Morgunblaðið - 14.07.2001, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 14.07.2001, Blaðsíða 19
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2001 19 MICROSOFT-hugbúnaðarfyr- irtækið bandaríska hefur nú náð samkomulagi við stjórnvöld í Nýja Mexíkó, sem er eitt 19 ríkja Bandaríkjanna sem hafa lögsótt Microsoft fyrir meinta misnotkun markaðsráðandi stöðu. Tilkynntu talsmaður Microsoft og fulltrúi saksókn- araembættisins í Nýja Mexíkó þetta á fimmtudagskvöld. En aðrir gagnrýnendur Microsoft voru ekki á því að þau fyrirheit sem talsmenn Microsoft gáfu til að fá lögsókn Nýju Mexíkó fellda niður væru fullnægjandi. Í samkomulaginu lofar Micro- soft því að breytingar verði gerðar á Windows-tölvustýri- kerfinu sem eigi að gera auð- veldara að nota með því aðra netvafra en Internet Explorer- forritið frá Microsoft. Lesbía fæðir barn bróður RÚMLEGA fimmtug lesbía í Bandaríkjunum fæddi nýlega barn sem bróðir hennar er faðir að og getið var með tækni- frjóvgun. Eftir að þetta fréttist hefur röddum fjölgað sem halda því fram að verið sé að misnota aðgerðir tæknifrjóvg- unar. Fyrir nokkrum vikum fæddi 62 ára gömul kona í Frakklandi barn sem bróðir hennar er faðir að. Læknar við Columbia-háskóla í Washing- ton komu frjóvguðu eggi fyrir í bandarísku konunni „svo að hún gæti átt barn sem deildi genamengi með henni sjálfri,“ eftir því sem greint var frá í læknisfræði-vefritinu Reprod- uctive Biomedicine Online. Sjöburar fæddir Á SJÚKRAHÚSI í Washing- ton komu sjöburar í heiminn síðdegis á fimmtudag. Fimm drengir og tvö stúlkubörn voru tekin með keisaraskurði, en móðirin hafði gengið með þá í 28 vikur. Aðeins er vitað til tveggja annarra sjöbura, sem lifað hafa, fæddir í Sádi-Arabíu árið 1998 og í Iowa í Bandaríkj- unum árið 1997. Gervihnettir á ranga braut ARIANE 5-eldflaug evrópsku geimferðastofnunarinnar (ESA) flutti í gær tvo gervi- hnetti á sporbaug um jörðu, en vegna bilunar skilaði hún þeim ekki á rétta braut. Talsmenn ESA sögðu hugsanlegt að hægt væri að stýra þeim inn á rétta braut með hjálp sólarorku og eigin stýrihreyfla gerfihnatt- anna, en það kann að stytta nýt- anlegan líftíma þeirra. Önnur kona grýtt FREGNIR af því að ung kona hafi verið grýtt til bana í Íran í vikunni hafa kallað á mótmæli víða um heim, en þetta er í ann- að sinn sem fregnast af slíkri aftöku í Íran á tveimur mánuð- um. Íranskir fjölmiðlar greindu frá því að konan, hin rúmlega þrítuga Maryam Ayyubi, hafi verið grýtt til bana í dögun sl. miðvikudag. Konan hafði verið dæmd til dauða fyrir að hafa verið samsek ástmanni sínum að morði á eiginmanni hennar. STUTT Microsoft semur KAÞÓLSKIR óeirðaseggir börðust við lögreglumenn í Belfast í fyrri- nótt eftir að göngutíð Óraníumanna á Norður-Írlandi hafði náð hámarki. Að minnsta kosti 113 lögreglumenn særðust í átökunum og tugir óeirða- seggjanna. Eru þetta mestu óeirðir í fimm ár í tengslum við árlegar göngur Óraníumanna. Óeirðirnar blossuðu upp nokkrum klukkustundum eftir að tugir