Morgunblaðið - 14.07.2001, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 14.07.2001, Blaðsíða 16
LANDIÐ 16 LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ SUMARLOÐNUVERTÍÐ stendur nú sem hæst og er búið að landa 12000 tonnum hjá SR mjöli á Rauf- arhöfn frá því að vertíðin hófst 23. júní. Engin síld kom í vor úr norsk- íslenska stofninum á móti 13000 tonnum vorið 2000 og vetrarver- tíðin var stutt, þá veiddust 1055 tonn á móti 23000 tonnum veturinn 2000. Morgunblaðið/Júlíus Helgason Grænlenska loðnuskipið SIKU kemur með 1.300 tonn til Raufarhafnar. Búið að landa 12 þúsund tonnum af loðnu Raufarhöfn NÝ NÁMSBRAUT í umhverfis- skipulagi við Landbúnaðarháskól- ann á Hvanneyri er nú fullsetin og nemendum í háskólanámi þar hefur fjölgað um 50 % frá því sem var í fyrra. Sömu sögu er að segja af að- sókn að bændadeild. Námsbrautir við Landbúnaðarhá- skólann eru nú alls fjórar, almenn námsbraut í bændadeild og þrjár brautir á háskólastigi, búfræðibraut, landnýtingarbraut og umhverfis- skipulagsbraut. Kennsla í búfræði eða búvísindum hefur lengi verið á Hvanneyri eða allt frá árinu 1947. Kennsla á landnýtingarbraut hófst í fyrra, en kennsla í umhverf- isskipulagi hefst í haust. Teknir verða inn 13 nemendur í nám í um- hverfisskipulagi, en þar tekur grunnnám þrjú ár og lýkur með B.sc.-90 prófi í faginu. Þeir sem þess óska geta lokið námi á þessu stigi, en skólinn býður einnig upp á tvo mögu- leika á meira námi fyrir nemendur sem náð hafa tilskildum árangri. Annars vegar er hægt að ganga inn í meistaranám á Norðurlöndunum á grundvelli sérstaks samstarfssamn- ings við landbúnaðarháskóla þar. Hins vegar er hægt að taka fjórða árið á Hvanneyri og ljúka þar B.sc.-120 í umhverfisskipulagi. Helstu atvinnukostir fyrir þá, sem lokið hafa námi í umhverfisskipulagi eru hjá sveitarfélögum, fyrirtækjum og stofnunum við umsjón með fram- kvæmdum, eftirlit og umsjón með náttúruverndarsvæðum og landnýt- ingu auk vinnu á skrifstofum lands- lagsarkitekta. Aðsókn að öðrum brautum skólans er einnig miki.l Landbúnaðarháskólinn hefur ráð- ið Guðrúnu Jónsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra Markaðsráðs Borgarfjarðar, sem upplýsinga og kynningarfulltrúa og hefur hún þeg- ar tekið til starfa. Ný námsbraut í um- hverfisskipulagi full- skipuð nemendum Skorradalur Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri. Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri UM SÍÐUSTU helgi gékk 19 manna hópur á vegum Ferðafélags fjarða- manna á Grænafell í Reyðarfirði. Gengið var upp frá Skriðuhóli á Fagradal og komið niður með Geit- húsárgili. Gangan tók þrjár klukku- stundir í blíðskaparveðri. Ferðafélag fjarðamanna í Fjarðabyggð skipu- leggur gönguferðir víða um Austur- land. Fullbókað er í júlíferðir félags- ins um Gerpissvæðið, Loðmund- arfjörð og Mjóafjörð. Í ágúst verður farin dagsferð á Vopnafjarðarheiði í leit að fjallagrösum. Einnig eru á dagskrá gönguferð í Dyrfjöll, hjól- reiðaferð í Karlsskála, fjölskylduferð í Vöðlavík o.fl. Morgunblaðið/Hallfríður Hópurinn sem gekk á Grænafell. Gengið á Grænafell Reyðarfjörður Á AÐALFUNDI Markaðsstofu Austurlands sem haldinn var nýver- ið, hlaut Albert Eiríksson á Fá- skrúðsfirði nafnbótina „Ferðafröm- uður ársins 2000“. Tók Bergþór Pálsson söngvari við verðlaunum fyrir Alberts hönd. Söng Bergþór við það tækifæri franskar sjómannavís- ur sem borist höfðu til hans í mynd- skeyti fyrr um daginn. Albert er sonur hjónanna Eiríks Guðmundssonar og Huldu Steins- dóttur á Brimnesi við Fáskrúðsfjörð. Hann er menntaður hársnyrtir og matreiðslumaður, en hefur síðasta eina og hálfa árið að mestu helgað sig upplýsingaöflun, undirbúningi og rekstri sýningarinnar „Fransmenn á Íslandi.