Morgunblaðið - 03.06.2001, Qupperneq 50
DAGBÓK
50 SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
Víkverji skrifar...
MJÖG athyglisvert var að kynn-ast viðhorfum Ólafs Stefáns-
sonar, besta handknattleiksmanns
Íslands um þessar mundir, í stór-
góðu viðtali Víðis Sigurðssonar við
hann hér í blaðinu síðastliðinn
þriðjudag.
Ólafur kveðst ekki vilja hanga
fastur í viðjum vanans, og svo virðist
sem engin hætta sé á að það gerist.
Algengt er að viðtöl við íþrótta-
menn séu einsleit. Mikið er um sömu
setningarnar; staðlaða frasa sem
fólk hlýtur að vera orðið þreytt á. En
þessu er ekki að heilsa í tilfelli Ólafs.
Hann lítur lífið skemmtilegum aug-
um og þorir að tjá sig eins og hann
langar til.
Ólafur er spurður í viðtalinu hvort
hann ætli sér að vera áfram hjá
Magdeburg þegar samningi hans
lýkur að tveimur árum liðnum – en
líklegt má telja að liðið verði í far-
arbroddi í Þýskalandi og jafnvel
Evrópu næstu árin.
Ólafur svarar: „Nei, ég sé ekki
fyrir mér að ég verði hér áfram eftir
að samningurinn rennur út. Ef við
verðum sigursælir á þessum tíma vil
ég frekar fara því það yrði ekkert
gaman að hanga fastur í viðjum van-
ans. Við Kristín [Þorsteinsdóttir,
unnusta hans] viljum vera frjáls og á
hreyfingu og settum okkur það tak-
mark að kynnast heiminum í stað
þess að fara hefðbundnu leiðina og
festa okkur með húsakaupum og öllu
sem því fylgir. Okkur langar til að
kynnast Spáni eða Frakklandi, jafn-
vel Japan, og það er allt opið í þess-
um efnum. Það yrði gaman að kom-
ast í sterkt félag á Spáni eða annað
tveggja bestu liðanna í Frakklandi.
En það er langt í þetta og margt sem
getur gerst í millitíðinni, og mikil-
vægast að hugsa ekki of langt og
reyna að halda sínu striki.“
Ólafur er að nema ýmis húmanísk
fræði, og þegar hann er spurður
hvernig hann hyggist nýta sér námið
í framtíðinni er svarið:
„Það kemur í ljós og námið nýtist
mér sjálfum fyrst og fremst, kennir
mér að þekkja sálarlífið og verða
betri maður. Sumir líta á það sem
veikleika að hugsa of mikið og ég er
stundum skammaður fyrir að vera of
tilfinninganæmur. En ég tel að mað-
ur eigi að reyna að virkja tilfinning-
arnar í íþróttirnar og annað sem
maður tekur sér fyrir hendur. Það er
ekki rétt að ýta tilfinningunum frá
sér, frekar að reyna að nota þær og
þroska. Tilfinningamenn eru taldir
veikir, en ég segi að slíkt sé aðeins
veikleiki hjá þeim sem kunna ekki að
fara með þær. Áskorunin er að nýta
tilfinningarnar sem styrk. Þetta
nám er góður grunnur fyrir aðra
menntun, auk þess sem mörg störf í
þjóðfélaginu í dag byggjast á skyn-
semi og því að kunna að vinna úr
upplýsingum. Rökhugsunin er mik-
ilvæg en trúin er þó enn meira virði.
Ég er ekki búinn að setja stefnuna á
neitt ákveðið, enda er betra að segja
sem minnst til að festa ekki eitthvað
í sessi. Það má þó kannski segja að
ég gæti hugsanlega þróað þetta inn á
íþróttasálfræði síðar meir. Það virð-
ast allir hafa miklar áhyggjur af því
hvað ég ætli mér að verða, en ég er
mjög rólegur yfir þessu öllu saman.“
Þetta er maður að skapi Víkverja.
