Morgunblaðið - 25.07.2001, Blaðsíða 17
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 2001 17
®
félagsins, þar sem farið verður fram á
frekari skýringar.
Helena segir að í grundvallaratrið-
um snúist málið um það, að afkomu-
viðvörun hafi verið gefin út eftir að
einungis tveir mánuðir voru liðnir frá
útgáfu skráningarlýsingar. Slíkt veki
eðlilega upp spurningar um lýsinguna
sjálfa og þær forsendur og staðreynd-
ir sem komi þar fram. Helena segir að
í rauninni snúist málið um það, hvort
upplýsingar í skráningarlýsingunni
voru fullnægjandi eða ekki. Upplýs-
ingar í útboðs- og skráningarlýsingu
eiga að vera gefnar samkvæmt bestu
vitund og engu mikilvægu atriði
sleppt sem getur haft áhrif á verð
hlutabréfa félags og undirrita for-
maður stjórnar og forstjóri félags yf-
irlýsingu þess efnis, að skráningarlýs-
ing sé unnin eftir bestu vitund, í fullu
samræmi við staðreyndir og í hana
vanti engar mikilvægar upplýsingar.
Forsvarsmenn umsjónaraðila útboðs
og endurskoðendur félaga undirrita
sambærilegar yfirlýsingar.
Þeir Bjarni Ármannsson, Þorkell
Sigurlaugsson, Jón L. Arnalds og
Sigurður Atli Jónsson gengu úr
stjórn Verðbréfaþings Íslands þegar
fjallað var um greinargerð Íslands-
síma til þingsins í gær. Jafet Ólafsson
tók sæti Bjarna Ármannssonar, en Ís-
landsbanki var umsjónaraðili útboðs
Íslandssíma, Einar Sigurðsson frá
Flugleiðum kom inn í stað Þorkels
Sigurlaugssonar, en fyrirtæki Eim-
skips, Frumkvöðull er næst stærsti
eigandi Íslandssíma, Jón L. Arnalds
var vanhæfur vegna fjölskyldu-
tengsla og tók Vilhjálmur Bjarnason
sæti hans og Sigurður Atli Jónsson
var einnig vanhæfur til að fjalla um
Íslandssíma, vegna þess að dótturfyr-
irtæki Landbankans er stærsti eig-
andi Íslandssíma.
Engin viðskipti voru með bréf Ís-
landssíma á Verðbréfaþingi í gær, en í
fyrradag var lokaverð bréfanna 4,3.
Útboðsgengi Íslandssíma til al-
mennra fjárfesta var 8,75.
GREINARGERÐ Íslandssíma til
Verðbréfaþings Íslands gefur ekki
fullnægjandi skýringar á afkomuvið-
vörun félagsins þann 12. júlí síðastlið-
inn að mati stjórnar þingsins. Þegar
afkomuviðvörunin var birt voru ein-
ungis tæpir tveir mánuðir liðnir frá
því að útboðs- og skráningarlýsing
félagsins var gefin út.
Helena Hilmarsdóttir, staðgengill
framkvæmdastjóra Verðbréfaþings,
segir að stjórn þingsins hafi ákveðið
að óska eftir frekari skýringum frá Ís-
landssíma. Helena segir að það sé
mat stjórnarinnar, að skýringar
félagsins hafi ekki verið fullnægjandi.
Sent verður bréf frá þinginu til
Stjórn Verðbréfaþings Íslands fjallaði um greinargerð Íslandssíma í gær
Skýringar ófullnægjandi
Hlutabréf
Arcadia
lækka um
6,4%
VERÐ á hlutabréfum í versl-
anakeðjunni Arcadia Group,
sem er að fimmtungi í eigu
Baugs hf., lækkaði um 6,37% í
viðskiptum gærdagsins í
kauphöllinni í London og fór
lokagildi bréfanna í 237 pens
en innan dagsins hafði verðið
farið enn lægra, í 234 pens.
