Morgunblaðið - 14.07.2001, Síða 26

Morgunblaðið - 14.07.2001, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. ÞAÐ hefur væntanlegaekki farið framhjá nein-um að Slobodan Milos-evic, fyrrverandi forseti Júgóslavíu, var framseldur til Al- þjóðastríðsglæpadóm- stólsins í Haag þann 28. júní síðastliðinn. Hefur Milosevic verið ákærður fyrir að hafa borið ábyrgð á ýmsum voðaverkum sem unn- in voru í Kosovohéraði árið 1999 af lögreglu- sveitum og her Serbíu og Sambandslýðveld- isins Júgóslavíu. Jónatan Þórmunds- son er prófessor í refsirétti við lagadeild Háskóla Íslands. Hann hefur stundað rannsóknir í alþjóðleg- um refsirétti og hefur kennt þá grein ásamt samanburðarrefsirétti um nokk- urra ára skeið. Hann er nýkominn heim úr ferðalagi um Ástralíu og Nýja-Sjáland þar sem hann hélt nokkra fyrirlestra um efnið. Um dómstólinn Alþjóðlegi stríðsglæpadómstóll- inn sem fjallar um alvarleg brot á alþjóðlegum mannúðarreglum var stofnaður árið 1993 með ákvörðun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og skal hann dæma um ætlaða glæpi sem framdir voru í fyrrum Júgóslavíu allt frá árinu 1991. Lög- saga hans er því bundin við þetta tímabil og þetta tiltekna landsvæði. Samsvarandi dómstóll var settur á laggirnar árið 1994 til þess að fjalla um ætlaða alþjóðaglæpi í Rúanda. „Þessum dómstólum má ekki rugla saman við Alþjóðlega sakamála- dómstólinn sem enn er ekki tekinn til starfa. Stofnskrá þess dómstóls var samþykkt í Róm árið 1998 og er það varanlegur dómstóll með mun víðtækari lögsögu í tíma og rúmi,“ segir Jónatan. Er dómstóllinn pólitískur? Eftir framsal Milosevic hefur mikið verið fjallað um dómstólinn og sýnist sitt hverjum. Vilja sumir meina að hann sé lítið annað en pólitískt verkfæri og að lítið jafn- ræði sé í því hverjir eru sóttir til saka. „Stofnun dómstólsins var að sjálfsögðu pólitísk ákvörðun á sín- um tíma, en hann hefur sýnt það í dómum sínum og störfum að um er að ræða sjálfstæðan, óhlutdrægan dómstól“, segir Jónatan. „Dómstóllinn er að sjálfsögðu ekki gallalaus, en þegar á heildina er litið hefur hann unnið afar gott starf og hefur reynt að gæta fyllstu óhlutdrægni í málsmeðferð sinni og dómum,“ bætir hann við. „Eins og í einstökum ríkjum er það að ein- hverju leyti tilviljanakennt hverjir nást og eru dregnir fyrir dóm. Sumir gefa sig fram en aðrir leita allra leiða til að komast hjá hand- töku.“ Jónatan segir hins vegar að þegar til alþjóðadómstólsins sé komið sitji allir við sama borð. „Dómstóllinn hefur verið óragur við að sýkna menn ef ástæða hefur þótt til og hefur gert ríkar sönn- unarkröfur í málum.“ Ef eitthvað megi finna að starf- semi dómstólsins, segir Jónatan, þá sé það fyrst og fremst á sviði rétt- arfars. Samstarf saksóknara og dómara sé helst til náið, til dæmis þjóni sama skrifstof- an báðum embættum. Eins má segja að það sé óeðlilegt að dóm- stóllinn hafi svo mikil afskipti af útgáfu ákæruskjala sem raun ber vitni. „Það væri meira í samræmi við jafnræðisreglu réttarfars að skilja þarna alveg á milli embættanna tveggja.