Morgunblaðið - 25.07.2001, Qupperneq 14
AKUREYRI
14 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Flogið verður til Frankfurt
og ekið þaðan samdæg-
urs (ca 8 tíma ferðalag) til
Prag. Þar verður svo gist
næstu 6 nætur. Á næst-
síðasta degi verður ekið
áleiðis til Frankfurt með
viðkomu í Karlovy Vary,
sem er einn þekktasti og fegursti heilsubaðstaður í Tékklandi.
Gist verður síðustu nóttina í Þýskalandi.
Guðmundur Jónasson
Ferðaskrifstofa
Borgartúni 34
sími 511 15 15
outgoing@gjtravel.is
Haustferðir til Prag
Bjóðum viku-
ferðir til
höfuðborgar
Tékklands
hinn 12. september,
19. september
og 3. október.
Innifalið í verði er flug, flugvallarskattar, gisting í tveggja manna herbergi,
morgunverður, allur akstur, skoðunarferð um Prag og íslensk fararstjórn.
Aukagjald fyrir eins manns herbergi er 9.000 krónur.
Verð kr. 68.700.
Ferð á hópbifreiðasýninguna
í Kortrijk í Belgíu. 20. október
er fimm daga ferð á hópbif-
reiðasýninguna í Kortrijk. Eftir 2 daga
Sveitapiltsins
draumar
SKÓGRÆKTARFÉLAG Ey-
firðinga gengst fyrir skógar-
samkomu á Hálsi í Eyjafjarðar-
sveit á morgun, fimmtudaginn
26. júlí, kl. 19.30. Háls er 25 km
sunnan Akureyrar. Ekið er inn
Eyjafjarðarbraut að vestan og
að Saurbæ. Þar er afleggjarinn
að Hálsi um hlaðið í Saurbæ og
áfram upp hálsinn til vesturs.
Á Hálsi hefur Skógræktar-
félag Eyfirðinga leigt félags-
mönnum sínum lönd til skóg-
ræktar frá árinu 1996. Um 40
félagsmenn stunda þar skóg-
rækt við mismunandi skilyrði. Á
hluta af Hálslandi er ræktaður
Landgræðsluskógur með stuðn-
ingi Skógræktarfélags Íslands.
Á skógarsamkomunni verður
árangur skógræktar síðustu ára
skoðaður og gengið um landið
undir leiðsögn kunnugra. Hug-
að verður að sveppum og öðrum
forvitnilegrum gróðri.
Að lokinni léttri göngu verður
boðið upp á kaffi að hætti skóg-
armanna og trjám plantað við
gamla bæinn á Hálsi. Hálsverj-
ar eru sérstaklega hvattir til
þess að mæta og taka með sér
gesti. Allt áhugafólk um skóg-
rækt er velkomið.
Skógar-
samkoma
á Hálsi
Á FIMMTA Tuborg-djassi á Heit-
um fimmtudegi í Deiglunni leikur
kvintett toppdjasssöngkonunnar
Kristjönu Stefánsdóttur. Auk
Kristjönu er kvintettinn skipaður
Agnari Má Magnússyni á píanó,
Mikael Erian á saxófón, Uli Glass-
mann á bassa og Thorsten Grau á
trommur.
Kristjana Stefánsdóttir mun á
næstunni halda í hljóðver og hljóð-
rita sinn fyrsta sólódisk. Meðleik-
arar hennar eru ekki af verri end-
anum, bæði innlendir og erlendir
djassleikarar.
Á tónleikunum í Deiglunni mun
hún flytja tónlistina sem verður á
geisladisknum. Aðrir tónleikar
verða miðvikudaginn 1. ágúst í
Djassklúbbnum Múlanum og þeir
síðustu verða í Pakkhúsinu á Sel-
fossi fimmtudaginn 2. ágúst. Flutt
verða lög af væntanlegum diski.
Allar útsetningar eru unnar af
Agnari Má Magnússyni. Það verð-
ur örugglega vel heitt í kolunum í
Deiglunni. Aðgangseyrir er kr.
500.
Ýmsir styrktaraðilar
tónleikanna
Eftirtalin fyrirtæki og aðilar eru
styrktaraðilar tónleikanna:
Akureyrarbær, Karolína-res-
taurant, Útgerðarfélag Akureyr-
inga, Sparisjóður Norðlendinga,
Menningarsjóður FÍH, Búnaðar-
bankinn á Akureyri, Íslandsbanki
á Akureyri og Kristján Víkingsson.
Kvintett Kristjönu
Stefánsdóttur
leikur í Deiglunni
SIGURPÁLL Geir Sveinsson og
Andrea Ásgrímsdóttir sigruðu í
meistaraflokkum karla og kvenna á
Meistaramóti Golfklúbbs Akureyrar
sem lauk á laugardag.
Sigur Andreu var mjög öruggur
en hún sigraði með 17 högga mun og
lék á samtals 324 höggum. Helena
Árnadóttir hafnaði í öðru sæti, lék
samtals á 341 höggi. Sigurpáll Geir
þurfti hins vegar í umspil um sigur-
inn við Sigurð H. Ringsted en báðir
léku samtals á 299 höggum. Sigur-
páll Geir tryggði sér þennan árangur
með glæsilegum leik á lokadaginn en
þá lék hann hringinn á 68 höggum.
