Morgunblaðið - 14.07.2001, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.07.2001, Blaðsíða 12
FRÉTTIR 12 LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Gunnari Þór Jónssyni: „Í yfirlýsingu frá rektor Háskóla Íslands, varðandi niðurlagningu prófessorsembættis í slysalækning- um, koma fram fullyrðingar sem eru ósannar. Í fyrsta lagi heldur rektor því fram að tillagan um þessa niður- lagningu hafi verið í undirbúningi frá því sl. haust. Þetta hefur mér alls ekki verið kunnugt um. Í samtölum við rektor fyrst í september sl., síðan aftur á vordögum og loks í sjónvarpsviðtali á Stöð 2 í lok maí sl. kannaðist rektor Háskóla Íslands ekki við að neinar aðgerðir væru í gangi sem væru af því tagi sem raun ber vitni um. Í annan stað hefur málið ekki verið rætt á læknadeildarfundi og ekki í deildarráði læknadeildar fyrr en 20. júní sl. (skv. fundar- gerðum). Rektor telur, að ég hafi horft fram hjá kjarna málsins, sem sé sá, að ákvarðanir hafi verið teknar með hagsmuni kennslu og rann- sókna að leiðarljósi. Höfuðrökin eru þau að ung og lítil sérgrein innan læknisfræðinnar eigi að taka sess bæklunarlækninga á sviði slysalækninga. Tillögu af þessum toga er ég algjörlega mótfallinn og er ekki einn um þá skoðun. Vísa ég í þeim efnum á fréttatilkynningar Fél. ísl. bæklunarlækna og starf- andi bæklunarlækna við LSH, en undir þá yfirlýsingu skrifuðu allir bæklunarlæknar sjúkrahússins nema tveir. Það eru einmitt þessir tveir sem verið hafa ráðgjafar deildarforseta og rektors um nið- urlagningu prófessorsembættis í slysalækningum. Undirritaður hefði aldrei haft forgöngu um þá þróun og tillögur sem nú hafa verið lagðar fram. Ef það er raunin að þessar breytingar grundvallist á faglegum forsendum, eins og rekt- or kýs að kalla það, þá eru það í hæsta máta óeðlileg vinnubrögð að prófessorinn í slysalækningum hafi ekki verið spurður álits, né heldur Félag íslenskra bæklunarlækna. Að síðustu er það alls kostar órétt að ég hafi átt þess kost að fylgjast með umræðum um þessi mál, þar sem þau hafa ekki verið borin undir mig og ég hef hvorki átt seturétt í kennslunefnd né deildarráði. Ég endurtek þau ummæli mín að stjórnvaldshafar við LSH og Há- skóla Íslands virðast ekki geta far- ið að lögum og reglum í samskipt- um sínum við mig. Enda liggja fyrir dómsúrlausnir Héraðsdóms Reykjavíkur, Hæstaréttar Íslands og rannsóknarnefndar skv. 27. gr. starfsmannalaga og allar þessar úrlausnir kveða skýrt á um það að umræddir stjórnvaldshafar hafa ítrekað brotið á mér lög landsins. Er ekki mál að linni? Yfirlýsing frá Gunn- ari Þór Jónssyni MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá eftirtöld- um bæklunarlæknum: Ríkarði Sig- fússyni, Höskuldi Baldurssyni, Jóni Ingvari Ragnarssyni, Svavari Har- aldssyni, Ágústi Kárasyni, Brynjólfi Jónssyni, Arnbirni Arnbjörnssyni, Hauki Árnasyni, Stefáni Carlssyni, Grétari Ottó Róbertssyni, Boga Jónssyni og Yngva Ólafssyni. „Í tilefni yfirlýsingar Páls Skúla- sonar háskólarektors í Ríkisútvarp- inu í gær, varðandi ákvörðunina um „að störf prófessors og dósents í slysalækningum, sem byggð voru á grunni bæklunarlæknisfræði, verði lögð niður frá og með 1. júlí 2001“, vilja undirritaðir að eftirfarandi komi fram: Háskólarektor fullyrðir að breyt- ingarnar séu liður í heildarendur- skoðun læknanáms, séu gerðar með hagsmuni kennslu og rannsókna að leiðarljósi og byggist á grundvelli umræðu sem hafi farið fram í læknadeild frá síðastliðnu hausti. Breytingarnar hafa áður verið rökstuddar með að læknadeildin sé að „svara kalli tímans og að koma til móts við þróun læknisfræðinnar bæði í Evrópu og Ameríku“. Eftir þessa „skipulagsbreytingu“ er til staðar einn bæklunarlæknir í stöðu dósents, en fyrir breytinguna sátu 3 bæklunarlæknar í kennslu- stöðum, einn í prófessorsstöðu og 2 í dósentsstöðum. Þessa breytingu teljum við í engu samræmi við þró- unina í Evrópu og Ameríku. Virðist sem hvorki læknadeild né háskóla- rektor hafi borist til eyrna sú ákvörðun Sameinuðu þjóðanna 1999, að gera fyrsta áratug þess- arar aldar að áratug stoðkerfis- læknisfræðinnar (The Bone & Joint Decade). Þannig á að auka veg bæklunar-, gigtar-, endurhæfingar- og heilbrigðislæknisfræði til kennslu, rannsókna, lækninga og forvarna á stoðkerfissjúkdómum. Ríkisstjórnir 34 þjóða hafa þegar skrifað undir viljayfirlýsingu þessa efnis, þ.