þús- unda mótmælenda höfðu tekið þátt í göngum Óraníureglunnar sem haldnar eru til að minnast sigurs hersveita Vilhjálms III (af Óraníu) á sveitum kaþólikka árið 1690. Nokkrar göngurnar voru nálægt svæðum kaþólikka og á nokkrum þeirra voru hrópuð vígorð gegn kaþólikkum. Óraníumenn lýsa göngunum sem hátíðahöldum til að vegsama menn- ingararfleifð mótmælenda á Norð- ur-Írlandi. Kaþólikkar lýsa þeim hins vegar sem einskærri ögrun. Óeirðirnar hófust í fyrrakvöld þegar göngumenn fóru framhjá einu af hverfum kaþólikka í Belfast. Um það bil 200 kaþólikkar reyndu að stöðva gönguna og börðust við lög- reglumenn sem stíuðu hópunum sundur. Óeirðaseggirnir köstuðu bensínsprengjum og múrsteinum á lögreglumennina sem beittu vatns- þrýstibyssum og skutu plastkúlum. Nítján lögreglumenn særðust allal- varlega, þeirra á meðal tveir sem urðu fyrir bensínsprengjum. Óeirðaseggirnir stálu einnig um það bil tólf bílum og kveiktu í þeim. Viðræður um heimastjórnina hafnar að nýju Óeirðunum lauk um morguninn, nokkrum klukkustundum áður en forsætisráðherrar Bretlands og Ír- lands hófu að nýju viðræður við leið- toga norður-írsku stjórnmálaflokk- anna til að reyna að bjarga heima- stjórn Norður-Írlands. Náist ekki samkomulag um áframhaldandi stjórnarsamstarf flokka mótmæl- enda og kaþólikka fyrir 12. ágúst þarf breska stjórnin annaðhvort að boða til þingkosninga á Norður-Ír- landi eða leysa heimastjórnina upp. Viðræðurnar fara fram í Weston Park, höfðingjasetri á Mið-Eng- landi. Forsætisráðherrarnir lögðu áherslu á að ekki yrði hægt að bjarga heimastjórninni nema Írski lýðveldisherinn (IRA) lofaði að hefja afvopnun. Leiðtogar mótmæl- enda segjast ætla að ganga úr heimastjórninni hefji IRA ekki af- vopnun þegar í stað. „Göngutíðin“ á Norður-Írlandi ekki verið ofbeldisfyllri í fimm ár Á annað hundrað lög- reglumanna særðist AP Óeirðaseggir kasta flöskum, múrsteinum og bensínsprengjum að lögreglumönnum í norðurhluta Belfast. Belfast. AP. VARNARMÁLARÁÐUNEYTI Bandaríkjanna hefur gert áætlanir um að flýta tilraunum með eldflauga- varnarkerfi sem ætlað er að geta leitað uppi og grandað kjarnorkueld- flaugum sem skotið er að landinu. Fulltrúar demókrata í varnarmála- nefnd öldungadeildar Bandaríkja- þings hafa lýst yfir áhyggjum sínum með að tilraunirnar og kerfið sjálft brjóti gegn ákvæðum alþjóðasamn- inga. Í gildi er svokallaður ABM- sáttmáli sem Bandaríkin gerðu við Sovétríkin þáverandi árið 1972. Hann kveður á um bann við búnaði sem ætlað er að granda langdrægum kjarnorkuvopnum. Samningnum var á sínum tíma ætlað að hemja vígbún- aðarkapphlaupið milli kaldastríðs- stórveldanna tveggja og óttast margir að áætlanir Bandaríkja- stjórnar muni hleypa nýju slíku kapphlaupi af stað. Vilja semja um breytingar Aðstoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Paul Wolfovitz, sagði á fimmtudaginn að Banda- ríkjastjórn myndi reyna að semja við Rússa um breytingar á ABM-samn- ingnum og sagði að uppi væru hug- myndir um að fækka kjarnavopnum