Morgunblaðið - 14.07.2001, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 14.07.2001, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2001 27 tta fellur ýklavopn- þorp, bæi yðilegging ún helgist n og grip- a borgara. æpir gegn rugla oft ið glæpir pir gegn m teljast sbundinni borgurum rum eigin Þar má auðungar- pyntingar, ögum og dir þetta nmálaleg- ðernisleg- pmorð. Á genocide g nefndur g alþjóða- ir ráð fyr- að útrýma tiltekinni þætti eða uk skipu- klingum í skilgrein- erðir: Að egum eða a hópnum stafi lífs- ngunarað- að koma í ar innan eð valdi úr osevic er í ákærður og stríðs- eglum og . Hann er rirskipað, tt stuðlað í stórum morðum á m af al- óknum af egum eða n óbreytt- í Kosovo. pirnir hafi ða kerfis- t hafi ver- lbönskum i. svörn enn verið Til þess i ákærður íðinu á ár- meintra r þá mjög ns að hóp- uatriðin. Þegar Jónatan er spurður að því hvaða vörnum sé líklegt að Milos- evic beiti fyrir sig í málinu, nefnir hann ýmsa mögulega kosti, eftir at- vikum til sýknu eða málsbóta: „Í fyrsta lagi hefur Milosevic þegar haldið því fram að dómstóll- inn sé ólöglegur og hafi því ekki lögsögu í málinu. Í öðru lagi er mjög sennilegt að hann telji dóm- ara frá Nato-ríkjum vanhæfa til að fjalla um málið. Í þriðja lagi getur hann borið fyrir sig að framsal hans hafi verið ólölegt. Í fjórða lagi er líklegt að við efnismeðferð málsins muni Milosevic neita því að hafa komið nálægt grimmdarverkum eða hafa fyrirskipað þau eða stuðl- að að þeim með öðrum hætti, eða þá að hann heldur því fram að lög- reglusveitirnar hafi beinlínis brotið gegn löglegum skipunum yfir- manna sinna þegar þeir fram- kvæmdu glæpaverkin, og hann hafi ekki fengið við neitt ráðið. Í fimmta lagi kann Milosevic að bera fyrir sig að neyðarástand í Kosovo hafi knúið her og lögreglu til harðra að- gerða sem stundum hafi farið úr böndum. Að lokum kann hann að bera fyrir sig þá gömlu reglu stríðsréttar, að ríki megi hefna fyr- ir árásir annarra ríkja og því megi líta á aðgerðir júgóslavneskrar lög- reglu og hers sem hefndaraðgerðir fyrir loftárásir Nato.“ Að því er fyrsta atriðið varðar, þ.e. ólögmæti dómstólsins, segir Jónatan að þessi fullyrðing sé byggð á því að dómstóllinn var ekki stofnaður af Allsherjarþingi Sam- einuðu þjóðanna eða alþjóðlegri ríkjaráðstefnu, eins og æskilegt hefði verið, heldur af Öryggis- ráðinu. Menn mátu það svo á sínum tíma að ekki væri nægilegt ráðrúm til að fara í gegnum það ferli sem slík ákvörðun krefðist. Dómstóllinn hefur hins vegar þegar tekið á þessu álitamáli og fer nú ekki leng- ur á milli mála að hann er lögmætur og hefur lögsögu í málinu. Jónatan efast um að framsal Mi- losevic til Haag og deilurnar um lögmæti þess muni hafa áhrif á nið- urstöðu dómsins. „Það má vel vera að framsalið hafi verið brot á júgó- slavneskum lögum, en Milosevic virðist hafa verið framseldur af þar til bærum stjórnvöldum í Júgóslav- íu og er framsalið því tæpast í and- stöðu við reglur þjóðaréttar.