Morgunblaðið - 14.07.2001, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 14.07.2001, Qupperneq 36
KIRKJUSTARF 36 LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. At- hugið, síðasta guðsþjónusta fyrir sumarleyfi starfsliðs Áskirkju. Árni Bergur Sigurbjörnsson. BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Organisti Guðmundur Sigurðs- son. Pálmi Matthíasson. DÓMKIRKJAN: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Hjálmar Jónsson prédikar. Félag- ar úr Dómkórnum syngja. Organisti Marteinn H. Friðriksson. GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11 í umsjá sr. Hreins S. Hákonarsonar, fangaprests. Altarisganga. Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Organisti Árni Arinbjarnarson. Ólafur Jóhannsson. GRUND, dvalar- og hjúkrunarheimili: Guðsþjónusta kl. 10.15. Organisti Kjartan Ólafsson. Prestur sr. Ágúst Einarsson. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Organisti Ágúst I. Ágústsson. Sr. Sig- urður Pálsson. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Org- anisti Douglas A. Brotchie. Sr. Tómas Sveinsson. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð- brands biskups. Guðsþjónusta kl. 11. Svala Sigríður Thomsen, djákni, leiðir stundina. Organisti Lára Bryn- dís Eggertsdóttir. Vöfflukaffi eftir stundina. Sóknarprestur verður í sumarleyfi 1. júlí – 8. ágúst. Sr. Pálmi Matthíasson sóknarprestur Bústaða- kirkju þjónar Langholtsprestakalli á meðan. LAUGARNESKIRKJA: Fyrsta messa eftir sumarfrí kl. 20.30. Athugið breyttan messutíma. Prestur sr. Bjarni Karlsson. Organisti Gunnar Gunnarsson. Kór Laugarneskirkju syngur. Barnagæsla í höndum tveggja 13 ára stúlkna meðan á pré- dikun og altarisgöngu stendur. Messukaffi. NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Halldór Reynisson. Kór Neskirkju syngur. Organisti Reynir Jónasson. SELTJARNARNESKIRKJA: Orgeltón- list kl. 11–11.30. Pavel Manasek organisti leikur á orgelið. Áhersla lögð á ljósastand Seltjarnarnes- kirkju, sem er mikið notaður í bæna- haldi. Fólk kemur og tendrar ljós um leið og bæn er beðin. Þar getur þú átt stund með Guði, tendrað ljós og fundið frið frá öllu amstri hversdags- ins undir fallegri orgeltónlist. Verið öll hjartanlega velkomin. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Næsta guðsþjónusta verður sunnud. 12. ágúst kl. 20.30. HVERAGERÐISKIRKJA: Messa kl. 14. Prestur Tómas Guðmundsson. Organisti Kjartan Ólafsson. Félag fyrrverandi sóknarpresta. ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Organisti: Pavel Smid. Kirkjukór- inn syngur. Prestarnir. BREIÐHOLTSKIRKJA: Engin guðs- þjónusta í kirkjunni vegna viðhalds og sumarleyfa starfsfólks. Fyrsta guðsþjónusta eftir hlé verður 19. ágúst. Bent er á helgihald í öðrum kirkjum prófastsdæmisins. Sr. Gísli Jónasson. DIGRANESKIRKJA: Kvöldmessa kl. 20.30. Prestur sr. Magnús B. Björns- son. Organisti: Kjartan Sigurjónsson. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Engin guðsþjónusta í kirkjunni vegna sum- arleyfa starfsfólks. Fyrsta guðsþjón- usta eftir hlé verður 12. ágúst kl. 20. GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Sr. Anna Sigríður Páls- dóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju syngur. Organ- isti: Hörður Bragason. HJALLAKIRKJA: Nú standa yfir mikl- ar framkvæmdir í Hjallakirkju. Verið er að skipta um gólfefni í kirkjuskipi og sinna ýmsu viðhaldi. Af þeim sök- um fellur helgihald niður í sumar en guðsþjónustur hefjast aftur um miðj- an ágústmánuð. Bent er á helgihald í öðrum kirkjum Kópavogs eða pró- fastsdæmisins. Við minnum á bæna- og kyrrðarstundir sem verða áfram á þriðjudögum kl. 18 á neðri hæð kirkj- unnar. Prestarnir. KÓPAVOGSKIRKJA: Vegna sumar- leyfa verða ekki guðsþjónustur í kirkj- unni í júlímánuði. Næsta guðsþjón- usta verður sunnudaginn 5. ágúst kl. 11. Kirkjan er opin á venjulegum opn- unartímum og kirkjuvörður til staðar. