Morgunblaðið - 04.09.2001, Qupperneq 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2001 27
BYGGING hringleikahússins Col-
osseum í Róm gæti hafa verið fjár-
mögnuð að hluta til með herfangi frá
Jerúsalem, að því er bandarískur
fræðimaður heldur fram.
Louis Feldman, prófessor við
Yeshiva-háskólann í New York,
heldur því fram í grein í nýjasta tölu-
blaði Biblical Archaeology Review
að horfin áletrun á steinplötu í hring-
leikahúsinu gefi til kynna að það hafi
verið fjármagnað með herfangi.
Feldman bendir á að bygging Col-
osseum hafi hafist skömmu eftir að
rómverskar hersveitir náðu Jerúsal-
em á sitt vald og lögðu Musteri Sal-
ómóns í rúst, og segir hann mögulegt
að draga þá ályktun að hringleika-
húsið hafi að einhverju leyti verið
fjármagnað með ránsfengnum það-
an.
Musteri Salómóns í Jerúsalem,
sem Heródes byggði við og stækkaði
til muna, mun hafa verið einstaklega
ríkulegt. „Þar sem [musterið] var
þakið gullplötum á öllum hliðum
stafaði af því svo sterkri birtu í sól-
skini að fólk gat ekki horft beint á
það,“ segir í frásögn samtímasagna-
ritarans Josephusar.
Gyðingar gerðu uppreisn gegn yf-
irráðum Rómverja í Júdeu árið 66
e.Kr. og rómverskt herlið undir
stjórn Títusar, sem síðar varð keis-
ari, var sent þangað til að kveða upp-
reisnina niður. Jerúsalem féll árið 70
og musteri Salómóns var lagt í rúst.
Ekkert stendur nú eftir af musterinu
nema vesturveggur þess, Grátmúr-
inn svonefndi, sem er helgasti staður
gyðinga. Á Títusarboganum í Róm
má enn greina steinristur sem sýna
rómverska hermenn bera herfangið
frá Jerúsalem.
Bygging Colosseum hófst um
svipað leyti, um 70-72 e.Kr., og var
hringleikahúsið vígt árið 80, í keis-
aratíð Títusar.
Feldman byggir kenningu sína á
rannsóknum Geza Alföldy, prófess-
ors við Heidelberg-háskóla í Þýska-
landi. Alföldy tók eftir því að á stein-
plötu í Colosseum, þar sem rist hafði
verið áletrun sem greindi frá við-
gerðum á hringleikahúsinu, var að
finna för eftir málmnagla, sem virt-
ust hafa verið reknir inn í steininn til
að festa áletrun úr málmstöfum, er
síðar hafi verið fjarlægð. Prófessor-
inn rýndi í förin og taldi sig ráða úr
þeim áletrun, sem sýnd er á með-
fylgjandi korti.
Skiptar skoðarnir
á kenningu Feldmans
Samkvæmt ráðningu Alföldys
stóðu meðal annars á steinplötunni
orðin ex manubiis, eða „úr herfangi“.
Feldman dregur af þessu þá ályktun
að bygging Colosseum hafi verið
fjármögnuð með herfanginu frá
Jerúsalem, enda hafi Rómverjar haft
lítinn ránsfeng úr öðrum herförum á
þessum tíma. „Satt er að það má
greina mismunandi stafi úr förunum
eftir málmnaglana og að ráðningin
sé því einungis byggð á getgátum,“
segir Feldman. „En þetta kemur
samt heim og saman við hinn gríð-
armikla ránsfeng sem Títus hafði á
brott með sér frá Jerúsalem.“
Skoðanir fræðimanna á kenningu
Feldmans eru skiptar. William Dev-
er, prófessor í fornleifafræði við
Arizona-háskóla sem starfaði í mörg
ár í Jerúsalem, segir kenninguna
rökrétta en „nokkuð langsótta“.
Hann segir rétt að musteri Salómóns
hafi verið stórfenglegt og að Róm-
verjar hafi rænt það, en telur óvar-
legt að draga slíkar ályktanir af að-
eins tveimur orðum.
Colosseum byggt fyrir
herfang frá Jerúsalem?
Washington. AP.
! "
# $
! %$
! & $$ '
( & ) !
$
* + % " ,$! !
%
- & $$ ' .
)
! !
! " %
/
& )
"+ !+ VLADIMÍR Pútín, forseti Rúss-
lands, sagði í opinberri heimsókn til
Finnlands í gær að skyldi Eystra-
saltslöndunum þremur – sem í
nokkra áratugi voru hluti Sovétríkj-
anna – verða boðin aðild að Atlants-
hafsbandalaginu yrðu þar með gerð
alvarleg mistök sem ekki hefðu annan
tilgang en að færa ytri mörk banda-
lagsins upp að landamærum Rúss-
lands.
„Ég legg áherzlu á að það eru eng-
ar hlutlægar forsendur fyrir stækkun
[NATO] né inngöngu Eystrasalts-
landanna,“ sagði Pútín í Helsinki eftir
viðræður við Törju Halonen, forseta
Finnlands.
Sagði Pútín að stjórnvöld í Moskvu
virtu sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna –
Eistlands, Lettlands og Litháens –
„en NATO-aðild þeirra myndi ekki
leysa nein hnattræn vandamál né
bæta öryggi í Evrópu“. Pútín bar lof á
hlutleysisstefnu Finna, sem að hans
mati hefði „lagt mikilvægan skerf“ til
stöðugleika á Eystrasaltssvæðinu.
Halonen hikaði hins vegar ekki við að
ítreka óskoraðan stuðning Finna við
að NATO verði við beiðni Eystra-
saltslandanna um að fá aðild að
bandalaginu.
Í tveggja daga Finnlandsheimsókn
Pútíns, sem lauk í gær, þótti marka
tímamót að hann varð fyrsti þjóðhöfð-
ingi Rússa til að leggja blómsveig að
leiði C.G.E. Mannerheims marskálks,
yfirhershöfðingja Finna í Vetrar-
stríðinu og „framhaldsstríðinu“ við
Rauða herinn 1939-1944.
Pútín í Finnlandi
Hörð orð
um NATO
og Eystra-
saltslöndin
Helsinki. AP, AFP.