Morgunblaðið - 06.09.2001, Qupperneq 6
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Í efsta sæti
í Noregi og
Danmörku
NÝJASTA breiðskífa Bjarkar Guð-
mundsdóttur, Vespertine, náði
efsta sæti í fyrstu viku á vinsælda-
listum í Danmörku og Noregi. Í Sví-
þjóð komst skífan í sjöunda sæti.
Vespertine situr í fyrsta sæti á
breiðskífulistanum í Frakklandi, á
Spáni og á Íslandi, í fjórða sæti í
Þýskalandi og áttunda sæti
breiðskífulista í Bretlandi. Ekki
voru komnar upplýsingar frá
Bandaríkjunum í gærkvöldi. Í
fyrrakvöld var Björk gestur í þætti
Davids Lettermanns.
Ásmundur Jónsson hjá útgáfu-
fyrirtækinu Smekkleysu, sem gefur
út breiðskífu Bjarkar hér á landi,
sagði að þær upplýsingar sem bor-
ist hefðu væru frá öllum stærstu
markaðssvæðum í Evrópu og staða
Bjarkar væri þar mjög góð. Það
gerði árangur hennar enn athygl-
isverðari að nú væru mjög margar
nýjar skífur að koma á markað víða
í Evrópu og mikil samkeppni væri á
markaðnum. Á topp 20-listanum í
Bretlandi væru til að mynda ellefu
nýjar útgáfur.
Ný breiðskífa Bjarkar
179 millj-
ónir til
Danmerkur
FYRSTI vinningur í Víkinga-
lottói, sem dregið var í í gær,
kom í hlut miðaeiganda í Dan-
mörku og hlaut sá rúmar 179,4
milljónir króna.
Heildarupphæð vinninga var
rúmar 185 milljónir króna og
heildarupphæð vinninga á Ís-
landi rúmar 5,5 milljónir króna.
JÓHANNES M. Gunnarsson,
lækningaforstjóri Landspítala –
háskólasjúkrahúss, segir að með
endurskipulagningu geðdeilda
spítalans sé ekki verið að vinna
hervirki á geðþjónustu spítalans,
eins og skilja mætti af orðum
Kristófers Þorleifssonar, geðlækn-
is og sérfræðings á Kleppsspítala.
Kristófer sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, miðvikudag,
að hjúkrunarplássum fyrir geð-
sjúka myndi fækka um 12–14 og
kannski enn meira með því að færa
geðdeildina úr Fossvogi í minna
húsnæði við Hringbraut. „Miðað
við þann plássafjölda sem hefur
verið í notkun að undanförnu, þá
er hreint ekki verið að fækka
plássum, heldur að fjölga um 3
pláss,“ segir Jóhannes. Hann segir
þann skoðanamun sem er milli
hans og Kristófers miðast við þann
plássafjölda sem húsnæði geð-
deildar spítalans leyfir án tillits til
þess hve mönnun á deildunum
leyfir mikla notkun. „En við höfum
engin tök á að reka slíkan fjölda
plássa vegna stöðunnar í ráðning-
armálum. Við erum að reyna að
nýta það pláss sem við höfum á
besta mögulegan hátt. Það er því
rangtúlkun að segja að verið sé að
fækka plássum í geðlæknisfræði,
enda er það alls ekki stefna spít-
alans.“
Ekki verið að vinna her-
virki á geðþjónustunni
STRÖNG öryggisgæsla er viðhöfð
hverja mínútu við hreinsun olíu úr El
Grillo á botni Seyðisfjarðar; allt
skipulag hefur öruggt yfirbragð sem
sést m.a. á störfum köfunarfor-
mannsins sem fylgist vökulum aug-
um með hverri hreyfingu kafaranna
neðansjávar á skjá í stjórnstöð.
Hann segist reyndar varla þurfa að
horfa á skjáina þar sem hann þekki
hvern kafara sinna á andardrættin-
um einum saman.
Stein-Inge Riise, verkefnisstjóri,
lýsti verklaginu á blaðamannafundi
að viðstöddum umhverfisráðherra,
Siv Friðleifsdóttur, yfir El Grillo í
gær, nú skyldi bora fyrsta stóra
dælugatið á olíutanka El Grillo en
hingað til hafa aðeins verið boruð
rannsóknargöt til að ganga úr
skugga um í hvaða tönkum finnist
olía. Riise sýndi á nákvæmri teikn-
ingu hvar tankarnir væru en teikn-
ing af systurskipi El Grillo er notuð
til hliðsjónar við borunina. Engin
teikning hafði áður fundist af skipinu
þar til Mikael R. Ólafsson hafði upp á
einni slíkri eftir mikla rannsóknar-
vinnu á stríðsminjasafninu í London.
Teikningin hefur síðan reynst
grundvöllur fyrir skipulagningu
hreinsunarinnar.
Ráðherra segir verkefnið
skipta alla Íslendinga máli
Lísa Leifsdóttir, nemi við grunn-
skólann á Seyðisfirði, studdi á
hnappinn til að hefja borunina og
sagði Siv Friðleifsdóttir, umhverfis-
ráðherra, það við hæfi að fá fulltrúa
ungu kynslóðinnar á Seyðisfirði til
að gangsetja verkið þar sem það
væri táknrænt fyrir framtíð staðar-
ins.