Meistaramót Golfklúbbs Akureyrar
Sigurpáll Geir Sveinsson og Andrea Ásgrímsdóttir með sigurlaun sín.
Sigurpáll Geir og
Andrea sigruðu
FRÆGASTA bítlahljómsveit á Ís-
landi fyrr og síðar, hinir einu sönnu
Hljómar frá Keflavík, munu
skemmta á Akureyri um næstu
helgi. Þetta er fyrsta skemmtun
Hljóma norðan heiða síðan 1968.
Það er veitingastaðurinn Við
Pollinn, sem verður vettvangurinn
og mun hljómsveitin leika bæði
föstudags- og laugardagskvöld nk.,
27. og 28. júlí. Auk þess að leika
flest þekktustu Hljómalögin munu
þeir einnig flytja ýmsar perlur Bítl-
anna, Stones og annarra er gerðu
garðinn frægan á sjöunda áratugn-
um. Hljómsveitina skipa þeir Gunn-
ar Þórðarson, Rúnar Júlíusson,
Engilbert Jensen og Erlingur
Björnsson.
Húsið opnað kl. 21 bæði kvöldin
og hefst skemmtunin kl. 23 stund-
víslega. Miðaverð er 1.800 krónur.
Tónlistarviðburður á Akureyri
Hljómar leika á Pollinum
Þessi mynd af hljómsveitinni var
tekin árið 1967.
húsið árið 1944. Grjóthleðslan í
brunninum hefur haldið sér vel í
gegnum tíðina og hefur Anna
Guðný fullan hug á að halda í
þessar gömlu minjar á lóð sinni.
Fyrsta prentsmiðjan í húsinu
Björn Jónsson ritstjóri eign-
aðist húsið strax árið 1849 og bjó
þar til ársins 1887. Hann rak
fyrstu prentsmiðju bæjarins í
hluta hússins og hóf þar útgáfu
fyrsta blaðsins á Akureyri í árs-
MIKLAR endurbætur standa nú
yfir á húsinu við Aðalstræti 50 á
Akureyri. Húsið sem byggt var
árið 1849 er með svokallaða B-
friðun sem þýðir að ekki má
breyta upprunalegu ytra útliti
þess. Í garðinum við húsið er
gamall neysluvatnsbrunnur, hlað-
inn úr grjóti, sem ekki er óvarlegt
að telja að sé í kringum 150 ára
gamall, eða frá þeim tíma sem
húsið var byggt.
Þegar ráðist var í framkvæmdir
við lóð hússins árið 1969, og hún
m.a. lækkuð töluvert út við götu,
var vitað um brunn þar. Halldór
Jakobsson, sem bjó í næsta húsi á
þeim tíma en er nú látinn, vissi
nokkuð vel um staðsetningu
brunnsins og því gekk vel að finna
hann þegar framkvæmdirnar fóru
fram. Brunnurinn var þá fullur af
sandi en var grafinn upp og er
enn í dag í sinni upprunalegu
mynd. Brunnurinn þykir nokkuð
stór en hann er um 1,5 metrar að
þvermáli, um 2,5 metrar að dýpt
og er vatnsborðið í honum í dag
um 30–40 cm. Ekki er þó ljóst
hvort vatnið í brunninum er enn
nothæft til neyslu, þar sem það
hefur ekki verið efnagreint.
Talið er að brunnurinn hafi ver-
ið notaður í yfir 50 ár eða þar til
að vatnsveita var tengd í Inn-
bænum árið 1903. Þessa dagana
er verið að endurnýja lok brunns-
ins sem var orðið lélegt og fúið.
Anna Guðný Sigurgeirsdóttir er
núverandi eigandi hússins að Að-
alstæti 50 og býr þar ásamt tveim-
ur börnum sínum. Anna Guðný
hefur búið í húsinu alla sína tíð en
hún var alin þar upp hjá afa sín-
um og ömmu, Þórði Friðbjarn-
arsyni safnverði og Önnu Sig-
urgeirsdóttur, sem eignuðust
byrjun 1853 og hét það Norðri.
Árið 1887 keypti séra Matthías
Jochumsson húsið af Birni. Séra
Matthías bjó í húsinu fram til árs-
ins 1903 er hann flutti í nýbyggt
hús sitt, Sigurhæðir við Hafn-
arstræti.
Sem fyrr segir er nú unnið að
miklum endurbótum á húsinu.
Hólmsteinn Snædal smiður hefur
yfirumsjón með því verki en hann
hefur komið að lagfæringum
margra gamalla húsa í Innbænum.
Skemmtilegar fornminjar fundust við Aðalstræti 50
Ævagam-
all neyslu-
vatns-
brunnur í
garðinum
Morgunblaðið/Kristján
Anna Guðný Sigurgeirsdóttir við neysluvatnsbrunninn í garðinum.