Íslendingar hafi ekkert að
óttast. Þetta er rakalaus
þvættingur. Íslenskir ráð-
herrar í fyrri stjórn og nú-
verandi stjórn hafa ítrekað
kannað þessi mál og svörin
eru þau að Rómarsáttmál-
anum verði ekki beytt.
Ég treysti íslenskum
ráðherrum betur en þýsk-
um ráðgjafa. Vill einhver
Íslendingur að landhelgin
verði galopin fyrir erlenda
ryksugutogara? Vill ein-
hver Íslendingur fá flóð-
bylgju úr evrópska vinnu-
markaðnum? Innan um
eru dópistar, dópsalar og
glæpalýður. Vill einhver fá
slíkt til Íslands? Ég held
ekki. Þessir sem tala um
að við verðum að sækja um
aðild að Evrópubandalag-
inu virðast aldrei sjá galla,
bara kosti. Næst er skoð-
anakönnun verður gerð,
þá nefnið kosti og galla.
Í Morgunblaðinu 29. maí
sl. segir „að allur skipafloti
innan ESB fái jafnan að-
gang að auðlind annarra
efnahagsbandalagsþjóða“.
Kær kveðja,
Vilhjálmur K. Sigurðs-
son, Njálsgötu 48A,
Reykjavík.
Landsöfnun
TVÆR systur höfðu sam-
band við Velvakanda og
vildu koma eftirfarandi
hugmynd á framfæri: Að
allir landsmenn tækju þátt
í söfnun til styrktar að-
NÝLEGA var gerð skoð-
anakönnun til að kanna
hug manna til Evrópuað-
ildar, að ESB. Því miður
var þessi skoðanakönnun
ekki marktæk. Til dæmis
voru ekki tekin dæmi um
kosti og galla aðildar og ég
eins og aðrir vitum ekki
um kosti evrunnar. Ef rétt
væri, ætti að spyrja: Ert
þú hlynnt eða hlynntur því
að við göngum í Efnahags-
bandalagið og að Efna-
hagsbandalagslöndin fái
full veiðiréttindi í íslenskri
fiskveiðilögsögu? Eða að
við sækjum um aðild og
fáum hugsanlega styrki úr
sjóðum bandalagsins? Eða
að hinn frjálsi vinnumark-
aður nái til Íslands?
Talið er að innan banda-
lagsins séu 10 milljónir
manna án vinnu. Efna-
hagsbandalagið sendi tog-
ara á fiskimið við Kanada
og þurrkuðu þau upp á
stuttum tíma, þar fæst
ekki bein úr sjó lengur. Ef
við göngum í bandalagið er
okkur skylt að opna land-
helgina. Rómarsáttmálinn
segir, samkvæmt viðtali
við þýskan ráðamann, að
standendum fórnarlamba
flugslyssins í Skerjafirði
þannig að hægt væri að
koma þessum málum fyrir
rannsóknarnefnd.
Ljót sjón
ÞAR sem ég ók heimleiðis
Kársnesbrautina í Kópa-
vogi rak ég augun í ljóta
sjón. Á húsi einu var
hengdur upp dauður hrafn
í sjónvarpsloftnetið. Þvílík
andstyggð. Hér hafa
hrafnar verið á öðrum
hverjum ljósastaur í vetur,
öllum til ánægju. Ég hélt
að ekki mætti drepa
hrafna hér í Kópavogi,
sem og í Reykjavík. Hvar
fékk þessi mannaumingi
hrafnshræið? Vonandi
kann hann að skammast
sín og taka niður hræið.
Ég vona að hann læri að
virða náttúruna og njóta
hennar og hafna fáránlegu
hatri á dýrategund sem á
sér ekki minni tilverurétt
en hann.
Granni.
Nauthóll
í Nauthólsvík
VEITINGAHÚSIÐ Naut-
hóll í Nauthólsvík er lítið
og afskaplega notalegt
kaffihús. Þar er hægt að fá
frábærar kökur og kaffi.
Það er aðeins einn galli á
þessu, húsið er ekki reyk-
laust. Það er afar erfitt að
koma þarna með börn því
reykt er alls staðar. Hve-
nær á að banna reykingar
þarna?
Viðskiptavinur.
