Morgunblaðið - 14.07.2001, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Á NÆSTA ári verða liðin 20 ár síðan
formlegt samstarf Háskóla Íslands og
Minnesotaháskóla í Bandaríkjunum
hófst með árlegum nemendaskiptum,
en í tilefni tímamótanna verða tveir
styrkir, sem felast í niðurfellingu
skólagjalda og uppihaldi, í boði fyrir
Íslendinga við Minnesotaháskóla
skólaárið 2002–2003.
Um miðjan apríl á næsta ári verður
sérstök athöfn í Minnesotaháskóla
þar sem haldið verður upp á 20 ára
formleg samskipti háskólanna, en ár-
lega hafa verið nemendaskipti og einn
styrkur í boði við hvorn skóla. Páll
Skúlason háskólarektor verður heið-
ursgestur Marks Yudofs, forseta
Minnesotaháskóla, og ætla fyrrver-
andi íslenskir nemendur við skólann
að fjölmenna vestur vegna athafnar-
innar.
Lilja Stefánsdóttir, aðstoðarhjúkr-
unarforstjóri Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss, er nýkjörinn formaður
Hollvinafélags Minnesotaháskóla á
Íslandi en Helga Jónsdóttir, dósent í
hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands,
er formaður úthlutunarnefndarinnar
sem velur íslensku styrkþegana. Aðr-
ir í stjórn Hollvinafélagsins eru Fjóla
Jónsdóttir, Guðbjörg R. Guðmunds-
dóttir og Sigurjón Árnason.
Tveir háskólastyrkir
í tilefni tímamóta
Helga Jónsdóttir og
Lilja Stefánsdóttir.
TÖLUVERT hefur rignt á Nýja Ís-
landi í Manitoba í Kanada í sumar
en þegar fyrstu hátíðarhöldin hóf-
ust í Riverton á dögunum, í tilefni
þess að um þessar mundir eru 125
ár frá því Íslendingar settust að í Ri-
verton, stytti upp og sólin skein
skært á íbúa og gesti.
Vegna tímamótanna verður ým-
islegt á döfinni í Riverton á árinu,
að sögn Claude Thorsteinsons, en
hátíðarhöldin hófust með óvenju-
legum hætti á þjóðhátíðardegi Kan-
ada, 1. júlí, þegar bátum af ýmsum
stærðum og gerðum var siglt niður
Íslendingafljót. Þarna mátti m.a. sjá
skemmtibáta, stríðsbáta indjána og
fiskibáta en flestir voru skreyttir í
tilefni dagsins.
Margret Lovisa Wishnowski, fjall-
konan í ár, er einmitt frá Riverton,
og tók hún þátt í siglingunni. Mar-
gret hefur unnið ötullega að vernd
íslenskrar menningar og arfleifðar
á svæðinu og heiðruðu fulltrúar
Kanadastjórnar, Manitobastjórnar
og bæjarstjórna í fylkinu hana og
aðra íbúa Riverton með nærveru
sinni. Auk þess voru mættir fulltrú-
ar frá Íslandi og ýmsum deildum
Þjóðræknisfélagsins í Manitoba.
Fjölbreytt dagskrá var í Riverton
en í lokin gátu gestir gætt sér á ís-
lensku góðgæti áður en þeir fylgd-
ust með einni glæsilegustu flug-
eldasýningu sem um getur á Nýja
Íslandi. Skemmtunin tókst vel og
allir sem vettlingi gátu valdið í Riv-
erton, jafnt íbúar, fyrirtæki, nefndir
sem ráð, lögðu sitt af mörkum til að
svo gæti orðið.
125 ár frá landnámi í Riverton
Sólin kom með
hátíðarhöldunum
Ljósmynd/Claude Thorsteinson
Margret Lovisa Wishnowski fjallkona siglir niður Íslendingafljót.
