Morgunblaðið - 25.08.2001, Side 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
DREGIÐ var í Happdrætti Há-
skólans í gær og hlaut 25 ára
gömul kona hæsta vinninginn, en
5 milljónir og 110 þúsund krónur
komu í hennar hlut. Í samtali við
Morgunblaðið sagðist vinnings-
hafinn vera alveg í skýjunum.
Hún hefði fengið hringingu frá
Happdrætti Háskólans um fimm-
leytið í gær þegar hún var stödd
á Skólavörðustígnum, á leiðinni
heim úr vinnu.
„Ég var einmitt að hugsa um
að ég ætti engan pening,“ sagði
hún og lýsti því hversu utan við
sig hún hefði verið í símanum.
Hún hefði síðan gengið áfram
Skólavörðustíginn, brosandi út að
eyrum og ekki tekið eftir neinu í
kringum sig. „Ég trúði þessu
ekki strax og hringdi hálftíma
seinna til að athuga hvort ein-
hver hefði verið að bulla í mér.
En það reyndist ekki vera.“
Tólf vinkonur á leið
upp í sumarbústað
Miðinn var keyptur á Netinu í
janúar og er þetta í fyrsta skiptið
sem vinningur kemur á hann.
Vinningshafinn er með tvö númer
í Happdrætti Háskólans og sagð-
ist svo sannarlega ætla að eiga
miðana áfram.
Aðspurður hvað gera eigi við
peningana sagðist vinningshafinn
ætla að byrja á því að borga
skuldir og síðan yrði ef til vill
farið út í íbúðarkaup. „Svo set ég
þetta inn á góða bók og safna
ennþá meira. Þetta kemur sér
ótrúlega vel,“ sagði hún og benti
á að það yrði þó fagnað um
helgina, enda væru þær tólf
vinkonurnar á leið upp í sum-
arbústað. „Ég er ekki alveg búin
að átta mig á þessu ennþá, að
þetta sé í alvöru. Þetta er ein-
hver æðisleg tímabundin ham-
ingja núna. Ég hef aldrei unnið í
lottói eða neinu slíku áður, þetta
er í fyrsta skiptið sem ég vinn
eitthvað svona,“ sagði hin lukku-
lega unga kona þegar Morg-
unblaðið náði tali af henni í gær-
kvöldi.
Vinningsnúmerið var 58197 og
var aðeins einn miði seldur með
því númeri.
Vann rúmar 5 milljónir í Háskólahappdrættinu
Var á gangi í bænum
þegar hún fékk fréttina
SELTA vinnur lítið á nýmáluðum
stálskipum og því má telja víst að
þetta fley verði ekki ryðinu að
bráð á næstunni. Málarinn vand-
ar sig við verkið og þótt lítillega
slettist á togvírana má láta sér
fátt um finnast, þær verða fljótar
að hverfa.
Morgunblaðið/RAX
Vandar sig við verkið
ACO-Tæknival hf. birti fyrsta upp-
gjör sitt í gær í kjölfar sameiningar
félaganna. Tap af rekstrinum fyrir
skatta nam 917 milljónum en tap
tímabilsins eftir skatta nam 664
milljónum. Lækkunin skýrist af 253
milljóna tekjufærslu reiknaðs tekju-
skatts. Árni Sigfússon, forstjóri Aco-
Tæknivals, segir að reksturinn sé
augljóslega langt undir væntingum.
Tölvusala hafi dregist saman um
30% á uppgjörstímabilinu og raf-
tækjasala um 50%. „Þessi samdrátt-
ur hefur veruleg áhrif á niðurstöður
á fyrri hluta árs og munar mörg
hundruð milljónum miðað við það
sem hefði mátt ætla í eðlilegu
ástandi.“ Eigið fé Aco-Tæknivals var
neikvætt um 66 milljónir í lok júní en
um áramót var eigið fé jákvætt um
592 milljónir króna.
