Morgunblaðið - 06.09.2001, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BIRGIR Ísleifur Gunnarsson seðlabankastjóri
segist geta verið alveg sammála forsætisráðherra
um það að Seðlabankanum beri að líta fram á við
og ekki eingöngu aftur og hann telji Seðlabankann
að sjálfsögðu gera það, en ofangreind ummæli
komu fram í Morgunblaðinu í gær eftir fund for-
ystumanna ríkisstjórnarinnar með aðilum vinnu-
markaðarins. Birgir segir að vextir verði lækkaðir
þegar Seðlabankinn telji forsendur til þess.
„Það vekur hins vegar athygli mína að einmitt í
þessum sömu fréttum er aðaláhyggjuefnið, sér-
staklega launþegasamtakanna, verðbólguþróunin
og hvaða áhrif hún muni hafa á ákvarðanir þeirra
um hvort segja eigi upp launalið samninganna í
febrúar eða ekki og það er einmitt það sem við er-
um að horfa á til framtíðar, að létta þessum
áhyggjum af launþegasamtökunum,“ sagði Birgir
Ísleifur.
Seðlabankinn hefur spáð því
að verðbólga muni minnka
Hann benti á að við hefðum verið í verðbólgu-
skeiði og Seðlabankinn spáði því að verðbólgan
myndi minnka. Sú spá byggðist á ákveðnum for-
sendum, sem greint hefði verið rækilega frá, og
Seðlabankinn ætlaði að reyna að gera sitt til þess
að þær forsendur stæðust, þannig að grundvöllur
væri fyrir lækkun verðbólgunnar og hættan
minnkaði á því að taka þyrfti upp kjarasamninga í
vetur. Liður í því væri hátt vaxtastig og það væri í
raun eina tækið sem Seðlabankinn hefði til að
stuðla að því að þessi spá gæti ræst. Birgir bætti
því við aðspurður að eins og stöðu efnahagsmála
væri háttað í dag færi það ekki saman að gera
kröfu um lága verðbólgu og lágt vaxtastig.
„Það hefur verið okkar mat að það fari ekki
saman. Á einhverju stigi gæti verið rétt að lækka
vexti, en við verðum þá að vera orðnir sannfærðir
um að það hafi ekki verðbólguhvetjandi áhrif,“
sagði Birgir Ísleifur.
Hann sagði að það væri alveg deginum ljósara
að Seðlabankinn héldi ekki vöxtunum hærri en
hann teldi þörf á. Háir vextir hefðu engan tilgang í
sjálfu sér og þeir yrðu lækkaðir þegar Seðlabank-
inn teldi forsendur til.
Birgir Ísleifur Gunnarsson seðlabankastjóri
Vextir lækkaðir þegar
forsendur eru til þess
GYLFI Arnbjörnsson, hagfræðing-
ur og framkvæmdastjóri ASÍ, segir í
viðtali í nýjasta tölublaði Vinnunnar,
að háir vextir séu í rauninni farnir að
halda uppi og ýta undir verðbólgu,
fremur en að draga úr henni. Gagn-
rýnir hann vaxtastefnu Seðlabank-
ans harðlega og segist hafa áhyggjur
af að bankinn sé að verja sjálfstæði
sitt sjálfstæðisins vegna.
Í ályktun miðstjórnar ASÍ í gær er
þess krafist að vextir verði lækkaðir
í fáum en stórum áföngum.
Bankinn bítur í skjaldarrendur
til að verja sjálfstæði sitt
,,Við teljum reyndar [...], að þetta
háa vaxtastig sé farið að hafa áhrif á
verðbólgu, með þeim hætti að fyr-
irtæki þurfi að spenna upp verðlag á
vöru og þjónustu til að mæta
greiðslubyrðinni sem stafar af þess-
um háu vöxtum,“ segir Gylfi m.a. í
viðtalinu.
,,Við teljum okkur hafa reynslu af
því, m.a. þegar við fórum inn í „þjóð-
arsáttarsamningana“ 1990, að slíkt
samhengi sé til staðar. Við teljum
því, þvert ofan í það sem Seðlabank-
inn segir, að þetta háa vaxtastig sé
farið að leiða til aukinnar verðbólgu
fremur en að verið sé að draga úr
verðbólgunni með háu vaxtastigi.