“ Albert hefur verið ötull við að afla sér fróðleiks varðandi þennan kafla í sögunni og er talinn vera með fróðustu mönnum um franska sjó- menn við Ísland. Sýningin „Fransmenn á Íslandi“ sem sett var upp í Templaranum á Fáskrúðsfirði vorið 2000, er einka- framtak Alberts. Einnig gaf hann út „Göngukort um Fáskrúðsfjörð“ sem inniheldur kort af þorpinu, ásamt upplýsingum um áhugaverða staði. Aðgangur að sýningunni var ókeypis á síðasta sumri og hún einvörðungu rekin með styrkjum og frjálsum framlögum, ásamt eigin framlagi Al- berts. Hann hyggst halda sýning- unni opinni í sumar. Templarinn, þar sem sýningin er til húsa, er gamalt samkomuhús Fáskrúðsfirðinga, en fyrir nokkrum árum stóð til að rífa húsið. Hópur áhugafólks fékk húsið til umráða og hefur unnið að end- urbótum síðustu árin. Þar var síðast- liðið sumar rekið kaffihús í tengslum við sýninguna, en þar var áhugafólk einnig að verki. 800 manns koma daglega í upplýsingamiðstöðina á Egilsstöðum Markaðsstofa Austurlands var stofnuð fyrir tveimur árum og starf- ar fyrir sveitarfélögin frá Bakkafirði til Breiðdals. Henni er ætlað að vera leiðandi í stefnumótun og markaðs- setningu í ferðaþjónustu á þessu svæði. Markaðsstofan sinnir m.a. rekstri upplýsingamiðstöðvar á Egilsstöð- um, sem er ein hin fjölsóttasta í land- inu. Samkvæmt teljara sem settur var upp í fyrrasumar, komu um 800 manns á dag yfir háannatímann og að meðaltali 350 hvern dag á tíma- bilinu 20. júlí - 31. september. Ferða- málaráð veitti í fyrra kr. 1.250.000 til reksturs upplýsingamiðstöðvarinnar samkvæmt samningi sem krefur rekstraraðila um ákveðna lágmarks- þjónustu. Samhliða upplýsingamið- stöð leigir Markaðsstofan einnig og rekur tjaldsvæði á Egilsstöðum. Önnur verkefni Markaðsstofu eru, svo dæmi séu tekin, útgáfa Austur- landsbæklings og undirbúningur og þátttaka í Vestnorden ferðakaup- stefnunni. Botninn dottinn úr beinu flugi LTU til Egilsstaða? Jóhanna Gísladóttir, fram- kvæmdastjóri Markaðsstofu, sagði m.a. í skýrslu sinni á aðalfundinum, að í fyrrasumar hefði verið lögð mikil vinna í undirbúning fyrir beint flug til Egilsstaða. Var það einkum Þró- unarstofa Austurlands, í samvinnu við ferðaskrifstofuna Terra Nova, áður Ferðamiðstöð Austurlands, sem kom að undirbúningi málsins. Terra Nova er umboðsaðili þýska LTU flugfélagsins á Íslandi. Hlutverk Markaðsstofu var að leggja sitt af mörkum til að gera svæðið vænlegt til sölu í Þýskalandi og sagði Jóhanna að náðst hefði sam- staða á svæðinu um að veita afslátt á afþreyingu og gistingu á jaðartíma- bilum fyrir farþega LTU, gegn kynningu flugfélagsins á Austur- landi í bæklingum þeirra í Þýska- landi. Ekkert hefur þó orðið úr beinu flugi til Egilsstaða ennþá og óvíst um framhaldið. Á aðalfundinum var fráfarandi stjórn Markaðsstofunnar endurkjör- in. Í henni sitja Jónas Hallgrímsson, formaður, Auður Anna Ingólfsdóttir, Sveinn Sigurbjarnarson, Jón Björn Hákonarson, Skúli Björn Gunnars- son, Þorsteinn Steinsson og Jóhanna Agnarsdóttir. Setti upp sýningu um franska sjómenn Egilsstaðir Albert Eiríksson á Fáskrúðsfirði kosinn ferðafrömuður ársins GLER- og myndlistarkonan Re- bekka Gunnarsdóttir hefur nýlega opnað myndlistarsýningu í kaffihús- inu Við árbakkann á Blönduósi. Rebbekka sýnir 44 myndir og eru margar hverjar úr A-Húnavatns- sýslu. Rebekka hefur haldið sýn- ingar frá árinu 1988 og komið víða við. Auk þess að fást við myndlistina þá hefur hún leiðbeint eldri borg- urum við handavinnu, silfursmíði og gler- og myndlist. Sýning Rebekku Við árbakkann stendur allan júlí- mánuð og eru myndirnar til sölu. Myndlistar- sýning við árbakkann Blönduós Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Eitt af verkum Rebekku Gunnarsdóttur sem er af gamla bæjarhluta Blönduóss frá bryggjunni séð. mbl.is VIÐSKIPTI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.