Morgunblaðið - 14.07.2001, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isBjörgvin hóf atvinnumanns-
ferilinn í Svíþjóð/B1
KA skaust á toppinn með
góðum sigri/B3
4 SÍÐUR16 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á LAUGARDÖGUM L a u g a r d a g u r14.
j ú l í ˜ 2 0 0 1
ERLEND lán Reykjavíkurborgar jukust um
15,65% frá áramótum, eða um tæpa 2,5 milljarða
króna, samkvæmt upplýsingum frá fjármáladeild
borgarinnar sem teknar voru saman að beiðni
Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins.
Erlendar skuldir Reykjavíkurborgar námu
15,7 milljörðum króna um síðustu áramót en
staðan í lok júní sl. var 18,2 milljarðar króna.
Þar af voru 10,5 milljarðar vegna Orkuveitu
Reykjavíkur, 6,5 milljarðar vegna borgarsjóðs,
erlendar skuldir Reykjavíkurhafnar námu 680
milljónum króna og 450 milljónir hjá Bílastæða-
sjóði.
Karl Einarsson, viðskiptafræðingur á fjár-
máladeild Reykjavíkurborgar, sagði við Morg-
unblaðið að í samantektinni væri ekki gert ráð
fyrir afborgunum af lánunum eða nýjum lántök-
um ef einhverjar væru. Hann sagði lækkun ís-
lensku krónunnar gagnvart erlendri mynt eðli-
lega hafa haft mest um þessa þróun erlendra
lána að segja. Sökum þess hve lánin væru tekin
til langs tíma gæti hækkun fjölmyntasafnsins
gengið til baka ef krónan styrktist og eins gæti
það hækkað enn frekar ef gengi krónunnar
lækkaði meira en orðið væri.
Karl benti á að vextir af þessum lánum væru
talsvert lægri en byðust á innlendum fjármála-
markaði, eða 3,82% að jafnaði, en á móti kæmi
gengisáhættan af töku erlendra lána, sem væri
óhagstæð um þessar mundir.
Erlendu lánin eru að mestu leyti í evrum, eða
35%, en næstmesta vægið í safninu hefur dollar,
eða 27%. Vægi annarra gjaldmiðla er 13% í
svissneskum frönkum, 10% í Norðurlandamynt-
um, 8% í japönsku jeni og 7% í pundum.
Erlend lán Reykjavíkurborgar
Aukning um 2,5 millj-
arða frá áramótum
SJÓMANNI var bjargað eftir að eld-
ur kom upp í bátnum MB Gógó SH
67, en hann sökk þrjár sjómílur vests-
uðvestur af Öndverðarnesi í fyrrinótt.
Vigfús Vigfússon var einn um borð í
bátnum og komst hann í björgunar-
bát. Honum var skömmu síðar bjarg-
að um borð í Grindvíking GK.
Samkvæmt upplýsingum Land-
helgisgæslu barst tilkynning laust
fyrir klukkan hálf fimm aðfaranótt
föstudags um mikinn reyk skammt
vestsuðvestur af Öndverðarnesi og
kannaði Tilkynningaskyldan strax
upplýsingar um báta á svæðinu.
Stuttu síðar tilkynntu flugvélar í
aðflugi að þær heyrðu í neyðarsendi.
Varðskip og þyrla voru kölluð til leit-
ar og einnig fjórir bátar sem á svæð-
inu voru, Valdimar SH, Bára SH, Sig-
urbjörg Þorsteins BA og Grindvík-
ingur GK.
Laust fyrir klukkan fimm tilkynnti
Grindvíkingur að sæist til björgunar-
báts og skömmu síðar var neyðarflug-
eldi skotið upp. Tuttugu mínútum síð-
ar höfðu skipverjar á Grindvíkingi
bjargað Vigfúsi, heilum á húfi.
Rúnar Björgvinsson, skipstjóri á
Grindvíkingi, segir þá hafa verið þrjár
sjómílur suðvestan við Öndverðarnes
um klukkan fjögur um nóttina þegar
þeir sáu reyk og stuttu síðar neyð-
arblys. „Við settum þá allt á fullt og
vorum komnir að honum um klukkan
fimm. Það var blíðuveður, norðaustan
gola, sléttur sjór og gott að eiga við
þetta. Við tókum gúmbátinn upp í en
það eina sem eftir var af bátnum var
botninn og sökk hann rétt á eftir.“
Morgunblaðið/Alfons
Vigfús Vigfússon eftir björg-
unina í gær með dóttur sína,
Súsönnu Sól, í fanginu.
Mannbjörg
út af Önd-
verðarnesi
!
"# $$ $
% &
'
$
() *
FÓLK brá á leik við kínverska
sendiráðið við Víðimel í Reykja-
vík í gær og fagnaði því að Al-
þjóðaólympíunefndin valdi Pek-
ing, höfuðborg Kína, til að halda
ólympíuleikana árið 2008.