Aco-Tæknival sendi Verðbréfa-
þingi ekki formlega afkomuviðvörun
en áður hefur komið fram að erfið-
leikar væru í rekstrinum. Um þetta
segir Árni: „Við höfum ítrekað kynnt
fyrir Verðbréfaþingi og fjölmiðlum
þróun og horfur í rekstri fyrirtæk-
isins en hafa ber í huga að það eru
þrír mánuðir síðan við hófum sam-
einingarviðræður og annað fyrirtæk-
ið hefur ekki verið skráð á þinginu.“
Aðspurður segir Finnur Svein-
björnsson, framkvæmdastjóri Verð-
bréfaþingsins, að þingið hafi þegar
haft samband við nokkur félög en
ekki sé ástæða til þess að nafngreina
þau að svo stöddu. „Þegar uppgjörs-
hrinunni lýkur verður væntanlega
greint frá þessu með einum eða öðr-
um hætti.“
Gengi bréfa Aco-Tæknivals lækk-
aði um 26% í gær.
Eigið fé Aco-Tæknivals
neikvætt um 66 millj.
Tap Aco-Tæknivals /20
ÍSLENSK tónskáld eiga erfitt með
að fá óperur sínar settar upp í stóru
leikhúsunum á Íslandi, Þjóðleikhús-
inu, Íslensku óperunni og Borgar-
leikhúsinu.
Í Lesbók eru fimm tónskáld spurð
að því hvernig þeim hafi gengið að
koma óperum sínum á framfæri og
hafa fjögur þeirra þurft að eyða
miklum tíma í að ganga með verk sín
milli stofnana í von um að fá þau
flutt. Að minnsta kosti 31 ópera hef-
ur verið samin hér á landi. Þar af
hafa átján verið sýndar í heild.
Áskell Másson hefur í tíu ár reynt
að koma óperu sinni, Klakahöllinni, á
framfæri hér á landi, en án árangurs.
Ópera Karólínu Eiríksdóttur, Mann
hef ég séð, hefur verið sýnd víða er-
lendis og er til með erlendum texta,
en ekki íslenskum.
Erfitt að
fá óperur
fluttar hér
Íslensk ópera/ Lesbók 4
HLUTABRÉF lækkuðu verulega í
verði á Verðbréfaþingi Íslands í gær
og fór úrvalsvísitalan niður fyrir þús-
und stig. Lækkaði vísitalan um 2,5%
og er 988 stig. Vísitalan hefur ekki
verið lægri frá áramótunum 1997-98
en þá var hún sett á þúsund stig.
Hæst fór vísitalan í 1.888 stig um
miðjan febrúar árið 2000 og hefur
því lækkað um 48% á einu og hálfu
ári. Það sem af er árinu hefur vísital-
an lækkað um 24% og 36% undan-
farna 12 mánuði.
Gengi margra félaga lækkaði mik-
ið á Verðbréfaþinginu í gær, þar á
meðal Aco-Tæknivals um 25,9%, Op-
inna kerfa um 18,4%, Húsasmiðjunn-
ar um 9,4%, Íslandssíma um 7,8% og
Búnaðarbankans um 6,3%.
Úrvalsvísi-
talan undir
1.000 stig
2)(
()11-5)***
)1**
)+**
)-**
)'**
)/**
),**
)2**
).**
))**
)***
1**
!"() !
! ! ! !
.
. /
0
7 7 8 8 9 > ? $ 8 7 7 8 8 9
)-(*.(**5)(+++3-)
.,(*+(*)
51++3'*
♦ ♦ ♦
LÖGREGLAN á Hólmavík stöðvaði
12 ökumenn fyrir of hraðan akstur á
Holtavörðuheiði í gær. Sá sem hrað-
ast ók mældist á 128 km hraða og
mun væntanlega sjá á eftir 20.000
krónum til ríkissjóðs.
Þoka og rigning var á heiðinni og
því voru aðstæður til aksturs alls
ekki góðar. Lögreglan segist undr-
ast að hækkun sekta virðist ekki
draga úr hraðakstri svo neinu nemi
þrátt fyrir að hækkunin hafi verið
rækilega auglýst. Þá ættu hin mörgu
banaslys að hafa dregið úr áhuga á
Íslendinga á hraðakstri.
Ók á ofsa-
hraða í
þokunni