“ Að því er varðar neyðarástand í Kosovo sem varnarástæðu, er það mat Jónatans að líklegt megi telja að ástandið þar hafi fyrst og fremst mátt rekja til aðgerða lögreglu- sveita og hers Júgóslavíu fremur en skæruliða Albana, enda sé óhjá- kvæmilegt að líta til síversnandi ástands næstu árin á undan þegar Albanir voru sviptir fyrra pólitísku sjálfræði og æ meira að þeim þrengt. Jónatan segir hefndarregluna svokölluðu líklega gilda enn í þjóða- rétti, þótt hart sé að búa undir, en hún eigi ekki við í þessu máli. Of- sóknir á hendur albönskum borg- urum í Kosovo höfðu staðið í nokk- urn tíma áður en til loftárása Nato kom. Ofsóknirnar og voðaverkin voru einmitt ástæða þess að Nato greip til þess ráðs að beita vopna- valdi gegn Júgóslavíu. Hann segir það jafnframt ljóst að gagnaðgerðir eða hefndaraðgerðir verði að bein- ast gegn árásaraðilanum, þ.e.a.s. Nato, en ekki albönskum borgur- um sem áttu engan þátt í loftárás- unum. Málaferlin munu væntanlega að mestu snúast um sönnunaratriði um það hvort Milosevic hafi borið ábyrgð á glæpaverkunum í Kosovo, annaðhvort með beinum athöfnum (skipulagningu, fyrirskipunum o.fl.) eða með refsiverðu athafna- leysi gagnvart glæpsamlegum at- höfnum undirmanna sinna, án þess að aðhafast nokkuð til að koma í veg fyrir þær. Sönnunarfærslan Það er hlutverk saksóknara að sýna nægilega fram á sekt sak- bornings, svo hafið sé yfir allan skynsamlegan vafa. Hann þarf að sanna að Milosevic hafi, beint eða óbeint, borið ábyrgð á þeim voða- verkum sem hann er ákærður fyrir. „Það er væntanlega ljóst að hann var ekki á þeim stöðum þar sem verkin voru framin, en það skiptir þó ekki máli þegar metið er hvort hann ber ábyrgð á þeim sem yf- irmaður. Auk þess segir í 7. grein samþykktanna fyrir dómstólinn, að hafi yfirmaður vitað eða mátt vita, að undirmaður hans væri í þann veginn að fremja stríðsglæp eða hefði þegar gert það, beri yfirmað- urinn refsiábyrgð á háttseminni hafi hann látið undir höfuð leggjast að koma í veg fyrir hana eða að refsa undirmanninum. Þetta þýðir með öðrum orðum að takist sak- sóknara að sýna fram á að Milos- evic hafi a.m.k. vitað af glæpum þeim sem framdir voru af serb- neskum lögreglusveitum í Kosovo og ekkert aðhafst til að afstýra þeim, þótt hann hefði getað það, þá geti dómstóllinn sakfellt hann fyrir athafnaleysisbrot.“ Jónatan bendir hins vegar á að völd Milosevic í Júgóslavíu hafi ver- ið svo algjör á þessum tíma að nán- ast sé óhugsandi að hann hafi ekki staðið að fyrirmælum um að óhæfu- verkin eða stuðlað að þeim á annan hátt. „Flestir glæpirnir voru framdir af sérsveitum lögreglu sem Milosevic hafði bæði formlegt og raunverulegt vald yfir og telja má afar ólíklegt að hinar skipulögðu aðgerðir sveitanna hafi verið fram- kvæmdar án vitundar og vilja hans.“ Líkleg málalok Jónatan segir vissulega líklegt að Milosevic verði sýknaður af ein- hverjum ákæruatriðum, en harla ósennilegt að hann verði sýknaður af þeim öllum. „Þau gögn sem ég hef kynnt mér benda eindregið til þess að glæpirnir hafi verið framdir að undirlagi Milosevic eða að minnsta kosti með vitund hans og vitneskju. Það virðist einnig ljóst að ofsóknirnar á hendur albönskum borgurum hafi verið vel skipulagð- ar með það í huga að flæma þá frá Kosovo og rýma þar fyrir Serbum í staðinn. Fyrst var fjöldamörgum Albönum sagt upp störfum, einkum í opinbera geiranum og allt gert til að þrengja kosti þeirra, að því er virðist í því skyni að fá þá til að flytjast brott. Þegar þetta bar ekki tilætlaðan árangur var gripið til æ alvarlegri og ofbeldisfyllri að- gerða.