Morgunblaðið - 06.09.2001, Síða 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001 13
Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt tækifæri á síðustu sætunum til
Costa del Sol, 20. september í eina viku. Þú bókar núna og 3
dögum fyrir brottför segjum við þér hvar þú gistir og að sjálf-
sögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra okkar allan tímann.
Verð kr. 39.985
Verð á mann miðað við hjón með
2 börn, 2–11 ára, flug, gisting og
skattar, 20. sept, vikuferð.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 49.930
Verð á mann miðað við 2 í
íbúð/stúdíó , 20. sept., vikuferð.
Aðeins 18 sæti
Stökktu til
Costa del Sol
20. sept. í viku
frá kr. 39.985
Verðdæmi
LEIKSKÓLINN Öldukot hefur
þurft að skerða viðverutíma barna
vegna erfiðleika við að ráða starfs-
fólk. Framkvæmdastjóri Leikskóla
Reykjavíkur segir þó að staðan í
ráðningarmálum nú sé miklum mun
betri en á sama tíma í fyrra.
Að sögn Freyju Kristjánsdóttur,
sem tekur við skólastjórn á Öldu-
koti í næstu viku, hætti um helm-
ingur af starfsfólki skólans störfum
í haust og ekki hefur gengið nægi-
lega vel að ráða nýtt fólk í þess
stað. „Við höfum haft það fátt
starfsfólk að við treystum okkur
ekki til að dreifa því starfsliði sem
við höfum á allan opnunartímann
sem annars er. Þessvegna höfum
opið frá 8 – 4 þannig að þau börn
sem eru í leikskólanum séu allan
tímann.“
Ný börn bíða eftir plássi
Hún segist telja að erfiðleikarnir
séu tímabundnir þar sem vel hafi
gengið að ráða starfsfólk en for-
eldrum var tilkynnt að skerti opn-
unartíminn myndi gilda í þessari
viku og næstu. „Við sáum fram á að
það yrði ekki minna en ég geri mér
sterkar vonir um að það dugi því
það er aðeins farið að tínast inn af
fólki núna,“ segir Freyja.
Á Öldukoti er dagvistarpláss fyr-
ir 38 börn en vegna manneklunnar
hafa ný börn ekki verið tekin inn í
skólann og því eru tæplega 30 börn
nú í skólanum. Freyja áætlar að
skerðingin snerti um 20 – 25 þeirra
fyrir utan þau börn sem bíða eftir
því að fá pláss í leikskólanum. For-
eldrar hafa þó tekið skerðingunni
afskaplega vel að sögn Freyju.
„Auðvitað veldur þetta sumum
þeirra amstri og ég hef mikla sam-
úð með því en þeir hafa greinilega
skilið að ekki var um annað að
ræða. Við þurftum að fara út í ein-
hverjar aðgerðir og við héldum að
það, að hafa opið næstum allan
daginn en samt ekki alveg allan,
myndi valda minna amstri fyrir fólk
en að loka suma daga,“ segir hún.
Bergur Felixson, framkvæmda-
stjóri Leikskóla Reykjavíkur, segir
að almennt sé miklu betra ástand í
ráðningarmálum í haust en í fyrra-
haust. Öldukot sé eini leikskólinn
sem hafi þurft að grípa til aðgerða
vegna manneklu. „Í sumar þegar
gerð var áætlun um starfsmanna-
þörf vantaði okkur um 200 starfs-
menn. Síðustu tölur núna benda til
þess að það séu um það bil 60 störf
sem við eigum eftir að fylla í og það
er heilmikið í pípunum því við erum
að ráða þessa dagana,“ segir hann
en um 1800 manns vinna alla jafna
hjá Leikskólum Reykjavíkur.
Hann segir það viðverandi
vandamál að alltaf vanti hóp starfs-
fólks á haustin. „Við erum með það
mikið af ungu fólki sem oft er að
prófa sig í faginu og vill kannski
fara í nám og svo framvegis,“ segir
hann.
Að sögn Bergs virðist vanda-
málið svolítið flytjast á milli skóla.
Þannig sé Öldukot alla jafna mjög
vel mannaður leikskóli. Að þessu
sinni séu ekki fleiri leikskólar sem
hafi lent í vandræðum enda hafi
verið komið í veg fyrir það með því
að taka ekki ný börn inn á sumum
stöðum.
Framkvæmdastjóri Leikskóla Reykjavíkur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Krakkarnir á Öldukoti virtust ekki hafa miklar áhyggjur af starfsmannamálum leikskólans í gær.
Mun betra ástand
en á síðasta ári
Skert viðvera
barna á Öldukoti
vegna manneklu
Vesturbær
svæði árið 1985. „Síðan í aðalskipu-
lagi sem samþykkt var árið 1990 er
þetta skilgreint sem athafnasvæði
með blandaða landnotkun sem er
iðnaður, verslun og þjónusta. Þannig
að ég sé ekki hvernig þetta fer á
skjön við núverandi drög að svæð-
isskipulagi.“
Hann segir að svæðisskipulagið
hafi átt að taka mið af gildandi skipu-
lagi á viðkomandi stöðum en bendir
jafnframt á að ekki sé búið að sam-
þykkja umrætt svæðisskipulag.
Tilheyrir ekki
„græna treflinum“
Varðandi athugasemdir um
„græna trefilinn“ segir Ármann að
hann taki yfir svæði sem ekki er þeg-
ar búið að skipuleggja. Þannig geti
umrætt svæði ekki tilheyrt honum.