á m. ríkisstjórnir flestra þjóða Vestur-Evrópu, sem og Bandaríkjanna. Okkur finnst með ólíkindum að við nefndan undirbúning þessarar miklu endurskipulagningar á kennslu í bæklunarlæknisfræði, hafi hvorki læknadeildin né háskólarekt- or leitað álits Félags bæklunar- lækna né starfandi bæklunarlækna við Háskólasjúkrahúsið. Að það sé talið nægilegt að fá einungis faglegt álit þeirra einstaklinga sem geta haft hag af breytingunum er lækna- deildinni og Háskólanum til minnk- unar. Við eigum bágt með að trúa því að megintilgangur „skipulagsbreyt- inganna“ hafi verið að betrumbæta kennslu og rannsóknir á Íslandi, enda hefðu þær þá ekki farið svo leynt heldur verið ræddar opinber- lega og í víðara samhengi meðal lækna, kennara og stúdenta. Hvort sem breytingunum var ætlað að efla nýja sérgrein, losna við menn eða koma mönnum að, er ljóst að sér- grein bæklunarlækninga hefur liðið fyrir. Það teljum við alls óviðunandi. Við krefjumst þess að ekki verði stofnaðar nýjar kennslustöður í bráðalækningum fyrr en „mál“ bæklunarlæknisfræðinnar innan Háskólans hafa verið leyst. Einnig krefjumst við þess að hlutur bækl- unarlækninga innan Háskólans verði að minnsta kosti óskertur og helst aukinn. Bæklunarlækningum ber þannig að minnsta kosti ein pró- fessorsstaða og 2 dósentsstöður. Lausar stöður ber að auglýsa til umsóknar þannig að enginn vafi leiki á að skipun þeirra byggist á eðlilegu hæfnismati.“ Yfirlýsing frá bæklunarlæknum FULLTRÚAR Framsóknarflokks og Skagafjarðarlista í sveitarstjórn hafa náð samkomulagi um myndun meirihluta í sveitarstjórninni fram til sveitarstjórnarkosninganna 2002. Á fundum sem haldnir voru nýverið kom fram að meginverkefni sveitar- stjórnarinnar verða að tryggja fjár- hagsstöðu sveitarfélagsins og koma þannig í veg fyrir að skerða verði þjónustu við íbúana sem og að styrkja tiltrú Skagfirðinga á mögu- leikum og getu hins nýja sameinaða sveitarfélags til verkefna framtíðar- innar. Aðspurður hverjir standi að baki Skagafjarðarlistanum segir Snorri Styrkársson, formaður listans, að listinn hafi verið stofnaður í aðdrag- anda síðustu kosninga. „Hann er sjálfstætt félag að framfaramálum hér í Skagafirði. Það á engin pólitísk hreyfing aðild að Skagafjarðarlistan- um,“ segir hann en getur þess þó að í aðdraganda stofnunar félagsins sé ljóst að það hafi fyrst og fremst á þeim tíma verið fólk úr Alþýðu- bandalaginu, Þjóðvaka, Kvennalist- anum og Alþýðuflokknum sem stóð á bak við stofnunina. Það voru þó einn- ig óflokksbundnir einstaklingar. Þegar Herdís Sæmundardóttir, oddviti Framsóknarflokks í sveitar- stjórn Skagafjarðar, er spurð hvers vegna samstarf fyrri meirihluta Framsóknarflokks og Sjálfstæðis- flokks hafi klofnað segir hún að meirihlutinn hafi sprungið vegna þess að hún hafi á sínum tíma flutt tillögu þess efnis að fresta samein- ingu veitnanna þriggja og skoða möguleikann á að selja Rafveitu Sauðárkróks. „Ég flutti ekki tillögu um að selja Rafveitu Sauðárkróks heldur ein- göngu að kanna þann möguleika hvort það gæti verið hagkvæmt að selja rafveituna. Sjálfstæðismenn höfnuðu því að skoða þennan mögu- leika og ég gat ekki sætt mig við það.