Morgunblaðið - 14.07.2001, Blaðsíða 41
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2001 41
BRÉF TIL BLAÐSINS
ÞAÐ er aldrei neitt svo slæmt að
ekki megi hafa lúmskt gaman af
hlutunum. Þann 1. júlí hlýtur að
vera merkisdagur í lífi nýskipaðs
trygginga- og heilbrigðismálaráð-
herra. Með annarri hendinni gefur
hann öllum hjónum sem trygginga-
málaráðherra heilar 1128 krónur í
auknar bætur hvoru fyrir sig (eftir
skatta). En um leið eykur hann
sem heilbrigðisráðherra og þá
væntanlega með hinni hendinni út-
gjöld aldraðra með aukinni kostn-
aðarþáttöku við röntgenmyndatök-
ur og viðtöl við sérfræðinga í
læknastétt um 20%. Það verður
aldrei deilt um það að hverjum
manni er nauðsynlegt að hafa tvær
hendur, en hjá venjulegu fólki
vinna þessar tvær hendur saman.
Það er mjög athyglivert að talað
er um að „sparnaður“ ríkiskassans
sé talin vera 8oo milljónir með
þessum ráðstöfunum. Á venjulegu
íslensku máli væri hinsvegar sagt
að með þessari ákvörðun ráðherra
sé verið að auka kostnað sjúklinga
um 800 milljónir. Það virðist ekki
vera nóg að vera hagmæltur til
þess að koma öllum skilaboðum til
skila á íslensku.
Ekki vantaði það að útlista að
þessi gjöf til aldraðra kostaði rík-
issjóð um 1020 milljónir á ári. En
hafið þið góðir lesendur séð það á
prenti, hvað það kostaði ríkissjóð
þegar kjaranefnd hækkaði laun
embættismanna og þeirra líka um
7%? Finnst ykkur blaðamönnum
það ef til vill ekki það vera nógu
fréttnæmt? Það kemur mörgum
betur að láta sumt kyrrt ligga.
En ég get ekki gert að því að
láta fylgja hérmeð lítið dæmi, þó
að Jóni komi það ekki beint við. En
það er dæmigert um meðferð rík-
isins á öldruðum. Eitt lítið öku-
skírteini fyrir þá sem eru 74 ára
kostar 1300 krónur fyrir læknis-
vottorð og 1000 krónur til lögregl-
unnar, og það er til tveggja ára.
Eftir það verður þú að borga það
sama fyrir eitt ár! Þarna fer meira
en tveggja mánaða hækkun þín,
Jón, bara til þess að halda ökurétt-
indum. Ertu sáttur við það? Ungt
fólk greiðir eina upphæð fyrir skír-
teini sem gildir til sjötugs, og það
má geta þess í leiðinni að gaml-
ingjar valda fæstum umferðarslys-
um. Vilt þú breyta einhverju?
Það verður sérstaklega
skemmtilegt fyrir stjórnarflokkana
í dag að vita það að 15% af öllum
kjósendum eru 67 ára og eldri.
Þeir gætu haft 9 þingmenn ef þeir
stæðu saman.
Við hljótum að vona að flokk-
arnir taki mið af því í sínum fram-
boðsmálum og við vitum að gaml-
ingjar hafa staðið sig vel á þingi
eins og dæmin sanna. En til þess
að svo verði þurfa allir 60 ára og
eldri að gerast félagar í félagi eldri
borgara í sinni heimabyggð og þar-
með standa vörð um okkar rétt-
indi.
PÉTUR GUÐMUNDSSON,
Skeiðarvogi 41, Reykjavík.
Sumir hlæja hátt
en aðrir ekki
Frá Pétri Guðmundssyni:
Að trúa á eilífan anda
og allt, sem er fagurt og gott,
það leysir oft lífsins vanda
og læknar allt háð og spott.
Að láta sér aldrei leiðast,
þó lífsbrautin virðist hál
og hvorki raupa né reiðast,
er reyndar hið besta mál.
Að hrærast í glaumi og gleði
og glapstigum lenda á,
þú leggur allt lífið að veði
og lætur það renna hjá.
Að fikta við fíkniefni
og fólskuleg myrkraverk,
ég allskonar ógæfu nefni,
því áhrifin reynast sterk.
Þó lífið sé enginn leikur,
við lærum að nýta það vel –
og verði svo einhver veikur,
skal vanda gott hugarþel.
Að elska með opnum huga
og eiga við konur mök,
það aldrei mun yfirbuga
hin eilífu sálartök.
Að úthýsa öðrum þjóðum,
sem eiga sér litla von
og vantreysta guði góðum,
er gert við hans einkason.
Að láta gott af sér leiða
á lífsins torsóttu braut,
það skapar götuna greiða
og gæfa þér fellur í skaut!