Húrra fyrir sjó-
mannadagsráði
Reykjavíkur
ÞAÐ hefur verið fyrir því
hefð að sjávarútvegsráð-
herra haldi ræðu á sjó-
mannadaginn. Nú er svo
komið að nærveru hans er
ekki óskað. Sama má segja
um forseta lýðveldisins
sem halda á ræðu á sjó-
mannadaginn á Ísafirði,
þar sem hann hefur skrif-
að undir þau ólög sem rík-
isstjórn Davíðs Oddssonar
hefur knúið fram í skjóli
meirihluta á Alþingi. Þetta
er rétt, að þjóðin sé með-
vituð um að þessir háu
herrar séu ekki fulltrúar
hins almenna borgara
heldur fulltrúar útgerðar-
manna, atvinnurekenda og
annarra braskara í þessu
þjóðfélagi. Þeir hópar sem
ríkisstjórnin hefur sett á
lög (ólög) í þessu landi
þurfa að muna eftir þeim
þegar þeir þurfa að biðja
þjóðina um umboð til
stjórnarsetu á stjórnar-
heimilinu, að nærveru
þeirra sé ekki óskað þar á
bæ. Þannig þarf fólkið í
landinu sem ekki er í fyr-
irrúmi að taka á málunum
og kvitta fyrir sig.
Vinur sjómanna
og þeirra sem
minna mega sín.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Meingölluð
skoðana-
könnun um
Evrópuaðild
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Brú-
arfoss kemur í dag og
fer á morgun, Arina
Arctica kemur og fer á
morgun, Frank kemur í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Brúarfoss kemur á
morgun til Straums-
víkur, Olchan, Eridanus
og Fornax fara í dag.
Fréttir
Kattholt. Flóamarkaður
í Kattholti, Stangarhyl 2,
opinn þriðjud. og
fimmtud. frá kl. 14–17.
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Hamraborg
20a. Fataúthlutun kl.
17–18, þriðjudaga.
Mannamót
Árskógar 4. Á þriðjudag
kl. 9–16.30 opin handa-
vinnustofan, áhersla á
bútasaum, kl. 9–12 bók-
band og öskjugerð, kl.
9.30 danskennsla, Sig-
valdi, kl. 13–16.30 opin
smíðastofa, trésmíði/
útskurður, kl. 9 hár- og
fótsnyrtistofur opnar.
Aflagrandi 40. Á þriðju-
dag enska kl. 10 og kl.
11. Verslunarferð farið
verður í Hagkaup Skeif-
unni miðvikudaginn 6.
júní. Farið frá Granda-
vegi kl. 10 með viðkomu í
Aflagrand, komið til
baka kl. 12. Kaffi og
meðlætii í boði Hag-
kaupa. Fimmutdaginn
21. júní verður farið í
þjóðleikhúsið að sjá
söngleikinn Syngjandi í
rigningunni,skráning í
afgreiðslu Aflgranda 40
simi 562-2571 miðar ósk-
ast sóttir fyrir 10 júní.
Bólstaðarhlíð 43. Á
þriðjudag kl. 8 hár-
greiðsla, kl. 8.30 böðun,
kl. 9–16 almenn handa-
vinna og fótaaðgerð, kl.
9.30 morgunkaffi/
dagblöð, kl. 11.15 matur,
kl. 14 dans, Sigvaldi, kl.
15 kaffi.
Félagsstarf aldraðra,
Dalbraut 18–20. Á
þriðjudag kl. 9 hár-
greiðsla og böðun, kl. 10
samverustund, kl. 14
félagsvist.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Á þriðju-
dag kl. 8 böðun, kl. 10
hársnyrting, kl. 13 fönd-
ur og handavinna. Kl.
14.45 söngstund í borð-
sal með Jónu Bjarna-
dóttur.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50. Á
þriðjudag bridge kl
13:30 og púttæfingar á
Hrafnistuvelli kl. 14 til
16: Dagsferð á Njálu-
slóðir fimmtudagin 7.
júní nálgist miðana sem
fyrst. Þriggja daga ferð
til Hornafjarðar 9. júlí
og Orlofið að Hótel
Reykholti í Borgarfirði
26.-31. ágúst n.k. Skrán-
ing hafin, allar upplýs-
ingar í Hraunseli, sími
555-0142.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin virka daga frá kl.
