Morgunblaðið - 25.07.2001, Blaðsíða 1
167. TBL. 89. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 25. JÚLÍ 2001
SKÆRULIÐAR samtaka tamílsku
tígranna svonefndu á Sri Lanka
gerðu í gærmorgun harða árás á al-
þjóðaflugvöllinn í höfuðborginni Co-
lombo. Féllu að minnsta kosti 18
manns í árásinni og tókst skærulið-
unum að eyðileggja þrettán flugvél-
ar. Samgönguráðherra Sri Lanka
metur tjónið sem varð í árásinni á
um 35 milljarða króna. Stjórnarher
Sri Lanka gerði í gær loftárás á búð-
ir tígranna í norðurhluta landsins til
að hefna fyrir árásina.
Ekki er ljóst hve margir skæru-
liðar tóku þátt í árásinni á flugvöllinn
en þó er talið að þeir hafi allir fallið.
Fréttir af mannfalli eru misvísandi
en svo virðist sem um fimmtán
skæruliðar hafi fallið auk þriggja til
fimm stjórnarhermanna.
Ekki er vitað hvernig skæruliðun-
um tókst að komast inn á flugvall-
arsvæðið, en til þess þurftu þeir að
brjótast í gegnum tvö öryggissvæði
sem liggja í kringum hann. Er flug-
völlurinn almennt talinn sá staður á
eyjunni sem best er varinn og var ör-
yggisgæsla í kringum hann stórauk-
in eftir að tígrarnir gerðu sprengju-
árás á völlinn árið 1995. Rannsókn er
hafin á því hvernig skæruliðunum
tókst að rjúfa varnirnar.
Herflugvöllur er einnig innan
öryggissvæðisins og var hann aðal-
skotmark skæruliðanna. Sprengdu
þeir upp átta herflugvélar, þar á
meðal eina MiG-27 herþotu sem er
meðal þeirra fullkomnustu í heimin-
um. Þegar skæruliðarnir höfðu lokið
sér af á herflugvellinum sneru þeir
sér að alþjóðaflugvellinum og
sprengdu upp fimm farþegaflugvél-
ar í eigu flugfélagsins Sri Lanka
Airlines. Enginn var í flugvélunum
þegar árásin var gerð. Árásin stóð í
um sex klukkutíma og linnti henni
ekki fyrr en allir skæruliðarnir voru
fallnir. Nokkrir þeirra sprengdu
sjálfa sig í loft upp til að komast hjá
handtöku.
Að minnsta kosti 1.200 erlendir
ferðamenn voru á flugvellinum þeg-
ar þetta átti sér stað og ríkti mikil
skelfing þeirra á meðal. Þurftu
margir þeirra að skríða mörg hundr-
uð metra til að komast í skjól og
nokkrir ferðamannanna hlutu skot-
sár. Enginn þeirra virðist þó hafa
látið lífið. Flugvellinum var lokað í
kjölfar árásarinnar og er ekki ljóst
hvenær hann verður opnaður aftur.
Var flugvélum á leið til Colombo
beint til nágrannaríkja.
Tamílar ráðast á alþjóðaflugvöll Sri Lanka
Meira en tugur
skæruliða féll
Colombo á Sri Lanka. AP, AFP.
Símeon
tekur við
völdum
FYRRVERANDI konungur Búlg-
aríu, Símeon, tók í gær við völd-
um í heimalandi sínu á ný en að
þessu sinni sem forsætisráðherra
og sést kona hér samfagna hon-
um með því að kyssa hönd hans.
Hann fékk stuðning 141 þing-
manns, 50 voru á móti en 46 sátu
hjá. Nýi forystumaðurinn var í út-
legð frá valdatöku kommúnista
1945 en sneri heim í vor. Hann
hefur skipað unga menn í margar
helstu ráðherrastöður og eru
sumir þeirra með reynslu af við-
skiptalífi á Vesturlöndum. Símeon
leggur áherslu á að Búlgaría fái
aðild að Evrópusambandinu og
sagði í gær að forgangsverkefnið
í utanríkismálum væri nú að þjóð-
in fengi á næsta ári boð um að
ganga í Atlantshafsbandalagið.
Reuters
ÞÚSUNDIR manna gengu um göt-
ur Skopje, höfuðborgar Makedóníu,
síðdegis í gær og mótmæltu meint-
um stuðningi vesturveldanna og Atl-
antshafsbandalagsins, NATO, við al-
banska skæruliða. Kveikt var í bílum
starfsmanna Öryggis- og samvinnu-
stofnunar Evrópu, ÖSE, brotnar
rúður í sendiráðum Þýskalands og
Bretlands og ráðist á McDonalds-
skyndibitastaði. Víða þeyttu menn
bílflautur til að láta í ljós stuðning
við göngufólkið. Gerð var atlaga að
þinghúsinu og sendiráði Bandaríkj-
anna, að sögn ríkissjónvarps lands-
ins en ekki er ljóst hvort skemmdir
voru unnar. Harðir bardagar voru í
gær milli albanskra skæruliða og
stjórnarhermanna í makedónska
bænum Tetovo, þriðja daginn í röð.
Óeirðaseggirnir í Skopje veifuðu
þjóðfánanum, voru margir vopnaðir
bareflum og hrópuðu slagorð slav-
neskumælandi Makedóníumanna.