Þetta er auðvitað grundvallarágrein-
ingur. Áhyggjuefnið er það, að þó
það sé mikilvægt að Seðlabankinn
hafi ákveðið sjálfstæði, þá er hann
orðinn talsvert mikið eyland í þess-
ari afstöðu sinni. Við höfum áhyggj-
ur af því að hann sé að verja sjálf-
stæði sitt sjálfstæðisins vegna. Hann
vilji ekki láta það sannast á sig að
hann láti undan þrýstingi og bíti þess
vegna í skjaldarrendur,“ segir Gylfi.
Í ályktun miðstjórnar ASÍ er lýst
þungum áhyggjum yfir stöðunni í
efnahagsmálum og horfum næstu
mánuði. Miðstjórn áréttar að nauð-
synlegt sé að grípa til aðgerða hið
allra fyrsta, ella sé hætta á sam-
drætti sem erfitt geti reynst að snúa
við. Lykilatriði í þeim aðgerðum sé
að vextir verði lækkaðir í fáum, en
stórum áföngum.
Gylfi Arnbjörnsson
framkvæmdastjóri ASÍ
Háir vextir ýta
undir verðbólgu
ÞAÐ geta víða leynst hættur eins og
þessi gimbur fékk að kenna á þar
sem hún lá algjörlega föst í gadda-
vírsflækju sem var vafin utan um
hálsinn á henni. Hún var svo heppin
að til hennar sást neðan frá þjóð-
veginum og því varð henni bjargað.
Þegar ekið var austur fyrir Höfða-
brekku í Mýrdal sást hún greini-
lega, þar sem hún lá í hlíðarbrún-
inni og hengiflug fyrir neðan.
Gimbrin hefur sennilega verið búin
að vera þarna í nokkra daga vegna
þess að grasið var allt nagað niður í
rót og hún lá á berri moldinni.
Lambið, sem er frá Kerlingardal í
Mýrdal, varð frelsinu fegið, þegar
búið var að klippa utan af því vírinn.
Lambi bjargað úr
gaddavírsflækju
Fagradal. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Jónas
ALÞJÓÐLEG ráðstefna um áliðnað
verður haldin dagana 25.–28. sept-
ember á Hótel Loftleiðum. Það eru
Iðntæknistofnun, Málmgarður og
breska fjölmiðlafyrirtækið DMG
sem skipuleggja ráðstefnuna.
„Á ráðstefnunni verða skautsmiðj-
ur álvera sérstaklega til umfjöllun-
ar,“ segir Birgir Jóhannesson hjá
Iðntæknistofnun. Einnig verður
rætt um tækjabúnað, gæða-, örygg-
is- og umhverfismál. Að sögn Birgis
hafa yfir 120 þátttakendur frá um 40
álverum víðsvegar að úr heiminum
þegar skráð sig til þátttöku.
Ráðstefnan er tvískipt, annars
vegar munu þátttakendur og fyrir-
lesarar koma frá álverum og hins
vegar frá fyrirtækjum er þjónusta
álver. Íslenska fyrirtækið Altech er í
þeirra hópi en það mun á ráðstefn-
unni kynna nýjung í áliðnaði í sam-
starfi við fyrirtækin Skyn ehf. og
DMM ehf.
Fulltrúar 40 álvera hingað til
lands á alþjóðlega ráðstefnu
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isÞriggja marka tap gegn
Írum í Belfast / B1
Fjölnismenn líklega með í Íslands-
mótinu í handknattleik / B1
4 SÍÐUR
Morgun-
blaðinu í
dag fylgir
blaðaukinn
Heimilið
2001.
16 SÍÐUR
Sérblöð í dag
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I , S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í F
Stækkun ESB veikir
samkeppnisstöðuna / C1
Sliga skuldirnar
skútuna? / C1
KONA á níræðisaldri var flutt
á slysadeild Landspítalans í
Fossvogi með höfuðáverka og
beinbrot sem hún hlaut er hún
féll á tröppu strætisvagns við
biðskýli í gær.
Slysið varð um klukkan 15 á
Hverfisgötu á móts við Þjóð-
leikhúsið þegar farþegar voru
að ganga inn í kyrrstæðan
strætisvagninn. Konan féll við
þegar hún steig fram af palli
sem biðskýlið stendur á, missti
jafnvægið og datt fram fyrir sig
án þess að geta borið fyrir sig
hendur. Í fallinu skall höfuð
konunnar á neðstu tröppu
vagnsins og rann hún undir
hann.
Að lokinni rannsókn á slysa-
deild var hún lögð inn á gjör-
gæsludeild til eftirlits í nótt.
Féll undir
kyrrstæðan
strætisvagn