Morgunblaðið - 14.07.2001, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 14.07.2001, Blaðsíða 42
DAGBÓK 42 LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið. SVAR til Sigríðar Sigurð- ardóttur, sem skrifaði í Velvakanda þann 10. júlí sl. vegna dóms í nauðgunar- málinu. Svo sannarlega hefur þú rétt fyrir þér í sambandi við þetta nauðg- unarmál. Á meðan dæmt er í öðru máli út af nauðgun, þar sem ekki sést á stúlk- unni, engir áverkar af neinu tagi fær sá maður tvö ár, sem var mjög rangt, þar sem ekki var tekið tillit til þess að ekkert kom fram sem sannaði málið, en hann var samt dæmdur á líkum. Svo fær þessi maður lítinn dóm fyrir stóran glæp, sem sýnist augljós eftir því sem kemur fram. Spurt er: Hvað er að gerast í okkar réttarkerfi, fer það eftir því í hvaða skapi dómarar eru? Helga R. Þakkir SONUR minn veiktist af malaríu erlendis og var fluttur heim með flugvél Flugleiða frá Kaupmanna- höfn fyrir stuttu. Langar mig að senda landlæknis- embættinu, Flugleiðum og bráðamóttöku Landspítal- ans mínar bestu þakkir fyrir frábæra þjónustu. Þið stóðuð ykkur öll með prýði. Eyjólfur. Kannast einhver við þessa vísu ? JÓN Kjartansson hafði samband við Velvakanda og langar að vita hvort ein- hver kann þessa vísu. Hann kann part af henni sem er eftirfarandi: Í snör- unni fuglinn sat fastur/ og fóturinn þrútinn og blár. Stórkostlegt húsmæðraorlof VIÐ fórum um 50 konur í húsmæðraorlof að Laugum í Sælingsdal fyrir stuttu. Mig langar að þakka fyrir frábæra ferð. Allur aðbún- aður að Laugum var til fyr- irmyndar, góð rúm og góð aðstaða. Það ættu sem flestar húsmæður að reyna að sjá sér fært að fara í slíka ferð. Hafið mínar bestu þakkir fyrir. Húsmóðir. Þyrstan dreymir vatn KONA hafði samband við Velvakanda og vildi senda þakklæti til framleiðenda myndarinnar „Þyrstan dreymir vatn“, sem sýnd var í Ríkissjónvarpinu þann 1. júlí sl. Hún vill skora á Ríkissjónvarpið að endursýna þessa stórkost- legu mynd. Það var stór- kostlegt að sjá alla þessa gleði hjá fólkinu sem ekk- ert á. Sunnudagsblað Morgunblaðsins ÉG er mjög óánægð með sunnudagsblað Morgun- blaðsins. Mér finnst blaðið vera eitt allsherjar „kaos“. Bílablaðinu, barnablaðinu og ferðablaðinu ægir öllu saman. Vonandi verður þessu breytt aftur í sitt gamla form. Guðlaug Ágústsd. Fordómar gagnvart nýbúum ÁSTRÍÐUR hafði sam- band við Velvakanda og vildi bera fram eina ósk í sambandi við fordóma gagnvart nýbúum. Óskin er sú að börnin séu látin í friði. Það er endalaust ver- ið að ræða fordóma og bitna þeir á börnunum. Ég hvet alla til þess að taka höndum saman og varð- veita börnin. Hundahald í borginni Í UMRÆÐUNNI um hundahald í borginni lang- ar mig að koma eftirfar- andi á framfæri. Eigendur hunda eru einstaklega dug- legir að þrífa upp eftir þá, annað en hægt er að segja um fólkið sem í henni býr. Ég hef margsinnis orðið vitni að því að fólk hendir rusli út um víðan völl og jafnvel út um bílgluggann. Finnst mér illa vegið að hundaeigendum. Margrét. Tapað/fundið Brjóstnæla tapaðist V-LAGA gullbrjóstnæla með perlum og álmum á milli, tapaðist laugardag- inn 9. júní sl. Gæti hafa tap- ast í eða við Þjóðleikhúsið. Skilvís finnandi er vinsam- legast beðinn að hafa samband í síma 565-6244. Grænn bakpoki tapaðist GRÆNN, lítill bakpoki sem einnig er stóll, týndist sl. helgi á Laugarvatni. Skilvís finnandi hafi sam- band í síma 690-7469. Dýrahald Lítil læða hvarf að heiman ÞRIGGJA mánaða grá- bröndótt læða hvarf frá Selbrekku í Kópavogi, þriðjudaginn 10. júlí sl. Hennar er ákaflega sárt saknað. Ef einhver hefur orðið var við ferðir hennar, vinsamlegast hafið sam- band í síma 699-6779. