Morgunblaðið - 14.07.2001, Side 32

Morgunblaðið - 14.07.2001, Side 32
MINNINGAR 32 LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090. ✝ Þórður Gíslasonfæddist 16. júní 1940 í Mýrdal í Kol- beinsstaðahreppi. Hann lést á Sjúkra- húsi Akraness 6. júlí síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Gísli Þórðarson, hrepp- stjóri í Kolbeins- staðahreppi, og Guð- rún Guðjónsdóttir húsfreyja. Þau eru bæði látin. Eftirlifandi eigin- kona Þórðar er Kristín María Stef- ánsdóttir, f. 7. október 1943. Börn þeirra eru: Stefanía Hulda, f. 21. nóvember 1961, gift Gesti Úlfars- syni, f. 20. febrúar 1957, og eiga þau fjórar dætur; Guðrún, f. 11. júlí 1964, hún á þrjú börn og barnabarn; Guðbjörg Dagný, f. 25. júlí 1966, gift Kára Þór Rafnssyni, f. 13. desember 1962, og eiga þau fjögur börn; Gísli, f. 7. októ- ber 1969, giftur Ás- laugu Guðbrands- dóttur, f. 11. mars 1968, og eiga þau þrjá syni; og Hafdís Bára, f. 12. janúar 1974, sambýlismað- ur hennar er Fróði Ársælsson, f. 8. sept- ember 1965, og eiga þau eina dótt- ur. Útför Þórðar fer fram frá Kol- beinsstaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Elsku pabbi minn, nú ert þú farinn frá okkur. Þessi hræðilegi sjúkdóm- ur gekk hratt og örugglega til verks á aðeins einum og hálfum mánuði frá því að þú greindist með krabbamein. Það var alveg ljóst frá byrjun að sjúkdómurinn var ólæknandi, en ég hélt svo sannarlega að við hefðum meiri tíma, að meinið myndi ekki ná yfirhöndinni svona fljótt. Þér var greinilega ætlað annað hlutverk. Þú tókst veikindum þínum af æðruleysi eins og þinn var vaninn enda þurfti mikið til að koma þér úr jafnvægi. Þú varst alveg ótrúlegur í spítalaleg- unni, sagðir okkur að vera sterk saman og að þú værir svo hamingju- samur. Þú hugsaðir mjög vel um fjöl- skylduna þína, varst kletturinn sem við studdum okkur við og hjá þér fundum við fyrir miklu öryggi. Mamma og við systkinin vöktum yfir þér fjóra síðustu dagana, sem gaf okkur mikið, að fá að vera hjá þér elsku pabbi minn. Við reynum að vera sterk þótt það taki mikið á að horfa á eftir þér. Ég gleymi því aldrei hvað þú varst stoltur og hamingjusamur þegar þú varst að segja mér að þú og mamma væruð að fara í húsbílaferðir, þú ljómaðir í hvert skipti, og þegar þú varst að segja mér sögur um ferð- irnar sem þið höfðuð þegar farið í. Það var alveg unun að hlusta á sög- urnar úr ferðunum ykkar, þú sagðir svo skemmtilega frá. Svo kemur annað upp í huga mér á þessari stundu, það var þegar þú kallaðir okkur systurnar gimbrarnar þínar, mér þótti alltaf vænt um það. Svo þegar þú varst að lesa allar vísurnar sem þú samdir, það á eftir að vera gaman að glugga í þær og minnast þín með þeim. Einnig langar mig að minnast á það þegar ég var lítil. Þá var kind sem var lömuð og afi ætlaði að farga en mér þótti það svo sárt, grét yfir því dag og nótt þangað til þú, pabbi minn, tókst þá ákvörðun að reyna að hjálpa henni. Við settum hana í rólu á hverjum degi og hún fékk að vera í kjallaranum, svo eftir nokkra daga fékk hún máttinn í fæturna. Afi ætl- aði ekki að trúa þessu og gaf mér kindina, sem ég var búin að nefna Dolly. Árin á eftir átti hún alltaf þrjú lömb, þetta þótti mér alltaf vænt um. Svo var það fyrir