Morgunblaðið - 04.09.2001, Page 15
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2001 15
NEMENDUR í grunnskólum
Garðabæjar fá nú 30 nýjar fartölvur
til að nota við nám í skólunum.
Fulltrúar Garðabæjar og Nýherja
skrifuðu nýlega undir samning þessa
efnis.
Í kaupunum voru einnig sérstakir
fartölvuvagnar sem eru tengdir
þráðlaust við netkerfi skólanna auk
fartölva fyrir alla nýja kennara skól-
ans.
Í fréttatilkynningu segir að með
þessum kaupum stígi Garðabær enn
eitt skref í fartölvuvæðingu grunn-
skólanna en fyrir ári hafi öllum
kennurum og skólastjórnendum ver-
ið afhentar fartölvur til afnota í
starfi.
Fartölvur fyrir
nemendur
Garðabær
HVERFISSAMTÖK Vatnsenda,
„Sveit í borg“, mótmæla fyrirhug-
aðri uppbyggingu athafnasvæðis í
Vatnsendahvarfi og hafa afhent
skipulagsyfirvöldum í Kópavogi at-
hugasemdir sínar við tillögur að
svæðinu.
Í fréttatilkynningu frá samtökun-
um segir að athugasemdirnar gangi
meðal annars út á að háreist og þétt
byggð á fyrirhuguðu svæði sé í hróp-
andi ósamræmi við staðsetningu
svæðisins og byggðina í kring. Svæð-
ið sé hluti af útivistarsvæði höfuð-
borgarbúa og byggðin í nágrenni
þess hafi verið skipulögð undir for-
merkjunum „sveit í bæ“. Því komi
mjög á óvart hversu mikil byggð sé
áætluð á svæðinu.
Breytingar á
rennsli ofanvatns
Samtökin gagnrýna að breytingar
á vegakerfi Vatnsendasvæðisins hafi
einungis verið auglýstar að hluta í
skipulagstillögunum en betra hefði
verið að auglýsa þær í víðara sam-
hengi, m.a. vegna þess að umferðar-
þungir vegir virðist fyrirhugaðir á
vatnsverndarsvæði.
Þá benda samtökin á að breyting-
ar verði á rennsli ofanvatns á svæð-
inu þar sem rigningarvatn muni
lenda á 1300 bílastæðum, þökum og
götum. Hafa samtökin efasemdir um
að nægjanlegar rannsóknir liggi fyr-
ir um afleiðingar þess fyrir vatnsbú-
skap svæðisins.
Í fréttatilkynningunni segir að
undirskriftir 170 manns í hverfinu,
þar sem uppbyggingunni á svæðinu
sé mótmælt, hafi einnig verið afhent-
ar skipulagsyfirvöldum.
Hverfissamtök mótmæla
fyrirhuguðu athafnasvæði
Vatnsendi
NEMENDUR og kennarar í Snæ-
landsskóla hófu skólaárið með
óhefðbundnum hætti en í síðustu
viku var útivistarvika í skólanum.
Krakkarnir spreyttu sig á fjöl-
mörgum leikjum auk þess sem
farnar voru ferðir í Nauthólsvík,
Gróttu og farið í fjallgöngur. Þá
voru ýmsir útivistarklúbbar og
samtök með kynningu á sinni
starfsemi.
Hápunkturinn var svo á föstu-
dag þegar öllum nemendum var
skipt upp í 46 hópa og farið var í
ratleik í Fossvogsdalnum. Fundn-
ir voru kökubotnar, rjómi, ban-
anar og áhöld til að skreyta
rjómatertu. Þegar hver hópur
hafði lokið starfi sínu var tert-
unum raðað á borð fyrir framan
skólann og var ekki laust við að
krakkarnir væru spenntir að sjá
hvaða kaka hlyti náð fyrir augum
dómnefndar og fengi titilinn „fal-
legast kakan“.
Ekki fylgir sögu hvaða kaka
var valin sú fegursta en að því
loknu gátu kökugerðarmeist-
ararnir ráðist til atlögu við sína
tertu enda sjálfsagt sársvangir
eftir afrek dagsins.
Ljósmynd/Ásdís Ólafsdóttir
46 rjóma-
tertur
Kópavogur
BORGARRÁÐ hefur samþykkt nýtt
deiliskipulag fyrir svokallaðan Bar-
ónsreit, sem afmarkast af Vitastíg,
Skúlagötu, Barónsstíg og Hverfis-
götu.
Eins og Morgunblaðið greindi ný-
verið frá verður blönduð byggð með
íbúðar- og atvinnuhúsnæði á reitn-
um. Undir honum er svo fyrirhuguð
tveggja hæða bílageymsla neðan-
jarðar þar sem yrðu allt að 250 bíla-
stæði. Teiknistofan Úti og inni hann-
aði deiliskipulagið.
Deiliskipulag
Barónsreits
samþykkt
Miðborg
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