“ Að sögn Jónatans má finna að því, að áð- ur en endanleg ákæra er gefin út eru haldin nokkurs konar for- réttarhöld, þar sem dómararnir taka afstöðu til þess hvort fyrirliggjandi gögn í máli réttlæti útgáfu ákæru. „Færa má fyrir því rök að með því hafi dóm- urinn þegar tekið nokkra afstöðu til sektar sakbornings og séu því dóm- ararnir vanhæfir til að fjalla um málið þegar það kemur fyrir þá að nýju. Dómstóllinn hefur þó komist að annarri niðurstöðu og hafnað þessu sjónarmiði. Athuga ber þó, að þessi málsmeðferð tengist al- þjóðlegum handtökuskipunum sem dómstóllinn gefur út hafi ekki náðst til hinna grunuðu.“ Jónatan segir slíka réttar- farshnökra að nokkru leyti skiljan- lega. Þegar dómstóllinn var settur á stofn var hann fyrsti dómstóll sinnar tegundar frá því að Nürn- bergréttarhöldin fóru fram eftir heimsstyrjöldina síðari. Frá því að Haagdómstóllinn var settur á lagg- irnar hafa menn lært margt og vita nú betur hvernig gera á hlutina. Þessi þekking nýttist svo þegar Rómarsamþykktin um Alþjóðlega sakamáladómstólinn var gerð árið 1998. Dómararnir við Haagdóm- stólinn eru hins vegar bundnir af samþykktunum um þann dómstól frá 1993 þótt þær séu barn síns tíma og ekki jafnítarlegar og þróað- ar eins og Rómarsamþykktin. Á móti kemur hins vegar, að með dómum Haagdómstólsins hafi mörg atriði skýrst nánar og þróast til betri vegar. Jónatan segir að Alþjóðastríðs- glæpadómstóllinn í Haag fjalli ekki um alla alþjóðlega glæpi heldur að- eins þá sem teljast glæpir gegn mannkyninu. Þessa glæpi má flokka í þrennt: Stríðsglæpi, glæpi gegn mannúð og hópmorð. Í fyrsta lagi eru það stríðsglæpir. Þeir skiptast í brot gegn alþjóðleg- um mannúðarreglum annars vegar og brot gegn reglum og venjum um stríðsrekstur hins vegar. Til hinna fyrrnefndu teljast brot á Genfar- samningunum frá 1949 og viðbót- arsamningunum frá 1977 sem fjalla m.a. um meðferð særðra og sjúkra hermanna óvinaríkis á vígvelli, meðferð stríðsfanga og vernd óbreyttra borgara. Ákvæði um brot á reglum og venjum um stríðs- rekstur fjalla hins vegar um þær aðferðir og vopn sem óheimilt er að beita í stríði. Undir þet notkun á eiturefna- eða sý um, árásir á varnarlaus þ og borgir, ónauðsynleg ey mannvirkja án þess að hú af hernaðarnauðsyn og rán deildir á eignum almennra Í öðru lagi eru það glæ mannúð, sem fjölmiðlar saman við heildarhugtak gegn mannkyni. Glæp mannúð eru glæpir sem hluti af víðtækri eða kerfis atlögu gegn óbreyttum b hvort sem er gegn borgur ríkis eða annarra ríkja. nefna morð, nauðganir, na vinnu, frelsissviptingu, p brottvísun úr heimahö nauðungarflutninga. Und falla líka ofsóknir af stjórn um, trúarlegum eða þjóð um toga. Þriðji flokkurinn er hóp ensku heitir þessi glæpur og er því stundum einnig þjóðarmorð. Skilgreining samninga á hópmorði geri ir að það beinist að því a með öllu eða að hluta þjóð, þjóðernishópi, kynþ trúflokki sem slíkum. Au lagðra morða á einstak slíkum hópum falla undir s inguna eftirfarandi aðge valda alvarlegum líkamle andlegum skaða, að búa svo erfið kjör að honum hætta af, að beita þvin gerðum sem miða að því a veg fyrir barnsfæðinga hópsins eða flytja börn me hópnum til annars hóps. Ákæran Ákæran á hendur Milo nokkrum liðum. Hann er fyrir