mörgum árum að ég fékk að koma með þér upp á fjall á skytterí. Þú leyfðir mér að prófa að skjóta úr byssunni en þegar ég gerði það brá mér víst ansi mikið og sagði strax á eftir: Hey pabbi, skaut ég? Þessari setningu hefur þú aldrei get- að gleymt og hlegið mikið að henni. Pabbi minn, ég sakna þín svo sárt. Minning þín mun alltaf lifa í hjarta mér. Þín dóttir Dagný. Jæja elsku karlinn minn, þá ertu lagður af stað í langa ferðalagið! Það er ekki hægt að neita því að hér eftir ríkir mikill söknuður, en við sem eft- ir lifum verðum að læra að lifa með því. Þú styrktir okkur mikið síðustu dagana og ótrúlegt en satt þá heldur lífið áfram að ganga sinn vanagang en þú ert alltaf í hug og hjarta okkar allra. Það er margs að minnast þegar mikill og góður maður eins og þú kveður. Ég minnist þó sérstaklega þriggja vikna heimsóknar ykkar tveggja til Kaupmannahafnar fyrr á árinu. Ég er þakklát fyrir að þú dvaldir í þrjár vikur í stað einnar, eins og þú ætl- aðir þér. Þetta var yndislegur tími og við spjölluðum mikið og vel sam- an, skoðuðum bækur, hlustuðum á tónlist og villtumst um götur Kaup- mannahafnar. Ég man einnig eftir mínum yngri árum þar sem ég eyddi dágóðum tíma með þér á verkstæð- inu, stundum sópaði ég sag og lék mér að viðarkubbum sem þú lánaðir mér. Þú varst hagur og góður smið- ur og allt sem þú gerðir var nánast fullkomið, enda hafðir þú aldrei við pöntunum sem lágu fyrir á borðinu hjá þér. Einnig langar mig til þess að minnast á nokkrar húsbílaferðir sem ég, „yngsta gimbrin“, fékk að fljóta með í. Fyrsta ferðin sem ég fór með í var fyrir tæpum fimm árum, en þá lá leið okkar í Landmannalaugar. Þetta er eitt skemmtilegasta ferðalag sem ég hef upplifað, þú varst hrókur alls fagnaðar og gantaðist mikið. Einnig man ég eftir berjaferðinni og þá sér- staklega einu atriði þar sem þú komst við í Kaupfélagi Borgfirðinga, keyptir hollensk bláber og settir þau í mjólkurfernu ásamt rusli sem þú tíndir með. Svo sagðir þú við hús- bílafélagana að hér væri sko nóg af bláberjum og sýndir svo stoltur þinn afrakstur úr berjatínslunni enda báru þín bláber af öllum hinum. Já við hlógum oft vel og innilega og höfðum það gaman, enda varstu mikill húmoristi. „Að vera eða vera ekki“ er stóra spurningin í lífinu og ég held að þú hafir fundið svarið, en það er að vera þú sjálfur og það varstu svo sann- arlega, elsku pabbi minn. Þú gerðir þetta svo fallegt síðustu dagana og sagðir svo fallega hluti við okkur eftirlifandi, þú skildir meðal annars ekkert í því að við vorum hjá þér á morgnana þegar þú vaknaðir, en það var eitt það besta sem við höf- um upplifað, að vera hjá þér og fá tækifæri til þess að kveðja þig, segja þér frá því að við elskum þig. Elsku pabbi, ég veit að þú ert hjá góðu fólki núna og hefur það eflaust gott, það er alltaf auðveldara að sætta sig við orðinn hlut þegar viðkomandi er sjálfur sáttur. Ég kveð þig með fullt hjarta af fallegum minningum sem munu aldrei gleymast, veit að við munum hittast seinna í framtíðinni. Þín dóttir Hafdís Bára. Vinur minn, Þórður Gíslason, er fallinn frá langt fyrir aldur fram. Hann var sóttur af þeim sjúkdómi er fellir menn fljótt, en hann var æðru- laus til hinstu stundar. Með þessum kveðjuorðum