Stjórnvöld lokuðu í gær landamær-
unum við Kosovo og er öllum þeim
sem ekki hafa makedónskan ríkis-
borgararétt neitað um leyfi til að
fara inn í landið. Áður höfðu stjórn-
völd sakað NATO um að draga taum
albanskra skæruliða í því skyni að
taka völdin af ríkisstjórn landsins.
Talsmaður makedónsku ríkis-
stjórnarinnar sagði á fundi með
fréttamönnum að ríki NATO hefðu
einsett sér að taka völdin í landinu.
„Markmiðið með átökunum í Make-
dóníu er að svipta stjórnvöld forræði
yfir landi sínu í því skyni að gera
Makedóníu að alþjóðlegu verndar-
svæði undir stjórn NATO,“ sagði
talsmaðurinn, Antonio Milososki.
George W. Bush, Bandaríkjafor-
seti, hvatti í gær Makedóníustjórn
og albanska skæruliða til að virða
vopnahléð sem á að gilda á svæðinu
og komast sem fyrst að raunveru-
legu samkomulagi sem tryggi frið og
stöðugleika á svæðinu. Kom þetta
fram í ávarpi sem Bush hélt þegar
hann heimsótti bandaríska hermenn
sem sinna friðargæslu í Kosovo-hér-
aði í Júgóslavíu.
Bandaríkjaher áfram
í Bosníu og Kosovo
Bush hrósaði hermönnunum fyrir
það hve vel hefur tekist með frið-
argæslu í Kosovo og einnig fyrir þátt
þeirra í því að halda átökunum í
Makedóníu í lágmarki. „Það er ykk-
ur að þakka að ekki fara fleiri vopna-
sendingar yfir landamærin en raun
ber vitni,“ sagði forsetinn við her-
menn í stærstu bækistöð Banda-
ríkjamanna í Kosovo. Hann sagði þó
að enn væri margt ógert og að
bandarískir hermenn myndu sinna
friðargæslu í Kosovo og Bosníu-
Hersegóvínu eins lengi og þörf
krefði.
Hét forsetinn því að Bandaríkja-
stjórn myndi ekki draga herlið sitt
til baka fyrr en aðrir bandamenn
hennar gerðu það líka. „Markmið
okkar er að sá dagur rísi þar sem
lýðræðislega kjörnir fulltrúar fólks-
ins geta tekið við stjórnartaumunum
og axlað fulla ábyrgð á stjórn svæð-
isins. Þá fyrst getum við farið heim.“
Bush, sem hélt heimleiðis frá Evr-
ópu í gær, lagði á það ríka áherslu að
Kosovo mætti ekki verða bækistöð
fyrir skæruliðana sem berjast við
stjórnvöld í Makedóníu.
Makedóníustjórn sak-
ar NATO um ásælni
AP
George W. Bush skemmtir sér með bandarískum hermönnum í Kosovo. Til hægri á myndinni er Christopher
Dell, yfirmaður bandaríska herliðsins í Kosovo.
Bush forseti
heitir því að virða
skuldbindingar á
Balkanskaga
Skopje, Camp Bondsteel í Kosovo. AP, AFP.
Kosið á
Netinu?
London. AFP.
OPINBER nefnd sem hefur
það verkefni að fara yfir kosn-
ingakerfi Bretlands hefur lýst
áhyggjum af áhugaleysi kjós-
enda og vill að gripið verði til
aðgerða. Nefndin birti skýrslu
um málið í gær.
Aðeins 59% atkvæðisbærra
manna greiddu atkvæði í þing-
kosningunum 7. júní og hefur
kjörsókn ekki verið minni síðan
árið 1918. Telur nefndin að
áhugaleysið sé fyrst og fremst
stjórnmálamönnunum sjálfum
að kenna en vill að kannaðar
verði nýjar leiðir við atkvæða-
greiðslu í framtíðinni. Meðal
hugmynda sem nefndin varpar
fram eru póstkosningar, net-
kosningar og símakosningar,
auk þess að hafa kjördaga
fleiri. Segir í skýrslu nefndar-
innar að það gæti haft góð áhrif
að sjónvarpa kappræðum
stjórnmálamanna eins og gert
er í Bandaríkjunum.
Bresk skýrsla
ABDURRAHMAN Wahid, sem var
vikið úr embætti forseta Indónesíu á
mánudag, þráaðist enn við að yfir-
gefa forsetahöllina í gærkvöldi.
Fjöldi óeirðalögreglumanna um-
kringdi forsetahöllina í höfuðborg-
inni Jakarta, en ekki kom til upp-
þota. „Wahid mun ekki yfirgefa
höllina,“ hafði AP-fréttastofan eftir
talsmanni forsetans fyrrverandi í
gær. „Hann telur sig enn vera for-
seta Indónesíu, samkvæmt lögum og
siðferðisreglum.“
Megawati Sukarnoputri, sem tók
við forsetaembættinu í fyrradag, átti
í gær fundi með stjórnmálaleiðtog-
um og framámönnum í her og lög-
reglu. Ræddi hún meðal annars við
Amien Rais, forseta þingsins, um
kjör nýs varaforseta, en hún gegndi
því embætti áður en þingið vék for-
vera hennar frá völdum. Sagði Rais
eftir fund þeirra að kjör varaforset-
ans færi fram í dag.
Indónesía
Wahid þrá-
ast enn við
Jakarta. AFP, AP.
Þykir óskrifað blað/20
♦ ♦ ♦