FYRSTA „Íslenska opna“ golfmótið
fer fram í tengslum við Íslendinga-
dagshátíðina á Gimli í ár og verður
keppt á Sandy Hook-vellinum, sunn-
an við Gimli, föstudaginn 3. ágúst.
Stjórn og starfsfólk vikublaðsins
Lögbergs-Heimskringlu, sem gefið
er út í Winnipeg, gengst fyrir keppn-
inni og rennur allur hagnaður til
blaðsins, en hugmyndin er sótt í sér-
stakan fjölskyldugolfdag sem Connie
Magnusson-Shimnowski og Dan
Johnson stóðu fyrir í fyrra til styrktar
Menningarmiðstöðinni á Gimli sem
var formlega opnuð í haust sem leið.
Marno Olafson, formaður móts-
stjórnar, segir að föstudagurinn hafi
verið valinn með það í huga að gestir á
Íslendingadagshátíðinni geti verið
með en stefnt er að því að 36 fjögurra
manna lið keppi eða 144 manns. Á
fjölskyldudeginum í fyrra voru 12
fjögurra manna lið eða 48 keppendur.
Að lokinni keppni verður dansleik-
ur sem hefst með borðhaldi í Menn-
ingarmiðstöðinni á Gimli.
Þátttökugjald fyrir fjögurra manna
lið er 125 kanadískir dollarar á mann,
um 8.500 kr., en innifalið í gjaldinu er
18 holu golf, hádegisverður, kvöld-
verður, verðlaun og dansleikur.
Töluverðar breytingar hafa átt sér
stað á útliti og efnisvali Lögbergs-
Heimskringlu síðan Lillian Vilborg
tók við ritstjórninni fyrr á árinu. Hún
gat þess á ársþingi Þjóðræknisfélaga
í Vesturheimi í vor að markmiðið væri
að fjölga áskrifendum blaðsins úr um
1.600 í 5.000 en til að svo gæti orðið
yrði að bæta og breyta blaðinu. Með
því að fara inn á slóðina logberg.com
er m.a. hægt að gerast áskrifandi.
Golfmót í Sandy Hook
ERLENT
BANDARÍSKA alríkislögreglan
hefur útvíkkað rannsókn sína á
hvarfi Chöndru Levy, fyrrverandi
lærlings, til þess að fá úr því skorið
hvort þingmaðurinn Gary Condit
hafi gerst sekur um að hindra fram-
gang réttvísinnar með því að reyna
að hefta rannsókn lögreglunnar á
hvarfi Levys.
Lögregla bíður nú eftir niðurstöð-
um úr rannsóknum á hlutum sem
teknir voru úr íbúð þingmannsins
þegar húsleit var gerð hjá honum,
og beinist rannsóknin að því hvort
blóð sé að finna á umræddum hlut-
um. Þá hefur lögreglan hafið leit í
yfirgefnum byggingum í Washing-
ton.
Condit viðurkenndi fyrir rúmri
viku að hafa átti í ástarsambandi við
Chöndru Levy, 24 ára lærling sem
ekkert hefur spurst til síðan 30.
apríl sl. Það var við þriðju yfir-
heyrslu hjá lögreglunni sem Condit
viðurkenndi loksins sambandið, og
staðfesti þar með fullyrðingar
frænku Levys, sem sagði þing-
manninn hafa átt vingott við lær-
linginn.
Terrance Gainer, aðstoðaryfirlög-
regluþjónn í Washington, sagði um
leitina í yfirgefnum byggingum að
kanna yrði „þann möguleika að
[Levy] gæti verið látin og við erum
að leita að líkamsleifum hennar.“
Því væri verið að leita í tilteknum
hverfum í höfuðborginni.
Sagði Gainer að við rannsóknina
á hvarfi Levys ynni lögreglan út frá
fjórum möguleikum. Í fyrsta lagi að
hún hafi orðið fórnarlamb misind-
ismanna, í öðru lagi að hún hafi fyr-
irfarið sér, í þriðja lagi að hún hafi
vísvitandi stungið af, og í fjórða lagi
að hún sé á ferðinni án þess að vita
hver hún er.