minnist ég vináttu okkar frá sveitaárum mínum og síð- ar. Einkum er mér hugleikið hvernig hann kom fram við Maríu ömmu mína í Lækjarbug, en þar var hann ætíð aufúsugestur. Í Lækjarbug var ég sveitadrengur þar sem afi hans, Guðjón, var húsbóndi. Að leiðarlok- um vil ég hafa eftir orð móður minn- ar, Sigríðar, uppeldissystur móður hans, þegar við spurðum lát hans. Hann skapaði gleði hvar sem hann kom. Hvíldu í friði, kæri vinur. Kristínu konu hans, börnum þeirra og bræðr- um hans vottum við, ég og fjölskylda mín, okkar dýpstu samúð. Steingrímur Eiríksson. Í síðasta samtali okkar Þórðar þegar ég hitti hann á spítalanum stuttu fyrir andlát hans, sagði hann við mig að hann væri svo þakklátur fyrir að fá að deyja á þennan hátt. Hann væri þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að hafa eiginkonu sína og öll börnin sín í kringum sig á þessari stundu og hefði fengið tækifæri til að kveðja alla sem voru honum kærast- ir. Honum þótti mikið lán að vera ekki hrifinn burtu í slysi án þess að fá tækifæri til að undirbúa aðstand- endur sína. Honum tókst með ein- hverju móti á þessum klukkutíma sem ég var hjá honum að sætta mig við það sem koma skyldi og minnti mig á það að þegar hann liti yfir líf sitt þá gæti hann ekki óskað sér að neitt hefði verið öðruvísi en það raunverulega var. Hann var fullkom- lega sáttur við líf sitt. Einhvern veg- inn leið mér betur þegar ég fór út af sjúkrahúsinu þennan dag heldur en þegar ég kom inn á það, þrátt fyrir þau sorgartíðindi sem ég vissi að væru í vændum. Þessi sátt hans við lífið og jafnvel endalok þess og hvernig hann lagði sig fram við að gera aðra jafn sátta og hann var sjálfur, var ef til vill lýsandi fyrir þann persónuleika sem Þórður hafði að geyma. Jákvæði hans og mann- gæska lét öllum í návist hans líða vel svo ekki sé talað um kankvísina og skopskynið, sem gerði það að verk- um að oftar en ekki sá hann spaugi- legu hliðar málanna. En þrátt fyrir að Þórður hafi skil- ið sáttur við, er mikill missir og söknuður af því að hitta hann ekki lengur á vappi á Mýrdalshlaðinu, ræða við hann um ýmsar hliðar lífs- ins og tilverunnar, pólitík eða bara hvað þyrfti að gera næst til að lappa upp á gamla bæinn í Mýrdal. Með honum er horfinn góður vinur og félagi. Ég vil votta Kristínu eiginkonu hans og barnahópnum, sem hann var svo stoltur af, og öðrum aðstandend- um innilegustu samúð mína. Guðrún Pétursdóttir. Kvatt hefur góður félagi, Þórður Gíslason, aðeins rúmlega sextugur að aldri. Það eru u.þ.b. 5 ár síðan við kynntumst, í ferð með Félagi hús- bílaeigenda, og tókst strax með okk- ur góð vinátta. Doddi, eins og hann var kallaður, hafði unun af því að ferðast með Stínu sinni um landið, og þá oftast með húsbílafélaginu, en hann var virkur félagsmaður og sleppti helst ekki úr ferð með félaginu. Doddi hafði létta lund og hafði gaman af hvers konar uppákomum. Hann hafði ríkulegt skopskyn og oftar en ekki mátti eiga von á skemmtilegum athugasemdum frá honum, og þá ekki sjaldan í bundnu máli því kveð- skapur var hans líf og yndi. Hann hélt til haga öllum vísum sem urðu á vegi hans og átti heilu bækurnar með hvers kyns kveðskap. Það voru hans bestu stundir að sitja inni í hús- bílnum sínum, Blíðfara, og