“ Sveitarfélagið ekki á heljarþröm Í tilkynningu frá Skagafjarðarlista og Framsóknarflokki segir að ákveð- ið hafi verið að nýr sveitarstjóri verði ráðinn tímabundið fram að næstu sveitarstjórnarkosningum. Herdís segir að ekki sé búið að ganga frá því hver komi í stað Snorra Bjarnar Sig- urðssonar, núverandi sveitarstjóra Skagafjarðar, en samkomulag var um að hann léti af störfum. „Snorri er að hætta og við getum ekki upp- lýst það að svo stöddu hver mun taka við af honum,“ segir Herdís en bætir við að hún vonist til að af því verði á allra næstu dögum. Aðspurð hverjir komi til greina sagðist hún ekki geta gefið það upp en gat þess þó að ekki væri um sveitarstjórnarfulltrúa að ræða. Innt eftir því hvort sveitarfélag Skagafjarðar skuldi nú í kringum tvo milljarða króna segir hún það rétt. „Sveitarfélagið er ekki á heljarþröm. Við eigum stórar, miklar og verð- mætar eignir sem eru líka seljanleg- ar og mitt sjónarmið er það að ef við grípum ekki til einhverra ráða til að koma einhverjum af þessum eigum okkar í verð til að greiða niður skuld- ir þá gætum við verið í mikilli hættu. Í ljósi aukinnar verðbólgu og ýmissa efnahagsþátta eins og gengisbreyt- inga tel ég að það sé nauðsynlegt að grípa til þess að selja eitthvað af þessum stóru eignum.“ Spurð hvort hlutur sveitarfélags- ins í Steinullarverksmiðjunni sé meðal þess sem það hyggst selja seg- ir hún að það komi vel til greina en ekkert sé þó ákveðið í þeim efnum. Aðspurð hvort sérstök ágreinings- efni hafi komið upp í samningavið- ræðum segir hún svo ekki vera. „Auðvitað er einhver áherslumunur í einstökum málum en eins og kemur fram í málefnasamningum er um að ræða verkefni sem við bæði höfum verið og erum að vinna að. Það má því segja að verið sé að hnýta þann skilning saman að skilningur- inn sé eins hjá báðum aðilum. Ég tek sem dæmi fyrirhugað sorpurðunar- svæði við Kolkuós þar sem búið er að gera umhverfisáætlun og stendur til að fara í framkvæmdir,“ segir hún og bætir við að það sé mikill kraftur í samfélaginu sem fólk vilji efla frekar. Haldið verður m.a. áfram stuðningi við starfsemi Atvinnuþróunarfélags- ins og áfram verður unnið að fegrun og umhverfisbótum í sveitarfélaginu. Fjárhagur sveitar- félagsins verði tryggður Nýtt meirihlutasamstarf í Skagafirði SAMNINGUR um byggingu nýrra höfuðstöðva Orkuveitu Reykja- víkur við Réttarháls 1 í Reykja- vík var undirritaður í gær. Í til- kynningu frá Orkuveitunni segir að ÞG verktakar taki að sér fyrsta áfanga byggingarinnar sem er uppsteypa hússins, en þeir hafi átt tilboð í verkið upp á 559 milljónir króna. Nemur það tæp- um 82 prósentum áætlaðs kostn- aðar sem var 682 milljónir króna. Sjö verktakar gerðu tilboð í þennan verkhluta að und- angengnu forvali. Gert er ráð fyrir að húsið verði tilbúið í júní árið 2002 en áætluð verklok fyrsta áfanga eru í janúar sama ár. Hönnuðir hússins voru valdir að undangenginni samkeppni en þeir eru Ingimundur Sveinsson og Ögmundur Skarphéðinsson. Húsið verður 14.200 fermertar og er áætlaður heildarkostnaður við bygginguna rúmir 2 milljarðar króna. Orkuveitan er nú með starf- semi á þremur stöðum í borginni en ákvörðunin um að færa starf- semina undir eitt þak var tekin við sameiningu rafmagns-, hita- og vatnsveitu. Morgunblaðið/Sigurður Jökull Samningurinn handsalaður: Sigfús Jónsson og Þorvaldur Gissurarson fyrir hönd ÞG verktaka og Alfreð Þor- steinsson ásamt Ásgeiri Margeirssyni fyrir hönd Orkuveitunnar. Nýjar höfuðstöðvar Orkuveitunnar NEFND sem meta á hvort og með hvaða hætti mögulegt sé að koma á sjálfbæru orkusamfélagi í Grímsey hefur verið skipuð af iðn- aðarráðherra. Nefndinni hefur verið falið að koma með tillögur um mögulegar leiðir og gera ítar- lega grein fyrir hagkvæmni við- komandi kosta út frá umhverfis- legum, tæknilegum og fjárhagslegum forsendum. Gert er ráð fyrir að tillögur nefndarinnar liggi fyrir eigi síðar en 15. febrúar 2002. Í nefndinni eiga sæti Hjálmar Árnason alþingismaður, sem jafn- framt er formaður hennar, Þor- steinn I. Sigfússon prófessor, Örn Helgason prófessor, Helga Tul- inius, jarðeðlisfræðingur hjá Orkustofnun, og Árni Ragnarsson, verkfræðingur hjá Orkustofnun. Stefnt að sjálfbæru orku- samfélagi í Grímsey

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.