Bandaríkjanna um 1.000 sprengju- odda, eða einn sjöunda hluta kjarn- orkuvopnaforða landsins. Vonast Bandaríkjamenn til þess að þessi niðurskurður muni gera Rússa mót- tækilegri fyrir breytingum á samningnum. Hann sagði einnig að líklega myndu tilraunirnar brjóta gegn ákvæðum ABM-samningsins, og að það myndi gerast á næstu mánuðum. Varnarmálaráðherrann, Donald Rumsfeld, sagði hins vegar að til- raunirnar væru undir miklu eftirliti og að þær myndu ekki brjóta gegn samningnum. Hann sagði jafnframt að samningurinn hefti raunverulega þróun á þessu sviði. Rússar senda viðvörun Stjórnvöld í Rússlandi sendu í gær bréf til Washington þar sem þau vör- uðu við því að áætlanir Bandaríkja- stjórnar stefndu valdajafnvægi í heiminum í hættu og myndu hleypa af stað nýju vígbúnaðarkapphlaupi. „Heimurinn mun þurfa að búa við nýjar aðstæður þar sem samningur- inn um bann við útbreiðslu kjarn- orkuvopna er ónýtur,“ sagði hernað- arráðgjafi Vladimírs Pútín, forseta Rússlands. Bandaríkin hraða eldflaugatilraunum Varað við nýju vígbúnaðar- kapphlaupi Washington, Moskvu. AP, AFP. IRA Einhorn, sem franskur áfrýjunardómstóll úrskurðaði á fimmtudag að skyldi framseldur til Bandaríkjanna, var á „hippa- tímanum“ í kring um 1970 áber- andi málsvari róttækra friðar- sinna. Hann flýði frá Bandaríkjunum 1981, skömmu áður en hann átti að koma fyr- ir dómstóla vegna morðs á unnustu sinni, Holly Maddux. Lík hennar fannst í kistu í skáp í íbúðinni sem hún deildi með Einhorn í borginni Phila- delphia. Líkið hafði þá verið í kistunni í hálft annað ár. 1993 var kveðinn upp sá úrskurður í Bandaríkjunum, að Einhorn fjar- stöddum, að hann skyldi sæta lífstíðar fangelsisvist fyrir morð- ið. Árið 1999 úrskurðari annar bandarískur dómstóll að Einhorn væri skylt að greiða ættingjum hinnar myrtu 907 milljónir doll- ara, andvirði um 91,6 milljarða króna, í miskabætur fyrir morðið. Bandaríkjamenn fóru fyrst fram á að hann yrði framseldur 1997, eftir að lögregla hafði uppi á honum í þorpinu Champagne- Mouton í Suðvestur-Frakklandi. Einhorn hefur neitað því að hafa myrt Maddux og segir að stjórn- völd standi að samsæri gegn sér. Einhorn var á árum Víetnam- stríðsins áberandi baráttumaður friðarhreyfingarinnar. Hann seg- ist sjálfur hafa flúið Bandaríkin á sínum tíma vegna þess að hann teldi vonlaust að hann fengi þar sanngjörn réttarhöld, þar sem hann hafði skipulagt fjöldamót- mæli gegn þátttöku Bandaríkja- manna í Víetnam-stríðinu. Skömmu eftir að framsalsúr- skurðurinn var kveðinn upp á fimmtudaginn gerði Einhorn til- raun til að fyrirfara sér með því að skera sig á háls, að því er lög- fræðingur hans sagði, en ákvað síðan að hann vildi lifa. Það var að ráði Mannréttindadómstóls Evrópu sem framsalinu var frest- að um viku, svo að fulltrúum dómstólsins gæfist svigrúm til að skoða málið betur. Flóttamaðurinn Ira Einhorn Hippaleiðtogi sem dæmdur var fyrir morð Champagne-Mouton í Frakklandi. AP. Ira Einhorn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.