flytja mönnum kveðskap eða hlusta á aðra fara með kvæði eða vísukorn, og þá var ekki verra að hafa guðaveigar um hönd. Doddi var grannur maður, kvikur og léttur í hreyfingum, erfið ganga um urð og grjót var lítið mál fyrir hann og hann gat fetað einstigi með öryggi fjallageitar. Hann var mjög hlýr maður og talaði alltaf um Stínu sína með ást í rómnum, og þeg- ar hann talaði um börnin sín og barnabörn geislaði hann af stolti. Doddi leit á félagana í Félagi hús- bílaeigenda sem sína aðra fjölskyldu og notaði hvert tækifæri til sam- funda. Þegar opin hús voru haldin munaði hann ekki um að keyra vest- an af Mýrum í Kópavoginn til að fá sér kaffi með félögunum. Doddi hafði svo mikla ánægðu af ferðalögum að hann reyndi mikið til að hafa áhrif á ættingjana svo þeir fengju sér nú húsbíl, enda fór það svo að tveir bræður hans eiga nú húsbíl og eru virkir í ferðum félags- ins, og þeir eru fleiri sem hafa smit- ast af ferðagleði hans. Hann lagði sitt af mörkum til að gera góðar ferðir betri. Eitt sinn er við vorum á ferð um Vesturland tók hann félags- heimilið í sveitinni á leigu svo við gætum átt góða stund í upphafi ferð- ar. Síðan var hann búinn að skipu- leggja gönguferðir um nágrennið til að skoða áhugaverða staði. Á meðan bakaði Stína heilu staflana af vöffl- um fyrir svanga göngugarpa. Í öllum stóru ferðum félagsins stóð hann fyrir keppni í kveðskap, en þá kast- aði hann fram fyrri parti og síðan reyndu bæði börn og fullorðnir að semja besta botninn. Varð þetta hin besta skemmtun og var oft mikið hlegið að útkomunni. Hvert ár þegar fór að vora var Doddi strax kominn í ferðahug og hann hlakkaði mikið til stóru ferðarinnar, en svo kallast 8 daga ferð félagsins sem farin er ár hvert. Nú brá svo við í fyrra að las- leiki hafði hrjáð Dodda um skeið og var hann lagður inn á spítala áður en stóra ferðin hófst. Hann vildi nú ekki missa af allri ferðinni svo hann kom bara með flugi austur á Vopnafjörð til að taka þátt í lokahófi ferðarinnar. Hann átti vissulega erindi því að sjálfsögðu tók hann þátt í skemmti- dagskrá kvöldsins. Á þessu sést að það er skarð fyrir skildi nú þegar Þórður er farinn í sína „stóru ferð“, bæði hjá fjölskyldu hans og okkur ferðafélögunum. Doddi var lífsglað- ur maður og munum við halda minn- ingu hans best á lofti með því að fylgja hans sannfæringu, að það sé best að taka lífinu með bros á vör. Elsku Stína mín, börn og barnabörn, Gaui, Jón, Fjóla og aðrir sem sakna vinar í stað. Megi Guð styrkja ykkur í gegnum þessa raun. Kærar þakkir fær góður ferðafélagi fyrir góða og trausta vináttu. Sigríður Arna Arnþórsdóttir og fjölskylda, fyrrv. form. Fél. húsbílaeig. ÞÓRÐUR GÍSLASON Sigurður fæddist 14.7. 1928 á Vatnsenda í Héðinsfirði. Systkinin voru níu, en nafni hans lést kornabarn 1927. Þessi stóra fjölskylda flutti til Siglufjarðar 1949, Sigurður þá tæplega tvítugur. Þau voru hin síðustu sem fluttu frá Héðinsfirði. Sjórinn varð hans starfsvettvangur. Hann var m.a. á togaranum Hafliða, en einnig á bátum frá Siglufirði, m.a. Sigurði SI. 1958 tók hann stýri- mannspróf á Akureyri. Hann hafði um þetta leyti kynnst annarri stórri fjölskyldu, en eftir að Valgerður Þorsteinsdóttir missti mann sinn sviplega í sjóslysi, tókust kynni með þeim, og síðar sambúð. Þó að elstu börn hennar væru farin að heiman, þá þurfti allnokkurs að afla til fram- færslu svo stórrar fjölskyldu. Þau Valgerður eignuðust eitt barn, Ein- ar Ásgrím, f. 15.11. 