Hann segir athugasemdirnar því úr
lausu lofti gripnar. „Menn geta haft
skoðun á því hvort þarna eigi að vera
eitt átta hæða hús eða ekki því það er
smekksatriði. En hitt er ekki
smekksatriði heldur er þar hreinlega
um rangfærslur að ræða.“
Hann segist þó ósammála því að
byggðin sé of háreist og í ósamræmi
við byggðina í kring. „Þá bið ég
menn um að stilla sér upp t.d. þar
sem hesthúsahverfið á bökkum
Elliðaár í Reykjvík er og horfa þarna
yfir og meta það hvort þetta sé í
miklu ósamræmi við blokkirnar í
Breiðholtinu. Hins vegar ef þú ert að
keyra veginn við Elliðavatn þá sést
þessi byggð mjög lítið vegna þess að
þetta er utan í hæðinni.“
Meiri mengun frá borginni
Ármann segist taka undir með
heilbrigðis- og umhverfisnefnd
Reykjavíkur um að það þurfi að fara
varlega varðandi lífríki Elliðaánna
og þess vegna hafi verið beitt var-
úðarnálgun við skipulag svæðisins.
„Við erum með settjarnir og dælum
burtu yfirborðsvatni þar sem þess
þarf og ef raunverulegur vilji borg-
arinnar er fyrir hendi þá hvet ég þá
til þess að fara að skoða það að setja
það yfirborðsvatn, sem nú rennur
beint í Elliðaárnar frá þeim, í sett-
jarnir eða dæla því í burtu. Sömu-
leiðis viljum við mjög gjarnan koma
að því að kanna hversu hollt það er
fyrir Elliðaárnar að hafa áburðar-
verksmiðju og sementsverksmiðju í
ármynninu, að hafa steypustöð og
sundlaug við ána fyrir utan sorp-
hauga og sorpmóttöku, hesthúsa-
byggð, malbikunarstöð og skipa-
höfn. Þetta eru orðnar svo miklar
öfgar og ef maður setur hlutina í
samhengi er alveg ljóst að okkar
byggð með settjarnir þýðir mun
minni mengun fyrir Elliðaárnar en
það sem fer út í ána núna.“
ÁRMANN Kr. Ólafsson, formaður
Skipulagsnefndar Kópavogs, segir
um rangfærslur að ræða hjá Skipu-
lagsnefnd Reykjavíkur þegar hún
heldur því fram að deiliskipulag at-
hafnasvæðis í Vatnsendahvarfi sé í
ósamræmi við svæðisskipulag höfuð-
borgarsvæðisins.
Morgunblaðið greindi í gær frá at-
hugasemdum skipulagsyfirvalda
borgarinnar þar sem kom fram að
þau teldu deiliskipulag Vatnsenda-
hvarfs vera á skjön við samþykktir
um að ekki verði byggt á „græna
treflinum“ svokallaða sem umlykur
borgarlandið. Þá er það gagnrýnt að
með deiliskipulaginu sé gert ráð fyr-
ir verslunar- og þjónustukjarna, sem
ekki sé gert ráð fyrir í svæðisskipu-
laginu.
Ármann segir svæðið hafa upphaf-
lega verið skilgreint sem iðnaðar-
Formaður skipulagsnefndar Kópavogs vegna athugasemda borgarinnar um deiliskipulag
Svæðisskipulag tekur
mið af öðru skipulagi
Vatnsendi
HUGMYNDIR eru uppi um að rífa
Klettshúsið svokallaða í Hafnarfirði
og byggja upp á nýtt meðfram Vest-
urgötunni. Tillögur þess efnis voru
ræddar í Skipulags- og umferðar-
nefnd Hafnarfjarðar í vikunni.
Um er að ræða bygginguna þar
sem Vélsmiðjan Klettur var eitt sinn
til húsa. Í bréfi eiganda er óskað eftir
afstöðu skipulagsyfirvalda og bæjar-
ráðs til málsins.
Fram kemur í fundargerð nefnd-
arinnar að hún sé jákvæð gagnvart
erindinu og leggur hún til við bæj-
arráð að umsækjanda verði heimilað
að vinna áfram að tillögunum sem
yrðu grundvöllur fyrir breytingu á
deiliskipulagi lóðarinnar.
Fulltrúar minnihlutans í nefndinni
sátu hjá við afgreiðsluna og bókuðu
að umrætt svæði væri hluti af mun
stærri einingu sem enn ætti eftir að
deiliskipuleggja en til hefði staðið að
hefja vinnu við deiliskipulag Norð-
urbakka/Miðbæjar í fyrra. Þá væri
rétt að fá umsögn faghóps um húsa-
verndun í Hafnarfirði um breytinga-
tillöguna á Vesturgötunni.
Góð tenging við eldri byggð
Í bókun meirihlutans segir að til-
lagan byggist á ágætri tengingu við
eldri byggð og falli vel að fyrirhug-
uðu opnu byggðamynstri á Norður-
bakka. Svæðið sé hluti af eldra deili-
skipulagi miðbæjarins og því ekki
nauðsynlegt að spyrða það við deili-
skipulag Norðurbakka.
Klettur verði rifinn
Hafnarfjörður
Skipulag við Vesturgötu til umræðu