Morgunblaðið - 03.06.2001, Síða 43

Morgunblaðið - 03.06.2001, Síða 43
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2001 43 Lágmúla 7, sími 55 12345 Húseignin í Skútuvogi 12c er til sölu. Eignin er 341 fm sem skiptist í skrif- stofu- og lager- húsnæði á ein- um besta stað í Reykjavík. Upplýsingar eru hjá Stóreign í síma 55 12345. Skútuvogur 12c Knattspyrnuskóli Vals og SIEMENS Fyrir börn fædd ‘87 - ‘95 Námskeiðin verða 05. - 15. júní 18. - 29. júní 02. - 13. júlí 16. - 27. júlí 30. júlí - 10. ágúst Námskeiðin byrja kl. 9.00 og standa yfir til kl. 12.00. (Ath námskeiðin eru frá mánudegi til föstudaga í viku hverri). Börnin geta komið kl 8.00 og þeirra verður gætt þar til námskeiðið byrjar kl. 9.00 Börnunum er skipt í hópa eftir aldri sem miðast við flokkaskiftingu í knattspyrnu drengja og stúlkna Ákveðin heildarmynd verður á skólanum og fá allir iðkendur eins boli og fleira Hverju námskeiði lýkur með viðurkenningu til iðkenda auk grillveislu Yfirumsjón með knattspyrnuskóla Vals 2001 hafa Zeljko Sankovic yfirþjálfari yngri flokka Vals og Elísabet Gunnarsdóttir þjálfari Menntaðir þjálfarar sjá um þjálfun barnanna Skráning og nánari uppl. í síma 551 2187 lestra vistaður á Netinu, verkefna- skil verða möguleg á rafrænu formi og nemendur geta tekið þátt í um- ræðuþráðum sem settir verða upp á innra neti skólans. Við val á umsækjendum verður sérstaklega horft til starfsreynslu þeirra einstaklinga sem boðin verður skólavist en einnig er ætlast til að þeir hafi lokið stúdentsprófi eða sam- bærilegu námi. Umsóknarfrestur er til 1. júlí næstkomandi og kostar hver önn 79 þúsund krónur. Diploma-nám til 45 eininga kostar því 395 þúsund krónur og BS-námið 790 þúsund krónur, samkvæmt núgildandi gjald- skrá. Einsdæmi í íslenskri háskólasögu Guðfinna S. Bjarnadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, sagði á blaða- mannafundi í fyrradag í nýbyggingu skólans, sem tekin verður í notkun næsta haust, að þetta nýja nám væri byltingarkennd nýjung og einsdæmi í íslenskri háskólasögu. Námið gæfi einstaklingum úr atvinnulífinu nýtt tækifæri til að bæta menntun sína og auka valmöguleika varðandi störf og starfsgetu. Guðfinna sagði skólann hafa fundið fyrir skorti á námi sem þessu og mikið verið spurt um þenn- an möguleika. „Við vonum að fólk í atvinnulífinu sjái sér hag í því að fara í þetta nám, fólk sem hefur hætt námi eftir stúd- entspróf eða í miðju háskólanámi og farið út á vinnumarkaðinn. Nú er þenslan aðeins að minnka í efnahags- kerfi okkar og tilvalið að nota þá tækifærið og flykkjast í skólana. Okkur vantar fleira vel menntað fólk út í atvinnulífið,“ sagði Guðfinna og minnti á eitt meginhlutverk skólans sem væri að auka samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Agnar Hansson, deildarforseti við- skiptadeildar, sagði á blaðamanna- fundinum að með nýju námsleiðun- um gæfist einstakt tækifæri fyrir fólk sem hefði áralanga reynslu úti í atvinnulífinu. Skólinn hefði fyrst og fremst það fólk í huga með þessum námsleiðum. „Við teljum að sú reynsla og þekk- ing sem kemur inn með slíku fólki muni bæði nýtast þeim nemendum sem eru hér fyrir og eins okkur kennurum og öðrum sem koma að skólastarfinu. Það mun efla okkur þegar til lengri tíma er litið,“ sagði Agnar. Skólinn að mæta aukinni eftirspurn Hann sagði tvær meginástæður vera fyrir því að Háskólinn í Reykja- vík ákvað að bjóða upp á nám með vinnu. Í fyrsta lagi væri ástæðan sú að aðsókn að skólanum hefði verið mjög mikil á undanförnum árum og skólinn þurft að vísa frá tveimur þriðju hluta þeirra umsókna sem hefðu borist. Með auknu námsfram- boði væri verið að mæta aukinni eft- irspurn og bjóða fleirum tækifæri til náms. Í öðru lagi væri samdráttur á vinnumarkaði og í efnahagslífinu og með aukinni menntun á þeim tímum gæfust möguleikar á að auka sam- keppnishæfni atvinnulífsins. Að sögn Agnars er reiknað með að 15-20 nem- endur verði teknir inn á hverja af þeim fjórum námsleiðum sem boðið verður upp á, eða alls 60-80 manns. Þá sagði hann líklegt að námsleiðun- um yrði fjölgað í framtíðinni þar sem blanda mætti saman viðskiptafræði og upplýsingatækni, auk þess sem bjóða mætti upp á nám í einhvers konar nýsköpun. Háskólinn í Reykjavík mun á næstunni útskrifa í fyrsta sinn úr við- skiptadeildinni einstaklinga með BS- próf og til að auka enn frekar metnað í skólastarfinu stendur til að veita veglega námsstyrki í haust til þeirra nemenda sem skara fram úr í nám- inu. Þá hófst MBA-nám við skólann á síðasta ári í alþjóðlegu samstarfi við 9 háskóla beggja vegna Atlantshafs. MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarndi athugasemd frá Ástráði Haraldssyni hæstaréttarlögmanni: „Með lögum nr. 34/2001 voru sjó- menn sviptir samningsrétti og ákveð- ið að svokallaður gerðardómur skyldi ákveða kjör þeirra. „Gerðardómur- inn“ er að vísu ekki gerðardómur en er nefndur svo í þeim tilgangi að skapa þá tilfinningu meðal almenn- ings að unnt sé að hafa traust á störf- um hans. Á föstudag bárust fréttir af því að Hæstiréttur Íslands hefði nú skipað í „gerðardóminn“. Meðal þeirra sem þar hafa fengið skipun er Garðar Garðarsson hæstaréttarlögmaður. Garðari mun jafnframt ætlað að veita forstöðu störfum „gerðardómsins“. Þessi skipan vekur sérstaka athygli. Staðreyndin er sú að Garðar er einn af aðallögmönnum útgerðarmanna á Íslandi. Fyrir rúmum mánuði flutti hann dómsmál sem lögmaður LÍÚ. Það er alkunna meðal lögmanna að Garðar hefur um árabil haft með höndum umfangsmikil verkefni fyrir útgerðina. Garðar Garðarsson er fullkomlega vanhæfur til að taka sæti í „gerðar- dómi“ sem ætlað er að fjalla á hlut- lausan hátt um kjör fiskimanna. Garðar Garðarsson er hinn besti drengur og alls góðs maklegur. Skip- an hans í hinn svokallaða „gerðar- dóm“ til að ákveða kjör fiskimanna er hins vegar hneyksli. Þessi ákvörðun væri hlægileg ef málið væri ekki svona alvarlegt. Í frægum brandara er sagt að í helvíti séu þýskir lög- reglumenn, belgískir dægurlaga- söngvarar og breskir kokkar. Í helvíti búa Íslendingar til „gerðardómana“.“ Lögmaður LÍÚ í „gerð- ardómi“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.