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson. SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 20. Sr. Ágúst Einarsson prédikar. Altaris- ganga. Organisti er Sigrún Þórsteins- dóttir. ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Sam- koma fellur niður vegna útilegu kirkj- unnar þessa helgi. BOÐUNARKIRKJAN: Samkoma í dag kl. 11–12.30. Lofgjörð, barnasaga, prédikun og biblíufræðsla þar sem ákveðið efni er tekið fyrir, spurt og svarað. Á laugardögum starfa barna- og unglingadeildir. Súpa og brauð eft- ir samkomuna. Allir hjartanlega vel- komnir. KLETTURINN: Almenn samkoma kl. 20 fyrir alla fjölskylduna. Mikil lof- gjörð og tilbeiðsla. Ath. breyttan samkomutíma. Bæna- og lofgjörðar- stund fimmtudag kl. 20. Bæn, lof- gjörð og orð guðs. Allir velkomnir. FÍLADELFÍA: Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður Hafliði Kristinsson. Al- menn samkoma kl. 20. Lofgjörðar- hópur Fíladelfíu syngur. Ræðumaður G. Theodór Birgisson. Allir hjartan- lega velkomnir. HJÁLPRÆÐISHERINN: Hjálpræðis- samkoma sunnudag kl. 20 í umsjón majórs Elsabetar Daníelsdóttur. Allir hjartanlega velkomnir. KAÞÓLSKA KIRKJAN: 15. júlí – 22. júlí Reykjavík – Kristskirkja í Landakoti: Sunnudaga: Hámessa kl. 10.30 Messa á ensku kl. 18.00. Alla virka daga: Messa kl. 18.00. Reykjavík - Maríukirkja við Raufar- sel: Laugardaga: Messa á ensku kl. 18.30. Sunnudaga: Messa kl. 11.00. Virka daga: Messa kl. 18.30. Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl. 17.00. Hafnarfjörður - Jósefskirkja: Sunnu- daga: Messa kl. 10.30. Miðviku- daga: Messa kl. 18.30. Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa kl. 08.30. Virka daga: Messa kl. 8.00. Mánudaginn 16. júlí : Minning heilagrar Maríu meyjar frá Karmel- fjalli, stórhátíð í Karmel. Keflavík – Barbörukapella: Skóla- vegi 38: Sunnudaga: Messa kl. 14.00. Fimmtudaga kl.19.30: Skrift- ir. Kl. 20.00: Bænastund. Stykkishólmur, Austurgötu 7: Sunnudaga: Messa kl. 10.00. Ísafjörður og Vestfirðir: séra Marek er í sumarleyfi. FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ: Samkoma á morgun kl. 16. LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Kl. 11 messa með altarisgöngu. Fyr- irbænir, guðs orð og gott samfélag. Ættarmótsgestir og ferðamenn sér- staklega hvattir til að sækja kirkju. Kaffisopi á eftir í safnaðarheimilinu. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Hásum- armessa kl. 11. tónlist, söngur og bænir verða í fyrirrúmi og hefðbundið messuform lagt til hliðar. Engin hefð- bundin ræða er flutt, heldur aðeins stutt hugleiðing í upphafi altaris- göngu. Julian Hewlett, fiðluleikari og organisti við Kópavogskirkju, annast tónlistarflutning, en Natalía Chow, organisti Hafnarfjarðarkirkju, syngur sumarsálma. Prestur er sr. Þórhallur Heimisson. Eftir messuna er boðið upp á sumarkaffi í safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju. VÍÐISTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Hans Markús Haf- steinsson. Guðbjörg Tryggvadóttir leiðir safnaðarsöng. Organisti Jó- hann Baldvinsson. Sigurður Helgi Guðmundsson. VÍDALÍNSKIRKJA: Kvöldguðsþjón- usta kl. 20.30. Athugið breyttan tíma til 5. ágúst! Kirkjukórinn leiðir safn- aðarsönginn. Organisti er Jóhann Baldvinsson. Sr. Friðrik J. Hjartar þjónar. Hittumst glöð í kirkjunni! Prestarnir. KEFLAVÍKURKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11 árd. Prestur sr. Ólafur Oddur Jónsson. Ræðuefni: Bæn Jabesar. Samræður í garði Kirkjulundar ef veð- ur leyfir. Kór Keflavíkurkirkju leiðir söng. Organisti og kórstjóri Hákon Leifsson. Meðhjálpari Laufey Krist- jánsdóttir. SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 11. Morguntíð sungin kl. 9 frá þriðjudegi til föstudags. Kaffi og brauð að henni lokinni. Foreldrasamvera kl. 11 á miðvikudögum. Sóknarprestur. HVERAGERÐISKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 14 í umsjón Félags fyrrver- andi sóknarpresta. Jón Ragnarsson. Heilsustofn NLFÍ: Guðsþjónusta kl. 11. Strandakirkja í Selvogi: Guðs- þjónusta kl. 14. Jón Ragnarsson. