslu úr sem flestum hlutum.“ Hvenær byrjaðir þú að fást við tónsmíðar? ,,Ég byrjaði að semja tónlist meðan ég var í tónlistarskóla FÍH. Síðan hafa tónsmíðarnar þróast með spilamennskunni og taka allt- af stærri og stærri sess í því sem ég er að gera. Ég sem yfirleitt á píanóið og skrifa þá það sem ég vil að sé skrifað. Ég sem tónlist í skorpuvinnu og þarf að hafa gott næði og ég hef prýðisgóða aðstöðu í bílskúr hér við húsið. Þar loka ég mig af og vil vera í næði og svara hvorki í farsíma né annan síma. Ég sem auðvitað djassmúsík sem ég sé fram á að ég muni flytja sjálfur og þá einnig með öðrum.“ Prím var fyrsta plata Jóel Páls- sonar sem Jazzís gaf út árið 1998 og vakti mikla athygli. Á plötunni Prím eru níu lög af tíu eftir þig. Var það allt ný tónlist eða hafðir þú verið að semja þá tónlist á löngu tímabili? ,,Megnið af þeirri tónlist samdi ég á nokkrum mánuðum áður en við fórum í upptökur í stúdíói. Eitthvað af þessari tónlist er að- eins eldri. Ég samdi t.d. eitthvað af tónlist þegar ég var úti í námi.“ Ertu ekki ánægður með þær við- tökur sem fyrri plata þín fékk? ,,Jú, og hún gekk mjög vel.“ Hver var aðdragandinn að út- gáfu plötunnar erlendis? ,,Það var eiginlega algjör slembilukka, ég þurfti ekkert að hafa fyrir þessu. Það fóru þrjú ein- tök af plötunni, íslensku útgáfunni, úr landi og ein lenti hjá bandarísk- um gagnrýnanda. Ég fékk tölvu- póst frá honum þar sem hann skýrði frá því að hann væri að Landkönnuður í djassi Árið 1998 gaf Jazzís út plötuna Prím með tónlist eftir Jóel Pálsson. Djassgeggjarar hafa hlustað á hana reglulega og hún er í miklu uppáhaldi í plötu- og diskasafni þeirra. Nýlega kom út ný plata með tónlist Jóels Pálssonar, Klif, sem vakið hefur at- hygli og fengið góða dóma gagnrýnenda. Ólafur Ormsson ræddi við Jóel um nýju plötuna og það sem hann er nú að fást við. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Morgunblaðið/Jón Svavarsson Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.