Kínverjar fengu í gær tilskilinn
meirihluta atkvæða í annarri um-
ferð leynilegrar atkvæðagreiðslu
sem haldin var meðal þingfull-
trúa á þingi Ólympíunefnd-
arinnar í Moskvu.
Í tilefni af því voru mikil há-
tíðahöld í Kína og náði gleðin til
Kínverja víða um heim eins og
sjá mátti við sendiráðið.
Að sögn Jianzhong Yang,
blaðafulltrúa sendiráðsins, bárust
sendiráðinu margar hamingju-
óskir og Kínverjar sem búsettir
eru hér á landi óskuðu eftir að
fagna tíðindunum í sendiráðinu.
Morgunblaðið/Jim Smart
Fagnað við
kínverska
sendiráðið
SAMNINGAR tókust í býtið í gær í
kjaradeilu Lögreglufélags Reykja-
víkur og ríkisins. Nýr samningur gild-
ir fyrir alla lögreglumenn í landinu.
Samið var um uppstokkun launa-
flokkakerfisins, álagsgreiðslur og að
lögreglumenn fari á eftirlaun við 65
ára aldur í stað 70.
Samningar höfðu verið lausir frá í
fyrrahaust en nýi samningurinn gildir
fyrir alla lögreglumenn landsins, sem
eru kringum 800.
Óskar Bjartmarz, formaður Lög-
reglufélagsins, kvaðst vera sæmilega
sáttur við samninginn þegar Morgun-
blaðið hafði samband við hann í gær.
„Þessi samningur er í öllum meginat-
riðum í samræmi við það sem hefur
verið að gerast á vinnumarkaðnum,
en auk þess förum við inn í nýtt launa-
kerfi, en það er nokkuð sem flestir
aðrir opinberir starfsmenn gerðu í
samningum fyrir nokkrum árum,“
sagði hann.
Óskar sagði mest um vert við hinn
nýja samning að náðst hefði í gegn
krafan um eftirlaun við 65 ára aldur.
Sagði hann það mikið og jákvætt
skref fyrir lögreglumenn í landinu.
Með samningum hins opinbera við
lögreglumenn er lokið 29 af þeim 30
samningum sem ríkið gerir við félög
opinberra starfsmanna. Enn er eftir
að semja við sjúkraliða, en viðræður
þeirra við ríkið hafa staðið lengi yfir
og næsti fundur er ekki boðaður fyrr
en eftir hálfan mánuð.
Ögmundur Jónasson, formaður
Bandalags starfsmanna ríkis og bæja,
segist ekki skilja tregðu ríkisvaldsins
í viðræðunum við sjúkraliða. Hann
bendir á að þegar hafi náðst samn-
ingar við aðrar heilbrigðisstéttir og
ekki þýði annað en að fylgja því for-
dæmi sem gefið hafi verið. „Sjúkra-
liðastarfið er mjög erfitt starf en um
leið ein undirstaðan í velferðarþjón-
ustunni. Samningar hafa nú verið
lausir mánuðum saman og allir vita
hversu erfitt er að manna þessi störf,
þótt slíkar tafir á kjarasamningagerð
bætist ekki þar ofan á,“ sagði hann.
Að sögn Ögmundar tók þessi samn-
ingalota opinberra starfsmanna og
ríkisvaldsins ríflega sex mánuði og
hann kallar eftir breytingu á því fyr-
irkomulagi sem gilt hefur. „Þetta
kerfi er að mínu mati allt of svifaseint.
Í upphafi eru gerðar viðræðuáætlanir
sem í engu standast og við þurfum að
setjast niður og stokka þetta algjör-
lega upp fyrir næstu samningagerð,“
sagði formaður BSRB.
Lögreglumenn fara 5
árum fyrr á eftirlaun
Í EYSTRI-Rangá eru nú miklar
laxagöngur að sögn Einars Lúðvíks-
sonar, framkvæmdastjóra Veiðifé-
lags árinnar. „Veiðin var mjög góð í
fyrra en byrjunin er betri núna
þannig að það virðist stefna í met,“
sagði hann. Einar sagði að á þriðju-
dag hafi verið búið að veiða um 240
laxa en síðan hafi bæst við ríflega
200 laxar á þremur dögum.
Ástæður þess hvað veiðin er góð
telur Einar einna helst vera góðan
árangur við þróun sleppitækni
gönguseiða í ána auk þess sem að-
stæður í hafinu hafi verið góðar, en
Einar er jafnframt umsjónarmaður
seiðasleppinga í Eystri-Rangá. „Ef
lífríkið er gott þá sleppa seiðin frek-
ar á leið sinni til sjávar. Það verður
gaman að sjá hvernig árið kemur út,
en byrjunin lofar mjög góðu,“ sagði
Einar.
Stefnir í met-
veiði í Eystri-
Rangá