10–13. Matur í hádeginu.
Ath: farið verður í dags-
ferð 10. júní austur í
Mýrdal, farið verður
m.a. niður að Görðum í
Reynishverfi, upp í
Heiðardal, að Skógum
og Vík. Leiðsögn: Ólöf
Þórarinsdóttir. Skrán-
ing hafin. Dagsferð 13.
júní. Nesjavellir-
Grafningur-Eyrarbakki.
Húsið – Sjóminjasafnið á
Eyrarbakka skoðað.
Leiðsögn: Tómas Ein-
arsson og Pálína Jóns-
dóttir. Skráning hafin.
19.-22. júní Trékyllisvík
4 dagar, gist að Val-
geirsstöðum í Norð-
urfirði, svefnpokapláss.
Ekið norður strandir.
Farið í gönguferðir og
ekið um sveitina. Ekið
heimleiðis um Trölla-
tunguheiði eða Þorska-
fjarðarheiði. Skráning
hafin. Leiðsögn Tómas
Einarsson. Þeir sem
eiga pantað í hringferð
um Norðausturland 8.-
15. ágúst vinsamlegast
komið og greiðið inn á
ferðina sem fyrst.
Athugið að allt fé-
lagsstarf fellur niður
sunnudag og mánudag
vegna hvítasunnu-
helgarinnar.
Silfurlínan er opin á
mánudögum og mið-
vikudögum frá kl. 10 til
12 fh. í síma 588-2111.
Upplýsingar á skrifstofu
FEB kl. 10 til 16 í síma
588-2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Á þriðjudag
kl. 9–16.30 opin vinnu-
stofa, tréskurður og
fleira, kl. 9–17
hárgreiðsla, kl. 10
leikfimi, kl. 12.45 Bón-
usferð.
Gerðuberg, félagsstarf,
þriðjudaginn 5. júní, kl.
9-16.30 vinnustofur opn-
ar, kl. 13 boccia, veit-
ingar í kaffihúsi Gerðu-
bergs. Sumardagskráin
er komin. Miðvikudag-
inn 6. júní bankaþjón-
usta kl. 13.30- 14.30.
Veitingar í kaffihúsi
Gerðubergs. Allar upp-
lýsingar um starfsemina
á staðnum og í s.
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Á þriðjudag kl. 9.30
handavinnustofa opin,
leiðbeinandi á staðnum
frá kl. 10–17, kl. 14
boccia, þriðjudags-
ganga fer frá Gjábakka
kl. 14.
Gullsmári, Gullsmára
13. Á þriðjudag kl. 9.15
postulínsmálun, kl. 13–
16 handavinnustofan op-
in, leiðbeinandi á staðn-
um.
Hvassaleiti 56–58. Á
þriðjudag kl. 9 böðun,
fótaaðgerðir og leikfimi,
kl. 9.45 bankaþjónusta,
kl. 13 handavinna og
hárgreiðsla.
Hraunbær 105. Á
þriðjudag kl. 9–16.30
postulínsmálun, kl. 9–17
fótaaðgerðir, kl. 9–12
glerskurður, kl. 9.45
boccia, kl. 11 leikfimi, kl.
12.15 verslunarferð í
Bónus, kl. 13–16.30
myndlist, kl. 13–17 hár-
greiðsla.
Norðurbrún 1. Á þriðju-
dag kl. 9–17 hárgreiðsla,
kl. 10–11 ganga, kl. 9–
16.45 opin handa-
vinnustofan, tréskurður.
Vesturgata 7. Á þriðju-
dag kl. 9 fótaaðgerðir og
hárgreiðsla, dagblöð og
kaffi, kl. 9.15–15.30 al-
menn handavinna, kl. 11
leikfimi, kl. 11.45 matur,
kl. 13 frjáls spila-
mennska, kl. 14.30 kaffi.