Baugur hóf ásamt fleirum
að kaupa hlutabréf í Arcadia
Group á haustmánuðum árs-
ins 2000 og snemma á þessu
ári nam hlutur þeirra 20%.
Meðalkaupverð bréfanna var
um 165 pens á hlut en hlut-
irnir sem um ræðir eru um 38
milljónir talsins. Kaupverð
bréfanna hefur samkvæmt
þessu numið tæpum 63 millj-
ónum punda, eða rúmum 9
milljörðum króna.
Baugur átti 13% þessara
bréfa og keypti á vormánuð-
um 87% hlut meðeigenda
sinna að fimmtungshlutnum á
genginu 191. Þegar tekið er
tillit til 13% eignarhlutar
Baugs greiddi Baugur rúma
10 milljarða króna fyrir
fimmtungshlutinn í Arcadia.
Þegar kaupin áttu sér stað
var markaðsvirði bréfanna um
14 milljarðar króna og fór í
kjölfarið upp í 16 milljarða.
Markaðsvirðið nemur nú um
13 milljörðum íslenskra
króna.
TAP af rekstri Goða hf. nam 430
milljónum króna á árinu 2000. Þar af
nema óreglulegir liðir 149 milljónum
króna. Tap af reglulegri starfsemi
ársins var 281 milljón króna en árið
á undan nam tap af reglulegri starf-
semi 46 milljónum.Veltufé félagsins
er neikvætt um 245 milljónir króna.
Goði var stofnaður fyrir réttu ári
við sameiningu Borgarness-Kjöt-
vara ehf. í Borgarnesi, Sláturhúss og
kjötvinnslu Kaupfélags Héraðsbúa á
Egilsstöðum, Kjötumboðsins hf. í
Reykjavík, Norðvesturbandalagsins
hf. á Hvammstanga og Þríhyrnings
hf. Fram kemur í tilkynningu að tap
af reglulegri starfsemi félagsins frá
stofnun þess 1. júlí 2000 til áramóta
er 197 milljónir króna.
Við sameiningu félaganna var
gert ráð fyrir að velta Goða yrði um
3,6 milljarðar króna árið 2000 og
stefnt var að því að veltan losaði
fjóra milljarða króna á þessu ári.
Veltan árið 2000 reyndist nema 3,1
milljarði króna sem er svipað og árið
áður. Rekstrartap var 193 milljónir
króna sem er 147 milljónum króna
meira en rekstrartap ársins 1999.
234 milljóna króna niðurfærsla
eigna og ábyrgða
Til óreglulegra liða teljast annars
vegar aðrar tekjur sem voru 84
milljónir króna og samanstanda af
niðurfellingu skulda og hlutdeild
fyrrverandi eigenda í taprekstri
fyrstu sex mánuði ársins. Hins veg-
ar er talin 234 milljóna króna nið-
urfærsla vegna eigna og ábyrgða,
sem m.a. er rakin til áhættu og
óvissu um virði eigna í framtíðar-
skipan fyrirtækisins, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu frá félag-
inu.
Markmiðið með sameiningu ofan-
greindra fyrirtækja á sviði slátrunar
á kjötvinnslu í eitt, Goða, á sínum
tíma var að nýta samlegðaráhrif fyr-
irtækjanna. Reksturinn hefur nú
verið endurskipulagður, kjöt-
vinnslur fyrirtækisins hafa verið
seldar til Norðlenska og nýlega var
ákveðið að leggja af slátrun á fjórum
stöðum á landinu og byggja upp þær
sláturmiðstöðvar sem eru annars
staðar.
Á dögunum var tilkynnt um að
þeim 15 starfsmönnum sem starfa
við slátrun í Búðardal yrði sagt upp
og sagt var frá því á fréttavef Morg-
unblaðsins í gær að öllu starfsfólki
sláturhúss Goða á Hvammstanga,
um 20 manns, hefði verið tilkynnt að
því yrði sagt upp að lokinni slátrun á
komandi hausti.
Tap Goða 430
milljónir króna
Tap af reglulegri starfsemi 197 m.kr.
frá sameiningu um mitt ár