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Lítill dómur fyrir stóran glæp Víkverji skrifar... VINKONA Víkverja er búsett íSuður-Ameríku og hefur ekki búið hér á landi um árabil. Hún er hér í heimsókn og það var forvitni- legt að heyra lýsingar hennar á mið- bænum. Hún fór að sýna börnunum sínum Austurvöllinn og umhverfið þar í kring, kaupa handa þeim ís, gefa öndunum og sýna þeim Alþingishús- ið. Allt þetta fannst henni skemmti- legt að geta gert með krökkunum og rifjað upp góðar minningar í leiðinni. Það sem á hinn bóginn kom óþægi- lega við hana var að horfa upp á þann fjölda óreglufólks sem hvíldi sig á bekkjum og ráfaði um Austurstræti og þar í kring um hábjartan dag. Miðað við fjölda fólks sem var á rölti í miðbænum fannst henni þessi hóp- ur fólks mest áberandi. Hún var hissa á að fleiri skyldu ekki vera í miðborginni, það er að segja fjölskyldufólk, og velti því fyrir sér hvort allir færu nú í Kringluna til að sýna sig og sjá aðra. Vinkonan, sem býr í stórborg í Suður-Ameríku, sagði að Íslending- ar hefðu það annars auðsjáanlega gott. Þar sem hún býr er það daglegt brauð að fólk berji að dyrum hjá henni til að biðja um matarbita eða fatnað, fátæktin er gífurleg og bilið milli ríkra og fátækra hrópandi. x x x VEÐRIÐ hefur leikið við höfuð-borgarbúa síðustu dagana og það er eins og lifni yfir fólki þegar sólin skín. Nágrannar Víkverja dytta að húsum og görðum, borða úti í garði og njóta lífsins. Meðal þess sem börn hafa áhuga á að gera þegar veðrið er gott er að gefa öndunum á Tjörninni. Eigendur Björnsbakarís sem er á Hringbrautinni, stutt frá Tjörninni, laða til sín ungviði með því að gefa því brauð til að gefa þessum smávinum. Um daginn fóru tvær ungar stúlk- ur niður á Tjörn og komu við í Björnsbakaríi því þar vissu þær að andabrauð væri hægt að fá ókeypis. Þá var það búið þann daginn enda sól og blíða og margir sem hafa ætlað að fara niður á Tjörn. Þær tóku því stefnuna á annað bakarí og þar var brauðið frá gærdeginum selt á hálf- virði. Í þriðja bakaríinu var þeim boðið að kaupa bara fransbrauð handa öndunum en það er iðulega ódýrasta brauðið í bakaríum. Þær ákváðu að sleppa því að gefa öndunum þann daginn og voru stór- hneykslaðar á því að þær skyldu ekki alls staðar fá brauð eins og í Björns- bakaríi. x x x VÍKVERJI á börn sem eru ííþróttum og liður í að fjár- magna mót og ferðir sem krakkarnir fara á felst í að selja ýmiss konar varning. Nýlega var dóttir Víkverja að selja eldhúsrúllur og salernis- pappír í þessum tilgangi fyrir bróður sinn og naut aðstoðar vinkonu sinnar við sölumennskuna. Þær þrömmuðu í hús í nokkra daga og buðu varning- inn til sölu. Og viðtökurnar voru yf- irleitt svo frábærar. Auðvitað kaupa ekki allir af krökkum vörur eins og þessar en það var áberandi hvað fólk var elskulegt. Ef það keypti ekki af þeim vörurnar þá gaukaði það jafn- vel að þeim íspinnum eða sælgætis- mola og hældi þeim fyrir dugnaðinn. Þegar krakkar fá svona viðtökur gleyma þeir því ekki. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 LÁRÉTT: 1 umgerðar, 4 skvettan, 7 enda við, 8 margt, 9 bein, 11 mjög, 13 fiskar, 14 ónar, 15 gaffal, 17 krafts, 20 bókstafur, 22 hljóðfærið, 23 ólyfjan, 24 fífls, 25 hyggja. LÓÐRÉTT: 1 dý, 2 fugl, 3 brunninn kveikur, 4 klúr, 5 skraut, 6 veiðarfæri, 10 fram- kvæmir, 12 stormur, 13 strá, 15 ódaunninn, 16 skrifar, 18 fetill, 19 röð af lögum, 20 ljúka, 21 þvengur. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 háskalegt, 8 glens, 9 sýtir, 10 urt, 11 síður, 13 arðan, 15 gulls, 18 sagga, 21 tel, 22 síðla, 23 erfið, 24 hrufóttur. Lóðrétt: 2 ákefð, 3 kisur, 4 losta, 5 gætið, 6 uggs, 7 hrun, 12 ull, 14 róa, 15 gest, 16 löður, 17 starf, 18 sleit, 19 giftu, 20 auða. K r o s s g á t a Skipin Reykjavíkurhöfn: Í gær fóru út Mánafoss, Þórs- hamar, Black Velvet, Peggy, Ottó N. Þor- láksson, Nukik, Sina, Hawk og Skógarfoss. Í dag kemur Delphin og fer aftur út samdægurs. Hafnarfjarðarhöfn: Í gær kom ms. Christina III að losa súrál í Straumsvík og út fóru Gemini, Karelía, Boote og Erindanus. Viðeyjarferjan. Tíma- áætlun Viðeyjarferju: Mánudaga til föstudaga: til Viðeyjar kl. 13, kl. 14 og kl. 15, frá Viðey kl. 15.30 og kl. 16.30. Laug- ardaga og sunnudaga: Fyrsta ferð til Viðeyjar kl. 13 síðan á klukku- stundar fresti til kl. 17, frá Viðey kl. 13.30 og síðan á klukkustundar fresti til kl. 17.30. Kvöldferðir eru föstu- og laugardaga.: til Við- eyjar kl. 19, kl. 19.30 og kl. 20, frá Viðey kl. 22, kl. 23 og kl. 24. Sérferð- ir fyrir hópa eftir sam- komulagi. Viðeyjarferj- an sími 892 0099. Lundeyjarferðir dag- lega, brottför frá Við- eyjarferju kl.10.30 og kl. 16.45, með viðkomu í Viðey u.þ.b. 2 klst. sími 892 0099. Fréttir Stuðningsfundir fyrr- verandi reykingafólks. Fólk sem sótt hefur námskeið gegn reyking- um í Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, fundur í Gerðubergi á þriðjud. kl. 17.30. Mannamót Norðurbrún 1, Furu- gerði 1 og Hæðagarður 31. Fimmtudaginn 19. júlí verður farið í ferð á Þingvelli og Laugar- vatn. Ekið verður um línuveg og Grafning til Þingvalla. Þaðan verður farið að Laugarvatni þar sem drukkið verður kaffi á veitingahúsinu Lindinni. Til baka verð- ur farið um Grímsnes og Hellisheiði. Leið- sögumaður Anna Þrúð- ur Þorkelsdóttir. Lagt verður af stað frá Norð- urbrún 1 kl. 12.30 og síðan verða teknir far- þegar í Furugerði og Hæðargerði. Skráning í Norðurbrún 568-6960, í Furugerði 553-6040 og Hæðargarði 568-3132. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Morgungangan verður í dag, rúta frá Firðinum kl. 9.50 og kl. 10 frá Hraunseli. Orlofið í Hótel Reykholti í Borg- arfirði 26.-31. ágúst nk. Skráning og allar uppl. í símum ferðanefndar 555-0416, 565-0941, 565- 0005 og 555-1703. Panta þarf fyrir 1. ágúst. Félagsheimilið Hraun- sel verður lokað vegna sumarleyfa starfsfólks til 12. ágúst. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Kaffistofan er opin alla virka daga frá kl. 10.00-13.00. Matur í hádeginu. Sunnudagur: Dansleikur kl. 20.00 Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Mánudagur: Brids kl. 13.00. Mið- vikudagur: Göngu- Hrólfar fara í létta göngu frá Hlemmi kl. 9.45. Eigum tvö sæti laus vegna forfalla í 6 daga ferð um Eyja- fjörð-Skagafjörð og Þingeyjarsýslur. 26.- 31.júlí. Ákveðið hefur verið að fara aðra hringferð um Norð- austurland 20. ágúst nk.vegna mikilla eftir- spurnar, ef næg þátt- taka verður. Þeir sem hafa skráð sig á biðlista eru vinsamlegast beðn- ir að hafa samband við skrifstofu FEB. Silfur- línan er opin á mánu- dögum og miðvikudög- um frá kl. 10.00 til 12.00 f.h. í síma 588- 2111. Upplýsingar á skrifstofu FEB kl. 10.00 til 16.00 í síma 588-2111. Gerðuberg, félagsstarf. Sund- og leikfimiæfing- ar á vegum ÍTR í Breiðholtslaug á þriðju- dögum og fimmtudög- um kl. 