glæpi gegn mannúð glæpi með brotum á re venjum um stríðsrekstur. talinn hafa skipulagt, fyr ýtt undir eða á annan hát að nauðungarflutningum stíl á Kosovo-Albönum, m fjölmörgum einstaklingum bönskum uppruna og ofsó stjórnmálalegum, trúarle þjóðernislegum toga gegn um albönskum borgurum Segir í ákærunni að glæp verið hluti af víðtækri eð bundinni atlögu sem beint ið gegn óbreyttum al borgurum í Kosovo-héraði Ýmsir kostir á máls Milosevic hefur ekki e ákærður fyrir hópmorð. getur komið að hann verði fyrir þátt sinn í Bosníustrí unum 1991-1995 auk glæpaverka í Kosovo. Er sennilegt að mati Jónatan morði verði bætt við ákær Málið gegn Mil markar tíma Slobodan Milosevic, fyrrverandi Júgóslavíuforseti, hefur verið sakaður um að hafa átt aðild að ýmsum voðaverk- um sem framin voru í Kosovo-héraði árið 1999. Bjarni Ólafsson ræddi við Jónatan Þórmundsson lagaprófessor um væntanlegt dómsmál á hendur forsetanum fyrrverandi. Öryggisvörður leiðir glæpadómstóls SÞ hinn sem honum voru birtar Jónatan Þórmunds- son prófessor FJAREFTIRLIT FEÐRAORLOF SLÖKKVILIÐSMANNA Lenging fæðingarorlofs og til-koma feðraorlofs eru meðalmestu framfaraskrefa í ís- lensku samfélagi á síðustu áratugum. Ekki aðeins hefur orlofið verið lengt þannig að réttindi íslenskra foreldra munu verða á við það sem best gerist í heiminum er lögin um foreldra- og fæðingarorlof, sem sett voru í fyrra, hafa að fullu komist í framkvæmd árið 2003, heldur hefur staða foreldra verið jöfnuð að því leyti að þau munu hafa jafnan rétt til orlofs með nýfæddu barni. Á bak við þessi tímamótalög lá margra ára umræða sem leiddi til al- menns skilnings á mikilvægi jafnréttis og góðra tengsla beggja foreldra við börn sín á fyrstu mánuðum lífs þeirra. Víðtæk samstaða var og um setningu laganna á Alþingi þótt ljóst væri að þau myndu hafa mikinn kostnað í för með sér fyrir hið opinbera og almenn- an atvinnurekstur. Í ljósi alls þessa skýtur það skökku við að borgarráð hefur nú beint þeim tilmælum til Slökkviliðs höfuðborgar- svæðisins að leita allra leiða „til að lág- marka útgjaldaauka vegna fæðingar- orlofs feðra“, eins og fram kom í frétt Morgunblaðsins á fimmtudaginn. Slökkviliðið fór fram á aukafjárveit- ingu í síðustu viku vegna áhrifa nýrra laga um feðraorlof á fjárhagsstöðu Slökkviliðsins. Á þriðjudaginn var hins vegar ný fjárhagsáætlun sam- þykkt með fyrrnefndum tilmælum. Slökkviliðið er karlavinnustaður, eins og Hrólfur Jónsson slökkviliðs- stjóri bendir á í fréttinni, og hefur kostnaður vegna fæðingarorlofa ekki verið fyrir hendi. Á þessu ári hafa þrettán pabbar aftur á móti nýtt sér rétt til feðraorlofs og stefnir í að þeir verði orðnir tuttugu í lok árs. Tilmæli borgarráðs orka tvímælis þar eð þau verða ekki skilin öðruvísi en svo að takmarka eigi rétt starfs- manna hjá Slökkviliðinu til feðraorlofs því varla er hægt að lágmarka kostnað vegna þess með öðrum hætti. Að auki lýsa þau litlum skilningi á tilgangi og mikilvægi laganna. Góð og náin tengsl barns við foreldra á fyrstu mánuðunum og misserunum geta skipt sköpum um andlegan, tilfinn- ingalegan og félagslegan þroska þess, eins og rannsóknir hafa sýnt