Dagsferð verður farin
fimmtudaginn 7. júní.
Lagt af stað kl. 10. Við-
koma í Eden í Hvera-
gerði. Farið verður á
Njáluslóðir, Njálusafn
skoðað með leiðsögn
Arthurs Björgvins
Bollasonar. Ekið um
Stokkseyri og Eyr-
arbakka, Eyrar-
bakkakirkja skoðuð. Sr.
Úlfar Guðmundsson tek-
ur á móti hópnum.
Kvöldverður og dans á
Hótel Örk. Sundlaug og
heitir pottar fyrir þá
sem vilja. Leið-
sögumaður Nanna
Kaaber. Upplýsingar og
skráning í síma 562-
7077. Ath takmarkaður
miðafjöldi.
Vitatorg. Á þriðjudag
kl. 9 smiðjan og hár-
greiðsla, kl. 9.30 morg-
unstund kl. 10 fótaað-
gerðir og almenn
leikfimi, kl. 11 boccia, kl.
11.45 matur, kl. 14.30
kaffi. Félagsvist og al-
menn handavinna falla
niður vegna sum-
arferðar að Sólheimum í
Grímsnesi.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Spilað þriðju-
dagskvöld kvöld kl. 19.
Allir eldri borgarar vel-
komnir.
Félag ábyrgra feðra
heldur fund í Shell-
húsinu, Skerjafirði, á
miðvikudögum kl. 20,
svarað í síma 552 6644 á
fundartíma.
Eineltissamtökin halda
fundi að Túngötu 7, á
þriðjudögum kl. 20.
Kvenfélag Óháða safn-
aðarins. Hin árlega vor-
ferð sumarsins verður
miðvikudaginn 6. júní
lagt af stað frá Kirkju
Óháða safnaðarins kl. 20.
Fjölmennið og takið með
ykkur gesti. Skráning
hjá Ester s. 557-7409,
Halldóra s. 566-6549 eða
Ólöfu s. 588-7778.
Ellimálaráð Reykjavík-
urprófastdæma, Breið-
holtskirkju við Þang-
bakka. Skálholtsskóli,
Ellimálanefnd Þjóðkirkj-
unnar og Ellimálaráð
Reykjavíkurprófasts-
dæma efna til sumar-
dvalar fyrir eldri borgara
í Skálholti. Boðið er til
fimm daga dvalar í senn
og raðast þeir þannig: 25.
til 29. júní, 2. til 6. júlí og
9. til 13. júlí. Allar nánari
upplýsingar eru veittar á
skrifstofu Ellimálaráðs
Reykjavíkurprófasts-
dæma f.h. virka daga í
síma 557-1666.
Í dag er sunnudagur 3. júní,
154. dagur ársins 2001. Hvíta-
sunnudagur. Orð dagsins: Ég
treysti á miskunn þína; hjarta mitt
fagnar yfir hjálp þinni. Ég vil syngja
fyrir Drottni, því að hann hefir
gjört vel til mín.
(Sálm. 13, 6.)
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 þreklítill, 8 hluti lands,
9 stækja, 10 veiðarfæri,
11 skyldmennið, 13 pen-
ingar, 15 lífs, 18 smáald-
an, 21 of líti, 22 hugaða,
23 ræfils, 24 hjálpar.
LÓÐRÉTT:
2 þor, 3 þreyttur, 4 kaka,
5 ber, 6 fjall, 7 skordýr,
12 þegar, 14 ótta, 15 í
fjósi, 16 tíðari, 17 fugls,
18 ilmur, 19 vegg, 20
þefa.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 flaga, 4 sekks, 7 lygar, 8 ósmár, 9 sær, 11 nára,
13 eiri, 14 nakin, 15 forn, 17 naum, 20 arf, 22 orðan, 23
eimur, 24 tunna, 25 tæran.
Lóðrétt: 1 falin, 2 argar, 3 aurs, 4 stór, 5 kamri, 6 syrgi,
10 æskir, 12 ann, 13 enn, 15 frost, 16 ræðin, 18 armur, 19
merin, 20 ansa, 21 feit.