Morgunblaðið - 06.09.2001, Page 1

Morgunblaðið - 06.09.2001, Page 1
202. TBL. 89. ÁRG. FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 6. SEPTEMBER 2001 STJARNFRÆÐINGAR segjast hafa fengið sönnun fyrir því, að gífurlega mikið svarthol sé í miðri vetrarbrautinni, óseðjandi skrímsli, sem gleypi í sig stjörnur og allt ljós frá þeim. Menn hefur lengi grunað, að í miðju vetr- arbrautarinnar, nánar tiltekið í stjörnumerk- inu bogmanninum í 26.000 ljósára fjarlægð, sé að finna svarthol en ryk- og gasský og mikill stjörnugrúi hefur hingað til byrgt mönnum eða stjörnukíkjunum sýn. Í fyrra fengust hins vegar óbeinar sannanir fyrir tilvist þess en þá náðust myndir af stjörnum, sem geystust áfram með allt að fimm milljón km hraða eftir litlum baug. Eina skýringin á þessu fyrirbæri er sú, að stjörnurnar séu leiksoppar gífurlegs aðdrátt- arafls. Hafa eðlisfræðingar komist að þeirri niðurstöðu, að þarna sé um að ræða svarthol, sem hafi 2,6 milljón sinnum meiri massa en sólin. Nú er talið, að fyrsta beina sönnunin fyrir svartholinu liggi fyrir. Í grein, sem birtist í dag í vísindatímaritinu Nature eftir Frederick Baganoff og samstarfsmenn hans við Tækniháskólann í Massachusetts, segir, að Chandra, rannsóknastöð NASA, bandarísku geimvísindastofnunarinnar, sem er á braut um jörðu, hafi skráð mikla röntgengeislaspreng- ingu í október sl. og hafi hún komið frá bog- manninum. Varði hún aðeins í nokkrar klukkustundir en var 45 sinnum magnaðri en það geislaflóð, sem þaðan berst allajafna. 10 mínútna hlé Í greininni segir, að þetta sé óræk sönnun fyrir því, að mikið gas hafi sogast inn í svart- hol í miðju vetrarbrautarinnar. Segja þeir, að geislunin komi frá „dauðadæmdu“ efni á braut um svartholið, jónuðum ögnum, of- urheitum og þéttum, sem séu í þann veginn að hverfa inn í óskapnaðinn. Annað, sem þykir merkilegt, er, að geisla- sprengingin hjaðnaði um stund, í um 10 mín- útur, en hófst síðan aftur af sama krafti. Það þykir sýna, að upptaka hennar sé ekki að leita í þungum hlutum eins og til dæmis í tvístirn- um, sem hverfast um sömu miðju á lítilli braut, heldur í gasi eins og fyrr segir. Tíu mínútna hléið gerði einnig vísindamönnunum kleift að reikna út umfangið og reyndist það vera 150 milljón km eða rúmlega fjarlægðin milli jarðar og sólar. Samkvæmt afstæð- iskenningunni er það svartholið eitt, sem get- ur þrýst saman svona miklum massa í jafn litlu rými. Talið er, að svarthol verði til þegar miklar stjörnur hafa brennt öllu eldsneyti sínu og falla saman eða hrynja inn. Þá verður til hlut- ur eða fyrirbæri með svo gífurlegt aðdrátt- arafl, að frá því sleppur ekkert, ekki einu sinni ljósið. Sú skoðun á líka vaxandi fylgi að fagna, að svarthol geti myndast úr gasi, sem þéttist og falli saman í miðju vetrarbrauta. Svarthol í miðri Vetrarbraut París. AFP. ÓTTASLEGNIR foreldrar skýla dóttur sinni þegar heimatilbúin rörsprengja springur á Ardoyne- vegi í Belfast í gærmorgun. Lög- reglumaður slasaðist í sprenging- unni. Lögreglan stóð vörð á Ardoyne á meðan kaþólskum börn- um var fylgt í Holy Cross- stúlknaskólann, en sambandssinnar mótmæltu því að börnin fengju að fara þessa leið og voru það sam- bandssinnar sem köstuðu sprengj- unni í gær. Þrír menn voru hand- teknir í tengslum við sprenginguna. Reuters Sprenging í Belfast Thule-stöð- in skoðuð Kaupmannahöfn. AFP. BANDARÍSKIR sérfræðingar eru væntanlegir til Grænlands í dag til að leggja mat á hvort bandarísk ratsjár- stöð í Thule verði nýtt í tengslum við þau áform stjórnvalda vestra að koma upp varnarkerfi gegn eldflaug- um. Þetta kom fram í fréttum dönsku sjónvarpsstöðvarinnar TV2 í gær. Mogens Lykketoft, utanríkisráð- herra Danmerkur, sagði í umræðum á þingi á þriðjudag að bandarísku sérfræðingarnar myndu dvelja í fimm daga á Grænlandi í þessu skyni. Danir hafa ekki viljað láta uppi af- stöðu stjórnvalda til eldflaugavarna- áætlunar ríkisstjórnar George Bush Bandaríkjaforseta fyrr en formleg fyrirspurn hefur borist í þá