SIGURGEIR ÞORVALDSSON,
Keflavík.
Lífsbrautin
Frá Sigurgeiri Þorvaldssyni:
FULLTRÚAR Strætó bs. og Heklu
hf., sem flytur inn bíla frá Scania,
undirrituðu í gær samning fyr-
irtækjanna um kaup Strætó á 17
fullbúnum strætisvögnum frá
Scania. Kaupverðið er um 300
milljónir króna sem þýðir um 17,6
milljónir króna á vagn.
Fyrstu vagnarnir verða afhentir
í janúar á næsta ári og nær af-
hendingartíminn yfir þrjú ár.
Nýju vagnarnir eru af gerðinni
Scania Omnilink og eru hannaðir
með tilliti til þess að þægilegt sé
að stíga inn í þá beint af gang-
stétt. Er það framhald svonefndra
lággólfsvagna sem Scania hefur
þróað.
Skúli Bjarnason, stjórn-
arformaður Strætó, sagði við und-
irritunina að samningurinn væri
fyrirtækinu hagstæður og miðuðu
kaupin að því að bæta þjónustu
fyrirtækisins með því að yngja
upp vagnaflotann.
Á vegum Strætó eru nærri 100
vagnar í akstri á leiðakerfinu og
voru nærri 80 í eigu SVR. Þegar
allir Scania-vagnarnir verða
komnir í gagnið telja þeir alls um
50 í flota Strætó en SVR hefur síð-
ustu árin keypt nokkra Scania-
vagna og átti fyrir nokkra frá ár-
unum 1986 til 1989. Vagnarnir eru
búnir 9 lítra og 230 hestafla vél,
eru sjálfskiptir og á loftfjöðrum.
Morgunblaðið/Ásdís
Skúli Bjarnason, stjórnarformaður Strætó , og Sigfús Sigfússon, forstjóri Heklu, undirrituðu samninginn.
Strætó kaupir 17
vagna frá Scania
HINN 5. júlí 2001 barst Skipu-
lagsstofnun tillaga Náttúrustofu
Vestfjarða, f.h. Bolungarvíkur-
kaupstaðar, að matsáætlun
vegna mats á umhverfisáhrifum
snjóflóðavarna í Bolungarvík.
Allir geta kynnt sér tillöguna og
lagt fram athugasemdir. Hægt
er að óska eftir eintökum af til-
lögunni hjá Skipulagsstofnun,
Laugavegi 166 í Reykjavík.
Einnig er hægt að nálgast til-
lögu að matsáætlun á heimasíðu
Skipulagsstofnunar: http://
www.skipulag.is, segir í frétt frá
Skipulagsstofnun.
„Athugasemdir skulu vera
skriflegar og berast eigi síðar en
18. júlí 2001 til Skipulagsstofn-
unar, Laugavegi 166, 150
Reykjavík. Þar fást enn fremur
nánari upplýsingar um mat á
umhverfisáhrifum.
Skipulagsstofnun hefur leitað
umsagnar sveitarstjórnar Bol-
ungarvíkur, Byggðastofnunar,
Náttúruverndar ríkisins, Veður-
stofu Íslands og Þjóðminjasafns
Íslands. Stefnt er að því að
ákvörðun Skipulagsstofnunar
um tillögu framkvæmdaraðila
að matsáætlun muni liggja fyrir
3. ágúst 2001,“ segir þar enn
fremur.
Snjóflóða-
varnir
í Bolung-
arvík
VAKA, félag lýðræðissinnaðra stúd-
enta, samþykkti eftirfarandi ályktun
í kjölfar gjaldskrárhækkana hjá leik-
skólum Reykjavíkurborgar, þar seg-
ir meðal annars:
„Leikskólaráð Reykjavíkurborgar
hefur nú samþykkt gjaldskrárhækk-
anir hjá leikskólum borgarinnar. Til-
lögur Reykjavíkurborgar gerðu ráð
fyrir að hækka gjaldskrá leikskóla
borgarinnar um 10 til 13%.13%
hækkun hjá hjónum eða sambúðar-
fólki hækkar leikskólagjald úr 22.700
krónum í 25.700 krónur á mánuði sé
miðað við 8 tíma vistun. Hjá ein-
stæðu foreldri hækkar gjaldið úr
11.700 krónum í 13.200 krónur miðað
við sömu prósentuhækkun. Hækk-
anirnar eru því umtalsverðar og
koma illa við þá sem hafa minna á
milli handanna, t.d stúdenta við Há-
skóla Íslands. Athygli vekur að
mesta hækkunin hefur orðið hjá
stúdentum.
Nú er dýrara að greiða leikskóla-
pláss fyrir einn mánuð en innritun-
argjöldin við Háskóla Íslands en þau
gjöld greiðast einu sinni á ári.“
Vaka mótmælir gjald-
skrárhækkunum