9.30. Púttvöllur- inn er opinn virka daga kl. 9-18, kylfur og bolt- ar til leigu í afgreiðslu sundlaugarinnar. Allir velkomnir. Veitingabúð Gerðubergs er opin mánudaga til föstudaga kl. 10-16. Félagsstarfið lokað vegna sumarleyfa frá 2. júlí til 14. ágúst. Gullsmári. Lokað vegna sumarleyfa til 7. ágúst. Félag eldri borgara Kópavogi. Púttað verðu á Lista- túni í dag laugardag kl. 11. Mætum öll og reyn- um með okkur. Norðurbrún 1. Hárgreiðslustofan verð- ur lokuð frá 10. júlí til 14. ágúst. Fótaaðgerð- arstofan verður lokuð 16.-20. júlí. Vinnustofur lokaðar í júlí vegna sumarleyfa. Félag fráskilinna og einstæðra. Fundur verður í kvöld kl. 21 í Konnakoti Hverfisgötu 105. Nýir félagar vel- komnir. Munið göng- una mánudag og fimmtudag. Gigtarfélagið. Leikfimi alla daga vikunnar. Létt leikfimi, bakleik- fimi karla, vefjagigtar- hópar, jóga, vatnsþjálf- un. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Nánari uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. Sjálfsbjörg, félag fatn- aðra á höfuðborgar- svæðinu. Skrifstofan verður lokuð vegna sumarleyfa frá 16. júlí til 7. ágúst. Minningarkort Minningarkort Minn- ingarsjóðs Maríu Jóns- dóttur flugfreyju eru fáanleg á eftirfarandi stöðum: Á skrifstofu Flugfreyjufélags Ís- lands, s. 561-4307/fax 561-4306, hjá Halldóru Filippusdóttur, s. 557- 3333 og Sigurlaugu Halldórsdóttur, s. 552- 2526. Minningarkort Minn- ingarsjóðs hjónanna Sigríðar Jakobsdóttur og Jóns Jónssonar á Giljum í Mýrdal v. Byggðasafnsins í Skóg- um fást á eftirtöldum stöðum: Í Byggðasafn- inu hjá Þórði Tómas- syni, s.: 487-8842, í Mýrdal hjá Eyþóri Ólafssyni, Skeiðflöt, s.: 487-1299, í Reykjavík hjá Frímerkjahúsinu, Laufásvegi 2, s.: 551- 1814 og hjá Jóni Að- alsteini Jónssyni, Geita- stekk 9, s.: 557-4977. Minningarkort, Félags eldri borgara Selfossi. eru afgreidd á skrifstof- unni Grænumörk 5, miðvikudaga kl. 13-15. Einnig hjá Guðmundi Geir í Grænumörk 5, sími 482-1134, og versl- uninni Íris í Miðgarði. Slysavarnarfélagið Landsbjörg, Stangarhyl 1, 110 Reykjavík. S. 570-5900. Fax: 570-5901. Netfang: slysavarna- felagid@landsbjorg.is Minningarkort Rauða kross Íslands eru seld í sölubúðum Kvenna- deildar RKÍ á sjúkra- húsum og á skrifstofu Reykjavíkurdeildar, Fákafeni 11, s. 568- 8188. Minningarkort Hvíta- bandsins fást í Kirkju- húsinu, Laugavegi 31, s.: 562-1581 og hjá Kristínu Gísladóttur, s.: 551-7193 og Elínu Snorradóttur, s.: 561- 5622. Minningarkort Sjúkra- liðafélags Íslands eru send frá skrifstofunni, Grensásvegi 16, Reykja- vík. Opið virka daga kl. 9-17. S. 553-9494. Minningarkort Vina- félags Sjúkrahúss Reykjavíkur eru af- greidd í síma 525-1000 gegn heimsendingu gíróseðils. Minningar- kort Kvenfélagsins Hringsins í Hafnarfirði fást í blómabúðinni Burkna, hjá Sjöfn s.: 555-0104 og hjá Ernu s.: 565-0152. Minningakort Breið- firðingafélagsins, eru til sölu hjá Sveini Sig- urjónssyni s.: 555-0383 eða 899-1161. Minningarkort Kven- félagsins Seltjarnar eru afgreidd á bæjarskrif- stofu Seltjarnarness hjá Ingibjörgu. Minningarkort Kven- félags Langholtssóknar fást í Langholtskirkju s. 520-1300 og í blómabúð- inni Holtablómið, Lang- holtsvegi 126. Gíróþjón- usta er í kirkjunni. Í dag er laugardagur 14. júlí, 195. dagur ársins 2001. Orð dagsins: Og hann tók brauð, gjörði þakkir, braut það, gaf þeim og sagði: „Þetta er lík- ami minn, sem fyrir yður er gefinn. Gjörið þetta í mína minningu.“ (Lúk. 22.19.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.