veru. „Við höfum enn ekki tekið afstöðu til áætlunarinnar en hún gæti annað- hvort getið af sér nýtt vopnakapp- hlaup eða reynst einn mikilvægasti gjörningur á vettvangi afvopnunar- mála, sem sögur fara af,“ sagði Lykketoft. Skilyrði Motzfeldts Jonathan Motzfeldt, formaður grænlensku heimastjórnarinnar, hef- ur sagt að binda beri hugsanlega notkun Thule-stöðvarinnar þremur skilyrðum. Í fyrsta lagi verði tryggt að Grænlendingar taki þátt í samn- ingaviðræðum Dana og Bandaríkja- manna. Í öðru lagi liggi fyrir að Rúss- ar samþykki eldflaugavarnaáformin og breytingar á ABM-sáttmálanum um takmarkanir gagneldflaugakerfa. Í þriðja lagi vill Motzfeldt tryggingu fyrir því að notkun ratsjárstöðvar- innar í þessu skyni feli hvorki í sér út- gjöld fyrir Grænlendinga né um- hverfisspjöll. Motzfeldt hefur sagt að hann sé andvígur hverjum þeim áformum, sem feli í sér hættu á að Grænland verði miðpunktur í „nýju köldu stríði“. Af þeim sökum leggur hann ríka áherslu á að samþykki Rússa liggi fyrir. Ratsjárstöðin í Thule var reist 1951 og var tilgangur hennar sá að fylgjast með aðgerðum Sovétmanna, sem bent gætu til þess að þeir hefðu í hyggju árás til vesturs. Stöðin hefur verið endurnýjuð og sinnir nú eftir- litshlutverki á norðurslóðum. Áform Bandaríkjanna um eldflaugavarnir BARÁTTAN um leiðtogasætið í ísr- aelska Verkamannaflokknum breyttist í lagadeilur í gær þegar annar frambjóðendanna, Binyamin Ben Elizer varnarmálaráðherra, full- yrti að brögð hefðu verið í tafli í leið- togakjörinu, sem fram fór á þriðju- dag, og krafðist endurtalningar atkvæða. Þegar búið var að telja 99% at- kvæða sem flokksmenn greiddu hafði Ben Elizer fengið innan við einu prósenti færri atkvæði en keppi- nautur hans, Avram Burg, forseti þingsins. Í gærkvöldi var tilkynnt að endanleg úrslit leiðtogakjörsins yrðu ekki tilkynnt fyrr en í dag. Ben Elizer hafnaði í gær þeirri niðurstöðu sem allt stefndi í og sagði hana „stórfellt stjórnmálahneyksli“. Krafðist hann þess að sett yrði á fót sérstök kjörnefnd til að rannsaka niðurstöðurnar og yrði dómari skip- aður í forsæti hennar. En kosningastjórar Burgs höfðu einnig fullyrt í gær að atkvæða- greiðslan hefði farið óeðlilega fram- þegar ljóst varð hversu mjótt yrði á mununum. Í herbúðum bæði Burgs og Bens Elizers kváðust menn hafa ráðið sér lögfræðinga og væru reiðu- búnir að kæra úrslitin. Kjósa þarf nýjan formann flokks- ins í stað Ehuds Baraks, fyrrverandi forsætisráðherra, sem sagði af sér leiðtogaembættinu eftir að hann galt afhroð í forsætisráðherrakosningun- um í febrúar sl. Ariel Sharon, for- maður Likud-bandalagsins, vann stórsigur í þeim kosningum. Shimon Peres, utanríkisráðherra í stjórn Sharons, hefur óopinberlega gegnt leiðtogahlutverkinu í Verkamanna- flokknum síðan Barak sagði af sér. Innan flokksins er litið svo á að af- staða Burgs til deilu Ísraela og Pal- estínumanna einkennist af hagsýni og hann er fylgjandi því að teknar verði upp viðræður við Palestínu- menn. Ben Elizer hefur aftur á móti hallast til hægri undanfarna mánuði og er talinn hlynntur þeirri harðlínu- stefnu sem Sharon hefur fylgt í deil- unni. Litlu munar í leiðtogakjöri ísraelska Verkamannaflokksins Ásakanir um svik Jerúsalem. AFP. LIONEL Jospin, forsætisráðherra Frakklands, lýsti því yfir í gær að Frakkar og önnur aðildarríki Evr- ópusambandsins (ESB) hygðust ganga út af ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um kynþáttafordóma ef aðrir þátttakendur væru staðráðnir í að senda frá sér lokayfirlýsingu þar sem síonisma, þeirri stefnu að gyð- ingar eigi sér þjóðarheimili í Ísrael, væri jafnað við kynþáttahyggju. Talsmaður forsætisráðherrans greindi frá þessu í París í gær og gat þess að haft hefði verið samráð við ráðamenn í öðrum ESB-ríkjum. Kvað hann ljóst að slík útganga myndi gera að verkum að ráðstefnan í Durban í Suður-Afríku mistækist algjörlega. Ráðstefna SÞ um kynþáttafordóma ESB hótar útgöngu París. AFP. ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.