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa verður sunnudag 15. júlí kl. 17. Í messunni verður flutt tónlist frá tón- leikum helgarinnar. Sóknarprestur. HRAUNGERÐISKIRKJA í Flóa: Messa nk. sunnudag kl. 14. Í mess- unni verður Þorsteinn Rúnar Ásgeirs- son, Álftarimi 6, Selfossi, fermdur. Athugið breyttan messutíma. Krist- inn Ágúst Friðfinnsson. ÍSAFJARÐARKIRKJA: Tónlistar- messa kl. 20.30. Vadim Fedorov leik- ur á harmónikku en Hulda Bragadótt- ir á orgel. Sóknarprestur. HÓLADÓMKIRKJA: Guðsþjónusta verður sunnudag kl. 11. Séra Hann- es Örn Blandon prédikar og þjónar fyrir altari. Forsöngvari Jóhann Már Jóhannsson. Organisti Jóhann Bjarnason. Allir velkomnir. EGILSSTAÐAKIRKJA: Messa kl. 11. Mánud: Kyrrðarstund kl. 18. Sókn- arprestur. ÞINGVALLAKIRKJA: Guðsþjónusta sunnudag kl. 14. Prestur sr. Sigurður Árni Þórðarson. Organisti Guðmund- ur Vilhjálmsson. Sóknarprestur. Jesús kennir af skipi. (Lúk. 5.) Morgunblaðið/Jim Smart Seljakirkja. NÚ hefjum við gönguna að nýju sól- brún og hvíld eftir fríið. Messur Laugarnessafnaðar verða öll sunnu- dagskvöld kl. 20:30 í sumar. Nema um verslunarmannahelgi, þá verður messað á mánudagskvöldi. Á sumrin bræðum við saman andrúmsloft hinnar hefðbundnu sunnudagsmessu við djassmessuna og ’þriðjudag með Þorvaldi’ sem mörg þekkja, þannig að úr verður fjölþætt samvera þar sem reiknað er með öllu fólki á öllum aldri. Okkur langar að sjá sem flest fólk í messunum í sumar. Við minn- um á barnagæsluna sem alltaf er til reiðu og messukafið sem bíður allra að lokinni messu. Hveragerðisferð fyrrverandi sóknarpresta og prestsekkna DVALARHEIMILIÐ Ás Hvera- gerði og Dvalar- og hjúkrunarheim- ilið Grund, bjóða eins og undanfarin ár fyrrverandi sóknarprestum og prestsekkjum til Hveragerðis n.k. sunnudag 15. júlí. Lagt verður af stað frá Grund kl. 12:50 með rútu. Messa í Hveragerðiskirkju kl. 14 og síðan kirkjukaffi í húsakynnum Áss og kynning á starfsemi Dvalarheim- ilisins. Sr. Tómas Guðmundsson messar. Organisti verður Kjartan Ólafsson. Fyrrverandi sóknarprest- ar. Hásumarmessa í Hafnarfjarðar- kirkju Á MORGUN ber sunnudag upp á 15.júlí og því ríkir hásumar á Íslandi, enda hundadagar nýlega gengnir í garð. Til að gleðjast yfir sumrinu sem Guð gefur okkur verður sérstök hásumarmessa haldin í Hafnarfjarð- arkirkju. Hefst hún kl. 11. Tónlist, söngur og bænir verða í fyrirrrúmi og hefðbundið messuform lagt til hliðar. Engin hefðbundin ræða er flutt, heldur aðeins stutt hugleiðing í upphafi altarisgöngu. Julian Hew- lett, fiðluleikari og organisti við Kópavogskirkju mun annast tónlist- arfluttning, en Natalía Chow, organ- isti Hafnarfjarðarkirkju syngur sumarsálma. Natalía er lærður ein- söngvari og hefur oft glatt safnaðar- fólk í Hafnarfirði með söng sínum. Prestur er sr.