fram á. Það er sömuleiðis mikilvæg stoð jafn- réttis, bæði á heimili og vinnumarkaði, að foreldrar eigi möguleika á að taka jafnan þátt í uppeldi barna sinna. Með lögunum er því hlúð að börnunum og fjölskyldunni sem grunneiningum samfélagsins um leið og staða kynjanna er jöfnuð verulega. Það er varla ætlun borgarráðs að hætta þessum miklu hagsmunum með einum eða neinum hætti. Það liggur fyrir að allur atvinnurekstur verður að laga sig að hinum nýju lögum en jafn- framt liggur í augum uppi að þau verða öllum til hagsbóta þegar upp verður staðið. Það er merkileg nýjung að hægt séað fylgjast með ferðum fiski- skipa með fjareftirlitskerfi, eins og komið hefur í ljós í máli norsku loðnuskipanna. Öll rök virðast mæla með því að slíkum búnaði verði kom- ið fyrir í öllum íslenzkum skipum. Í samtali við Morgunblaðið í gær lýsti Hafsteinn Hafsteinsson, for- stjóri Landhelgisgæzlunnar, þessum búnaði á þennan veg: „Við getum séð nákvæma staðsetningu skipanna og á hvaða hraða skipið siglir, sem get- ur gefið vísbendingar um, hvort til- efni sé til nánara eftirlits.“ Það er ánægjulegt í þessu sam- bandi, að búnaður þessi er íslenzkur. Um það sagði Gylfi Geirsson, for- stöðumaður fjarskipta- og upplýs- ingatækni Landhelgisgæzlunnar, í samtali við Morgunblaðið í gær: „Það er gaman að geta þess, að tölvu- kerfin og allur hugbúnaður, sem er notaður hér, í Færeyjum, í höfuð- stöðvum NEAFC í London og verið er að setja upp í Kanada, er hann- aður hér á Íslandi.“ Hér er um að ræða búnað frá fyrirtækinu Stefju. Það er augljóst að búnaður af þessu tagi auðveldar störf Landhelg- isgæzlunnar. Æskilegt er að sam- komulag takist á milli þeirra þjóða, sem stunda fiskveiðar á Norður-Atl- antshafi að búnaði þessum verði komið fyrir í öllum skipum, sem stuðlar þá að traustari eftirliti með að fiskveiðimörk séu virt. En það er ekki síður mikilvægt að slíkur fjareftirlitsbúnaður skapar stóraukið öryggi fyrir íslenzk skip, bæði fiskiskip og kaupskip. Ef bún- aðurinn er til staðar í öllum skipum er hægt að sjá samstundis hvaða skip eru næst skipi, sem lenda kann í erf- iðleikum og er því hægt að beina nærstöddu skipi þangað þegar í stað. Með þessum hætti er hægt að auka mjög öryggi sjómanna í störfum þeirra á hafi úti. Íslenzka þjóðin hefur orðið fyrir miklum áföllum á undanförnum ára- tugum og öldum þegar skip hafa lent í sjávarháska. Fjölmargar fjölskyld- ur þekkja dæmi um það úr sögu tveggja til þriggja síðustu kynslóða að fjölskyldumeðlimir hafa farizt í sjóslysum. Þess vegna hefur alltaf verið lögð gífurleg áherzla á að tryggja sem bezt öryggi sjómanna. Á þessu hefur orðið gjörbreyting á nokkrum síð- ustu áratugum. Skipin eru sterk- byggðari og öruggari en nokkru sinni fyrr. Slysavarnafélagið og ein- stakar deildir þess hafa unnið starf á þessu sviði sem aldrei verður full- þakkað. Nú hafa miklar tækniframfarir skapað alveg nýja vídd í öryggismál- um sjómanna. Kostirnir við að koma búnaði þessum fyrir í öllum íslenzk- um skipum eru augljósir. Þess vegna á að gera ráðstafanir strax til þess að því verði hrint í framkvæmd.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.