“ Jónatan telur að langur tími muni líða þar til niðurstaða fáist í málinu. „Milosevic á sér marga stuðningsmenn sem eru tilbúnir til að ljá honum liðsinni sitt af mis- munandi hvötum og ástæðum. Að- stæður við framsal hans urðu tví- mælalaust til þess að stuðningur við hann jókst, a.m.k. í bili. Mála- reksturinn tekur að líkindum nokk- ur ár þar til endanlegur dómur gengur í áfrýjunardeild réttarins.“ losevic amót bjarni@mbl.is Reuters r Slobodan Milosevic inn í réttarsal Stríðs- n 3. júlí sl. Milosevic svaraði ekki ákærunum r og var því litið svo á að hann neitaði þeim. SAMKVÆMT drögum að mats- áætlunum fyrir Núps- og Urr- iðafossvirkjanir í Þjórsá munu þær hafa áhrif á um 40 jarðir. Morgunblaðið ræddi við ábú- endur á þeim fjórum jörðum sem missa hvað mest land vegna virkj- ananna. Samkvæmt drögunum fara um sjö ferkílómetrar lands undir vatn vegna Urriðafossvirkjunar. Þá er miðað við að inntakslónið verði 51 m.y.s. en samkvæmt upp- lýsingum frá verkfræðistofunni Hniti hf. er líklegt að yfirborð lónsins verði nokkuð lægra. Á bæjunum Herríðarhóli og Þjórsártúni í Ásahreppi líst bænd- um illa á áætlanir um Urriðafoss- virkjun. „Við missum mikið land,“ sagði Renate Hanneman bóndi á Her- ríðarhóli. Verði hæð lónsins 51 m.y.s. eins og nú er gert ráð fyr- ir, telur hún að tæplega fjórð- ungur jarðarinnar, 88 hektarar, fari undir vatn. Þar af eru 18 hektarar tún. „Ef þeir bæta ekki land hér í nágrenninu þá er bú- skapur hér búinn að vera, það er mjög einfalt.“ Ferðamenn koma ekki til að horfa á mannvirki Á Herríðarhóli er rekin ferða- þjónusta sem stendur undir um þriðjungi af tekjum búsins. Re- nate telur að uppistöðulónið hljóti að hafa áhrif á þennan þátt bú- skaparins. „Túristar vilja hafa ósnortna náttúru hér á Íslandi. Þeir koma ekki til landsins til að horfa á einhver mannvirki,“ sagði hún. Talsvert væri farið með ferðamenn í reiðtúra meðfram Þjórsánni sem væri mjög falleg þar sem nú er gert ráð fyrir uppi- stöðulóni. Yrði af virkjun yrði það að sjálfsögðu ekki lengur hægt. Í landi Herríðarhóls er náttúru- leg, heit laug sem mundi fara í kaf. „Það er spurning hvernig á að bæta það. Að minnsta kosti ekki með því að setja heitan pott á sólpallinn,“ sagði Renate. Að- spurð um viðbrögð við áætlunum Landsvirkjunar sagði hún að ráða yrði leitað hjá lögfræðingi. Fyrirhugað stöðvarhús Urr- iðafossvirkjunar verður í landi Þjórsártúns. Karl Ölvisson bóndi segir að sökum þess hve jörðin liggi hátt muni lítið land fara undir vatn en því meira undir vegi og mannvirki. Við bætist að nýtt vegarstæði Suðurlandsvegar liggur um jörðina. „Mér líst illa á þetta sem bújörð á eftir,“ sagði Karl. Þá telur hann að virkjanirnar