Þórhallur Heimisson. Eftir messuna er boðið upp á sum- arkaffi í safnaðarheimili Hafnar- fjarðarkirkju. Mætum öll í Hafnar- fjarðarkirkju í sumarskapi og eigum þar saman ljúfa morgunstund áður en haldið er út í sumarið. Sr. Þórhallur Heimisson. Safnaðarstarf Hallgrímskirkja. Hádegistónleikar kl. 12-12.30. Ulf Norberg frá Svíþjóð leikur á orgel. Garðasókn. Opið hús á þriðjudögum. Farið verður í Listasafn Reykjavík- ur, þriðjudaginn 17. júlí. Sýning Erro skoðuð, kaffi á eftir. Lagt af stað frá Kirkjuhvoli kl. 13.30 og kom- ið til baka um kl. 16. Sjöundadags aðventistar á Íslandi: Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Bibl- íufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Garth Anthony. Safnaðarheimili aðventista, Blika- braut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Eric Guðmundsson. Safnaðarheimili aðventista, Gagn- heiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Steinunn Theodórsdóttir. Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest- mannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Paul Thompkins.Loftsalurinn, Hóls- hrauni 3, Hafnarfirði: Guðsþjónusta kl. 11. Biblíufræðsla kl. 12. Ræðu- maður Jóhann Grétarsson. Laugarneskirkja rumskar af sumardvala Morgunblaðið/Brynjar Gauti Laugarneskirkja. MESSUR Á MORGUN KRISTNIHÁTÍÐARSJÓÐUR, sem starfar samkvæmt lögum um sjóðinn sem samþykkt voru á Alþingi 28. febrúar 2001, var stofnaður til að minnast þess að 1000 ár eru liðin frá því kristinn siður var lögtekinn á Ís- landi. Hlutverk sjóðsins er tvíþætt: að efla fræðslu og rannsóknir á menningar- og trúararfi þjóðarinnar og stuðla að umræðum um lífsgildi hennar, siðferði og framtíðarsýn; að kosta fornleifarannsóknir á helstu sögustöðum þjóðarinnar, m.a. á Þingvöllum, í Skálholti og á Hólum. Starfstími sjóðsins er fimm ár eða til ársloka 2005. Ríkissjóður leggur sjóðnum til 100 millj. kr. fyrir hvert starfsár samkvæmt sérstökum lið á fjárlögum. Samkvæmt lögum um Kristnihátíðarsjóð, skal stjórn sjóðs- ins eiga samvinnu við menntamála- ráðuneytið, kirkjumálaráðuneytið, þjóðkirkjuna og önnur trúfélög, Þjóð- minjasafnið og háskólana í Reykjavík og á Akureyri, svo og frjáls félaga- samtök, um viðfangsefni sjóðsins. Stjórn sjóðsins, kjörin af alþingi, skipa Anna Soffía Hauksdóttir, sem jafnframt er formaður, Anna Agnars- dóttir og Þorsteinn Gunnarsson, rekt- or. Varamenn stjórnar eru Þorsteinn Gunnarsson, arkitekt, Jón Páll Hall- dórsson og Þóra Guðmundsdóttir. Stjórnin hefur skipað tvær verk- efnisstjórnir sem gera munu tillögur um verkefni og framlög til þeirra fyrir hvert starfsár, og vera stjórninni til ráðgjafar. Í verkefnisstjórn á sviði menningar- og trúararfs, sem hafa mun aðsetur á Akureyri, sitja Guð- mundur Heiðar Frímannsson, for- maður, Guðmundur K. Magnússon og Lára Oddsdóttir. Verkefnisstjórnin á sviði fornleifafræði, með aðsetur í Reykjavík, skipa Guðmundur Hálf- dánarson, formaður, Árný E. Svein- björnsdóttir og Hjalti Hugason. Fyrirhugað er að auglýsa eftir um- sóknum um styrki úr sjóðnum í ágúst- mánuði nk. með umsóknarfresti til 1. október og er stefnt að fyrstu úthlut- un þann 1. desember 2001. Fimm ára verkefni Kristni- hátíðarsjóðs að hefjast LAUGAVEGSHLAUPIÐ fer fram í fimmta sinn þann 21. júlí nk. og er hlaupið sem leið liggur frá Land- mannalaugum til Þórsmerkur sem er um 55 km vegalengd. Mikil vakning virðist vera á meðal hlaupara í sambandi við fjallahlaup á síðustu árum og þá sérstaklega í Evrópu og Bandaríkjunum, segir í fréttatilkynningu. Ávallt hafa verið um 10 til 15 erlendir hlauparar á Laugaveginum ár hvert og núna í ár eru komnar 25 erlendar skráningar. Heildarfjöldi í hlaupunum hefur ver- ið tæplega 100 hlauparar og stefnir í yfir 100 skráningar í ár. Nú hefur bandarískt fyrirtæki sýnt Laugavegshlaupinu mikinn áhuga og ætlar að koma með fimm kvikmyndatökumenn og fá aðstoð frá fjórum íslenskum kvikmynda- tökumönnum, enda er landslagið mikilfenglegt í alla staði fyrir myndatöku. Laugavegs- hlaupið kvikmyndað INNLENT

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.