1959. Þau Val- gerður keyptu litla jörð, Ráeyri, handan fjarðar. Þar var hægt að heyja og hafa kindur, og þar fann SIGURÐUR ÞORVALDSSON ✝ Sigurður Þor-valdsson fæddist í Héðinsfirði 14. júlí 1928. Hann lést á Landspítalanum Fossvogi 8. júní síð- astliðinn og fór útför hans fram í kyrrþey frá Kapellunni í Hafnarfirði 15. júní. Sigurður sig sem fisk í vatni. Á vetrarvertíð- um fór Sigurður að sækja sjó undir Jökli, aðallega frá Sandi. Þá fóru menn að heiman upp úr áramótum, og voru til vertíðarloka, 11. maí var lokadagur. Þá var tekið upp og farið heim. Sigurður eignaðist þungan en traustan nótabát með öflugri vél, sem hann nefndi Sæbjörgu SI 68. Á sömu slóðum reri oft Gústi guðsmaður, einn- ig einn um borð. Báðir unnu fyrir þarft málefni, Gústi fyrir Jesú og kristniboðið, en Sigurður fyrir Val- gerði og börn, og dró hvorugur af sér. Sigurður dró oft yfir tonn af þorski á einum degi. Einn maður, allt á handafli. Engar færavindur þekktust þá. En allt hefur sinn tíma, og þar kom, að Valgerður vildi „suð- ur“, enda flest börnin farin þangð. Og svo varð 1974. Ekki fýsti Sigurð að fata út í óvissuna, en svo hlaut að verða. Þau fluttu til Hafnarfjarðar. Sigurður starfaði næstu árin hjá ÍSAL, og þó kvartaði hann í engu, hefur hann eflaust verið sem fiskur á þurru landi. Leiðir þeirra skildu 1981. Verkinu var lokið, og börnin komin út í lífið. Með þeim var þó allt gott. Reyndi ég það vel, er þau voru orðin tengdaforeldrar dóttur okkar hjóna nokkru seinna, og við buðum þeim tveimur einum heim eina kvöldstund, sem varð okkur ógleym- anlega skemmtileg, því þau léku bæði á als oddi. Síðustu starfsárin vann Sigurður við hina gömlu skipa- smíðastöð, Dröfn í Hafnarfirði, og dráttarbraut hennar. Stjórnaði hann gjarnan gamla sleðanum, sem dró skipin á land., svo og viðhald hans, en Sigurður var drjúglaginn. Þarna við sjóinn naut hann sín vel. Hann fór á eftirlaun 1995, og gamla Dröfn fór á nýjar hendur sama ár. Hann var bæði raungóður og bóngóður, en gerði engar kröfur hvað varðaði hann sjálfan. Ævi hans var merk: Síðasti búandi í Héðinsfirði, sjó- mennska í 24 ár, þar á meðal á síðu- togara, vertíðum, síldarúthaldi, ásamt handfærum með handafli einu. Ekkert af þessu verður stund- að til atvinnu framar. Þó að Íslands Hrafnistumenn lifðu tímabil tvenn, þá lifði hann aðeins eitt, og það kem- ur aldrei aftur. Það er líkt og Gústi guðsmaður hafi lagt til gott orð í ríki síns herra varðandi vistaskipti Sigurðar. Þrátt fyrir ýmsan krankleika sl. vetur fannst ekkert fyrr en hann var lagð- ur inn á spítala í byrjun júní sl. Þá greindist hann með krabbamein. Ekki langaði hann í tvísýna lyfja- meðferð, en lét þó til leiðast. Við fyrstu meðferð, og áður en hún hófst var hann allur, á ekki lengri tíma en hann dró einn gulan úr sjó. E.t.v. hefur Gústi sagt við sinn herra: „Nú er nóg róið. Er ekki kominn loka- dagur?“ Og svo varð. Ég kveð Sigurð með virðingu og þökk fyrir ljúf kynni. Ámundi H. Ólafsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.