muni bitna á laxveiði í Þjórsá. Á sínum tíma hafi því verið haldið fram að virkjanir ofar í Þjórsá myndu bæta veiðina. „En það er miklu meiri skítur í ánni sem átti að vera miklu hreinni. Og meira segja man ég að það var talað um að þetta yrði stangveiðiá en það er nú langt frá því,“ sagði Karl. Netin hafi í sumar og fyrrasumar fyllst af allskyns gróðri og því ljóst að eitthvað væri að skolast fram landinu. Betra en Norðlingaöldulón Inntakslón Núpsvirkjunar mun ná yfir um 4 ferkílómetra svæði. Fossnes og Hagi I tapa mestu landi vegna virkjunarinnar. Hjalti Gunnarsson, bóndi í Fossnesi, sagði að léti Landsvirkjun af virkjunaráformum við Norð- lingaöldu væri hann tiltölulega sáttur við Núpsvirkjun. „Það er auðveldara að bæta hlutina í byggð en uppi á hálendi Íslands,“ sagði Hjalti. Aðspurður um hvernig sveit- ungum hans lítist á Núpsvirkjun sagði hann það misjafnt. Gnúp- verjar væru þó yfir höfuð frekar virkjanasinnaðir þó þeir væru flestir á móti Norðlingaöldulóni. „Maður missir þarna dálítið land og töluverðar malarnámur. Þetta breytir verulega útsýninu frá bænum. Það er svo eftir að sjá hvort það verði ljótara eða fal- legra.“ Hjalti taldi að um 10–15 hektarar færu undir vatn auk þess sem nýr vegur yrði lagður um landið. Alls færu um 2–3 hekt- arar af túnum á kaf. Hjalti minnti á að virkjun við Núp gæti leitt af sér gífurlega samgöngubót bæru menn gæfu til þess að nota stífluna sem brú yfir Þjórsá. Slíkt kæmi sveitunum beggja vegna Þjórsár til bóta. Kristmundur Sigurðsson bóndi á Haga I sagðist í gær ekki hafa kannað málið til hlítar enda á fullu í heyskap þessa dagana. „Okkur hefur ekki verið kynnt þetta að neinu marki,“ sagði Kristmundur. „Okkur líst ekkert alltof vel á þetta miðað við það sem við höfum séð af upp- dráttum. Hluti af okkar túnum fer auðsjánlega undir vatn og það rýrir afskaplega mikið okkar bú- setu hér.“ Ræktað land og hagar færu undir vatn auk þess sem nýtt vegarstæði tekur sinn toll. Þá yrði væntanlega talsverð rösk- un á meðan á framkvæmdum stendur. Á þriðjudag milli kl. 16 og 22 verða virkjunaráformin kynnt í Árnesi og hyggst Kristmundur leita frekari upplýsinga þá. „Ég vil mikið frekar virkja meira upp á hálendinu,“ sagði Kristmundur. Þar ætti að nýta aðstæður mikið meira en sleppa því að fara með virkjanir í byggð. Kynningarfundur verður hald- inn í Laugalandi í Holta- og Land- sveit kl. 16–22 á miðvikudag. Bændur við Þjórsjá um Núps- og Urriðafossvirkjanir Tún og beitilönd glat- ast og náttúra spillist Ljósmynd/Almenna verkfræðistofan hf. Vegurinn í Þjórsárdal fer að hluta undir inntakslón Núpsvirkjunar. Lónið verður um 4 ferkílómetrar að flat- armáli ef miðað er við að hæð þess verði 116 m.y.s. Kort/Hnit hf. Inntakslón Urriðafossvirkjunar verður um sjö ferkílómetrar að flat- armáli. Miðað er við að vatnsyfirborð verði 51 m.y.s. Líklegt er talið að yfirborðið verði nokkuð lægra.   ! " # !          ./  !"# $    $% &&                   # # %#" &#   '(  # '0 ) ) *&" #  +  %"  ,    "    '   ( ))*   +, 

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.