Lögreglan hefur ítrekað að Cond-
til að skera úr um hvort um blóð sé
að ræða.
Fjölmiðlar í Bandaríkjunum veita
málinu gríðarlega athygli, og hvert
sem Condit fer er hann hundeltur af
fjölmiðlafólki. Einnig sitja fjöl-
miðlar um heimili foreldra Levys í
Kaliforníu. Hún var lærlingur í
Fangelsismálastofnun Bandaríkj-
anna í Washington, og síðast sást til
hennar þegar hún sagði upp korti
sínu í líkamsræktarstöð í borginni
30. apríl.
Daginn áður hafði hún hringt í
foreldra sína og sagst vera á leiðinni
heim. Þegar þeir höfðu ekki heyrt
frá henni í sex daga var samband
haft við lögreglu. Í íbúð Levys í
Washington fannst hálffull ferða-
taska, handtaska, farsími, krítar-
kort og peningar.
Fréttaskýrandi blaðsins USA
Today segir að stjórnmálaferill
Condits hafi „farið svo hratt úr
böndunum að það kom jafnvel út-
jöskuðustu hneykslisáhugamönnum
í Washington á óvart.“
Þá segir fréttaskýrandinn enn-
fremur að þrátt fyrir ítrekaðan
samanburð við hneykslismál sem
áður hafi komið upp í bandarísku
stjórnmálalífi gæti hvarf Levys falið
í sér mun alvarlegra og meira mál
en opinbert hneyksli um samband
kvænts þingmanns og lærlings hjá
hinu opinbera.
Lögreglurannsókn
á atferli Condits
Reuters
Lögreglumenn í Washington leita í yfirgefnum húsum í Shaw-hverfinu í norðurhluta borgarinnar.
Enn leitað að fyrrverandi lærlingi í Washington
Washington. AP.
it þingmaður liggi ekki undir grun.
Gainer sagði að ekki hefði enn náðst
samkomulag við lögfræðing Condits
um skilyrði þess að þingmaðurinn
gangist undir lygamælingu.
Ennfremur er lögreglan að kanna
ásakanir 39 ára flugfreyju, Anne
Marie Smith, í garð Condits. Heldur
Smith því fram að Condit hafi reynt
að fá sig til að undirrita yfirlýsingu
um að þau hafi ekki átt í tíu mánaða
ástarsambandi sem þau hafi í raun
átt. Segir Smith ennfremur að
Condit hafi sagt sér að hún þyrfti
ekki að sýna lögreglumönnum, sem
yfirheyrðu hana, samstarfsvilja.
Grunur um
blóðbletti
Condit er 53 ára og kvæntur.
Hann hefur neitað að hafa nokk-
urntíma beðið nokkurn mann að
ljúga fyrir sig. Hann hefur ekkert
sagt um meint samband við Smith,
en yfirvöld eru nú m.a. að athuga
hvort Smith hafi nokkra vitneskju
um Levy.
Lögreglan fjarlægði ýmsa hluti
úr íbúð þingmannsins og voru þeir
sendir á rannsóknarstofu eftir
frumrannsókn á því, hvort á þeim
væru blóðblettir. Ítrekar lögreglan
að það sem frumrannsóknin hafi
leitt í ljós geti reynst vera ýmis líf-
ræn efni og nauðsynlegt sé að gera
frekari athugun á rannsóknarstofu
AP
Candit kemur út af heimili sínu í Washington á fimmtudaginn, og er
samstundis umkringdur fréttamönnum.
Þótt bandaríski þing-
maðurinn Gary Condit
sé ekki grunaður um
aðild að hvarfi Chöndru
Levy er verið að rann-
saka hvort blettir
sem fundust í íbúð
hans séu blóðblettir.