Siv sagði olíuhreinsunina vera
verkefni sem skipti alla Íslendinga
máli en ekki síst Seyðfirðinga sem
hafi af miklum dug þrýst á aðgerðir
og fylgt framkvæmdum verksins
þétt eftir. Siv sagði ráðuneytið hafa
átt afar gott samstarf við Ólaf Sig-
urðsson, bæjarstjóra Seyðisfjarðar,
en einnig hafi þingmenn Austur-
lands stutt ötullega við verkið.
Umhverfisráðherra kom fyrst að
flaki El Grillo haustið 1999, þá til að
skoða olíuleka úr skipinu. Í kjölfarið
var lagt til við ríkisstjórn að áætla
ástand skipsins, reyna að hefta þá-
verandi leka og meta hættuna á
mögulegu umhverfisslysi. Nú tveim-
ur árum síðar er þetta stærsta
mengunarforvarnarverkefni Íslend-
inga í fullri framkvæmd.
Ekkert forvarnarverk af þess-
ari stærðargráðu í Evrópu
Aðspurð hvernig henni litist á að-
stæður um borð sagði Siv að það
kæmi sér á óvart hversu tæknilegt
og vísindalegt starfið væri en fjar-
stýrður kafbátur myndar t.d. allar
aðgerðir neðansjávar.
,,Skipulagning er hér öll til fyrir-
myndar og greinilega búið að út-
hugsa framkvæmdina í minnstu
smáatriðum fyrirfram og farið er eft-
ir áætlunum í þaula. Það hefur ekk-
ert forvarnarverkefni af sambæri-
legri stærðargráðu verið unnið í
Evrópu áður en nú eru Norðmenn,
Danir og Svíar farnir að tala um að
hefja hreinsun á skipum sem sukku
við strendur þeirra í seinni heims-
styrjöldinni,“ sagði Siv og bætti við
að það væri því ánægjulegt að Ís-
lendingar hafi ráðist í hreinsun El
Grillo og þannig gerst frumkvöðlar
að frekari vinnu nágrannaþjóðanna.
Rúmar tíu mínútur tók að bora í
gegnum stálplötur olíutanks númer
þrjú á bakborða en loks sáust nokkr-
ir svartir olíudropar fljóta upp á yf-
irborðið áður en dælustúturinn var
festur við gatið. Tankurinn var nú
tilbúinn til dælingar og hefst sú
vinna af fullum krafti í dag.
Þess má geta að Grímur Eysturoy
kafari vann það þrekvirki fyrstur
manna að fara einn niður að flaki El
Grillo þegar hann fór tugi ferða á
sjötta áratugnum til að dæla 4.500
tonnum af olíu úr tönkum skipsins.
Grímur hafði aðeins frumstæðan
tækjabúnað sér til hjálpar og var
samkvæmt þeim viðbúnaði sem nú
er hafður við olíuhreinsun El Grillo
því 20 manna maki þar sem tuttugu
kafarar vinna nú sama verk með nýj-
asta hátæknibúnað við höndina. Ol-
ían sem Grímur náði úr skipinu var
notuð á fiskiskipaflota landsmanna.
Hafist var handa við olíuhreinsun úr El Grillo í Seyðisfirði í gær
Framkvæmd-
in úthugsuð í
smáatriðum
Morgunblaðið/Þorkell
Kafararnir hafa 5 mínútur frá því þeir koma upp á yfirborðið til að af-
klæðast búningnum og fara neðan þilja í afþrýstiklefa þar sem þeir að-
lagast yfirborðsþrýstingnum. Olíuhreinsun úr El Grillo hófst í gær.
Morgunblaðið/Þorkell
Stein-Inge Riise verkefnisstjóri sýnir Siv Friðleifsdóttur umhverfisráð-
herra hver verkframkvæmdin er, en hún er úthugsuð í smáatriðum.
Umhverfisráðherra boðaði til blaðamanna-
fundar á óvenjulegum stað í gær eða um
borð í skipi á miðjum Seyðisfirði. Tilefnið
var að hafist var handa við olíuhreinsun úr
flaki El Grillo. Jóhanna K. Jóhannesdóttir
og Þorkell Þorkelsson klæddust björg-
unarvestum og létu ferja sig út á fjörð og
um borð í fljótandi fundarsalinn.
jkj@mbl.is
♦ ♦ ♦
HJÓLREIÐAMAÐUR var fluttur
alvarlega slasaður á slysadeild Land-
spítalans í Fossvogi eftir að vörubif-
reið ók yfir hann á gatnamótum Urð-
arbrautar og Borgarholtsbrautar í
Kópavogi rétt fyrir kl. 8 í gærmorgun.
Tildrög slyssins voru þau að hjól-
reiðamaðurinn kom vestur eftir Borg-
arholtsbraut og lenti undir vörubif-
reiðinni, þegar henni var ekið af
Borgaholtsbraut inn á Urðarbraut.
Tvö hægri afturhjól vörubifreiða-
rinnar, sem er á sjöunda tonn að eigin
þyngd, fóru yfir manninn miðjan og
hlaut hann mjaðmagrindarbrot, en
var með meðvitund þegar hann var
fluttur á sjúkrahús þar sem hann var
lagður inn.
Lögreglan í Kópavogi lokaði slysa-
vettvangi á meðan hún athafnaði sig á
staðnum og hlutust af nokkrar um-
ferðartafir á meðan. Nokkur vitni
urðu að slysinu og var þeim bent á úr-
ræði í áfallahjálp.
Lenti undir
vörubifreið